Alþýðublaðið - 14.11.1996, Page 7

Alþýðublaðið - 14.11.1996, Page 7
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 S viskubrunnurinn 1. Hvar er Vonarskarð? 2. Hvað heitir stærsta tungl Satúrnusar? 3. Hver var Risto Ryti? 4. Hvað heitir Bono, söngv- ari írsku hljómsveitarinnar U2, réttu nafni? 5. Uppúr aldamótum voru Picasso, Hemingway og Matisse tíðir gestir hjá bandarískri skáldkonu sem þá bjó í París. Hvað hét hún? 6. Hver samdi bókina Galla- stríðin? 7. Breska leiksskáldið John Osborne samdi meðal ann- ars leikritið Littu reiður um öxl. Hvaða hópi leikskálda er hann talinn tilheyra? 8. í fána hvaða lands má finna hvitan hálfmána og stjörnu á grænum grunni? 9. Hvaða bandaríski kvik- myndaleikstjóri gerði mynd- irnar All that Jazz, Lenny og Cabaret? 10. Hver er þessi gáfulegi ungi maður?? •uossQjeAuig uúeiipr '01 'Qssoj qog '6 -ue;s!>jed '8 '0361 Jnddn jpueuojg ? epi^sejmjjai jndpn •cununuuoui nBun 'nQieu 'L ‘Jeses snjinp snleg -g -ujeis apnjpeo -g -uosMen inej Þ -W6l J9s je !Q6es ‘S! efjeAOp.ííj s?juu.i jppnjs ue ojJlsjejjeA jjye u!>|ijjoaos qja Q'A ipcues •qesjoj jbojs 6o euujj ejjeqo^JSjiæsjoj •£ -uejjj. •£ -s|n>|0ÍS||ejeu6unj. Bo s|n>|o.íeujeA uhiaj ‘L ■ Andri Snær Magnason sendir frá sér tvær bækur fyrir þessi jól. Bónusljóð og Engar smá sögur. Það er ekki hægt að plata hann í það að tala illa um nokkurn mann en hann viðurkennir fúslega að hann notar væntanlega BA-ritgerð sem skálkaskjól Orðaleikja- skáldið blómstrar „Ég er afkastameiri í bókum en blaðsíðum... er viðtalið byijað?" Jájá. Þú ert að sendafrá þe'r tvær bœkur fyrir þessi jól: Smásagnasafiúð Engar smá sögur og Ijóðabókina Bónus- Ijóð sem seld er í Bónus. Þú veigrar þér ekkert við að tengja Ijóðin við hörð markaðslögmál ? „Um leið og ljóðið er komið á einhvem stall byrjar það að rykfalla." Og ekki rykfellur vamingurinn hjá Jóhannesi íBónus? „Nei, það gerir hann víst ekki. Bónusljóðin eru þegar far- in í einhverjum hundruðum eintaka." Lœtur Bónusfólkið sérþetta vel líka? „Ja, það mætir einu sinni í mánuði og kaupir sér ost og skinku. Þetta em ljóð fyrir ijöldann og bókin fellur vel í kramið hjá ungu fólki og vinkonum móður minnar.“ Þú kallarþetta andlegt fóður? „Já, eða ódýran kveðskap. Ekki þó leir.“ Hvað ertu gamall? „23 og ég held að ég sé sá yngsti sem Mál og menning hefur gefið út.“ Er þetta ekki óttaleg ormagryfja, Mál og menning? „Ja, ég er svo nýbyrjaður að ég þekki ekki alla ormana sem þama eru.“ Ja, það fer það orð af Halldóri Guðmundssyni og kh'- kunni hans að þetta sé úlfahjörð? „Eða kannski refir?“ Ertu í sambúð? „Já. Sú heppna heitir Margrét Sjöfn Torp. Það er fær- eyskt ættamafn.“ Já, þú hefur brugðið þér til Fœreyja í konuleit? „Neinei, hún er alíslensk." Þú ert svoldið fyrir orðaleiki? ,Já, á köflum. 1. apríl marsbúinn er til dæmis ljóð sem ég samdi í fyrra og er í bókinni. Það er mjög djúpt á því. Ertu búinn að fatta það?“ Nei? „Nú, en það er líklega hnitmiðaðasta orðaleikjaljóðið sem ég hef samið. Titilhnn á smásagnabókinni er þannig til kominn að fyrsta sagan sem ég samdi hét Engin smá saga. Mér fannst þetta kannski full grípandi titill einsog saminn af hörðum markaðsmanni á auglýsingastofu, en hann virð- ist virka ágætlega. Það eiu ekkert mjög margir orðaleikir í bókinni heldur meira leikur að setningum. Emm við ennþá í viðtalinu?" Jájá. Andri Snær Magnason: „Þetta eru Ijóð fyrir fjöldann og bókin fellur vei í kramið hjá ungu fólki og vinkonum móður minnar." „í bókinni er ég að leika mér að alþekktum hendingum og set þær í nýtt samhengi. Einnig goðsögnum og alþekkt- um minnum sem ég sný á hlið og á hvolf." Svo ertu íHáskólanum? „Ég er að klára íslenskuna og er að leita mér að BA- rit- gerð.“ Vantar þig eitthvað til að skrifa um? „Já, framburð á fjórða glasi eða eitthvað í líkingu við það. Gæti kostað skemmtilega rannsóknarvinnu. En það er þægilegt að vera að leita sér að BA-verkefni. Þá er enginn að agnúast útí mann fyrir að vera atvinnulaus eða: Uss, uss, ekki fá hann til að mála húsið. Hann er að skrifa BA-rit- gerð.