Alþýðublaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 5
FIMMTIJDAGUR 12. DESEMBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 s k o ð a n ■ Svavar Gestsson formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra Sem ómar inn í nýja öld. 30. nóvember efndu Alþýðuflokks- menn í Hafnarfirði um samstarf stjórnarandstöðuflokkanna og sam- einingu. Framsögumenn á fundinum voru alþingismennimir Össur Skarp- héðinsson, Kristín Halldórsdóttir og Svavar Gestsson. Hér eru birtir punktar úr rœðu Svavars Gestssonar. Umræðuefnið á þessuni fundi er samstarf vinstrimanna, félagshyggju- fólks, jafnaðarmanna. Meðal annars er spurt hvort um gæti orðið að ræða sameiginlegt framboð þeirra þriggja flokka sem hér eiga fulltrúa við næstu kosningar. Til að slíkt samstarf verði þurfa nokkrar lykilforsendur að vera til sem ég ætla að gera grein fyrir hér á eftir. Það hafa verið gerðar margar til- raunir til þess að safna saman öllum vinstrimönnum á Islandi meðal ann- ars til þess að mynda nýtt stjómmála- afl sem vinni bug á hinum gömlu eins og þau em kölluð. Þessar ferðir em líkastar þeim ferðum sem Bretar kalla að fara yfir bæjarlækinn að sækja vatn; þessar ferðir átti oft að fara aðallega gegn Alþýðuflokknum og Alþýðubandalaginu fyrst og fremst. Þær hafa allar mistekist. Ég nefni Samtök frjálslyndra og vinstri nianna, Bandalag jafnaðarmanna, Þjóðvaka nú síðast og svo Nýjan vettvang í Reykjavík. En dæmið um hið gagnstæða, þegar flokkum og málefnum er sýnd virðing á jafnrétt- isgrundvelli, er Reykjavíkurlistinn. Þá kvað við annan tón enda árangur- inn eftir því. Hverjir eiga að vera með? Hverjir vilja vera með? Þessu næst ætla ég að nefna þá sem ég tel að ætti að ræða við um víðtækt samstarf. Um vilja Alþýðubandalagsins er enginn vafi í þessum efnum. Það sýna tilraunir formanns okkar Margr- étar Frr'mannsdóttur til að koma á samtölum á þessu ári. Innan Alþýðu- bandalagsins eins og annarra flokka eru hins vegar skiptar skoðanir um það hversu langt á að ganga; orðið „sameining" er villandi. Við erum að tala um samstarf, samfylkingu en ekki það að leggja niður flokkana. Við erum að tala um að leggja saman þá krafta sem koma út úr flokkunum samanlagt en ekki þá krafta sem fást út úr sundruðum flokkunum. Alþýðu- bandalagið hefur samkvæmt sögu sinni alltaf lagt áherslu á víðtæka samvinnu af þessu tagi; ég minni á tilraunir okkar til samstarfs við Jó- hönnu Sigurðardóttur og stuðnings- menn hennar 1994. Eg minni á ákvörðun okkar um að efna til sér- stakrar samvinnu við óflokksbundna einstaklinga í nær öllum kjördæmum í síðustu kosningum, þegar við buðun fram Alþýðubandalagið og óháðir. Það var okkur mjög mikilvægt og við munum leggja áherslu á að óháðir eða fulltrúar þeirra verði með í við- ræðum um framtíðarsamstarf á vinstrivængnum eins og reynar kom fram í bréfi Margrétar er hún sendi stjórnarandstöðuflokkunum fyrr á þessu ári. Mér kemur Alþýðuflokkurinn að jafnaði þannig fyrir sjónir að þar vilji menn samstarf. Ég endurtek - að jafnaði - því annað heyrist að sjálf- sögðu líka. Alþýðuflokkurinn hefur breyst að þessu leyti á tíu árum; 1985 óskaði ég eftir viðræðum við forystu- menn stjómarandstöðuflokkanna um