Alþýðublaðið - 11.10.1996, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 11.10.1996, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 s k o ð a n i r MMDUBUBIB 21192. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Alprent Ritstjóri Hrafn Jökulsson Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason Umbrot Gagarín ehf. Prentun, ísafoldarprentsmiöjan hf. Rftstjórn, auglýsingar og drerfing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Tölvupóstur alprent@itn.is Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk Þekkir Þorsteinn Pálsson ekki verksvið sitt? Nú í vikunni ákváðu þrír dómarar að dæma unga stúlku í tveggja ára fangelsi. Dómurinn er óskilorðsbundinn. Stúlkan sem um ræðir var 18 ára þegar afbrotið var framið. Hún var ein Qög- urra stúlkna sem réðust á jafnöldru sína á Akranesi og veittu henni alvarlega áverka. Málið í heild er harmleikur: stúlkumar sem árásina gerðu vom ungar og undir áhrifum áfengis, fómar- lambið var um tíma milli heims og helju en góðar líkur virðast á fullum bata. Karlamir þrír sem skipuðu Héraðsdóm Vesturlands í máhnu kváðu upp einhvem þyngsta dóm sem íslensk stúlka hefur hlotið. Nokkxu áður en dómurinn féll hélt Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra ræðu þegar nýtt hús Hæstaréttar var vígt. Dóms- málaráðherrann komst í fréttir vegna þess að hann notaði tæki- færið og heimtaði þyngri dóma yfir ofbeldismönnum. Yfirlýsing- in kom í kjölfar þess að nokkrar alvarlegar líkamsárásir höfðu hlotið umíjöllun ijölmiðla, og var að því leyti dæmigerð fyrir þá stjómmálamenn nútímans sem elta umræðu fólks og reyna að gera almenningsálitinu til hæfis, Þorsteinn Pálsson virtist ekki átta sig á því, að með tilmælum sínum til dómstóla var hann að fara óralangt út fyrir verksvið sitt. Staðreyndin er nefnilega sú, að þótt Þorsteinn eigi að heita dómsmálaráðherra þá stjómar hann ekki dómstólum. Ein grand- vallarregla stjómarskrár íslands er sú, að dómstólar era sjálfstæð- ir. Þeir eiga ekki undir nokkram kringumstæðum að taka við til- mælum framkvæmdavaldsins. Dómstólar á íslandi eiga einvörð- ungu að styðjast við lög þegar dómar era kveðnir upp, og ef Þor- steinn Pálsson vill þyngri refsingar getur hann sem hægast flutt framvarp á Alþingi um þau efni. Stjómmálanienn á höttunum eftir stundarvinsældum mega aldrei raska sjálfstæði dómstólanna. Þessvegna var yfirlýsing Þorsteins Pálssonar sérlega óábyrg, og til marks um að dómsmálaráðherrann er sorglega illa upplýstur um hlutverk sitt. Um svipað leyti og unga stúlkan var dæmd í tveggja ára fang- elsi féll annar dómur. Þá var 33 ára karlmaður dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir. Allir vita hve væga dóma kynferðisafbrotamenn fá á íslandi. í gær var sagt ffá dómi Héraðsdóms Vesturlands yfir föður sem misnotaði fimm ára dótt- ur sína. Hann hlaut átta mánaða fangelsisdóm. Maður sem mis- notar bam sitt fær þannig miklu vægari dóm, en unglingsstúlkan sem gerðist sek um voðaverk í ölæði. Hin nöturlega niðurstaða dómsins er nefnilega sú, að verið er að eyðileggja líf þessarar stúlku. Hér er ekki verið að réttlæta afbrot hennar, en á öðram Norðurlöndum heyrir til undantekninga ef ungmenni era dæmd í langa fangavist. í Skotlandi tíðkast varla að dæma fólk á hennar aldri í fangelsi, nema um óvenju alvarleg afbrot sé að ræða. Skýr- ingin er einföld - fangelsisdómar yfir mjög ungu fólki era engin lausn. Þvert á móti: Þegar ungt fólk er dæmt útlægt úr mannfé- laginu með þessum hætti er fótunum kippt undan því, líf þess lagt írúst. Lögmenn urðu að vonum forviða yfir kröfúm Þorsteins Páls- sonar um aðrar og þyngri áherslur dómstólanna. I blaðinu í dag er rætt við þijá lögmenn sem allir gera alvarlegar athugasemdir við þetta tiltæki dómsmálaráðherrans. Ræða hans er sögð „óheppilegt blaður“ og ummæli hans ,Jíjánaleg“. Haraldur Blöndal hæstarétt- arlögmaður talar fyrir munn margra þegar hann segir: „Mér fund- ust ummæli ráðherrans mjög óvið'eigandi og óábyrg. Ef ráðherra telur refsingar of vægar á hann að leita til Alþingis um breytingu á lögum. Þorsteinn Pálsson á undir engum kringumstæðum að senda dómstólunum fyrirmæli.