Alþýðublaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 11. september 1996 Stofnað 1919 135. tölublað - 77. árgangur
■ Bæjarmálapólitíkin í Hafnarfirði
Kratar leiddir
til slátrunar
- segir Erlingur Kristensson
stjórnarmaður í Alþýðuflokks-
félagi Hafnarfjarðar og hyggst
segja sig úrflokknum.
„Meðan þetta ástand ríkir kem ég
ekki nálægt þessu. Ég er að segja
mig úr Alþýðuflokknum í Hafnar-
firði,“ segir Erlingur Kristensson
stjómarmaður í Alþýðuflokksfélag-
inu. Hann hefur verið virkur í
flokksstarfinu og meðal annars verið
formaður FUJ, formaður Alþýðu-
flokksfélagsins og varabæjarfulltrúi.
Erlingur er mjög óánægður með
meirihlutasamstarf Alþýðuflokks og
Jóhanns Gunnars Bergþórssonar og
Ellerts Borgars Þorvaldssonar og
segir svo vera um fleiri.
„Sláturtíðin er hafin og einhver
misskilningur virðist í flokknum um
hverju og hverjum eigi að slátra.
Upp til sveita eru blessuð lömbin
leidd til slátrunar en hér í Hafnar-
■ Lausn deilu ríkisins við heilsugæslulækna í
sjónmáli
Jafnslæmt að detta af
fjórðu hæð niður á aðra
„eins og af annarri hæð niður
á jörð." - segir Gunnar Ingi
Gunnarsson og að það bæti
ekki kjör sem eru fyrir neðan
allt velsæmi að skerða kjör
heilsugæslulækna.
„Kannski tognar eitthvað úr þess-
um sólarhring, en sá skilningur sem
ég hafði er hinn sami í dag,“ segir
Gunnar Ingi Gunnarsson, formaður
samninganefndar heilsugæslulækna,
sem í gær lét hafa eftir sér að lækna-
deilan myndi leysast innan sólar-
hrings. Ekkert bendir til annars en að
lausn sé nú sjónmáli, eftir að heilsu-
gæslulæknar lögðu fram tilboð sem
að mati Gunnars Inga er líklegt til að
falla iíkisvaldinu í geð.
„Tilboðið byggist ekki einungis á
hugmyndum um að hækka föst laun,
heldur er verið að tala um iangtíma-
afgreiðslu. Við lögðum fram hug-
mynd sem á sennilega stóran þátt í
því að deilan leysist, en frekari upp-
lýsingar get ég ekki gefið núna,“
sagði Gunnar Ingi. Alþýðublaðið
hafði einnig samband við fjármála-
ráðuneytið en á ríkisstjómarfundi í
gær var fjallað um deiluna. í fjár-
málaráðuneytinu vörðust menn allra
frétta enda deilan á viðkvæmu stigi.
Gunnar Ingi vildi ekki tjá sig ffek-
ar um hvað felst í hinum nýju tillög-
um, en sagði þó: „Varðandi umræð-
una um kjör lækna get ég sagt að þær
upphæðir sem hafa verið nefndar eru
fyrst og fremst mælikvarði á vinnu-
framlag, en heilsugæslulæknar vinna
meira en flestir aðrir háskólagengnir
opinberir starfsmenn. Hvað varðar
skerðingu á kjörum lækna, og það
hvemig læknar upplifa skerðinguna,
þá vil ég benda á að það er jafnslæmt
að detta af fjórðu hæð niður á aðra,
eins og af annarri hæð niður á jörð.
Við höfum aldrei haldið því fram að
ekki séu til aðrir sem búi við slæm
kjör, en að skerða kjör okkar enn
fremur er ekki framlag til þess að
betmmbæta þau kjör sem við vitum
að em fyrir neðan allt velsæmi.“
Þegar Gunnar Ingi var spurður
hvort hann teldi að fjarvera Ingibjarg-
ar Pálmadóttur hefði flýtt fyrir lausn
málsins sagði hann: „I heilbrigðis-
ráðuneytinu hafa menn reynt að hafa
áhrif á gang mála, en ég vil ekki á
þessu stigi gefa ráðherranum eih-
kunn, hvorki háa né lága.“
ftrði em það einstaka kratar."
Erlingur segist ekki vera á leið-
inni í annan flokk. „Það skýtur
kannski skökku við að vera að yftr-
gefa skipið þegar þau mál sem mað-
ur hefur lengi barist fyrir, það er að
segja sameining og samvinna fé-
lagshyggjufólks virðist í sjónmáli,
en andinn og eitrið hér í Hafnarfirði
núna er slíkt að ég þrífst ekki f slíku
andrúmslofti,“ segir Erlingur. Hann
segir reyndar allan málatilbúnað
slíkan að Hafnarfjarðarbrandaramir
séu tómt píp miðað við stjóm bæjar-
ins. Erlingur segist nú hugleiða að
gefa út bók fyrir jólin: „Það tíðkast
hjá pólitíkusum hér í Hafnarfirði.'
