Alþýðublaðið - 11.10.1996, Side 7

Alþýðublaðið - 11.10.1996, Side 7
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 t Helgi Skúlason Kveðja Við kynntumst fyrst þegar ég var nemandi í Leiklistarskóla Is- lánds og þú, einn af bestu og reyndustu leikurum landsins, komst til að kenna okkur út- varpsleik. Við uppfull af hroka og yfirlæti lærlingsins sem allt veit og allt getur; þú þroskaður íhugull og fullur þolinmæði andspænis þessum bernsku snillingum. Okkur samdi nú ekki sérstaklega vel þá, báðir efalaust full homóttir til þess og ég illa móttækilegur fyrir því sem þú áttir að gefa. Sem betur fer áttu leiðir okkar eftir að liggja saman síðar, það er nýrri saga og mikið betri. Það var við uppsetningu á Marmara eftir Guðmund Kamban í Þjóðleik- húsinu í leikstjóm Helgu sem ég fékk tækifæri til að leika á móti þér. Þú í hlutverki Róberts, ég náinn vinur hans sem ég man ekki lengur nafh á, enda aukaat- riði. Þama kynntist ég þér sem mótleikara og fékk tækifæri til að fylgjast með vinnubrögðum þínum. Það var alvöru skóli. Fullkomin einbeiting og ein- lægni, á hverri æfingu gafstu þig allan; engar málamiðlanir þegar listin var annars vegar. Mér er enn í fersku minni bams- leg gleði þín þegar við á einni sýningu náðum nánari sam- hljómi en áður og baksviðs eftir sýningu notaðir þú tækifærið til að telja í mig kjark og benda á að um þetta snerist listin, hinn hreina tón. í ffamhaldinu unnum við síð- an saman að uppsetningu á Hver er hræddur við Virginíu Woolf. Örlögin höguðu því þannig að ég sat þar í leikstjóra- stól og þú varst að leika Georg. Kringumstæður vom erfiðar og vindar nokkuð stnðir í kring- um þessa uppsetningu og þú varst kjölfestan í því róti. Óþreytandi við að miðla reynslu þinni og skapfestu og eins og alltaf gekk listin fyrir öllu öðra, hið veraldlega basl varð að vfkja. Fyrir þetta tímabil hef ég aldrei þakkað þér sem vert væri og nú er það of seint. Og þó, með mér lifir minningin um stundimar sem við áttum saman í notalegu andrúmslofti leik- hússins á Akureyri, en fyrir hverja æfingu hittumst við á sviðinu, tveir einir, og fóram yf- ir stöðuna. Veltum fyrir okkur að hveiju við ættum að einbeita okkur á komandi æfingu og með hvaða hætti við gætum fág- að og slípað það efni sem við vorum með í höndunum. Á þessum stundum kynntist ég þér best, þú hallaðir þér útaf í sóf- ann og þinni djúpu röddu miðl- aðir þú mér þekkingu, reynslu, innsýn og hæfileikum sem þú hafðir þroskað í langri glímu við leiklistargyðjuna. Mér, hvítvoð- ungnum í listinni, sýndir þú jafnan fullkomið traust og komst fram við sem jafningja og ég kynntist því hversu annt þér var um að gera betur en vel, hin fínlegustu blæbrigði urðu að vera rétt. Þú spurðir, veltir upp nýjum möguleikum og á næstu æfingu kom það, hárfínar áherslubreytingar sem dýpkuðu og skerptu þann flókna persónu- leika sem þú varst að skapa. Og þú hættir aldrei, alltaf var hægt að bæta og alltaf varstu reiðubú- inn að hlusta. Auðvitað varstu ekki allra. Menn lítilla málamiðlana eru það sjaldan, allra síst þeir sem búa yfir skapríki og næmi hsta- mannsins. Þú