“ Já, það er góð afsökun fyrir þvt' að hanga á börum og annað slíkt. Þú ert ekkert að íhuga það að fá þér vinnu ? „Það er nóg að gera þessa dagana og ég er að pikka áfram." Ertu byrjaður á ruestu bók? „Ég er um það bil kominn með hugmyndina en ég veit ekki hvort það verður Ijóðabók, smásagnasafn eða skáld- saga.“ Þú ert sem sagt að safna í torp-inn? , Jájá. Þú ert bara nokkuð góður.“ Sérðu fyrir þér einhver kynslóðaskipti i rithöfundastétt núna? , Já, mér finnst vera eitthvað gap alveg lfá því Medúsa- hópurinn var. Það hefur enginn komið fram lengi lengi.“ Er þetta ekki bara œgishjálmurfyndnu kynslóðarinnar? „Kannski. En núna eru fyndnu skáldin farin að... Slappast? „Nei. Þau eru orðin alvarlegri og hafa fengið litla sam- keppni á undanfömum árum.“ o r m u r i n n Baekurnar sem Hallgrímur Helgason er að lesa: „Ég er að lesa Satyricon eftir Pe- tróníus. Þetta er ein mest spenn- andi saga fornbókmenntanna. Hún er full af forboðnum ávöxtum og ákaflega sérkennileg. Hún hefur verið ólesin upp í hillu árum sam- an en nú hefur verið bætt úr því. Önnur bók sem ég er að lesa er Making the Play sem ætti eigin- lega að heita Making the Play Play. Þetta er samtalsbók milli leikritahöfundar og leikstjóra sem hafa lengi unnið saman. Ég kann engin sérstök skil á þeim mönn- um, en annar þeirra er bandarískur og hinn breskur. Þeir eru að velta fyrir sér samskiptum leikstjóra og leikritahöfunda í leikhúsinu. Þar kemur margt skemmtilegt fram, rT' ' 8 1 r^ 1 1 1 r*'~v 1 ''A §§§ rv-\ ■ •r> %•' fe;- V ■ Sá fréttaskot úr fortíð Árið 1935 var Finnbogi Rútur ritstjóri Alþýðu- blaðsins. Á þeim tíma skutu oft furðufréttir utan úr hinum stóra heimi upp kollinum á síðum blaðsins. Hér em dæmi þess Þriggja ára piltur með skegg Frá Ástralíu koma undarlegar fregnir. - Þriggja ára dreng fór skyndilega að vaxa skegg. Bamið er að öllu öðru leyti eins og önnur böm, en skeggvöxturinn er svo ör, að drenginn verður að raka einu sinni á dag. Læknamir standa ráðþrota gagn- vart þessu fyrirbrigði, sem er ennþá óskiljanlegra vegna þess, að hárvöxtur drengsins er að öllu öðm leyti eins og á öðrum börnum á sama aldri. For- eldrar bamsins em eins og annað fólk og bróðir drengsins heíúr frekar h'tinn skeggvöxt. Foreldrar bamsins hafa unnið í ull- arverksmiðju, en em nú að hugsa um að taka sér ferð á hendur um heiminn og halda sýningar á undrabaminu. Varamaður í fangelsi Frá Strassburg berast þær fregnir, að atvinnulaus verkamaður ffá Elsass, Götziger að nafni, hafi fengið kæru fyrir að hafa setið 5 daga í fangelsi í stað gistihússeigenda nokkurs. Hann viðurkendi einnig fyrir dómaranum, að fyrir einu ári síðan hefði hann líka setið í fangelsi fyrir gistihússeigend- meðal annars að leikritahöfundar segja yfirleitt ekki öðrum leikrita- höfundum frá sinni reynslu og leikstjórar ekki öðrum leikstjór- um. Menn eru að halda sínu fyrir sig. Það er þessi Iokaði heimur sem bókin fjallar að stærstum hluta um. Og að lokum, mest fyrir forvitnis- sakir, er ég að glugga í Biblíuna." ann enda þótt svikin hefðu ekki kom- ist upp þá. Við bæði þessi tækifæri hafði það aðeins verið meining hans að hjálpa veslings gistihússeigendan- um. Ákærði var sýknaður sakir þess að ífönsk lög hafa enginn ákvæði um þess háttar fyrirbrigði. En gistihússeigandinn varð þegar í stað að taka út hegningu sína. Yfir- völdin gera sig ekki ánægð með það, að glæpamenn hafí varamenn í fang- elsunum. Ritstjórn í rúminu Að öllum líkindum er ekki nema eitt blað gefið út í heiminum, sem að öllu leyti er skrifað í rúminu. Nýlega er byijað að koma út í Ástralíu blað, sem heitir „Opinions" og eru allir rit- stjóramir liggjandi. Örkumlamaður frá stríðsárunum, Louis Anthony að nafni, sem legið hefur í rúminu í fjöldamörg ár, stofnaði blaðið og réði sér meðritstjóra, sem allir eins og hann, liggja í rúminu og hafa gert það í mörg ár.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.