Alþýðublaðið - 11.09.1996, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐK)
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
evrópusambandid
ISLAND OG EVROPUSAMBANDIÐ. 4.
HVAÐ ER AÐ GERAST
Á RÍKJARÁÐSTEFNUNNI
1996 OG ER EITTHVAÐ
AÐ ÓTTAST FYRIR OKKUR
ÍSLENDINGA KOMI TIL
AÐILDAR?
Með aðild að ESB (Evr-
ópusambandinu) ger-
umst við ekki áskrif-
endur að pakkalausn
á e&ahagslegri fram-
tíð þjóðarinnar eða þátttakendur í ferli
þar sem lausnin er fyrirfram gefin
okkur í hag. Öðru nær. ESB er sam-
hliða því að vera bandalag um sam-
vinnu og samræmingu í efnahagsmál-
um, ákveðið þróunarferli á flestum
sviðum manniífsins. í dag vitum við
ekki nákvæmlega hver þróunin verður
og langt í ífá em aðildarríki ESB sam-
mála um í hvaða átt skuli halda. Það
er því ráð að líta aðeins á hvert ESB
stefnir og hvað liggur fyrir Ríkjaráð-
stefnunni 1996. Vinnuáætlun ESB
fram til aldamóta sést í grófum drátt-
umí Töflul.
Eins og sést í Töflu 1 er búist við
því, að ráðstefnunni ljúki um mitt ár
1997. Breytingar á samningunum geta
leitt til þess, að fram þurfi að fara
þjóðaratkvæði í nokkrum ríkjanna.
Það gæti tekið allt upp í tvö ár frá lok-
um ráðstefnunnar. Sú staða, sem skap-
ast ef nýr sáttmáli fæst ekki staðfestur
í öllum ríkjunum mun breyta mynd-
inni mikið og spuming hvort einhver
ríkjanna sitji eftir en önnur auki sam-
vinnu sína enn meir en þegar er orðið.
Það sama gildir um nýju Evrópumynt-
ina. Hún er talin af sérfræðingum for-
senda þess, að innri markaður ESB
virki eins og til er ætlast. Með innri
markaði er átt við, að markaður allra
ríkjanna verði einn „heimamarkaður".
Til að ná því markmiði var gert sér-
stakt átak í afnámi landamæra- tækni-
legra- og skattalegra hindrana. í
tengslum við upptöku nýju myntarinn-
ar er sá galli, að fæst ríkin uppfylla
þær kröfur, sem gerðar eru og ljóst að
breyta þarf txmaáætlunum, minnka
þær kröfur, sem gerðar eru eða slá
henni alfarið á frest.
Fjárlög ESB eru gerð til 5 ára í senn
og þau næstu taka gildi árið 2000. Ef
ESB verður stækkað til austurs um
eða upp úr aldamótum munu fjárlögin
miðað við óbreytta stefnu þurfa að
vaxa langt umfram þol aðildarríkj-
anna, jafnvel hinna best settu. Fjárlög-
in, sem samþykkt voru 1995 námu
79.846 milljónum ECU. Þar af fóru
46.2% til landbúnaðarmála eða alls
36.897 milljónir ECU. Það býður
mikið uppbyggingarstarf í Austur-
Evrópu og miðað við óbreytta land-
búnaðarstefnu, þ.e., að þeir, sem fyrir
em haldi sínum ffamlögum, er ljóst að
auka þarf framlög til þessa þáttar til
mikilla muna. Greiðslugeta hirnia nýju
aðildarríkja er hins vegar ekki hin
sama þeirra, sem fyrir em. Þar skilur
himin og haf eins og sést í Töflu 2.
Það er öllum aðildarríkjunum ljóst
að breyta þarf lanbúnaðarstefnunni ef
ESB verður stækkað. Það hefur til
þessa reynst þrautin þyngri og ljóst, að
í hönd fer langt aðlögunartímabil, sem
kosta mun offjár. Það virðist því liggja
í augum uppi, að Ríkjaráðstefnan
verði að taka á málinu. Eins og mál
horfa nú er búist við því, að svo verði
ekki. Reynt verði frekar að leita sam-
komulags um landbúnaðarmálin til
hliðar við sjálfa ráðstefnuna eða jafn-
vel að fresta vandamálinu þar til síðar
enda önnur mál á ráðstefnunni, sjálft
samkomulagið um nýjan samning, svo
Tafla 3. HELSTU STOFNANIR ESB
Frkv.stjórnin Evrópuþingið
Setur fram tillögur. Samráð og með-
ákvörðunarréttur.