“ Bítla-kynslóð, XXX-Kynslóð BLES5AT1UR. MAÖtíd.ÉG VAR FARIWM Ab ^ SPRAoTA M'<5 FV^'R FERMINóU, EM eG SfFGl þAí> Pkkl , &G VAiC. ORExNM 15" þEGAC e& seldi pyrst.n. HH IQ.tQ.^t “Ég skelli skuldinni á skóiakerfið” sagði ein móðirin í þættinum um fíkniefnavand- ann. Þau sem áður gáfu skít í kerfið skella nú á það skuldinni. Það var upplifun að sjá viðtal við íslenska unglinginn í sjónvarpi í gærkvöld. Kastljósi var beint að fíkniefnavanda. 200 unglingar ofurseldir neyslu. Stúlkur að selja sig fyrir næstu sprautu, drengir að bijótast inn fyrir næsta skammt. Og móðirin góðlega Ólöf Rún að ræða við 16 ára fallega stúlku um árin hennar í dópinu. Vikupiltur r#r- Hallgrímur Helgason skrifar Og maður skildi varla helminginn af því sem stúlkan sagði. Viðtalið kalllaði á íslenskan texta, líkt og hin hljóðbrengluðu skuggamyndaviðtölin. Hér sat sjálfur „Papa X” heima í stofu (hjá mömmu) og skildi ekki kynslóði- na, ja...kynslóðina sem er nú reyndar meira XXX. Og ekki voru það orðin sem stúlkan notaði. Þetta var ekkert unglingamál þannig, ekkert slang, hel- dur framburðurinn, sem var alveg glænýr (reyndar skemmtilegur) og svo gjörólikur gamla jöklaframburðinum. Þetta hljómaði eins og „talverk” eftir eitt af okkar ástsælu samtímatónskáld- um. Tíminn líður sífellt hraðar, segja þeir. Nú er það ekki lengur spuming um hvenær fólk byijar að drekka og sofa hjá, 14 eða 15 eða 16 ára. Nú em unglingamir löngu búnir að afgreiða þann pakka, strax í ellefu ára bekk. Nú er þetta meira spurning um það hvenær fólk byrjar að selja sig og sprauta. Svo mæta þeir í sjónvarp- sþætti, nítján ára margnotaðar og uppþurrkaðar sálir og líta yfir farinn veg. Hljóma eins og fertugar farand- byttur. Bráðum fáum við að sjá við- talsbækur og ævisögur tvítugs fólks. „Maður er nefndur: Alma Hrund Viðarsdóttir úr Grafarvogi.” En afhverju fara unglingarnir í dópið? Enn og aftur. Enn og aftur hleypur heil kynslóð óð á spítti og extasí út á landsenda og kastar sér fyrir björg. „Af leiðindum” er sagt. Þeim leiðist. Útaf hveiju leiðist þeim? Nú þegar loksins er búið að afþreying- arvæða þjóðfélagið uppí topp og eilíf dagskrá í boði. Er sökin okkar? Emm við svona leiðinleg? Hafa unglingamir ekkert gaman af því að hlusta á okkur, lesa bækumar eftir okkur og horfa á bíómyndimar sem við emm að gera. Er kannski tími til kominn að gefa þeim orðið? Leyfa þeim sjálfum að njóta sín? Þetta hvarflaði að mér þegar mér í liðinni viku varð það á að opna fyrir útvarp; Ámi Þórarinsson að spjalla við einhvern af BÍTLAkynslóðinni og rifja upp gömul BÍTLAlög, og aftur daginn eftir; Ingólfur Margeirsson með fróðlegt erindi um sjálfa BÍTLANA, og daginn þar á eftir í sjónvarpi; Árni Þórarinsson í gamla BÍTLAbúningnum að rakka niður unglingamyndir (furðuleg þolinmæði hjá kvikmyndagagnrýnanda Dags- ljóss, að fara á allar þessar körfu- boltamyndir en leggja ekki í að dæma „Djöflaeyjuna”, kannski vegna þess að hún gerist á tímanum fyrir BÍTLANA?) og svo aftur daginn eftir; Árni Þórarinsson OG Ingólfur Margeirsson að ræða við Guðrúnu Pétursdóttur yfir flygli við undirleik sjálfs formanns