Alþýðublaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 3. desember 1996 182. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Rasískum áróðri dreift um landið
„Ég vil vekja upp hatur hjá þér“
- segir í blaðinu Arísk upprisa.
Jóhann Guðni Reynisson út-
gáfustjóri. „Sagan eins og við
lærum hana er áróður sigur-
vegaranna."
Alþýðublaðinu hefur borist blað sem
er í dreifingu á höfuðborgarsvæðinu um
þessar mundir. Það heitir Arísk upprisa
og er tilgangur þess að vekja upp hjá
„hinum hvíta manni ást á kynþætti sín-
um.“ Jóhann Guðni Reynisson í Hvera-
gerði, sem annast útgáfuna, segir að því
sé dreift ókeypis og hvetur fólk til að
koma því sem víðast. „Við erum tveir
sem stöndum að blaðinu. Félagi minn
heitir Jón Ingi Sveinsson og er í Fjöl-
brautarskólanum á Selfossi," segir Jó-
hann Guðni sem er 26 ára gamall. „Þetta
er búið að blunda í okkur lengi og við
vorum orðnir leiðir á því að tala um
þetta okkar á milli. Með útgáfunni erum
við að athuga hvort ekki sé grundvöllur
fyrir umræðu á þessum nótum. En við
höfum ekki fengið mikil viðbrögð. Það
er einsog fólki standi á sama - það er al-
gjör sofandaháttur í samfélaginu gagn-
vart þessum málum,“ segir Jóhann
Guðni. Hann segir hér ekki um neina
hreyfingu að ræða og blaðið sé ekki í
neinum tengslum við samtök á borð við
Norrænt mannkyn.
í Arískri upprisu segir meðal annars
að barátta aría kristallist í fjórtán orðum
David Lanes sem eru eftirfarandi: „Okk-
ur ber skylda til að varðveita tilveru
fólksins okkar og framtíð fyrir hvít
böm.“ f inngangi blaðsins segir: „Ég
sagði áður að tilgangurinn væri ekki að
vekja upp hatur á öðrum kynþáttum, það
er alveg satt. Aftur á móti vil ég vekja
upp hatur hjá þér. Ég vil gera þér grein
fyrir því að kynþátturinn er að deyja og
að fá þig til að elska Hvíta [svo] kynþátt-
inn umfram allt. Ef þú elskar kynþáttinn
þinn getur þú ekki annað en hatað allt
sem eyðileggur hann.“
Jóhann Guðni segir Jón Inga höfund-
inn og telur hugsanlega full sterkt til
orða tekið. „Ég er viss um að þetta fer
öfugt ofan í fólk en fólk ræður hvort það
er sammála þessu eða ekki, við erum
ekki að þröngva þessu upp á neinn,"
segir hann og að tilgangurinn helgi
meðalið. „Þaö er hætt við því að við sé-
um að óhreinka kynstofninn með því að
flytja inn litað fólk og full ástæða að
vera vakandi fyrir því,“ segir Jóhann
Guðni. Arísk upprisa er uppfull af gam-
alkunnum kynþáttafordómum. Þar er
sagt að „svertingjar fjölgi sér einsog
kam'nur" meðan hvítu fólki fækki. Þá er
staðhæft að gyðingar stjómi fjölmiðlum
í Bandaríkjunum og allir helstu forsp-
rakkar bolsevika í rússnesku byltingunni
hafi sömuleiðis verið gyðingar. Þá er
varað við „blöndun kynþátta" og sagt að
menning Eygyptalands, Indlands og
Grikklands hafi liðið undir lok þegar
arísk yfirstétt blandaðist öðmm kynþátt-
um.
í blaðinu er hvatt til þess að íslend-
ingar hætti að taka við „htuðu fólki" og
slagorð blaðsins er: Hreint land, fagurt
land. Jóhann Guðni segist ekki vita
hvort þama séu sömu kenningar á ferð
og hjá nasistunum á sínum tíma. „Nas-
isminn hefur verið fordæmdur. Þetta er
sagan í dag og ég get ekkert gert að því
sem gerðist í fortíðinni. Við emm ekki
að mælast úl þess að komið verði á fót
3. ríkinu. Sagan eins og við læmm hana
er áróður sigurvegaranna. Það er til
dæmis lögboðin söguskýring á þessari
helför. Það má ekki afneita henni. Það er
bannað. Ég skil ekki úlganginn með því.
Það er til fullt af fólki sem trúir því ekki
að hún hafi verið. Það er málið,“ segir
Jóhann Guðni. Og hann heldur því ffam,
hversu einkennilega sem það kann að
hljóma, að rasismi búi við fordóma.
„Fólk veit oft ekkert um þetta. Umræðan
er þannig að ef rasismi er nefndur á nafn
þá er það bara vont og svo er ekkert
meira talað um það. Við viljum að fólk
kynni sér þetta og þá sér það hlutina í
öðm ljósi," segir Jóhann Guðni og að
því miður geti hann ekki sagt að hann
verði var við vakningu en vonar að hún
verði fyrr en seinna. Þegar Alþýðublaðið
falaðist eftir mynd af Jóhanni sagðist
hann hafa það fyrir reglu að láta ekki
mynda sig. Þeir félagarnir eru nú að
skrifa 2. tölublað Arískrar upprisu en
óvíst er um útkomudag.
■ Ólafur Gunnarsson,
Kristján B Jónasson
og Jóhanna Kristjóns-
dóttir lesa upp
Amma
býður til
upplesturs
Á Miðvikudagskvöldið ætla
ríthöfundarnir, Kristján B. Jón-
asson, Helgi Ingólfsson, Jóhanna
Kristjónsdóttir og Óiafur Gunn-
arsson að lesa úr nýjum verkum
sínum hjá Ömmu i Réttarholti,
Þingholtsstræti 5. Hinn fimmta
desember hefði amma orðið
hundrað ára og af því tilefni
verða ýmis afmælistilboð í gangi
út vikuna. Amma mun hafa
sögustundir fyrir börn alla
laugardaga í desember og
gleðibingó öll mánudagskvöld
fram að jólum.
Laddi gerist vert Kaffi Óliver í Ingólfsstræti hefur fengið bæði
andlitslyftingu og nýja eigendur: nýi vertinn er enginn annar en Þórhallur
Sigurðsson leikari og skemmtikraftur sem mun reka staðinn með eigin-
konu sinni, Sigríði Rut Thorarensen. Þau hjónin tóku á móti gestum á
laugardag, og ætla að gera Óliver að skemmtiiegasta stað bæjarins. Á
myndinni fagna Þórhallur og Sigríður tímamótunum.
meó biónustulínum Húsnæðisstofnunar
Við höfum nú tekið í notkun nýtt og bætt símkerfi sem greiðir Hægt er að velja um nokkur símanúmer eftir þörfum, allt eftir
fyrir allri uppiýsingagjöf og bætir þjónustuna til muna. erindi og þeim upplýsingum sem leitað er eftir.
n
569 6935
ii 569 6975
569 6905
5696915
Skiptiboið 569 6900 Gitentnún 800 6969
Félagsíbúðadeild 569 6970 bréfasími 569 6870 Rekstrardeild 569 6960 bréfasími 569 6860
Húsbréfadeild 569 6930 bréfasími 569 6830 Rekstrarstjórn 569 6920 bréfasími 569 6820
Lögfræðideild 569 6940 bréfasími 569 6840 Tæknideild 569 6980 bréfasími 569 6880
Ráðgjafarstöð 569 6910 bréfasími 569 6810 Verðbréfadeild 569 6990 bréfasími 569 6890
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
f I - vinnur að velferð í þágu þjóðar