Alþýðublaðið - 12.12.1996, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
s k o ð a n i r
MíYDIBitOII
21227. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Framtíðin og við
Þegar núverandi ríkisstjóm var mynduð spáðu ýmsir því að
störf hennar myndu einkennast af því að mál yrðu sett í bið. Þetta
var einkum talið gilda um stóra málin í íslenskum stjómmálum
þaðer mál sem snerta eignarhald og nýtingu hálendisins, fisk-
veiðistjómun og veiðileyfagjald, Evrópumálin og innflutningur
landbúnaðarvara. Öll þessi mál em í biðstöðu og verða það með-
an núverandi ríkisstjóm er við völd. Biðstaða merkir að þeim lög-
um sem snúa að þessum stórmálum verður ekki breytt í neinum
aðalatriðum á kjörtímabilinu.
Það er einkenni ríkisstjóma Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
að þær virðast hafa þann eina tilvemgmndvöll að halda í horfínu;
láta það standa sem gert var á undan, en hafa ekki fmmkvæði að
neinni endumýjun í samfélaginu hvað þá að vísa veginn fram á
við; setja þjóðinni ný markmið til að stefna að.
Biðin þýðir jafnframt að tækifæri sem bjóðast em látin líða hjá.
Við lifum á miklu breytingaskeiði þegar heilar heimsálfur og
samfélög þeirra em að ganga í gegnum örar breytingar. Flest
þjóðþing Evrópu, ef það breska er undanskilið, virðast gera sér
grein fyrir því að þessar utanaðkomandi breytingar leiða óhjá-
kvæmilega til þess að menn verða að stokka spilin upp á ný og
gefa aftur.
Alheimsvæðing efnahagslífsins og tækninnai' minna sérhverja
þjóð eftirminnilega á það að áhrifastaða hennar og afkoma þegn-
anna er fjarri því að vera sjálfgefinn hlutur og að velferðarþjóð-
imar sérstaklega þurfa að hafa sig alla við til að halda þeirra
stöðu. Við lifum ekki á tímum sem taka tillit til þeirra sem ganga
of seint til verks. Tækifærin bíða ekki lengi eins og mey í festuin.
Tíminn, það er fugl sem flýgur hratt; hann flýgur kannski fram
hjá þér í nótt, sagði Ohmar Kajam.
Þótt alheimsvæðingin sé farin að segja til sín hérlendis svosem
í landvinnslu sjávarafurða þá virðist þjóðin ekki gera sér grein
fyrir því hvað þetta muni leiða af sér að lokum. Enn síður er að
sjá sem stjómvöld vilji taka fmmkvæðið og láta fara fram úttekt á
framtíðar samkeppnisstöðu þjóðarinnar. Afkoma barna okkar
mun fyrst og síðast fara eftir því hvort við byggjum upp hag-
kvæmt framleiðslukerfi með hámarksafköstum.
Opinber umræða hérlendis virðist vera önnum kafinn við að
velta sér uppúr kvóta- eða aflamarkskerfinu og með hvaða hætti
megi ganga af því dauðu. Er þetta þó sú mjólkurkýrin sem af-
urðamest er. Menn vilja greinilega setja mörk á hámarksnyt
hennar af því að hún er í eigu stórbænda. Þó er að heyra sem sú
staðreynd að íslenskt efnahagslíf er mun óhagkvæmara en í ná-
grannalöndunum og megni því tæpast að greiða sambærileg laun
sé almennt viðurkennt og í orði sé áhugi á að bæta um. Það má
þó ekki kosta mikil óþægindi.
Þótt réttlætið sé afar mikilvægt, ekki hvað síst fyrir jafnaðar-
menn, mega menn ekki láta afvegaleiða sig með þeim hætti að
allir verði gerðir jafn fátækir. Þá tilraun á mannkynið að baki að
reyna að koma á æðsta réttlæti með því að gera alla að beiningar-
mönnum. Ef hagkerfið á að vera hagkvæmt og skila miklum auð-
æfum til þjóðarbúsins verða fjötrar þess og höft að vera sem
minnst.