samstarf og samfylkingu í því skyni að mynda nýtt landstjórnarafl. Því hafnaði Alþýðuflokkurinn þá og það gerði Kvennalistinn að sjálfsögðu líka enda nýlega orðinn til eftir kosn- ingarnar 1983. Ég tel því að sam- starfsvilji Alþýðuflokksins nú sé hið nýja í stöðunni miðað við það pólitíska umhverfi sem um var að ræða fyrir 10 árum eða svo, jafnvel fimm árum. Við fögnum þeirri við- horfsbreytingu urn leið og því verður ekki neitað að við munum enn eftir því, að alltaf á formannsferli Jóns Baldvins kaus Alþýðuflokkurinn fyrst samstarf við Sjálfstæðisflokkinn á undan samstarfi við okkur. Það var vissulega sárast 1991 þegar vinstri- stjómin var klofin og brotin niður þó hún hafi komist í gegnum kosning- amar. Og við getum ekki neitað okk- ur um að minna á hina sérkennilegu stöðu í Hafnarfirði þar sem Alþýðu- flokkurinn heldur Sjálfstæðisflokkn- um enn við völd þó annað sé sannan- lega í boði og hafi verið í boði. En þrátt fyrir þetta tel ég að Alþýðu- flokkurinn vilji að jafnaði nú fremur vinstra samstarf en hægra samstarf og að hann hafi með samþykkt síð- asta flokksþings í raun hafnað við- reisnarkostinum sem aðalkosti sínurn við næstu stjómarmyndun. Kvennalistinn hefur sett sterkt mark á íslensk stjómmál á annan ára- tug. Ég tel reyndar að áhrif Kvenna- listans hafi verið misjafnleg mikil og tel líka að konur í mínum flokki hafi átt mikinn þátt í þeirri jafnréttisþróun sem hefur átt sér stað hér á landi. Sigur Kvennalistans felst fyrst og fremst í því að hann hefur komið kvenfrelsi á dagskrá íslenskra stjóm- mála og samstarf íslenskra vinstri- manna á breiðum grundvelli verður aldrei neins virði nema kvenfrelsi verði samnefnari þess sem gert verð- ur og ákveðið í víðtækara samstarfi íslenskra vinstrimanna eða félags- hyggjufólks. Ég hygg að Kvennalist- inn vilji að jafnaði taka þátt í sam- starfstilraunum vinstrimanna. Það hafa þær sýnt á alþingi að undan- fömu; vandinn er sá að Kvennalistinn á kannski eftir að skilgreina sig sjálf- ur, en hann er að allra mati í miðju félagshyggjuhreyfingarinnr á fslandi hvemig sem allt er skoðað. Framsóknarflokkurinn er nú í ríkisstjóm sem hindrar það hins veg- ar ekki að við fjöllum um flokkinn í þessu samhengi. Framsóknarflokkur- inn er þrátt fyrir aðild sína að ríkis- stjóminni injög mikilvægt afl í borg- arstjóm Reykjvíkur, Reykjavíkurlist- anum. Að mínu mati er það reyndar aðalatriðið í samvinnu vinstrimanna á fslandi að þar takist samstarf áfram með jafnmikilli breidd og var síðast. Þess vegna ber að leita allra leiða til þess að fá Framsóknrflokkinn til samtals um samvinnu rétt eins og við kröfðumst þess að Alþýðuflokkurinn tæki þátt í Reykjavíkurlistanum á síð- asta kjörtímabili. Framsóknarflokkur- inn hefur að vísu hafnað öllum sam- tölum en engu að síður hafa forystu- menn úr Framsóknarflokknum í verkalýðshreyfingunni sýnt áhuga á víðtæku vinstra samstarfi og því á að halda áfram og kanna allar leiðir sem færar eru til þess að gera það sam- starf eins víðtækt og mögulegt er. í því sambandi breytir engu þó Fram- sóknarflokkurinn hafi kosið að verða fremur hægrimiðflokkur en mið- vinstriflokkur; þrátt fyrir það er vitað að í Framsóknarflokknum eru þús- undir