Alþýðublaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
5 n I
Hljómdiskaflóðið er að bresta á. Jakob
Bjarnar Grétarsson er að reyna að
átta sig á því hver staðan er og setti sig
í samband við stærsta útgefanda und-
anfarinna ára ítónlistargeiranum. Hann
komst meðal annars að því að jólaút-
gáfa Skífunnar með minna móti núna
Bubbive rður
sölu hæstur
-segir Aðalsteinn Magnússon plöggari Skífunnar.
Allar áttir
Bubbi Morthens
Skifan
Upptökustjórn:
Eyþór Gunnarsson
Helstu hljóðfæraleikarar:
Bubbi, Eyþór, Guðmundur Pétursson
(gítar), Eðvarð Lárusson (rafgítar),
Jakob Magnússon (rafbassi), Samuli
Kosminen (trommur).
Bubbi Morthens hefur í viðtölum
að undanförnu sagt að nýja platan
hans sé í ætt við Isbjarnablús, þar
megi finna sitt lítið af hverju: reggí,
rokk, ballöður... Bubbi lofar uppí
ermina á sér. Allar áttir er vissulega
fjölbreytt plata en hún er enginn
Isbjamablús. Isbjamablús var tímamó-
taplata, hrá og kraftmikil til samræmis
við það en Allar áttir sætir engum
viðllka tíðindum. Það þýðir þó engan
veginn að platan sé yond en þessi
samanburðurinn er Öllum áttum í
óhag.
Piskaspjöll |
Allar áttir ber sjóuðum tónlistar-
manni vimi, undirleikur er skotheldur
og Bubbi er í góðu formi, eins og
reyndar kom fram í nýlegum sjón-
vaipsþætti Hemma Gunn. Og það er
fagnaðarefni að Bubbi syngur enn um
málefni sem skipta máli. Fyrir ein-
hverjum áratug eða svo voru
Stalínískar hreinsanir í gangi í men-
ntakreðsunni og allir þeir listamenn
sem töldu sig hafa fram að færa ein-
hvern boðskap, einkum pólitískan,
voru teknir hreðjataki. Það er til
dæmis ár og öld síðan rithöfundar
hafa þorað að taka einhverja afstöðu
til samtímamála í verkum sínum því
engin skömm er einsog sú að vera
höfundur boðskapsbókmennta.
Rithöfundar eru í tilvistarkreppu en
ekki Bubbi. í einu af bestu lögum plö-
tunnar, Hverjum geturðu treyst, syn-
gur Bubbi hástöfum um getuleysi
íslensku prestastéttarinnar “hverjum
geturðu treyst, ef hirðirinn lömbin
burtu hrekur”. Hrollvekjandi er lagið
Hann elskar mig ekki sem fjallar um
sifjaspell og Alla daga er fallegur
ástarsöngur þar sem Guðmundur
Pétursson fer á kostum á klassískan
gítar. Textinn minnir á Forever young
eftir Dylan enda hefur Bubbi nappað
þar hendingu eða tveimur (“May our
wishes all come true”). Hins vegar er
Bubbi ekki eins sannfærandi þegar
hann syngur um vímuefnavandann í
Hvað er töff við það í snöru að hanga?
Það er mér minnisstætt þegar nokkrir
töffarar úr AA komu í Flensborg og
predikuðu öl er böl og það var sem
skrifað á ennið á öllum
framhaldsskólanemunum: Svona lan-
gar mig að verða þegar ég er orðinn
stór. Ég únynda mér að því sé svipað
farið með æskuna og Bubba. Astaiját-
ning hans til bóka í Ég elska bækur
verður svoldið kjánaleg (“hve lífið
yrði sorglegt er sjónvarp væri
eina/siglingin um hugans stóru úthöf’)
og þó enginn fslendingur nái reggíinu
eins vel og Bubbi þá er laglínan í Sá
sem gaf mér ljósið, lagi sem þegar
hefur öðlast talsverðar vinsældir, ergi-
lega silh'.