BÍTLAVINA- FÉLAGSINS. Ég ætla ekki að fara að skella dóp- skuldinni á BÍTLANA eða vini þeirra hér uppá klakanum. En reyndar em nokkur líkindi með BÍTLA- kynslóðinni og XXX-kynslóðinni. BfTLAbörnin gerðu uppreisn gegn stöðnun og leiðindum viðreisnar- þjóðfélagsins, sem - ég viðurkenni það og man eftir: Þau leiðindi vom öllu mun massífari en nú þekkjast; þegar eina skemmtiefnið var hand- boltalýsing í útvarpi! Siggi Sig með „komiði sæl” og sjónvarpið fullt af Savanna-Tríói og aðal tilhlökk- unarefni vikunnar: „Munir og minjar” með Kristjáni Eldjám. Allt þetta dópuðu þau, hippamir í BÍTLAkynslóðinni, glæsilega ffá sér, köstuðu neftóbaksdósum fyrir sým í vör og fleygðu lýsispillum fyrir megadon eða hvað þetta hét. En.svo urðu þau leið á því, snem lífsflótta í sókn og bmtu sér leið til valda hvar hún situr nú, hin brátt gránandi '68- kynslóð; gömlu lsd-brýnin búin að hreiðra um sig í öllum valdastöðum þjóðfélagsins. Hvar sem borið er niður: Frá forsætisráðherra um ráðherrastóla uppí Efstaleyti og Lyngháls, niður á Laugaveg aftur og inní kvikmynda- sjóð iðnlánasjóð útfltningssjóð og allt hið sjóðandi kerfi: Alstaðar eru BÍTLAvinir við völd. Okkar góða þjóðfélagi er stjómað af BÍTLUNUM. Svona er ísland í dag, je je je. Og þeir verða þama lalt þar til þeira geta sungið „When I'm sixty four.” Kynslóðin sem varð sú fyrsta í mannkynssögunni til að uppgötva „kynslóðabil” hélt í sakleysi sínu að það yrði um leið það síðasta og þegar hún skildi hasspípuna eftir í her- berginu heima hjá pabba og mömmu á Lynghaganum og skeiðaði útá frama- brautina fór hún svo hratt að bömin duttu bara niður af þeim eins og tað úr hrossi og þau urðu eftir, hjá ömmu, hjá frænku, hjá dagmömmum, á dagheimilum, í forskóla, skóla og loks í unglingaathvarfinu og á Tindum. Atburðir dagsins 1256 Þórður kakali Sighvats- son lést í Noregi, 46 ára. Hann var goðorðsmaður af ætt Sturl- unga og valdamesti maður á fs- landi um miðja 13. öld. 1727 Georg II Bretakonungur krýnd- ur í Lundúnum. 1963 Frönsku listamennimir Edith Piaf og Je- an Cocteau deyja sama daginn. 1977 Opinberir starfsmenn í BSRB fóru í verkfall í fyrsta sinn. 1980 20 þúsund farast í jarðskjálfta í borginni E1 Asn- am í Alsír. 1986 Leiðtogafund- ur Reagans og Gorbatsjovs hófst í Höfða. 1988 Guðrún Helgadóttir kjörin forseti sam- einaðs Alþingis, fyrst kvenna. 1991 íslendingar urðu heims- meistarar í brids. Sigurlaunin voru Bermúdaskáldin góða. Afmælisbörn dagsins Elanor Roosevelt 1884, bandarískur rithöfundur og bar- áttukona fyrir mannréttindum; eiginkona Roosevelts Banda- ríkjaforseta. Francois Mauri- ac 1885, franskur rithöfundur og Nóbelshafi. Art Blakey 1919, bandarískur jazzisti. Vandi dagsins Vandinn að skrifa er í því fólg- inn að þegja yfir nógu mörgu. Halldór Laxness, Únguróg var. Vissa dagsins Þegar frá er talinn dauðinn og skatlurinn, á maður ekkert víst í heimi hér. Benjamin Franklin, 1706-1790. Annálsbrot dagsins f Múla við Kollafjörð deyði það sumar kona nokkur, hét Ragnhildur Steindórsdóttir, 101 árs. Andaðist önnur á Austfjörðum, stórt hundrað ára, hafði hún fengið nýjar, hvítar tennur. Mælifellsannáll, 1702. Málsháttur dagsins Þangað leitar ástin sem auður- inn er fyrir. Orð dagsins Ég er syngjandi sæll, eins og sjö vetrn bam. Spinn þú, ástin mín, ein lífs mms örlagagam. Stefán frá Hvítadal, 1887-1933. Skák dagsins Jagielski hefur hvítt og á; leik gegn Kohler. Hann lumar á lúmskri leið til að afvopna svartan umsvifalaust. Hvítur leikur og vinnur. 1. Bxd7+ Kxd7 2. 0-0-0+ og svarti hrókurinn er fallinn í val- inn. Góða helgi!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.