kjósenda afar óánægðar með íhaldssamstarfið og þetta fólk myndi taka undir kröfuna um að knýja Framsóknarflokkinn til vinstri. Þessi áhersla mín á Framsóknarflokkinn, sem helgast meðal annarsjaf góðu samstarfi við þá í mínu kjördæmi, breytir hins vegar ekki þeirri stað- reynd að viðræður um samstarf vinstrimanna á næstunni hljóta fyrst og fremst að vera á milli Kvennalist- ans, jafnaðarmanna og Alþýðubanda- lagsins. Þetta var urn hugsanlega þátttak- endur í samtölum en þau gerast ekki aðeins í gegnum flokka heldur líka einstaklinga og einnig í gegnum ein- staka aðila sem eru í flokkum en þó ekki á vegum flokka beinlínis. f því sambandi minni ég á viðræður ungs fólks, minni líka á sterkan vilja til samstarfs á einstökum stöðum eins og í Hafnarfirði, minni á nýtt félag ungs fólks í Hafnarfirði, sem heitir Brautin og að standa Alþýðubandalg- ið og óháðir. Ég minni einnig á við- ræður þær sem komið var á fyrir frumkvæði formanns okkar Alþýðu- bandalagsmanna þar sem einkum ræðast við sveitarstjómarmenn víðs- vegar að af landinu. Alþýðubanda- lagið heldur aðalfund miðstjórnar sinnar í lok janúar og þar verður tek- ið á þessum spumingum um samstarf við aðra flokka. Fyrst pólitískar aðstæður f nútíð og framtíð Lykilforsendurnar fyrir víðtækara samstarfi félagshyggjufólks á íslandi um þessar mundir em þessar að mínu mati: Fyrsta forsendan eru pólitískar aðstæður. Þær virðast að mörgu leyti vera fyrir hendi. 1. Þeir flokkar sem hér um ræðir eru allir í stjórnarandstöðu. 2. Þeir eru að berjast við afar sterkt ríkis- vald. 3. Þeir eru að berjast við hlið verkalýðshreyfingarinnar og það er viðurkennt að 4. þeir eiga uppmnalega málefna- lega samleið þó margt hafi á dagana drifið sem hefur skilið þá að. 5. Hin pólitísku verkefni dagsins í dag kalla auk þess á samstarf og sam- fylkingu til þess að stuðla að úrbótum t félags- og velferðarmálum og menntamálum og í atvinnumálum; á þessum vettvangi era einmitt málin sem snerta unga fólkið sérstaklega. Það em því stjómmál unga fólksins sem knýja á um pólitíska samleið. Hin pólitísku skilyrði nútímans eru því að flestu leyti samstarfi í vil. Ef horft er til framtíðar em hin pól- itísku skilyrði þau að það þarf að fylkja saman afar sterku afli til að ná utan um þau verkefni. Fremst standa umhverfismálin.I annan stað er krafan um jöfnuð óhjá- kvæmileg forsenda þess að heirnur- inn lifi af. í þriðja lagi verður því að- eins unnt að tryggja öryggi og frið í framtíðinni að um verði að ræða víð- tækt samstarf þvert á landamæri. [Um þetta má til dæmis lesa í bókinni Sjónarrönd sem þið hafið áreiðan- lega kynnt ykkur. Hún heitir reyndar Sjónarrönd, jafnaðarstefnan - við- horf því að hún byggist á forsendum jöfnuðar - það er þeirrar almennu stjórnmálastefnu að dregið skuli úr ójöfituði.] Ég les því pólitískar forsendur nútíðar og framtíðar þannig að það séu forsendur fyrir nánara sam- starfi þessara flokka eins og ég kem reyndar aðeins að síðar. Ég geri hins vegar ekki Htið úr því að afstaðan til nánari samvinnu flokk- anna allra er misjöfn innan þeirra allra. Gagnkvæm virðing Fyrsta forsendan byggist þannig á hinum pólitísku aðstæðum. Önn- f \ ^ • „En versti óvinur samstarfs vinstrimanna á liðnum ár- um er skortur á raunsæi. Nú þarf að halda af stað með raunsæið í för. Þá verður hægt að komast langt, annars ekki.