Alþýðublaðið - 18.10.1996, Page 5
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
B5
Guðný Guðbjörnsdóttir alþingismaður
Þjóðfélagið logar
Markmið þessa kvótakerfis
hafa ekki náðst nema að
hluta, hvorki þau hagfræði-
legu, vistfræðilegu, eða félagslegu.
Þrátt fyrir vaxandi fiskveiðiarð á sér
enn stað mikil offjárfesting í sjávarút-
vegi og hann skilar sér illar til eiganda
auðlindarinnar. Þorskstofninn hefur
verið í mikilli lægð og tölur um brott-
kast eru skuggalegar. Þetta kerfi ffam-
leiðir óábyrga aðila, í viðleitni til að fá
sem mest fyrir aflann. Ný félagsleg skil
hafa myndast sem endurspeglast í orð-
um eins og sægreifar og leiguliðar sem
sýna breytt valdahlutföll. Skipstjórar og
sjómenn em hættir að vera hetjur þjóð-
arinnar, nú em það sægreifamir og fjár-
magnið. Fiskvinnslufólk, en þar em
konur stór hópur, hefur æ minni trygg-
ingu fyrir vinnu, því kvótinn hverfur úr
heilu byggðunum eða er keyptur af
hæstbjóðanda á markaði. Sjávarbyggð-
ir dafna eða deyja eftir því hvort kvót-
inn helst í plássinu eða ekki.
Mótsögnin milli 1. greinar laga um
stjómun fiskveiða sem kveður á um að
þjóðin eigi auðlindina og hveijir fara
með afnot kvótans í reynd verður sífellt
stærri, meðal annars vegna þess að
kvótinn er að færast á æ færri hendur.
Þetta hefur haft í för með sér langalvar-
legustu gagnrýnina á kvótakerfið,
nefnilega þá, að þrátt fyrir 1. grein laga
um stjóm fiskveiða um sameign þjóð-
arinnar, sé að myndast ígiidi eignaréttar
útgerðarinnar á kvótanum, sem farinn
sé að ganga í erfðir. Ef þetta er rétt
verður að stöðva þá þróun strax. Kvót-
anum er nú úthlutað til annarra en
þeirra sem raunvemlega stunda veiðar,
þar sem 78% af úthlutuðum veiðiheim-
ildum skipta um notendur vegna kvóta-
brasks, sölu eða leigu. Sægreifarnir
nota síðan fiskveiðiarðinn til að afla sér
veiðireynslu á úthafinu til að tryggja
sér rétt umfram aðra þar líka, eða njóta
arðsins sem þjóðin á að fá til eigin
nota.
Framsal á aflaheimildum sætir mik-
illi gagnrýni, réttlætiskennd fólks er
gjörsamlega misboðið, en um leið er
almennt viðurkennt að framsalið stuðl-
ar að aukinni hagkvæmni. Það hag-
fræðilega módel sem þetta kerfi byggir
á getur stuðlað að vaxandi fiskveiði-
arði, en það er siðlaust með öllu þannig
að allt þjóðfélagið logar. Þó það verði
að teljast löglegt þá er innbyggð mót-
sögn í lögunum um stjóm fiskveiða á
milli áðumefndrar fyrstu greinar laga
um sameign þjóðarinnar og þess að
myndast hafi kerfi sægreifa og leigu-
liða. Auður fárra leiðir ekki til al-
mennrar velsældar. Þetta kerfi stefnir
að auði fárra sægreifa á kostnað þjóðar-
innar sem á auðlindina, á kostnað
leiguliðanna sem hagnýta hana og of
oft á kostnað sjávarbyggðanna og fisk-
vinnslufólksins sem býr við miðin og
vantar atvinnu.
Óháð því hvort komið verði á veiði-
leyfagjaldi eða ekki hef ég ekki trú á að
það geti skapast sátt um þetta kerfi
óbreytt. Mögulegar leiðir til að sætta
þjóðina við kerfið em margar, til dæm-
is að kvóta verði úthlutað til byggða,
fiskvinnslu eða sjómanna, samanber
stefnu Kvennalistans og þær breytingar
sem Norðmenn em nú að gera á sínu
kerfi; að aliur fiskur fari á markað; að
munaðarlausum kvóta verði skilað og
endurúthlutað/boðinn upp af rikinu; að
taka í auknum mæli upp sóknarstýr-
ingu með eða án framseljanlegra sókn-
ardaga og svo framvegis. Því miður
virðist ekki vera pólitískur vilji hjá nú-
verandi ríkisstjóm til að fara út í slíkar
breytingar ef marka má landsfund
Sjálfstæðisflokksins og þá er eðlilegt
að spurt sé hvort taka eigi upp veiði-
leyfagjald í óbreyttu kerfi um stjóm
fiskveiða.