Það er ekkert í sjónmáli sem getur
skákað Bubba í plötusölu fyrir þessi
jól frekar en undanfarin ár. Og
aðdáendur Bubba kaupa ekki köttinn í
sekknum. Bubba fer stöðugt fram í
kveðskapnum án þess þó að það komi
niður á hreinskiptni hans - þó stundum
hlaupi hún með hann í gönur. Það er
helst að maður sakni frumleika í
lagasmíðum. Bubbi sýnir þó í síðasta
lagi plötunnar, Jarðarför Bjössa, að
hann er langt í frá staðnaður. Lagið er
með betri Bubba-lögum, hráslagalegur
en samt glaðvær textinn (talsvert áhri-
fameiri en Hvað er töff...) rímar ful-
lkomlega við skemmtilega Órlíens-
útsetningu.
Góðglaður gestur
í miðaldra fyileríispartý
Sígildar sögur
Brimkló
Skífan
Safnplata
Tónlistarmenn:
Björgvin Halldórsson, Arnar
Sigurbjörnsson, Ragnar Sigurjónsson,
Sigurjón Sighvatsson, Hannes J.
Hannesson, Haraldur Þorsteinsson,
Guðmundur Benediktsson, Magnús
Kjartansson og fleiri.
Skífan hefur nú gefið út safndiskinn
Sígildar sögur með hljómsveitinni
Brimkló sem inniheldur 20 lög af plö-
tunum Rock and roll öll mín bestu ár
(1976), Undir nálinrú (1977), Eitt lag
enn (1978) Sannar dægurvísur (1979),
Glímt við þjóðveginn (1981). Auk
þess er eitt nýtt lag á disknum sem
heitir Ef rótaramir kjafta nú frá. Útgá-
fan er hin vandaðasta og í ágætri grein
í fylgibæklingi upplýsir Jónatan
Garðarsson að hljómsveitin ætli að
koma saman á nýjan leik í tilefni þess
að 20 ár eru frá því að fyrsta platan
kom út. Væntanlega verður það á
Hótel íslandi. Sígildar sögur eru tilein-
kaðar öllum þeim seinþreyttu veg-
asöngvurum sem ferðast um Island
þvert og endilangt, ár eftir ár, og geta
aldrei hætt. Það er vel til fundið því
Brimkló gerði hraustlega út á sveita-
ballabransann á sínum tíma með
góðum árangri. Það var þá.
Brimkló er athyglisverð hljómsveit
í menningarsögulegu tilliti, eða ómen-
ningarlegu eftir því hvemig á það er
litið. Þeir urðu fyrstir íslenskra
hljómsveita að tileinka sér kántrítón-
list og með hana í farteskinu flengdust
þeir um sveitir landsins, milli þess
sem þeir spiluðu fyrir fullu Sigtúni.
Brimkló lifði það niðurlægingartíma-
bil íslenskrar tónlistar þegar halla tók
undan fæti hjá hljómsveitum og
diskóið tók öll völd. Fljótlega uppúr
því skáru pönkararnir herör gegn
diskóinu og gáfu reyndar einnig skít í
Brimkló í leiðinni. Þeim fannst sem
Bjöggi og félagar væru meira fyrir
það að elta smekk almennings en að
reyna að móta hann. Sjálfsagt er
nokkuð til í því.
An vafa verður þessi safndiskur
kærkominn þeim sem vilja upplifa
gamlar og sukkaðar minningar frá
Sigtúnsárunum. Þeir sem yngri eru
munu eftir sem áður líta á þá
Brimklóartöffara sem erki-skallapop-
para. Sjálfur hef ég alltaf efast um
gildi þess að hnoða saman einhvem
leir við erlend lög og setja á plötu. Af
þessum tuttugu lögum eru 12 af þeim
meiði. Merkilegri em frumsamin lög
eins og Færeyjar eftir Bjögga sjálfan,
Þjóðvegurinn eftir Magnús Eiríksson
og Herbergið mitt eftir Arnar
Sigurbjörnsson. Það má furðu sæta
hve menn vom latir að semja sjálfir á
þessum ámm en þeim mun iðnari að
taka upp vinsæl lög úr kananum og
klambra við þau texta. En það virkaði
víst enda munu hlustendur þekkja flest
laganna á Sígildum sögum. Þeim
hefur verið þraukað út í óskalögum
sjómanna og sjúklinga: Sagan af Nínu
og Geira, Síðasta sjóferðin, Stjúpi og
fleiri slík. Það má sjálfsagt alltaf deila
um hvemig lögum er raðað á safplötur
af þessu tagi. Það hefði óneitanlega
gefið gleggri mynd af þróun
hljómsveitarinnar ef lögunum hefði
verið raðað eftir aldri en þá er kannski
erfiðara að rökstyðja nauðsyn þess að
endurútgefa gömlu plötumar.