“ ur forsendan er gagnkvæm virð- ing. Þar á ég við virðingu flokkanna og forystumanna þeirra hver fyrir öðmm í bókstaflegum skilningi, virðingu fyrir málefnum, fyrir tilfinningum, fyrir áherslum í nútíð, fortíð og fram- tíð. Ég tel það ekki sýna virðingu fyr- ir væntanlegum samherjum að ráða rnenn til skotgrafarhernaðar á ein- staklinga hvers í annars ranni. Ég tel það ekki virðingu fyrir hugsanlegum samherjum að efna til rógsiðju gegn einstaklingum í forystu flokkanna. Ég tel það ekki sýna gagnkvæma virðingu þegar því er lýst yfir að menn vilji samstarf við suma en ekki aðra. Dæmi um gagnkvæma virð- ingu, þrátt fyrir ágreining, er sam- vinna stjórnrandstöðuflokkanna á síðasta þingi. Sú samvinna var og er gmndvöllur þess að við emm að tala saman hér í dag. Ég tel það ekki skynsamlegt til að skapa samstöðu að halda aðallega fram þeim málunt sem ágreiningur er um við aðra flokka sem á að efna til samstarfs við. Ég nefni þar uppsetninguna ESB, land- búnaður, fiskveiðar, kjördæmamál, landbúnaður og svo framvegis. Um þau mál má hins vegar segja: Land- búnaður og veiðileyfagjald eru ekki grundvallaratriði heldur almenn fyrir- komulagsatriði. Kjördæmamálið verður því miður að leysa með hlið- sjón af því að núverandi stjórnar- flokkar nái ekki saman og taki upp einmenningskjördæmi eða eitthvað álíka fráleitt kerfi. Og spumingin um aðild að Evrópusambandinu er ekki smámál heldur grundvallarmál í rauninni flokkur mála sem snýst um svo að segja allar gmndvallarspurn- ingar íslenskra og alþjóðlegra stjóm- mála stjómmála. Ég kem hér á eftir að öðmm málum sem ég kalla sam- einandi málefni en ekki sundrandi málefni og með því er ég ekki að gera lítið úr öðmm málum. Og ég er heldur ekki að leggja það til að menn leggi nein mál til hliðar. Slík krafa væri líka fráleit; hún er fyrsta skrefið á leiðinni til kúgunar minnihluta og í hróplegri andstöðu við lýðræðisleg viðhorf. Ekki til að kljúfa flokka heldur til að sameina Þriðja forsendan er að við viður- kennum áður en lengra er haldið að viðræðurnar hafi ekki þann til- gang að kljúfa flokka heldur að leggja saman krafta heilu flokk- anna. Þess verður vart meðal annars í einkar athyglisverðum leiðumm Al- þýðublaðsins fyrir nokkru að brýn nauðsyn sé að halda tilteknum ein- staklingum í Alþýðubandalaginu fyr- ir utan þessi samtöl um samstarf vinstrimanna. Stundum finnst mér örla á þeirri draumsýn í Alþýðu- flokknum að menn vilji gjarnan stækka Alþýðuflokkinn og gera Al- þýðubandalagið að smáflokki fremur en það sé markmiðið að stuðla að samvinnu á jafnréttisgmndvelli. Þessi draumsýn er slæm því í verki seinkar hún því að unnt verði að halda íhald- inu og viðhorfum íhaldsins, pólitískri stefnu þess, niðri á fslandi. Þessi draumsýn, ef unnt er að kalla hana svo hátímbruðu nafni, var forsenda þess að tilraunimar sem ég nefndi áð- an mistókust. Þrátt fyrir vilja til samstarfs hljóta flokkamir hver og einn að halda fram sínum málum og sínum áherslum, eftir því sem henta þykir í aðstæðun- um á hverjum tíma. Það kemur ekk- ert annað til greina. Engu