Sú þingsályktunartillaga sem nú
liggur fyrir frá þingflokki jafnaðar-
manna er um að tekið verði upp veiði-
leyfagjald í sjávarútvegi. Ekki er gert
ráð fyrir að stefnunni um stjóm fisk-
veiða verði breytt. Kvennalistinn hefur
samþykkt að taka beri upp veiðileyfa-
gjald í sjávarútvegi ef ekki næst fram
breyting á stefnunni um stjórn fisk-
veiða og því er ég sammála. Tilgangur
þess yrði þá fyrst og fremst að tryggja
að þjóðin sem á auðlindina njóti af-
rakstursins. Slík aðgerð gæti hins vegar
styrkt það sjónarmið að litið verði á
Guðný: Réttlætiskennd fólks er
gjörsamlega misboðið.
veiðiheimildir sem ígildi einkaeignar,
sem alls ekki má gerast. Því er ekki
sama með hvaða hætti veiðiieyfagjald
eða aukin skattheimta af notkun aulind-
arinnar yrði komið á. Slík aðgerð
myndi að mínum mati ekki lægja þá
djúpu undiröldu sem nú er að finna um
allt land vegna fiskveiðistjómunar, en
hún gæti orðið lyftistöng fyrir aðrar at-
vinnugreinar og stuðlað að því að gera
okkur minna háð auðhndinni í sjónum.
Sævar Gunnars-
SOn forseti Sjómanna-
sambands íslands
Verður
að afnema
leigufram-
salið
Helstu annmarkar á núverandi
kvótakerfi er frjálst framsal
aflaheimilda, eða leigufram-
salið eins og það er kallað. Það er
gjörsamlega vonlaust að búa áfram
við það kerfi eins og það er í dag.
Misnotkun útgerðarmanna á því er
takmarkalaus sem síðan er að ríða
aflamarksstýringunni til fjandans. Það
er engin spuming, að með því að af-
nema leiguframsalið væri hægt að
Sævar: Takmarkalaus misnotkun
útgerðarmanna á leiguframsali.
gera þetta kerfi viðunandi. Þá er ég
ekki að tala um að það verði bannað
að skiptast á veiðiheimildum sam-
kvæmt stöðlum Fiskistofu.
Það á ekki að taka upp veiðileyfa-
gjald við núverandi aðstæður. Það er
alveg skýrt í huga okkar í Sjómanna-
sambandinu að veiðileyfagjald ofan á
það veiðileyfagjald sem sjómanna-
stéttin er að borga útvegsmönnum í
dag gengur engan veginn upp. Við er-
um að borga stóra fjármuni í veið-
leyfagjald nú þegar og skattur ofan á
skatt gengur ekki upp.
"'QI
u
| % Qi ii li
wml "sfiB iWi iPlS
Bylting í fiskilínu:
DYNEX
Ofurlínan
- með auknum sökkhraða
Hampiðjan hefur langa reynslu í framleiðslu fiskilínu. Sjómenn þekkja
gömlu, góðu bláu línuna. Svo kom gráa línan, enn sterkari en sú bláa.
Síðan var unnt að velja um línu meo eða án sigurnagla.
Nú kynnir Hampiðjan til sögunnar enn eina nýjungina: Svörtu DYNEX
ofurlínuna.Línan er fléttuð úr Dyneemanofurþráðum og er með ásettum
sigurnöglum. Hún er fáanleg í tveimur styrkleikaflokkum og er allt að
fjórum sinnum sterkari en hefðbundin lína af sama sverleika.
DYNEX línan er þyngri í sjó en hefðbundin lína og sekkur því fyrr og
hraðar. Er þetta kostur þar sem dýpi er mikið.
7 mm DYNEX lína jafngildir 13-14 mm hefðbundinni línu að styrk. Hún
tekur því miklu minni straum á sig. Getur það skipt sköpum þegar línan
er lögo í þungan straum.
DYNEX línan hefur einnig komið mjög vel út sem færi. Færið rekur þá
minna, fljótlegra er að hífa og lftið fer fyrir því um borð.
Helstu kostir DYNEX línunnar:
■ Margfaldur styrkur
■ Sekkur hraðar
■ Rekur minna
■ Tekur minna pláss
■ Endist lengur
■ Aukinn hraði í drætti
HAMPIÐJAN
Bíldshöfði 9, 112 Reykjavík
Sími: 567 6868 Fax: 567 6209
11 Dyneenia er skrásett vörumerhi yfir UHMWPE þrœíi
frá DSM í Hollimdi