Dúndurdiskur
Djöflaeyjan
Tónlist úr kvikmyndinni
Umsjón og framleiðsla:
Björgvin Halldórsson
Útsetningar: Þórir Baldursson
Tónlistarmenn: Björgvin (söngur &
gítar), Þórir (hljómborð & bassi),
Vilhjálmur Guðjónsson (gítar), Einar
Scheving (trommur) og fleiri.
Þessi diskur kom mér vægast sagt á
óvart. Þama er um að ræða erlend lög
frá rokkabillí-tímabilinu og fyrirfram
kannski ekki við miklum tilþrifum að
búast. En smjer drýpur af hvuiju strái.
Bjöggi hefur þama unnið frábært verk
og tekur af öll tvímæli um hver er
king of rock&roll á íslandi. Hann er í
hlutverki hljómsveitarstjórans Bödda
Billó og finnur sig sannarlega í
hlutverkinu. Söngur hans er kraft-
mikill, befti en nokkm sinni fyrr og er
þá mikið sagt, og Bjöggi leynir á sér
sem gítarleikari. Bjöggi er á heimavel-
li og hvergi nærri dauður úr öllum
æðum. Spilagleðin er alls ráðandi hjá
hljómsveitinni og hljóðfæraleikaramir
fara á kostum. Vert er að vekja athygli
á Vilhjálmi Guðjónssyni sem fær sín
notið til fullnustu í gítarrokkinu. Hann
hefur lengi verið einn besti gítarleikari
„Við tökum enga sénsa og sjáum
framá þægileg jól. Við höfum meiri
tíma en oft áður til að fýlgja hveijum
titli eftir,“ segir Aðalsteinn Magnús-
son „plöggari" hjá Skííúnni í samtali
við Alþýðublaðið. (Plöggari er nýyrði
og notað um þann sem sér um að ota
ákveðnum afurðum að þeim sem
þykja geta haft áhrif á sölu hverju
sinni. Otari er kannski betra?) Aðal-
steinn segir að þó að útgáfan sé með
minna móti hjá Skífunni nú fyrir þessi
jól verði hún samt meiri í heildina en í
fyrra og þótti þó mörgum nóg um
fjölda titla þá. Astæðan er sú að það
eru fleiri sem reyna fyrir sér sem sjálf-
stæðir útgefendur en nokkru sinni fyrr
og Japis er stærsti dreyfingaraðili
diska hérlendis.
„Það er einhver stefna hjá þeim að
taka allt sem býðst þó að það sé ekki
mikið uppúr þessum dreyfmgarplötum
að hafa,“ segir Aðalsteinn.
Bubbi, Emilíana, Páll Óskar
og Brimkló?
Hljómdiskaútgáfan er að bresta á
þessa dagana og að sögn Aðalsteins
hefúr Skífan ætíð stefnt að því að vera
í fyrra fallinu. „Bubbi verður sölu-
hæstur. Það er engin spuming. Hann
fer í 10 þúsund eintaka. Emilíana
Torrini og Páll Óskar Hjálmtýsson eru
líklegust til að veita honum einhverja
keppni eins og í fyrra. Þá á ég von á
því að Brimkló verði á svipuðum
slóðum hvað sölu snertir. Þessar ljórar
plötur koma til með að eiga markað-
inn. Jú, jú, Farisear Davíðs Þórs Jóns-
sonar verða örugglega metsöluplata
líka - á sinn hátt,“ segir Aðalsteinn.
Hann hefur ekki trú á því að aðrir
blandi sér í baráttuna, telur til dæmis
ólíklegt að Todmobile sláist í þann
hóp. En það ber auðvitað að hafa í
huga að Skífan gefur Todmobile ekki
út. Þá er óvíst að þeir fjölmörgu sem
gefa plötur sínar út sjálfir séu reiðu-
búnir að skrifa undir topp 4 lista Aðal-
steins. Aðrir helstu útgáfuaðilar á ís-
landi eru Spor, sem er systurfyrirtæki
Skífunnar, Geimsteinn sem einnig er í
samstarfi við Skífuna og Smekkleysa
sem er í nánu samstarfi við Japis.