að síður er ómaksins vert að velta því fyrir sér hvaða málefni það gætu verið sem væru eins konar samst^rfmálefni þeirra flokka þriggja sem hér eiga fulltrúa í dag. Ég tel að þá eigi frekar að nálgast málin út frá almennum grundvallaratriðum en augnabliks- málum af margvíslegu tagi. Hver eru hin sameinandi mál? Þá kem ég að fjórða grundvall- aratriðinu og því stærsta sem eru málefnin sjálf. Ég vil leggja áherslu á sameinandi fremur en sundrandi málefni; hver eru hin sameinandi málefni? Ég nefni dæmi: 1. Geta flokkamir sameinast um að hafa umhverflsmálin fremst allra mála í áherslum sínum þannig að samstarfið verði ekki aðeins rautt heldur grænt líka? 2. Geta þessi stjórnmálasamtök ekki örugglega sameinast um kröf- una um minni ójöfnuð á öllum svið- um í launum, í heilbrigðismálum, í menntamálum í félagslegri þjónustu? Þessi krafa felur það líka í sér að við tökum á forréttindahópunum sem ekki hefur verið samstaða um og var meðal annars ekki í þeirri ríkisstjóm sem við unnum saman í síðast; þar á ég sérstaklega við fjármagnstekju- skattinn sem tókst þá ekki að koma á. 3. Geta þau samtök sem hér um ræðir ekki öruggleg sameinast um kröfuna um almannavæðingu í stað einkavæðingar, um atvinnulýð- ræði, um að valdið verði flutt til fólksins, um breytingu á kosninga- lögunum í því skyni að færa valdið nær fólkinu? Til dæmis þannig að fólkið velji frambjóðendur ekki síður en flokka. 4. Geta þessi samtök sem hér um ræðir ekki ömgglega sameinast um siðbót í samfélagsrekstri - gegn spillingu í embættaveitingum, gegn kvótabraski, gegn sjálfstökuliðinu og spillingu í einkavinavæðingunni? 5. Geta þessi samtök sem hér um ræðir sameinast um nýjan tón í utanríkismálum - tón sem leggur áherslu á samstöðu með heiminum öllum fremur en einstökum svæðum, tón sem er í samhljóm við sameinuðu þjóðirnar og umhverfissamningana frá ríó svo dæmi séu nefnd? Af hverju ekki að byrja á því að feta sig áfram eftir svona gmndvall- aratriðum? Síðast en ekki sfst: Raunsæi Þá er ég komin að fimmta og síð- asta lykilatriðinu og kannski því mikilvægasta en það er raunsæi. Mín skoðun er sú að nú sé raunsætt að vinna að því að þeir flokkar sem hér um ræðir komi saman málefhayf- irlýsingu og samstarfsyfirlýsingu fyr- ir næstu alþingiskosningar um að þeir vinni saman í ríkisstjórn eftir kosn- ingarnar sem verða 1999 í síðasta lagi; þeir em þá að segja að enginn þeirra muni fara með öðmm flokkum þó það byðist, heldur ganga fram sem blokk með einn stjórnarsáttmála eða drög að honum fyrir næstu kosning- ar. Ef þetta er hægt er hægt að kom- ast lengra. En versti óvinur samstarfs vinstrimanna á liðnum ámm er skort- ur á raunsæi. Nú þarf að halda af stað með raunsæið í för. Þá verður hægt að komast langt, annars ekki. Ef allt þetta fer saman sem hér hef- ur verið talið: 1. Pólitísk skilyrði í nútíð og fram- tíð. 2. Gagnkvæm virðing og tillits- semi. 3. Einbeittur vilji til þess að sam- eina alla en ekki að sundra sumum. 4. Sameiginleg vinna að samein- andi málefnum og 5. síðast en ekki síst raunsæi - þá munum við hér saman ná árangri. Þá væmm við að slá þá tóna sem geta ómað inn í nýja öld. ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.