Alþýðublaðið - 14.11.1996, Síða 1
Fimmtudagur 14. nóvember 1996 Stofnaö 1919 172. tölublað — 77. árgangur
■ Titringur í stjórnarliðinu vegna Lánasjóðs námsmanna
Þetta er stórt og alvarlegt mál
- segir Hjálmar Árnason þing-
maður Framsóknar. „Ráðherr-
ann er hlægilegur," segir Þóra
Björk Baldursdóttir, nemi með
tvö börn á framfæri. Hún fékk
5,5 í einu prófi og sjö í meðal-
einkunn, en fær ekki krónu í
námslán.
Nefnd sem menntamálaráðherra
setti á laggirnar um málefni Lána-
sjóðs námsmanna hefur ekki kom-
ið saman í þrjá mánuði sökum
ágreinings stjórnarflokkanna.
Framsóknarflokkurinn hafði mán-
aðarlegar greiðslur námslána sem
eitt af loforðum sínum fyrir síð-
ustu kosningar en fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks hafa verið ófáanlegir
til að ræða slíkt.
„Ég tel að það séu sterk rök fyrir
því að draga úr endurgreiðslubyrði
lána,“ segir Björn Bjarnason
menntamálaráðherra. „Én ég hef
ekki séð nein rök sem hníga að því
að það ætti að draga úr kröfum um
námsframvindu áður en til út-
greiðslu lána kemur.“
„Ég sagði í upphafi, þegar
nefndarstörf hófust, að veganesti
mitt væri að lækka endurgreiðslu-
hlutfall lána og taka upp mánaðar-
legar greiðslur," sagði Hjálmar
Árnason þingmaður en hann átti
sæti í nefndinni. „Ég tel að það sé
hægt að finna leið sem báðir aðilar
geta sætt sig við, ef vilji er fyrir
hendi. Ef hann er ekki til staðar
spyrjum við að leikslokum. Þetta
er alvarlegt mál, stórt mál og við
lögðum þunga áherslu á það. En
fæst orð hafa minnsta ábyrgð.“
„Lög og reglur Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna eru svartur
blettur á íslenska menntakerfinu
og í raun til háborinnar skammar,“
segir Þóra Björk Baldursdóttir
hjúkrunarnemi en hún lenti í því
að fá 5,5 á prófi í inngangi að
hjúkrunarfræði en sjö í meðalein-
kunn. Hún fær ekki krónu í náms-
lán er með tvö börn á framfæri:
„Ráðherrann er hlægilegur. Það er
eins og reglur um lánasjóð hafi
dottið af himnum ofan og hann
geti engin áhrif haft á þau. Hvem-
ig á ég að geta framfleytt börnun-
um mínum, borgað af þessu banka-
láni og um leið haldið áfram í
námi?“
Alþýðublaðið fjallar ítarlega
um þessi mál á bls. 4
■ Fleiri íslendingar börðust með nasistum en
almennt er talið, segir höfundur nýrrar bókar
Byggir meðal annars á ævi
Björns Sv. Björnssonar
Einar Björgvinsson: íslending-
ar í her nasista sem voru og
eru áberandi í þjóðlífinu.
„Það tóku miklu fleiri íslendingar
þátt í stríðinu með Þjóðveijum en al-
mennt er talið,“ segir Einar Björgvins-
son rithöfundur. Hann hefur sent frá
sér bókina fslendingur á vígaslóð í
Wajfen-SS, og er kveikja sögunnar í
ffásögn Bjöms Sv. Bjömssonar, sonar
Sveins Bjömssonar, sem var liðsmað-
ur í SS-sveitum nasista. Einar segir að
lesendur muni finna margt í bók sinni
sem má heimfæra til Björns Sv.
Bjömssonar, þó ekki sé um ævisögu
hans að ræða, heldur skáldsögu.
Einar segir að fjöldi Islendinga og
hafi verið í Þýskalandi þegar seinni
heimsstyrjöldin hófst árið 1939.
