Alþýðublaðið - 28.11.1996, Side 3
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Mannleg örlög
Björn Th. Björnsson:
Úr plógfari Gefjunar
Tólf íslendingaþættir
Mál og menning 1996
Þegar Bjöm Th. Bjömsson er í ess-
inu sínu standast honum fáir snúning í
stílsnilld, og þarf ekki að takmarka
samanburðinn við höfunda sem nú em
á dögum. Með nokkrum fisléttum
dráttum sviptir hann burt þoku tfmans
svo til verða ljóslifandi myndir af
fólki fyrri tíðar, og manni fmnst, eftir
að hafa horft sem snöggvast, að þetta
fólk hafi maður alltaf þekkt. Og gildir
einu hvort myndin er af skráðu vöm-
merki einsog Jónasi Hallgrímssyni
eða nafnlausri ógæfukonu: persónur
sem Bjöm Th. Bjömsson tekur uppá
arma sína verða manni hjartfólgnar og
minnisstæðar - og hvers getur rithöf-
undur framar óskað sér?
Bók Björns hefur að geyma tólf fs-
lendutgaþætti frá Kaupmánriahöfn.
Þar segir frá brasi Odds Sigurðssonar
þegar hann kom til Hafnar á fyrri
hluta átjándu aldar að heimta aftur
mannorð sitt með góðu eða illu; og
lesandimi kynnist líka íslenskri útgáfu
af góða dátanum Svjek sem dagaði
uppi á kurteislegu kvennafari í Dana-
veldi eftir að hann kom af fundi með
sjálfúm Stalín.
Björn leiðir lesandann um Spuna-
húsið þar sem íslenskar sakakonur
létu sig dreyma um heiðarbýlið meðan
þær tærðust upp af þrældómi og sulti;
brégður -sér: uppundir' hanabjálka ,til
■ Sveinbjöms Egilssonar þar sem lærð-
asti maður íslands hugar að gatslitnum
flfkum; og fer í humátt á eftir Gísla konungborinnar gyðju.
Brynjúlfssyni — „mesta ástmanni ís- Það sem einkennir afstöðu Bjöms
lands“ - inn í gyðingahverfið að leita til þess fjölskrúðuga safns persóna
„Skáldið og sagnfræð-
ingurinn í Birni Th.
Björnssyni fá báðir að
njóta sfn í bókinni. Eitt
mannsnafn, án frekari
útskýringa, í gulnuðu
dönsku manntali verður
kveikja að sögu sem
spunnin er af íþrótt og
kunnáttu.“
tveggja alda, sem lifna á síðum bókar
hans, er tvímælalaust samúð. Vel að
merkja: samúð er annað en meðaumk-
un, að ekki sé talað um vorkunn.
Björn hefur samúð með stórbokkan-
um Oddi lögmanni, eins þótt fæstir
samtíðarmenn hefðu fengist til að
skrifa undir að hann ætti nokkuð gott
skilið. Hann hefur líka samúð með
glæsimenninu og fanganum Isleifi Jó-
hannessyni - svo mikla reyndar að
Bjöm fær lesandann til að trúa goð-
sögn um að hann hafi lifað af sjálfs-
morð. Innilegust er samúð Bjöms með
þeim löndum okkar sem fóm halloka,
hinum breysku, snauðu og útskúfuðu.
Saga hans um Guðríði Bjamadóttur,
sem virðist ranglega dæmd fyrir morð
á manni sínum, og fátæklingnum Al-
bert Thorvaldsen, föður mesta mynd-
höggvara Norðurlanda, er skínandi
bókmenntaperla og besta smásaga
sem ég hef lesið í háa herrans tíð.
Skáldið og sagnfræðingurinn í Bimi
Th. Bjömssyni fá báðir að njóta sín í
bókinni. Eitt mannsnafn, án frekari út-
skýringa, í gulnuðu dönsku manntali
verður kveikja að sögu sem spunnin er
af íþrótt og kunnáttu. Höfundurinn
fellur aldrei í þá gryfju að hrúga upp
staðreyndum til að monta sig af yftr-
burðaþekkingu; fremur að orðgnóttin
beri efnið á stöku stað ofúrliði.
Ástæðulaust er að orðlengja frekar
um þessa bók - en óska lesendum til
hamingju.
Engum blöðum er um að
fletta að Ólafur Ragn-
ar Grímsson er maður
jólabókaflóðsins: þriggja
bóka forseti á fyrsta emb-
ættisári er nokkuð sem vart
verður leikið eftir. Þá þykir
hann hafa staðið sig með
miklum sóma í Danmerkur-
ferðinni/enda vakti heimT
sókn hans og Guðrúnar
Katrínar mikla eftirtekt.
Hispursleysi Ólafs Ragnars
féll í góðan jarðveg hjá
Dönum, meðal annars þeg-
ar hann gerði sérferð á
Pizza 67 í Kaupmannahöfn,
sem er í eigu Islendinga.
Þar gæddi forsetinn sér á
pizzu og var Ijósmyndaður
í gríð og erg. Af þessum
sökum gengur nú eftirfar-
andi brandari manna á
meðal: Hvað er likt með Ól-
afi Ragnari Grímssyni og
Pamelu Anderson Lee?
Svar: Þau auglýsa bæði
pizzur...
Til þess er tekið hve
óbreyttir þingmenn
Framsóknar eru farnir að
taka stórt upp í sig í sjávar-
útvegsmálum. Guðni Ág-
ústsson leiðtogi Fram-
sóknar á Suðurlandi, sem
hefur síðustu mánuði ítrek-
að talið að breytingar væru
óhjákvæmilegar, segir í
Mogganum í gær að rang-
lætið sé orðið óþolandi.
