Alþýðublaðið - 29.11.1996, Page 1

Alþýðublaðið - 29.11.1996, Page 1
■ Blaðamaður sýknaður fyrir meiðyrði í Hæstarétti Dómstólunum ekki alls varnað - segir Sigurður Már Jónsson blaðamaður. „Virðist gæta ör- lítið meiri skilnings á tjáningar- frelsinu en verið hefur." „Málskostnaður er felldur niður. Það tíðkast hvergi í þjóðfélaginu að menn haldi úti tilefnislausum máiaferlum, nema í meiðyrðamál- um, og þurfi svo ekki að borga neinn málskostnað út af þeim. Það sýnir kannski viðhorfið,“ segir Sig- urður Már Jónsson biaðamaður í samtali við Alþýðublaðið. Sigurður áfrýjaði dómi sem hann fékk í Héraðsdómi, þar sem hann var dæmdur til greiða miska- bætur, skaðabætur, birtingar- kostnað og málskostnað að upp- hæð um 700 þúsund krónur vegna greinar sem birtist í Pressunni. Sigurður taldi sig að ósekju dæmdan sem ábyrgðarmann skrif- anna, þar sem upplýsingar um annað hefðu komið fram í Héraðs- dómi. Hann er ásamt Guðrúnu Kristjánsdóttur skrifaður fyrir grein sem birtist 17. febrúar 1994 og fjaliar um Jón Halldór Bergs- son, þar sem sagt er að hann sé flagari sem geri út á tilfinningar kvenna í vafasömum tilgangi. I dómsorði segir: „Áfrýjandi kvaðst í framburði sínum fyrir héraðs- dómi ekki vera höfundur greinar- innar og hafi þáttur sinn ekki verið annar en sá að afla og tína saman gögn um það, sem kallast mætti „saka- og gjaldþrotaferill“ stefnda. Hins vegar hafi samstarfsmaður sinn Guðrún Kristjánsdóttir átt viðtöl við konur, sem stefndi hafi verið í tygjum við. Sé það efni ekki frásér komið.“ Á þeim tíma sem greinin birtist var Karl Th. Birgisson ritstjóri Pressunnar og hann staðfesti fyrir dómi að greinin væri á hans ábyrgð. Guðrún Kristjánsdóttir áfrýjaði ekki dómi þeim sem hún fékk í Héraðsdómi og skuldar því ásamt Karli, Jóni Halldóri Bergs- syni verulegar upphæðir. „Dómstólunum er ekki alls varn- að og synd að öll meiðyrðamál skuli ekki fara til Hæstaréttar. Þar virðist gæta örlítið meiri skilnings á tjáningarfrelsinu en verið hefur,“ segir Sigurður Már. ■ Siðanefnd Blaðamannafélagsins féllst ekki á kæru Jóns Viðars Jónssonar vegna skrifa Silju Aðalsteinsdóttur Furðulegur úrskurður -segir Jón Viðar Jónsson og útilokarekki meiðyrðamál. „Ég vissi ekki að þetta væri farg fyrr en ég sá bréfið á miðvikudag. Þá hitn- aði mér svolítið í maganum. Urskurð- urinn er ekki fyrr en á síðu 2 þannig að hitinn fór vaxandi eftir því sem ég las lengra. Ég er alvanur krimmasagnales- andi og kíki aldrei á endann. Ég stel aldrei af mér æsingi lífsins,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir menningarritstjóri DV í samtali við Alþýðublaðið. 20. október birtist klausa eftir Silju þar sem hún undrast Qarveru Jóns Við- ars Jónssonar á nýafstöðnu málþingi um stöðu íslenskrar leiklistar undir fyr- irsögninni „Við hvað var hann hrædd- ur?“. Jón Viðar kærði til siðanefndar Blaðamannafélags íslands og taldi að augljóslega hefði verið brotið gegn 3. grein siðareglna blaðamanna: ,31aða- maður vandar upplýsingaöflun sína, úr- vinnslu og framsetningu svo sem kost- ur er og sýnir fyllstu tilhtssemi í vanda- sömum málum. Hann forðast allt sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sárs- auka eða vanvirðu." Hann segir einnig að það hafi verið beinn ásetningur blaðamanns DV að meiða mannorð Silja Aðalsteinsdóttir: „Ég stel aldrei af mér æsingi lífsins." legra,“ segir Silja. Aðspurður hvort hann ætlaði með málið fyrir dómstóla sagði Jón Viðar: ,JÉg ætla ekki að segja um það á þessu stigi málsins. Er ekki best að maður hafi hugsanir sínar útaf fyrir sig meðan maður gerir ekkert í málunum." Gunnar Smári ætlar að lesa upp í herrafataversluninni Books, á laugardaginn. ■ Bókmenntir í herrafataverslun Gunnar Smári les upp úr bókum sínum Herrafataverslunin Books ætlar að standa fyrir bókmenntakynningum