Útgáfa Skífunnar, endurút-
gáfa og dreyfing
Skífan gefur einungis út fimm plöt-
ur fyrir þessi jól. Þær eru Djöflaeyjan
- úr kvikmynd. Eins og nafnið bendir
til er þar um að ræða tónlistina úr
Djöflaeyjunni. Þar er Björgvin Hall-
dórsson atkvæðamikill því auk þess að
syngja um flest lög plötunnar sér hann
einnig um útsetningu. Þar er og að
landsins en hefur látið alltof lítið fyrir
sér fara. (Það kallast ekki að láta á sér
bera að vera stofustáss hjá Hemma
Gunn í Sjónvarpinu í einhver ár).
Þórir Baldursson hefur góðu heilli
ekki fiktað mikið við upprunalegar
útsetningar og tekist hefur að kalla
fram gamla góða sándið. Munurinn
felst í því að hljómsveit Bödda Billó
spilar lögin betur en orginalamir (sem
er afar sjaldgæft) og krafturinn er mun
meiri. Það eina sem hægt er að setja
útá er að það er fræðilega útilokað að
svona gott band hafi troðið upp í
Tjamarbúð hér í denn.
Gripið hefur verið til þess að taka
setningar úr myndinni og setja milli
laga. Það er óneitanlega sérkennilegt
finna nýtt lag eftir Björgvin sem heitir
,J>ig dreymir kannski engil“ sem er títt
spilað á útvarpsstöðvum um þessar
mundir. Björgvin er einnig aðalspraut-
an í Sígildum sögum, safndiski með
vinsælustu lögum hljómsveitarinnar
Brimkló sem gerði garðinn frægan á
8. áratugnum. Skífan er einnig með
Aðalsteinn Magnússon: Tökum
enga sénsa og sjáum fram á
þægileg jól.
Bubba Morthens á sínum snæmm en
frá honum er komin ný plata sem heit-
ir Allar áttir. Aðalsteinn heldur því
fram að Allar áttir sé besta og vandað-
asta plata Bubba í mörg ár. Karlakór-
inn Fóstbræður sendir frá sér plötu
núna í tilefni af 80 ára afmæli kórsins.
Platan heitir Ár vas alda. Að endingu
ber að nefna Pottþétt '96, „öll vinsæl-
ustu lög ársins 1996 saman komin á
einni tvöfaldir geislaplötu," segir Að-
alsteinn.
Endurútgáfa Skífunnar samanstend-
ur af tveimur plötum eftir Megas, Nú
er ég klœddur og kominn á ról og /
góðri trú. Þær plötur sem Skífan dreif-
ir eru: Jóhann Helgason KEF, Jetz
sem er hljómsveit Gunnars Bjama úr
Jet Black Joe og tvíburabræðra Mó-
eiðar Júníusdóttur, Kristinn og Guð-
laugur. Aðalsteinn segir að þar megi
heyra trippopp, hippopp og allar nýj-
ustu stefnur. Páll Rósenkrans, fyrrum
félagi Gunnars Bjama í rokkinu er á
öðm róli, en hann syngur á gospel-
plötunni Þú lifir ásamt öðm trúræknu
og söngglöðu fólki svo sem Sigríði
Guðnadóttur. Tryggvi Sveinbjömsson
er bóndi að austan sem gefur út eigin
tónlist, Geimsteinn gefur út 20 bestu
lög Gylfa Ægissonar, Mandala með
Trúbrot er endurútgáfa, Með stuð í
hjarta er plata með Rúnari Júlíussyni
og fleiri góðum, Rúnar Þór sendir frá
sér nýja plötu og Infemo 5 sendir frá
sér gjömingaplötu. ■
að heyra Gísla Halldórsson segja með
sínum hætti: “Hundrað krónur.
Gætirðu ekki komist af með eitthvað
minna?” á milli rokkarana Fiberglass
Jungle og All Shook Up en þetta venst
og virkar. Uppátækið kemur reyndar
frekar illa út fyrir Baltasar Kormák
því hann er eins og bleyjubarn í
samanburði við Bjögga í töffinu. Þetta
er gæjalegur diskur sem gengur upp:
Pulp-Langi-Fiction-Seli-Elvis-Hound-
Dog-Shadows allt í einum kraftmik-
lum kokkteil.
Þegar maður heyrir þessa gömlu
standarda, spila þessa gömlu standar-
da, áttar maður sig á því hvað það
hefur sorglega lítið gerst í poppinu
lengi. ■