Alþýðublaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 1
■ Guðmundur Árni Stefánsson gefur kost á sér til formennsku í Alþýðuflokknum Þurfum að móta framtíðarsýn fyrir nýja öld -segir GuðmundurÁrni, sem leggur megináherslu á sameiningarmál. Kveðst geta unnið með öllum forystumönnum Alþýðuflokksins. FLOKKSÞING „Ég hef að undanfömu rætt við fjöl- marga flokksmenn vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í flokknum. Mín niðurstaða er sú að ég geti komið að gagni við þá vinnu sem framundan er, og því hef ég ákveðið að bjóða mig fram til fomianns í Alþýðuflokknum," sagði Guðmundur Ami Stefánsson í gær, en þá efndi hann til blaðamanna- fundar og kynnti ákvörðun sína. f máli sínu lagði Guðmundur Ami megináherslu á tvennt. Annarsvegar yrði að styrkja innviði Alþýðuflokks- ins og byggja flokksstarfið upp, hins- vegar kvaðst hann ætla að leggja fram verkefna- og tímaáætlun um samein- ingarmál á vinstri væng, næði hann kjöri. Hann sagði að í þessu tvennu væru engar mótsagnir fólgnar, enda yrði Alþýðuflokkurinn að koma sterk- ur til viðræðna við aðra flokka og yrði ekki lagður niður á næshinni. „Ég vil sjá þróun til sameiningar á skipulegan hátt, frá einu sveitarfélagi til annars. Við þurfum að fara yfir málefnin frá A til Ö og móta framtíð- arsýn fyrir nýja öld,“ sagði Guðmund- ur Árni og lagði jafnframt mikla áherslu á að ungt fólk ætti að taka virkan þátt í mótun stórrar og öflugrar hreyfingar jafnaðarmanna. Þá kvað hann mikilvægt að jafnaðarmenn tækju höndum saman við verkalýðs- hreyfinguna til að hnekkja þeirri „þjóðarskömm“ sem lægstu laun væm. Guðmundur Ámi, sem varð 41 árs í gær, sagði tímabært að kynslóðaskipti yrðu í forystusveit Alþýðuflokksins. Undanfarin ár hefði yngra fólk tekið við forystu í öðmm stjómmálaflokk- um og eðlilegt að endumýjun ætti sér stað í Alþýðuflokknum líka. Hann kvaðst ekki búast við öðm en kosningabaráttan yrði drengileg, og að hann gerði sér góðar vonir um að hafa betur. Aðspurður kvaðst hann auð- veldlega geta starfað með öðrum í framvarðasveit flokksins, og nefndi - sérstaklega í því sambandi þá þrjá þingmenn aðra sem nefndir hafa verið sem eftirmenn Jóns Baldvins, þau Rannveigu Guðmundsdóttur, Sighvat Björgvinsson og Össur Skarphéðins- son. Guðmundur Ámi hefur verið vara- formaður flokksins í rúmlega tvö ár. Hann sagði ótímabært að svara því, hvort hann gæfi kost á sér í það emb- ætti aftur ef hann næði ekki kjöri sem formaður. „En ég mun taka niðurstöð- unni með bros á vör, hver sem hún verður. Minn tími í Alþýðuflokknum kom þegar ég var fimmtán ára, og hann er og verður þar,“ sagði Guð- mundur Ámi Stefánsson. ■ ■ Eystrasaltslöndin og NATÓ til um- ræðu á Alþingi Afstaða Halldórs ekki boðleg þinginu - segir Ossur Skarphéðinsson um „fslendingar eiga að styðja af öllu afli við óskir Eystrasaltsþjóðanna um skjóta inngöngu í Nató. Eg segi hins- vegar hreinskilnislega, að hin loðna afstaða sem birtist í ræðu utamíkisráð- herra er ekki boðleg þinginu. Ég full- yrði líka að hún er í trássi við vilja ís- lensku þjóðarinnar." Þetta sagði Össur Skarphéðinsson í snörpum umræðum sem urðu á Al- þingi í gær um stækkun NATÓ og óskir Litháa, Letta og Eista um að fá skjóta aðild að bandalaginu Össur minnti á, að formaður utanríkismála- nefndar, Geir H. Haarde, hefði skipt um skoðun síðan í fyrra, og styddi nú afstöðu jafnaðarmanna í málinu. En hægri menn í Norðurlandaráði, sem Geir veitir forstöðu, hafa lagt fram til- málflutning utanríkisráðherra. lögu þar sem hvatt er til að NATÓ veiti þjóðunum aðild. Halldór Ásgrímsson andmælti því að íslenska ríkisstjómin styddi Eystra- saltsþjóðimar ekki jafn dyggilega og í ráðherratíð Jóns Baldvins Hannibals- sonar, og hét því að áður en tekin yrði ákvörðun um afstöðu fslendingá fengi Alþingi málið til umræðu. Þessu fagn- aði