Alþýðublaðið - 06.09.1996, Blaðsíða 8
MHMBLMB
Föstudagur 6. september 1996
133. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Dularfullir atburðir ítengslum við bæjarmálapólitíkina í Hafnarfirði
ætla engan enda að taka
Falsaðar heimildir?
Ómar Smári Ármannsson:
Þessi fundur sem tilgreindur
er var aldrei haldinn.
,J>að er spuming hvort þið eruð með fax
eða eitthvað slíkt þar sem hægt er að sjá
hvaðan þetta kemur. Hugsanlega er ástæða
til að skoða það nánar,“ sagði Ómar Smári
Armannsson rannsóknarlögmaður og bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins í Hafnarfírði í sam-
tah við Alþýðublaðið í gær. Hann var spurð-
ur ráða hvemig best sé snúa sér þegar blaða-
mönnum em fengnar falsaðar heimildir í
hendur.
Á dögunum barst Alþýðublaðinu og DV
fundargerð þar sem segir að Ellert Borgar
Þorvaldsson og Jóhann Bergþórsson, á fundi
með fulltrúum Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði, hafi lagt drengskap sinn við að þeir
mættu til meirihlutasamstarfs með hreint
borð og að málaferlum á hendur Jóhann
væri lokið. Nú hefúr Alþýðublaðinu borist
harðorð yfirlýsing undirrituð af öllum bæjar-
fulltrúum meirihlutans í Hafharfirði þar sem
staðhæft er að þessi fúndagerð sé fölsuð.
„Þessi fundur sem tilgreindur er, var
aldrei haldinn," segir Ómar Smári. „Hins
vegar var haldinn fundur með bæjarfulltrú-
um Alþýðuflokksins á þessum degi. Þar var
lagt fram minnisblað en kom ekki til af-
greiðslu né umræðu á fundinum. Jóhann og
Ellert funduðu aldrei með okkur þennan
dag. Hluti af þvf sem þama kemur ffam voru
minnispunktar eins bæjarfulltrúans og ég
sagði ffá í leiðréttingu. En það minnisblað er
ekki þessi svonefúda fundargerð þannig að
hún kemur annars staðar ffá og er heimatil-
búin. Við höfum enga slíka fundargerð undir
höndum."
Ómar segir ekki gott að segja hver hafi
hag af því að koma þessum tilbúningi á
ffamfæri og kveður það af og ffá að dagsetn-
ingin hafi skolast til. „Nei, efnislega hefur
þetta aldrei komið til umræðu á fundum hjá
okkur og enginn kannast við það. Þetta kom
mér alveg á óvart. Ef ég átti að vera á fundi
þennan dag þar sem þetta efni átti að koma
til umfjöllunar þá hafði það bara alveg farið
ffamhjá mér. Óg þegar við fórum að bera
saman bækur okkar kom í ljós að þessi
fundur hafði aldrei verið haldinn. Þetta er
allt mjög einkennilegt."
Þegar Alþýðublaðið og DV vitnuðu í
þessa fundargerð á sínu tíma leitaði Ómar
Smári til blaðanna, og Sigurdór Sigurdórs-
son á DV sendi Ómari Smára þau gögn sem
hann hafði undir höndum, en um er að ræða
skjöl sem föxuð vom til fféttastofanna. ,,Þá
sá ég náttúrlega að þetta stóðst engan veginn
og var sent frá tilteknum stað, sé miðað við
faxnúmerið á því blaði sem Sigurdór hafði
undir höndurn."
Ómar Smári á býst ekki við að farið verði
útí frekari aðgerðir vegna máls þessa. Aðal-
atriðið sé að koma leiðréttingunni á fram-
færi.
Leiðrétting á ítrekuðum
rangfæslum!
í Alþýðublaðinu og DV hefur því ítrekað verið haldið fram, að
blöðin hafi undir höndum fundargerð frá fundi bæjarfulltrúa
ALþýðuflokksins og tveggja bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
þeirra Jóhanns G. Bergþórssonar og Ellerts Borgars Þorvalds-
sonar. meint fundargerð er sögð vera frá fundi þessara bæjar-
fulltrúa þann 22.06.1995.