barst ekki tilfinn- ingar þínar á torg en öllum sem kynntust list þinni mátti ljóst vera að deigla sársaukans var þér ekki ókunn og að þangað sóttirðu kraftinn sem þú áttir nóg af. Mér er hinsvegar minn- isstæðast hversu gjöfull þú varst, bæði sem listamaður og vinur. Fyrir það vil ég þakka. Nú þegar tjaldið er fallið að lokinni þessari sýningu vil ég trúa því að þú sért í önnum og þys baksviðs. Nú er farið yfir hvað betur mátti fara í kvöld og allt gert til að næsta sýning verði enn betri og glæsilegri, því eins og þú sagðir alltaf, áhorf- endur eiga aðeins skilið það besta. Arnór Benónýsson /ðublaðið • Sfl SS netin sendið okkur línu alprent(a)itn.is Bækur til sölu: Hádegisblaöiö 1-19,1940 (útg. Sig. Benediktsson), skb., Menn og menntir, 1.-4. bindi e. Pál Eggert Ólason, skb., Safn til sögu íslands og ísl. bókmennta 1-6, skb., Almindelig Kirke-Historie fra Christendommens först Begyndelse e. Ludvig Holber, útg. í Kh. 1738-1767, uppr. 1. alskinnband, Tímaritiö Hlín 1.-44. árg., ib., Saga mannsandans 1-5 e. próf. Ágúst H. Bjarnason, Árbók Feröafé- iagsins 1928-1937, allt frumpr., vandaö, handbundiö skb., allar kápur og augl. Ódáöahraun 1-3 e. Ólaf Jónsson, íslenzkt guilsmíöi e. Björn Th. Björnsson, vandað geitarskband, íslenskir oröskviöir, málgreinir, heiiræöi, fornmæli, snilli- yrði, sannmæli eftir Guömund Jónsson á Staðarstað, Kh. 1830, vandað geitarsk- band, Samtíðarmenn í spéspegli, frá hendi St. Strobls, sérútg. í 50 eint. á sér- stakan pappír, vandaö geitarskband, Salomonsens-Leksikon, 1.-26. bindi, skb., flott eintak, Faxi e. dr. Brodda og Fákur e. Einar Sæmundsen, í áföngum, hesta- málasaga Daníels í stjórnarráöinu, skb., Afmælisrit til dr. Einars Arnórssonar, skb., Bíldudalsminning um Pétur Thorsteinsson og konu hans e. Lúðvík Krist- jánsson, Skrá yfir bækur í Stiptisbókasafninu í Reykjavík 1874 (eina bókaskráin sem Landsbókasafn hefur út gefið um bækur landsins), Ein ungbarns blessun e. Eirík bónda á Brúnum, ib., Eyfellingaslagur e. sama, ób., Saga Reykjavíkur e. Klemens Jónsson. Árbækur Reykjavíkur e. Jón biskup Helgason, Supplement til islandske Ordböger III. deild, 1.-2. bindi kplt. e. dr. Jón Þorkelsson, Kennslubók í yfirsetukvennafræöi, 1886, skb., Sýslumannaæfir, 1.-5. bindi, vandað skinn- band, Deildartunguætt, e. Hjalta Pálsson, 1.-2. bindi, Læknablaöiö, 1.-55. ár- gangur, ib. og ób., Alþingishátíöin 1930, Lýöveldishátíöin 1944, Ævisaga Jós- efs Staiíns, fyrstu 50 árin (á rússnesku), viðhafnarútgáfa í alskinnbandi, Hlynur, tímarit samvinnumanna, 1.-19. árg., skb., Verk Leníns, 2.-45. bindi, Mein Kampf e. Adolf Hitler (á ensku), Jaröa- og búendatal í Skagafjaröarsýslu, 1.