Össur Skarphéðinsson, en innti Halldór eftir því, hversvegna forsætis- ráðherra hefði sagt opinberlega, að gengið yrði framhjá Eystrasaltsþjóð- unum þegar NATÖ verður stækkað á næsta ári. Halldór ítrekaði að ekki væri búið að ganga frá stækkun bandalagsins, og taldi að ummæli Davíðs hlytu að byggjast á persónu- legu mati hans. ■ ■ Undirbúningur fyrir Áramótaskaupið stendur nú yfir. Höfundar verða: Andrés.Friðrik, Hallgrímur, Orn og Siggi Ágúst Guðmundsson er umsjónar- maður næsta Áramótaskaups en hann vildi ekki gefa upp hveijir verða höf- undar, sagði einungis að það væru ýmsir kratar. Alþýðublaðið hefur hins vegar áreiðanlegar heimildir fyrir því að meðhöfundar Ágústs verði þeir Andrés fndriðason, Friðrik Erlingsson og Hallgrímur Helgason auk þess sem leikaramir Öm Ámason og Sigurður Sigurjónsson leggja til hugmyndir. Ágúst sagði í samtali við blaðið að hann myndi ekki skrifa mikið í þáttinn sjálfur - hann nýttist helst sem strokl- eður. í fyrra var Karl Ágúst Úlfsson einn höfundur en þá sá Ágúst einnig um skaupið. Kostnaðaráætlun er sú Sigurjóns sama og í fyrra eða 5,5 milljónir króna í auk annars kostnaðar Sjónvarpsins vegna tækja og fastráðinna manna sem koma að gerð þess. Ágúst hefur unnið að undirbúningi í mánuð en þetta er í þriðja skipti sem hann sér um skaupið. „Óneitanlega fylgir þessu talsverð pressa. Þetta er eina dagsrká ársins sem vitað er að allir horfa á og það er gríðarleg ábyrgð lögð á herðar þess sem stjómar gamninu," segir Ágúst. „Fólk ætlast til að þetta sé andstyggilegt en það má samt ekki vera of andstyggilegt. Hvað mega andstyggilegheitin ganga langt. Það er spumingin?" ■ Falla nú öll vötn til Dýrafjarðar. „Mun taka niðurstöðunni með bros á vor, sama hver hún verður." Guð- mundur Árni á blaðamannafundinum í gær. ■ Viðbrögð Jóns Baldvins gg Sighvats viðframboði GuðmundarÁrna Kvíði ekki úrslitum - segir Sighvatur. Jón Baldvin: drengilega fram." „Ef menn hafa áhuga á formennsku í stjórnmálaflokki og telja sig hafa nægan liðsstyrk þá er ofur eðlilegt að þeir gefi kost á sér,“ segir Sighvatur Björgvinsson um þá ákvörðun Guð- mundar Áma Stefánsson að gefa kost á sér til formennsku í Alþýðuflokkn- um. „Ég kvíði ekki úrslitum,“ sagði Sighvatur. „Ég gaf kost á mér til for- mennsku vegna þess að ég tel mig njóta til þess fýlgis." „Samstarfsmenn mínir em að sjálf- sögðu fijálsir að sínum athöfnum og „Vona að kosningabaráttan fari ég er nú ekki svo ráðríkur að ég ætlist til að allir sitji og standi eins og ég segi,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann var inntur álits á ákvörðun Guðmundar Áma, en Jón Baldvin hef- ur eins og kunnugt er lýst yfir stuðn- ingi við framboð Sighvats. „Úr því sem komið er læt í ég ljós þá frómu ósk að þessi kosningabarátta fari vel og drengilega fram og snúist hvorki upp í persónulegt skítkast né skilji eft- ir sig sár sem erfitt verði að lækna,“ sagði Jón Baldvin. ■ ■ fatnaður í miklu úrvali APPROyED DY CHILDREN Verslamr: Rollingar, Kringlunni • Bangsi, Reykjavík • Ejnbla, hafnarfirði • Amaró, Akureyri 5entrum, Egilsstöðum • Grallarar, Belfossi • Bláskel, ísafirði • Blómsturvellir, Hellissandi Úthafsveiðar kosta mörg mannslíf „Almenningur á rétt á að vita hvaða mannfórnir þessar veiðar hafa í för með sér. Ég hef hræðileg- ar áhyggjur af þessu ástandi," segir Ragnheiður Ólafsdóttir í samtali við Alþýðublaðið. Eiginmaður Ragn- heiðar er skipstjóri í Smugunni en hún segir að úthafsveiðar kosti mörg mannsh'f. ,JEg er með þingsályktunartillögu um þessi mál í smíðum,“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir alþingis- maður þegar Alþýðublaðið innti hana eftir því. „Mér finnst Sjó- mannasambandið hafa verið sof- andi í þessu máli,“ segir Ragnheið- ur. Sjá úttekt á blaðsíðu 5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.