Getur sett frkv.stj. af.
Ráðherraráðið Evrópu- dóm- Endurskoðunar-
Ákvörðunar-taka. stóllinn rétturinn
(Lagasetning) Dæmir um brot á Hefur eftirlit með
samningnum og túlk- efnahag ESB og
ar hann. stofnana þess.
Tafla 4. ATKVÆÐISRETTUR OG LYÐRÆÐI.
Mannfj. í Fulltrúar í Fjöldi atkv. í Ibúar pr. Fjöldi þingm. á
milljónum framkv.stj. ráðherra- atkvæði í ráð- Evrópu- þing-
ráðinu herraráðinu inu
Þýskaland 81.2 2 10 8.120.000 99
Bretland 58.4 2 10 5.840.000 87
Frakkland 58.0 2 10 5.800.000 87
Ítalía 57 .2 2 10 5.720.000 87
Spánn 39.2 2 8 4.900.000 64
Holland 15.4 1 5 3.080.000 31
Grikkland 10.4 1 5 3.080.000 25
Belgía 10.1 1 5 2.020.000 25
Portúgal 9.9 1 5 1.980.000 21
Sviþjóð 8.8 1 4 2.2 00.000 19
Austurríki 8.0 1 4 2.000.000 21
Danmörk 5.2 1 3 1.730.000 16
Finnland 5.1 1 3 1.700 .000 16
írland 3.6 1 3 1.200.000 13
Lúxemb. 0.4 1 2 200.000 6
í allt 370.9 20 87 4.260.000 626
flókin og viðkvæm, að ekki sé á það
bætandi að ætla sér að klára landbún-
aðarmálin samhliða. En snúum okkur
að öðru.
Eitt af því, sem hæst hefur farið í
umræðu um hugsanlega aðild íslands
að ESB snertir lýðræðið innan þess og
stöðu okkar sem smáþjóðar. Þegar það
er skoðað er í upphafi rétt að líta á
dreifíngu valdsins innan ESB. I gróf-
um dráttum skipta stofnanir ESB
skipta með sér verkum eins og fram
kemur í Töflu 3.
í framkvæmdastjóminni ( komm-
ission ) sitja 20 framkvæmdastjórar og
skiptast þeir á milli ríkjaima eins og
ffarn kemur í Töflu 4. Aðalatriðið er,
að hvert ríki á a.m.k. einn fram-
kvæmdastjóra og stærstu ríkin eiga
tvo. Framkvæmdastjórarnir eiga að
vera hafnir yfir allt hagsmunapot og
vera fullkomlega óháðir í störfum sín-
um. Þeir hafa á hendi framkvæmdal-
ega yfirstjóm ESB og gera tillögur til
ráðherraráðsins en þar liggur kjarni
valdsins. Akvarðanir framkvæmda-
stjómarinnar eru teknar samhljóða.
Veigamikill hluti þróunar síðustu
ára er, að Evrópuþingið hefur fengið
meira hlutverk við ákvarðanatöku og
lagasetningu. Þó ráðherraráðið geti
hundsað vilja þess með því að af-
greiða mál einhuga er vægi þingsins
meira en það var áður og ljóst, að ekki
verður framhjá því gengið. Á þinginu
eiga sæti 626 þingmeim og sést skipt-
ing þeirra milli ríkja í Töflu 4.
í ráðherraráðinu sitja fulltrúar úr
ríkisstjómum aðildarríkjanna, einn frá
hveiju ríki og em þeir því 15. Fund-
imir em misjaftilega samsettir, allt eft-
ir því hvað er á dagskrá. Ef t.d. um-
hverfismál eru á dagskrá, þá hittast
umhverfisráðherrar ríkjanna. Megin-
reglan við afgreiðslu mála er, að öll
ríkin þurfa að vera sammála til þess,
að ákvörðun sé gOd og hafa ríkin því
neitunarvald hvert um sig. Reglan
sætir nú undantekningum og heimilt
að taka bindandi ákvarðanir með
auknum meirihluta þegar í hlut eiga
Tafla 1. GROF VINNUAÆTLUN FYRIR ESB 1996-2000.
Ríkjastefnan
Fjárlög ESB
Stækkun ESB
Hvar eru kosningar
Evrópu-myntin.
1996
Hófst 29.3
1997
Endar um mitt ár.
Viðræður og undirb.