-4. bindi, ób., Vefnaöur á íslenzkum heimilum e. Halldóru Bjarnadóttur, Upptök sálma og sálmalaga á íslandi e. Pál E. Ólason, flestar bækur Guðmundar Finnbogasonar próf., ævisaga séra Árna Þórarinssonar e. Þórberg, 1-6, Vorlöng, afmælisrit til dr. Haraldar Sigurðssonar, Þorsteinskver, til Þorsteins Jósepssonar, Austantórur 1-3, skb. e. Jón Pálsson, Hestar og reiömenn á íslandi e. Schröder, frumútg., geitarskband, The Life og Jón Ólafsson (Indíafari) 1-2, Haklyut Society, Fisk- arnir e. Bjarna Sæmundsson, frumpr. og endurpr., Biblían 1866, skb., Frjálst verkafólk á íslandi e. próf. Guðbrand Jónsson, Minningarrit um Sigurö máiara Guömundsson, 1872, kápueintak, íslenzki þjóöbúningurinn e. Tryggva Magnús- son listmálara, Pýramídinn mikli e. Adam Rutherford, Símaskráin 1945-1946, Vinstri andstaðan í Alþýðuflokki 1926-1930, lokaritgerð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, borgarstjóra allra Reykvíkinga, Seld noröurljós e. Björn Th. Björns- son, Villigötur e. Jóhannes Birkiland, Jeppabókin 1946, Islands Kort e. Daniel Bruun, Fra Islands indre Höjiand e. sama, (ísl. Turruter nr. 4), ób., Gallastríöiö e. Julius Caesar, þýð. Páls Sveinssonar, Lággengiö e. Jón Þorláksson ráðherra, Annáll 19. aldar e. Pjetur Guðmundsson, Islands Kirke 1-2 e. Jón biskup Helga- son, ób., Ættarskrá Bjarna Þorsteinssonar í Siglufirði, ób., Völuspá, útg. Eiríks Kjerulfs, Þaö vorar um Austur-Alpa, lofgjörð Knúts Arngrímssonar um þriðja ríkið, íslenzkir hestar erlendis e. Guðm. Hávarðarson, Gömul, handrituö og skreytt stjörnuspádómabók (aldur óviss), Byssur og skotfæri e. Egil J. Stardal, gamall Grallari síðan 1756. Maöurinn er alltaf einn e. Thor Vilhjálmsson, Hamar og sigö e. Sigurð Einars- son, Ljóö Steins Steinarrs 1938, Spor í sandi e. sama, frumútg., 1940, Kvæöi Jó- hanns Jónssonar, útg. Halldór Laxness, Kvæðasafn Jóns Helgasonar, próf. í Kh., Heilög Kirkja e. Stefán frá Hvítadal, Gamlar geöveikisbakteríur e. Sigurð Z., Vinnukonurnar, leikrit e. Jean Genet, þýð. Vigdís Finnbogadóttir (leikarahandrit), Það blæöir úr morgunsárinu e. Jónas E. Svafár, frumút., ýmsar frumútg. bóka Davíðs Stefánssonar, Magnúsar Ásgeirssonar, Gríms Thomsens og ótal ann- arra skálda, Verkin tala e. Sigurð Z. ívarsson, Hvítir hrafnar, Ijóðabók Þórbergs Þórðarsonar, frumútg. ób. m.k., handrit eftir Þórberg Þórðarson, handrit bréfs frá Ólafi Jóh. Sigurðssyni, Engilbörnin e. Sigurbjörn Sveinsson, myndir e. Kjarval, Heyr mitt Ijúfasta lag e. Helga lyfsala Hálfdanarson, Stuölamál, 1.-3. bindi, ób.m.k. og ótal, ótál margt fleira nýkomið. Að Vesturgötu 17 í Reykjavík verzlum við með gamlar og nýjar bækur í öllum grein- um íslenzkra fræða og vísinda - auk fagurbókmennta í geysilegu úrvali. Við höfum pólitískar bókhnenntir fyrir vinstri intelligentíuna og hægri villingana, þjóð- legan fróöleik, ættfræöi og sögu fyrir fræðimenn og grúskara, Ijóð og skáldverk fyrir fagurkerana, bækur og rit um trúarbrögð og spíritisma og guðspeki fyrir leitandi sál- ir, svaðilfara- og ferðasögur fyrir ævintýramennina, afþreyingarbækur fyrir erfiðis- fólk, ævisögur erlendra stórmenna og íslenzks alþýðufólks fyrir upprennandi stjórn- málamenn og konur og erlendar pocket-bækur fyrir lestrarhestana. Kaupum og seljum allar bækur, gamlar og nýjar, heil söfn og stakar bækur og rit. Gefum út bóksöluskrár reglulega og sendum þær öllum sem þess óska. Vinsamlegast hringið, skrifið - eða lítið inn. Bókavarðan - Bækur á öllum aldri - Vesturgötu 17 S 552-9720

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.