Bókin á að íjalla um sukk og svínarí
og titillinn verður Litlu lömbin leika
sér.“
Þessir ungu piltar gengu erinda galiabuxnabúðar í rigningunni í gær. Upp
og niður Laugaveginn örkuðu þeir og hlýtur þetta að teljast nýstárleg
auglýsingatækni en ekki fylgir sögunni hvort félagarnir voru í buxum
undir skiltunum eður ei. A-mynd E.ÓI.
„Eitt kvöldið settist ég í
stól með pípuna og las
bókina. Þá kom sú hugsun
til mín, að þetta væri bók
fyrir íslendinga.“
Pétur Gunnarsson á blaðsíðu 6
„Fyrst og fremst eiga
menn að berjast fyrir því
að skapa nýjar ímyndir en
ekki að reyna að berja nið-
ur með banni þær gömlu.“
Silja Aðalsteinsdóttir á blaðsíðu 5
„Ég hef ekki prókúru í bók-
menntum en ég ætla hins-
vegar að gerast svo djarfur
að halda því fram að sagan
sem hélt mér vakandi
frameftir laugardagsnóttu
marki tfmamót."
Hrafn Jökulsson á blaðsíðu 2
„Ég held að meintur ras-
ismi bókarinnar hitti and-
stæðinga hennar beint í
hausinn."
Hallgrímur Helgason á blaðsíðu 5
■ Ríkisstjórnin fjallar um
tilskipun ESB um per-
sónuupplýsingar
Ósam-
rýman-
legar
reglur
- segir Ólafur Walter Stefánsson
skrifstofustjóri hjá Dóms- og
kirkjumálaráðuneyti.
„Ef markmið tilskipunarinnar er
skilgreint mun það vera tvíþætt: Ann-
ars vegar er stefnt að því að tryggja
einkalífsvernd og hins vegar að
tryggja að sú vemd standi ekki í vegi
fyrir ftjálsu streymi persónuupplýs-
inga á hinum innra markaði. Þessum
markmiðum, hvorum fyrir sig, er ver-
ið að reyna að ná en þetta em mark-
mið sem em í eðli sínu ósamrýman-
leg,“ segir Ólafur Walter Stefánsson
skrifstofústjóri hjá Dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu.
ESB hefur sett tilskipun um efni
sem varðar vernd einstaklinga við
meðferð persónuupplýsinga og flutn-
ing slikra upplýsinga. Um þetta var
meðal annars fjallað á ríkisstjómar-
fundi í gær. Tilskipunin tók gildi í
byrjun þessa árs og gert er ráð fyrir
því að þessi tilskipun muni falla að
EES samningi.
Að sögn ðlafs Walters em ótai að-
ilar sem halda persónulegar upplýs-
ingar svo sem bankar og Ríkisskatt-
stjóri svo eitthvað sé nefnt. „Það em
settar strangar reglur um þessa með-
ferð og með þessu er litið svo á að
einkalífsrétturinn verði tryggður að
því er varðar meðferð persónuupplýs-
inga og að sjónarmiðum um einka-
lífsvemd verði ekki beitt til að hindra
fijálst streymi upplýsinga."
Evrópusambandsríkin hafa þriggja
ára aðlögunartíma og það er gert ráð
fyrir því að sami tími verði fýrir EES
ríkin. Efni þessarar tilskipunnar og
hvernig hún verður aðlöguð innlend-
um lögum hefur verið sett á laggimar
sérstök nefnd til að fjalla um breyt-
ingar eða gera tillögur unr breytingar,
á lögum um skráningu frá 1989.
Nefndina skipa þau Sigrún Jóhannes-
dóttir, Þorsteinn A. Jónsson og Þor-
geir Örlygsson sem er formaður.
MA BJÓÐA ÞÉR í DANS?
• KENNSLA HEFST
MIÐVIKU DAGINN
11. SEPTEMBER.
Kántrýdansar,
Magarena og
allt það nýjasta
Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri
Systkinaafsláttur -fyrsta barnfullt gjald,
annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukacrfsláttur efforeldrar eru
einnig í dansnámi.
KENNSLUSTAÐIR
Reykjavík:
Mosfellsbær:
Innritun í síma 552-0345
frá kl. 17-22 í Brautarholti 4.
Suðurnes: Keflavík,
Garöur, Grindavík,
Sandgerði
Innritun í síma 426-7680
frá kl. 17-18
Samkvæmisdansar(suður ameriskir og standard)
Gömlu dansarnir - Disco - Tjútt og Rock'n Roll
Eriendir gestakennarar. Allir aldurshópar
INNRITUNARDAGUR
MÁNUDAGINN