En jafnframt verður efnahagslíf einnar þjóðar að eiga greiðan
og hindrunarlausan aðgang að erlendum mörkuðum. Markaðsmál
einnar þjóðar em stjómmál og verða að meðhöndlast sem slík.
Þessvegna em Evrópumálin og sameiginleg evrópsk mynt afar
brýn mál sem verður að fara að meðhöndla eins og hjá alvöru
þjóðum en ekki eins og vöm á bannlista.
Framtíðin er vissulega óviss. Því meiri þörf að reyna að móta
hana okkur í hag áður en hún neyðir lausnum uppá okkur. ■
Tónlistarhús í miðbæinn
Hvemig stendur á því að ekki hefur
myndast samhugur um tónhstar-
hús í miðbæ Reykjavíkur? Væri það
ekki áhugverðari umræða um þennan
bæjarhluta en sú sem boðið er upp á í
fjölmiðlum? Þegar hugað er að tón-
listinni má segja að þessi bæjarhluti
hafi lítið breyst frá þeim árum þegar
Pallborð |
Trausti Einarsson skrifar
unnt var að þræða hljómplötuverslan-
ir. Hvað þær nú hétu? Hljóðfærahús
Reykjavíkur í Hafnarstræti, Hljóð-
færaverslun Sigríðar Helgadóttur í
Vesturveri, Tónaver á Týsgötu og svo
Fálkinn á Laugavegi. Vissulega hefur
slíkum verslunum íjölgað og þær skipt
um nöfn. Nú er mun meira um tónlist
af léttara tagi á ljósvakanum en lög
unga fólksins, lög sjómanna og svo
lögin við vinnuna. En tónlistarsafn er
þama hvergi að sjá. Tónlistarsafnið í
Gerðubergi er einungis sýnishom af
því sem við þurfum og svo telst Breið-
holt að sjálfsögðu ekki vera hluti af
miðbænum. Hvað stendur í vegi fyrir
því að komið sé fyrir á einn stað
myndböndum, ævisögum, bréfasöfn-
um og svo ólíkum útgáfum af helstu
afrekum mannsandans í tónlist? Fyrir
marga unnendur klassískrar tónlistar
er það æðilöng dægrastytting að bera
saman ólíkar útgáfur af til dæmis
fimmtu og níundu sinfóníu Beetho-
vens. Þetta er ástríða sambærileg við
þá hjá mörgum íslendingnum að lesa
Sturlungu eða önnur sambærileg rit að
minnsta kosti einu sinni á ári.
Þrátt fyrir þetta framtaksleysi yfir-
valda eigum við sjálf tónskáld. Þau
virðast ekki kippa sér upp við það þótt
erlend tónlist sé flutt hér árið út og
inn. En væntanlega særir það sómatil-
finningu tónlistarmanna meir en við
hin gerum okkur grein fyrir að list-
grein þeirra skuli ekki sýnd meiri virð-
ing. Af hverju eigum við engin þorsk-
ígildi boðleg þessum andlitum sem
skreyta tónlistardiska? Allt er þar á
ferðinni fólk sem kemur fram opinber-
Iega en að sjálfsögðu þurfa menn að
eiga til þess tónlistarhús.