í tilefni af þessum fullyrðingum blaðanna viljum við undirrit-
uð taka skýrt fram eftirfarandi:
a) enginn fundur var með þessum bæjarfulltrúum nefndan
dag og því engin fundargerð rituð;
b) tilvitnanir blaðanna í þessa meintu fundargerðfrá fundi
sem ekki var haldinn eru undirrituðum bæjarfulltrúum frma-
andi staðleysa;
c) Alþýðublaðið og DV hafa hamrað á þeirri firru að í meintri
óundirritaðri fundargerð frá fundi sem ekki var haldinn hafi
bæjarfulltrúarnir Jóhann G. Bergþórsson og Ellert Borgar Þor-
valdsson lýst yfir að viðlögðum drengskap, að öllum mála-
rekstri á hendur Jóhanni og fyrirtækjum hans væri lokið.
Fundargerð sú, sem blöðin telja sig hafa undir höndum, er
fölsuð og slíkt hið sama gildir um allar staðhæfingar um
drengskaparheit bæjarfulltrúanna. Þeir hafa engin slík heit
unnið í núverandi meirihlutasamstarfi enda engin ástæða ver-
ið til né nokkru sinni eftir því gengið.
Fölsun meintrar fundagerðar er alvarlegt mál og gefur vissu-
lega tilefni til að grennslast fyrir um
uppruna hennar.
Núverandi meirihlutasamstarf byggir
á trausti milli aðila!
Þetta tilkynnist yður og jafnframt að
þér komið þessari yfirlýsingu á fram
færi með áberandi hætti í blaði yðar.
Hafnarfirði 03.09.1996.
Ingvar Viktorsson
Jóhann G. Bergþórsson
Valgerður Guðmundsdóttir
Ellert Borgar Þorvaldsson
Tryggvi Harðarson
Árni Hjörleifsson
Ómar Smári Ármannsson
Musteri rettlððtisins VIQt-.- Margt fyrirmenni var samankomid þegar nýtt hús
Hæstaréttar var vígt með pompi og prakt í gær. Hér heilsast þeir Ólafur Ragnar Grímsson forseti
og Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra; Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú og Haraldur
Henrýsson forseti Hæstaréttar fylgjast með. A mynd. E.ói.
Flokksstjornarfundur
Flokksstjórnarfundur Alþýðuflokksins
verður haldinn í Rúgbrauðsgerðinni laugardaginn 7. september
frá kl. 10.00 til 13.00. Fundurinn er lokaðurfjölmiðlum.
Dagskrá
1. Þingflokkur jafnaðarmanna
2. Undirbúningurflokksþings
3. Önnur mál
Jón Baldvin Hannibalsson formaður
■ Áskrifstofunni
Ljósritaðir
rassar
Umfangsmikil könnun var gerð á
högum skrifstofukarla í tímaritinu
For Him Magazine og Virman, blað
ASI, fjallar um það í nýútkomnu
hefti. Þítr eru ýmsar athyglisverðar
niðurstöður kynntar. 56% skrifstofu-
karla finnst launin mikilvægust,
30% starfið og 6% starfsfélagamir.
Helstu áhyggjur skrifstofukarla eru
þær að verða reknir eða 38%. 25%
óttast að gleyma einhverju mikil-
vægu, 14% óttast að vera ekki nógu
góðir í starfi en aðeins 2% óttast að
hafa ekki nóg að gera.
Könnunin leiðir það í ljós að 38%
hringja eitt til tvö persónuleg símtöl
í vinnutímanum, 7% allt að sjö per-
sónuleg símtöl en 35% segjast aldrei
hringja persónuleg símtöl, Ivið fleiri
skrifstofukarlar nota ekki bindi í
vinnunni sem kemur ekki á óvart en
heil 50% viðurkenna að hafa logið í
atvinnuumsókn sinni. 5% víla ekki
fyrir sér að segjast gera það aftur ef
á þurfi að halda.
Einkalífið var einnig tekið fyrir.
Þriðjungur segist stundum eiga sér
kynóra um samstarfskonumar, 11%
segjast stundum hugsa til þeirra á
þeim nótum en meirihlutinn, 56%,
segir slíkt aldrei koma fyrir. 24%
segjast hafa sængað hjá vinnufélaga
og 8% sögðust hafa iðkað ástarleiki
á sjálfri skrifstofunni. Rúmur helm-
ingur sagðist aldrei hafa mætt tirnbr-
aður til vinnu, 33% í eitt til tvö skiþti
( mánuði, 9% allt að fimm sinnum
en 5% sögðust hafa mætt oftar en 6
sinnum timbraðir til vinnu.
Að endingu er svo afhjúpað vin-
sælt tabú: 2% viðurkenndu að hafa
ljósritað á sér afturendann eða aðrar
„leynda líkamshluta" á skrifstofunni.