í desember og næstkomandi laugardag milli þrjú og eitt mun Gunnar Smári Egilsson lesa úr bók sinni, Málsvörn mannorðsmorðingjans og Bessa- staðabókunum og spjalla við gesti og viðskiptavini um lífið og tilveruna. Hann mun einnig árita bækur sínar fyrir þá sem það vilja. Á meðan Gunnar Smári reynir að svala andlegum þorsta gesta verður boðið upp á svaladrykki til að slökkva líkamlegan þorsta þeirra. ■ Tillögur um að hlutafélag taki við íbúðum borgarinnar Húsaleigubætur verða teknar upp í staðinn sitt. í úrskurði siðaneftidar segir að ljóst sé að DV hefði getað vandað upplýs- ingaöflun með því að spyija kæranda um ástæðu þess að hann sótti ekki um- rætt málþing. Hins vegar virðast að- stæður hafa verið þannig að kærði hafi staðið í góðri trú um að fundarboðend- um hafi verið ókunnugt um ástæðumar fyrir fjarveru Jóns Viðars. Kærði telst ekki hafa brotið siðareglur blaða- manna. „Mér fmnst þessi úrskurður ákaflega fúrðulegur og það einkennilegasta við hann er að það er ekki snefill af rök- stuðningi í honum, að minnsta kosti ekki svo ég sjái,“ segir Jón Viðar. „Samkvæmt þessum úrskurði telur siðanefnd ekki nauðsynlegt að blaða- maður hafi samband við fólk áður en hann fer að flytja fréttir af því. Mín viðbrögð eru aðallega undrun á vinnu- brögðum nefndarinnar. Ég hefði haldið að hún væri marktæk og gæti veitt blaðamönnum nauðsynlegt aðhald. Það eru vissulega vonbrigði að hún rísi ekki undir því hlutverki sínu,“ segir Jón Viðar. ,Mér fannst þetta alltaf mjög leiðin- legt, mín vegna og blaðsins af því að ég er svo nýbyijuð. En ég er mjög feg- in að þetta skyldi ekki verða alvar- -segir Lára Björnsdóttirfélags- málastjóri: „Ákvörðun tekin á næstu mánuðum." „Það yrði að ganga þannig frá hnútum að tekjulágir gangi fyrir og fái húsaleigubætur. Það eru margir hnútar sem á eftir að hnýta. Sveitafélagið hefur skyldur á því sviði samkvæmt lögum um félagsþjónustu en þar segir að sveitafélagið eigi að sjá tekjulágu fólki fyrir húsnæði eftir föngum eins og sagt er,“ segir Lára Björns- dóttir félagsmálastjóri í samtali \ið Alþýðublaðið. Þórarinn Magnússon verkfræð- ingur vann skýrslu fyrir borgar- stjóra sem var lögð fram í borgar- ráði á þriðjudaginn. Þar er lagt til að íbúðir í eigu borgarinnar, alls 1.180, verði seldar, leiguverðið fært uppí kostnaðarvcrð og sjálfstætt hlutafélag taki við rekstrinum. íbúðirnar eru ætlaðar tekjulágu fólki sem ekki hefur tök á að kaupa sér húsnæði né leigja á almennum markaði. Ef af verður fá þessir aðilar húsaleigubætur í staðinn en að sögn Láru verður tillagan tekin til afgreiðslu á næstu mánuðum. „Mér líst vel á þetta,“ segir Lára. „Kerfið verður auðveldara og ekki þarf að segja fólki upp ef hagir þeirra breytast heldur lækka bæturnar. Það er ákveðið tekjuhá- mark sem þarf til að komast inní svona íbúðir og þegar það breytist þarf viðkomandi að flytja út. Þá þarf að róta til með böm og annað sem er auðvitað ákveðin röskun auk þess sem núverandi kerfi er seinvirkt“ Lára segir jafnframt að með þessu verði niðurgreiðslur borgar- innar sýnilegri en áður en talað er um að borgin greiði árlega niður leigu um 240 milljónir auk 100 milijóna í húsaleigubætur á al- menna markaðinum. Þcgar tekin er ákvörðun um hvort einstaklingur eigi rétt á fé- lagsiegum íbúðum borgarinnar er miðað við 1,2 árstekjur. „Sumir em auðvitað með enn lægri tekjur. Þetta hefur verið mjög niðurgreidd leiga. Þumalfingurreglan er sú að menn borgi helming af kostnaðar- verði. Það er stór hópur fólks sem þarf á þessum íbúðum að halda, öryrkjar, aldraðir, einstæðir for- eldrar, atvinnulausir og svo fram- vegis,“ segir Lára Björnsdóttir en eins og staðan er í dag ná iög um húsaleigubætur aðeins til þeirra sem leigja á almennum markaði.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.