Hann spáir breytingum í
réttlætisátt innan tveggja
ára. Og við veðjum á að
Guðni hafi rétt fyrir sér,
enda er hann yfirleitt spá-
mannlega vaxinn...
Bókaútgefendureru með
bjartsýnasta móti um
þessar mundir, og flestir
spá betri bóksölu nú en um
nokkurra ára skeið. Ekki er
Ijóst hvaða bækur verða í
slagnum um efstu sæti
metsölulista, en nokkrar
bækur virðast á góðu
skriði. í ævisagnadeildinni
er endurminningum Jóns
Múla Árnasonar er spáð
góðu gengi, sem og bók
JónasarJónassonar um
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Magnús Leópoldsson. Þá
munu margir forvitnir um
bók Friðriks Erlingsson-
ar um prestshjónin í Lauf-
ási, þau Pétur Þórarins-
son og Ingibjörgu Sigl-
augsdóttur. Endurminn-
ingar Thors Vilhjálms-
sonar munu vísast blanda
sér í toppbaráttu í þessum
flokki, og fróðlegt verður
að sjá hvaða viðtökur bók
Oddnýjar Sen um Myri-
am Bat- Yosef fær, en
Myriam var kona Errós...
r
Iflokki skáldsagna eru
margar bækur sem þegar
hafa vakið mikla eftirtekt.
Ólafur Gunnarsson tók
flugið fyrstur, en hann
mun etja kappi við höf-
unda á borð við Hallgrím
Helgason, Guðmund
Andra Thorsson, Þórarin
Eldjórn, Vigdísi Gríms-
dóttur og Ólaf Jóhann
Ólafsson...
Katrín Halldórsdóttir hús-
móðir: Ég held að Hallgrímur
Helgason verði á topnum með
101 Reykjavík. Ég er að byija
bókinni, og líst mjög vel á.
Harry Sampsted vélfræð-
ingur: Árin eftir sextugt,
handbók eldri borgara.
Halla Halldórsdóttir nemi:
Annað hvort Z Vigdísar
Grfmsdóttur eða Lávarður
heims eftir Ólaf Jóhann.
Sólveig Aðalsteinsdóttir
kennari: Ég vona að það
verði smásagnasaíriið Beint af
augum eftir Raymond Carver í
þýðingu Sigfúsar Bjartmars-
sonar.
Sara Lind Baldursdóttir
verslunarmaður: Það verð-
ur bókin um forsetann.
Upplýsingalögin nýju, sem taka
gildi hér á landi um áramótin, eru
samin og sett í góðri trú og gera
gagn. Þau tlytja okkur á þessu
sviði úr miðöldum og fram til
þess ástands, sem var í Svíþjóð,
þegar prentfrelsislög voru sett
þar árið 1766, fyrir 230 árum.
Jónas Kristjánsson í leiðara DV. Alltaf skal
hann sjá björtu hliðarnar...
Ég spái breytingum á næstu
tveimur árum - í réttlætisátt.
Guðni Ágústsson oddviti Framsóknar á Suð-
urlandi og hetja Morgunblaðs-sósíalistanna
um fiskveiðikerfið. Mogginn í gær.
Afstæðiskenningin á uppboði.
Fyrirsögn í Morgunblaðinu í gær. Um er að
ræða blað úr handriti Einsteins.
í meðförum hennar eru ástir
þessara tveggja kvenna ekki að-
eins ástríðufullar og fallegar, þær
eru einnig fullkomlega eðlilegar.
Sigríður Albertsdóttir ritdómari DV skipar
sér í kórinn sem syngur nýrri skáldsögu
Vigdísar Grímsdóttur lof.
Kennarar kunna ekki það sem þeir
eiga að kenna, menntun þeirra
með mikilli áherslu á umdeilda
uppeldis- og sálarfræði skilar
ekki árangri, laun og félagsleg
staða þeirra fælir frá atgervi og
laðar að þá sem ekki kæmust
annarsstaðar áfram.
Stefán Jón Hafstein yfirkennari
Dags-Tímans fór mikinn í leiðara í gær.
Samfélag okkar er alvarlega
sjúkt. Við getum sent tölvubréf
og símbréf á heimsenda, tekið
upp farsíma hvar sem er, en
skortir innri tengsl. Það er líkt
og innra með okkur sé tóm sem
við höldum að við getum fyllt
með ytri athöfnum.
Njörður P. Njarðvík prófessor
í Morgunblaðinu í gær.
Sjálfumglaðir uppeldis-
spekingar og talsmenn andlegrar
flatneskju, sem er rangnefnd jöfn-
uður, hafa tekið sér vald til að
skrumskæla sanna menntun og
árangursríkar kennsluaðferðir.
Þetta kemst liðið upp með vegna
frekju og skorts á gagnrýni.
Oddur Ólafsson í DT í gær.
Það borgar sig ekki að vera þæg.
Hlín Agnarsdóttir lagði línur
fyrir konur í DT í gær.
smáa letrið
✓
Ognir á
bókamarkaði...
Hvaða bókatitill yfirstandandi
vertíðar er mest ógnvekjandi? Hér eru
nokkur sýnishom:
Þunglyndi, Þegar mest á reynir,
Vestfirzkir slysadagar, Útkall á síð-
ustu stundu, Uppá líf og dauða.
Svikinn vemleiki, Ólafur Ragnar
Grímsson, Dansað við dauðann,
Málsvörn mannorðsmorðingja,
Nomina anatomica, Kvíði, fælni og
hræðsluköst, Halló! Er nokkur
þama?, Draugasinfónían, Engill
dauðans, Ást í skugga hefndar.
Beinagrind með gúmmíhanska,
Blóðakur...