Bretland
1998
Nýr sáttm. staðfestur
Viðræður og undirb.
Viðræður hefjast
Fra.,Þýsk., Danm.
Ákvörðun tekin um hverjir eru með.
1999 2000
AfgreiðslaNýtttíma-bil hefst.
Kosið til Evrópuþingsins. Ný framkv.stj valin.
Ný mynttekur við.
mál, er lúta að innri markaði ESB. í
því tilviki þarf að fara í gegnum flókið
samráðsferli með Evrópuþinginu. Ef
ekki gengur saman er meginreglan sú,
að ráðherraráðið ræður ef allir ráðherr-
amir eru sammála. Hver ráðherra fer
með misjaftilega mörg atkvæði í ráð-
inu en alls em atkvæðin í dag 87 (Sjá
Töflu 4). í þeim málurti þar sem kraf-
ist er aukins meirihluta þarf 62 at-
kvæði til þess, að tillaga teljisí sam-
þykkt. •• ' ufíö i
Að þessu sinni fjalla ég ekki- um
réttarkerfi ESB og geymi það þar til
síðar. Rétt er þó að geta þess, að Evr-
ópudómstóllinn í Luxemburg hefur á
mörgum sviðum verðið mótandi í lög-
gjöf ESB. Er nú svo komið, að dóm-
stóllinn hefur skilað frá sér skýrslu þar
sem hann hvetur til þess, að ráðherra-
ráðið taki í auknum mæli af skarið þar
sem ófyllt göt em í löggjöf sambands-
ins.
En lítum aðeins meira á lýðræðið. I
Töflu 4 er m.a. gerð grein fyrir „-
verði“ hvers atkvæðis í ráðherraráð-
Eins og staðan er núna þá er dag-
ljóst að vægi lítilla ríkja eins og Dan-
merkur og Luxemborgar er rnikið
samanborið við t.d. Þýskaland og
Frakkland. Þetta ójafnvægi hefur stóru
ríkjunum þótt ásættanlegt til þésSa þó
uppi hafi verið ágreiningur þar um.
Þegar staða íslands er metin vegna
hugsanlegrar aðildar er þó ekki hægt
að horfa á Töflu 4. Það er vegna þess,
að næsta stækkun ESB verður vænt-
anlega til austurs. Við það mun litlum
og meðalstórum ríkjum fjölga til mik-
illa muna og nokkuð ljóst, að valda-
hlutföllin munu raskast á kostnað
smáríkjanna. Eftir stækkun ( Austur-
Evrópuríkin, Kýpur og Malta ) yrði
staðan miðað við óbreyttar forsendur
eins og fram kemur í Töflu 5.
Samkvæmt þessu myndi aukinn
meirihluti í ráðherraráðinu eftir stækk-
un þýða 95 atkvæði af 134. Nóg er, að
40 séu gegn til að tillaga nái ekki fram
að ganga. Auðvelt er að sjá, að litlu
ríkin geta tekið sig saman og hindrað
framgang mála og eins, að ef þeir,
sem mest mega sín leggja saman þá
em völd þeirra umtalsverð. Ríkjaráð-
stefan 1996 þarf að taka afstöðu til
þessa og m.a. til þeirra þriggja spum-
inga sem koma fram í Töflu 6.
1) Ein hugmynd er sú að til þess að
tillaga teljist samþykkt þurfi annars
vegar meirihluta aðildarríkjanna, nú 8
Tafla 2. ÞJOÐARFRAMLEIÐSLA OG KAUPGETA. ( Byggt á World Bank Atlas 1995. Með nýjum samningsaðilum er átt við Búlgaríu, Kýpur, Eistland, Lettland, Litháen, Möltu, Póllánd,
Rúmeníu, Slóvakíu, Slóveníu, Tékkíu og Ungverjaland.)
Aðildarríki ESB
Nýir samningsaðilar
Mannfjöldi Þjóðarframleiðsla í US dollurum pr. íbúa 1993
370.9 milljónir 19.748 ( Hæst í Luxemborg 35.850. Lægst á Grikkl. 7.390 )
106.4 milljónir 3.059 ( Hæst á Kýpur 10.380. Lægst í Rúmeníu 1.120 )
Þjóðarframl. pr íbúa, kaupgeta reiknuð ■ ECU 1993
14.649 ( Hæst í Luxemborg 25.278. Lægst á Grikkl. 7.160 )
5.065 ( Hæst á Kýpur 13.250. Lægst í Litháen 2.420 )