„Þessir menn tóku þátt í stríðinu en
það hefur ekki farið hátt. Meira að
segja menn vom menn í þýska ríkis-
hemum, sem vom og em áberandi í
íslensku þjóðlífi."
Bjöm Sv. Bjömsson, sem fyrir sjö
árum gaf út endurminningar sínar,
sagði í samtali við Alþýðublaðið í
gær, að hann hefði ekki heyrt af út-
komu bókarinnar og að höfundurinn
hefði ekki leitað til sín. „Nei, ég hef
ekkert heyrt um þetta. Ég er kominn
útúr öllu, orðinn 87 ára,“ sagði Bjöm.
Einar Björgvinsson segir að gífur-
leg heimildavinna liggi að baki bók-
inni, og er hann þegar byrjaður á
framhaldi sögunnar. Þá koma enn
fleiri Islendingar við sögu, segir hann.
Sjá viðtal á blaðsíðu 4.
Björn Sv. Björnsson með föður sín-
um, Sveini forseta, á Bessastöðum
árið 1947. Björn, sem á stríðsárun-
um var liðsmaður i SS-sveitunum,
flutti til Argentínu nokkru eftir að
myndin var tekin.
„Pólitískt lögheimili Davíðs Odds-
sonar er í herbúðum íhaldssamra
þjóðernissósíalista. Svo einfalt er
það nú.“
- Sjá leiðara.
Andri Snær Magnason - Bónus-
skáld.
Hámenningarvitinn Jakob Bjarnar
skrifar um Davíð og Marlon
Brando
Arabískt—íslenskt kvöld
Arabískt - íslenskt kvöld verður
lialdið á veitingastaðnum Mar-
haba, Rauðarárstig 37, fimmtu-
daginn 14. nóvember kl: 18- 21.
Matseðill:
15 arabískir réttir frá ýmsum
arabalöndum.
Skemmti- og menningaratriði:
KK leikur og syngur.
Ólafur Gunnarsson rithöfundur
les úr nýrri bók sinni.
Arabiskur magadans og fleira.
Verð með mat 1.400 kr.
Allir velkomnir.
Félagið ísland - Palestína
■ Alþýðuflokkurinn í neti Björns Bjarnasonar
Hvað er í poka
Alþýðuflokksins?
Gagnrýnir umfjöllun fjölmiðla um flokksþing Al-
þýðuflokksins og segir þá hafa tekið landsfund Sjálf-
stæðisflokksins allt öðrum tökum.
„Ljósvakamiðlar hafa tekið
flokksþing Alþýðuflokksins öðr-
um tökum en landsfund okkar
sjálfstæðismanna, þegar stöðugt
var verið að leita til annarra
flokka manna til að heyra álit
þeirra á því, að líklega væri
landsfundurinn ekki mjög merki-
leg samkoma," segir Björn
Bjamason menntamálaráðherra á
heimsíðu sinni á Internetinu.
Hann segir umfjöllun fjölmiðla
um flokksþing Álþýðuflokksins
gagnrýnislausa, og segir fram-
kvæmd flokksþingsins hafi verið
til marks „öryggisleysi Alþýðu-
flokksins og tilvistarkreppu."
Bjöm rökstyður þessa staðhæf-
ingu með svofelldum orðum:
„Hann segir Sjálfstæðisflokknum
annars vegar stríð á hendur og
biðlar svo til atkvæða til vinstri
við sig. Hvemig getur þetta skilað þeint árangri að skeipa ímynd
flokksins eða styrkja stöðu hans? Raunar held ég, að flokknum
hafi enginn greiði verið gerður með því, hvað fjölmiðlamenn
hafa tekið hann gagnrýnislausum tökum og elt hann ifekar en
staldra við og spyija: Hvað er í poka Alþýðuflokksins? Hvers
konar flokkur er hann orðinn eða vill verða?“
„Hvemig getur það skilað
árangri að segja Sjálf-
stæðisflokknum stríð á
hendur, og biðla svo til
atkvæða til vinstri við
sig," spyr ráðherrann á
Netinu.
NY VIÐHOBF I C
NÝJAR ÞARFIR