Alþýðublaðið - 14.11.1996, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐK)
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996
ó r n m á I
Gunnar Ingi Gunnarsson læknir og
formaöur Alþýðuf lokksfélags
Reykjavíkur bauð sig fram til vara-
formanns, en mátti sín ekki mikils
gegn Ástu B. Þorsteinsdóttur.
Hann tók úrslitunum vel, og sagði
að læknar væru vanir að láta í
minni pokann fyrir hjúkrunarfræö-
ingum.
Mörður Árnason varaþingmaður Þjóðvaka hlaut eitt atkvæði sem formaður Alþýðuflokksins,
rétt einsog fyrir tveimur árum þegar Jón Baldvin og Jóhanna tókust á. Hér skrafar hann við
Össur Skarphéðinsson, gamlan vin og vopnabróöur.
Leiðtogi draumaflokksins? Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir tók þátt í
pallborðsumræðum um samstarf á
vinstri væng. Jón Baldvin hefur ít-
rekað sagt að hún sé vænlegur for-
ingi í bandalagi vinstrimanna.
Tíundi og ellefti. Jón Baldvin óskar
Sighvati Björgvinssyni, ellefta for-
manni Alþýðuflokksins, til ham-
ingju með sigurinn.
Bryndís og Ágúst undir rós. Bryn-
dís Hlöðversdóttir þingmaður Al-
þýðubandalagsins hefur orðið í
pallborðsumræðum um samstarf
vinstri manna, og Ágúst Einarsson
hlustar einbeittur.
Skeggræður í fatahenginu. Sighvatur Björgvinsson og Stefán Gunnars-
son, formaður Alþýðuflokksfélagsins á Hofsósi, ræða málin, alvarlegir á
svip.
Atkvæðagreiðsla í formannskjöri. Það var allra manna mál að Guðmund-
ur Árni mætti vel við úrslitin una, enda fékk hann meira fylgi en flestir
spáðu.