Hvað er það annað en ranghverfan
á sjálfstæðishugsjóninni að hér skuli
ráða ríkjum íhaldsmennimir einbjöm,
tvíbjöm og þríbjöm gónandi út í loftið
með hendur í vösum þegar tónhstin er
annars vegar? Við Reykvíkingar
þekkjum alveg prýðilega lóð fyrir tón-
listarhúsið okkar. Sjálft Aðalstræti 6
stendur nú við traðimar sem lágu upp
að bæ Ingólfs Amarsonar. Þessa lóð
viljum við fá til þess að byggja okkar
tónlistarhús. Þama störfuðu prentvélar
árið út og inn við að dreifa daglega í
tugþúsunda tali niðursoðinni speki frá
Pentagon. Með framgöngu sinni á
þeim vettvangi sá blað allra lands-
manna á margan hátt til þess að öll
þjóðfélagsumræða Islendinga var
langt fyrir neðan frostmark. Mönnum
var ýtt út í hom sem þeir væm fulltrú-
ar einhvers heimskommúnisma bara
af því að þeir vom ekki reiðubúnir að
kyngja því umyrðalaust sem þar var á
boðstólum. Mörgum ber saman um
það að þessi tími sé liðinn. Hann eigi í
það minnsta að vera liðinn samkvæmt
sovésku túnatali. Hvað væri betur við
hæfi af núverandi valdhöfum en binda
endi á þessa raunalegu sögu. Hæg er
heimatökin! ■
IHvað er það annað en ranghverfan á sjálfstæðishugsjóninni að hér skuli ráða ríkjum
íhaldsmennirnir einbjörn, tvíbjörn og þríbjörn gónandi út f loftið með hendur í vösum
þegar tónlistin er annars vegar?
desember
E
Atburðir dagsins
1889 Enska skáldið Robert
Browning deyr. 1900 Enska
stríðsráðuneytið tilkynnir að
ellefu þúsund breskir hermenn
haft fallið til þessa í Búastríð-
inu í Suður-Afríku. 1904 Raf-
Ijós kveikt í fyrsta sinn á fs-
landi. Rafmagnið var frá vatns-
aflsstöð Jóhannesar Reykdal
við Lækinn í Hafnarfirði. 1911
Georg V krýndur keisari Ind-
lands. Hann tilkynnir að Nýja
Delhi verði höfuðborg í stað
Kalkútta. 1948 Snjóflóð féll á
bæinn Goðdal í Strandasýslu.
Sex manns fórust. Húsbóndan-
um var bjargað úr flóðinu eftir
fjóra sólarhringa. 1987 Hótel
Island tekið í notkun. 1990
Gísli Sigurðsson læknir kom til
Islands eftir að hafa verið gísl
Iraka í Kúvæt síðan í ágúst.
Afmælisbörn dagsins
Carl María von Weber 1786,
þýskur tónsmiður. Gustave
Flaubert 1821, franskur rithöf-
undur, fyrsta saga hans var Ma-
dame Bovary. Edvard Munch
1863, norskur listmálari. Ed-
ward G. Robinson 1893,
bandarískur leikari. Frank Sin-
atra 1915, bandarískur söngv-
ari.
Annálsbrot dagsins
Útileguþjófar [Fjalla-Eyvindur
og hyski hans] héldu sér uppi á
Flóamannaafrétti, er þar stolið
höfðu fjölda fjár. Fannst mikið
af því niðurskomu óeytt (þegar
leit var gjörð) í híbýlum þjóf-
anna, en þeir sluppu og flýðu
þaðan.
Ölfusvatnsannáll 1762.
Lærdómur dagsins
Sjálfur er ég ávallt reiðubúinn
til að læra þó að mér líki ekki
alltaf að mér sé kennt.
Winston Churchill.
Máisháttur dagsins
Fleiri eru gráir en Dóri.
Drep dagsins
Kvenmenn eru mitt drep, sagði
maðurinn og þurkaði framanúr
sér með erminni. Þessir drekar
hafa mig að leiksopp og pynta
mig. Ég reyni að svíkja þær en
þær elta mig uppi .og segjast_.
elska mig. Hefði ég.ekki
brennivín að forða mér útí væri
ég dauður.
„Lúterstrúarmaður" f paradísar-
heiixit Halldórs Laxness.
Orð dagsins
Römm er sú taug
er rekka dregur
föðurtúna tii
Sveinbjörn Egilsson.
Skák dagsins
Efim Geller var í eina tíð í hópi
alsterkustu skákmanna heims,
og hafði til að mynda fantatak
á sjálfum Fischer. Geller hefur
svart og á leik gegn Delekta,
og úlkljáir taflið í einni svipan.
Svartur leikur og vimiur.
1. ... Dxg3!! og hvítur gafst
upp. Drepi hann drottninguna
leikur svartur g5 og hvítur fær
ekki umflúið mát. Hh6.