Alþýðublaðið - 12.12.1996, Síða 3
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
■ Á heimasíðu sinni gerir Björn Bjarnason að umtalsefni tvær nýútkomnar bækur
sem hann mælir sérstaklega með
Björn dæmir bækur á Netinu
„Áður en lengra er haldið vil ég taka fram, að báða höfundana þekki ég
vel og því get ég lýst aðdáun minni á því, hve mikinn dugnað þeir hafa
báðir sýnt við að Ijúka verkum sínum á skömmum tíma."
y
Aður en ég tók við því starfi, sem
ég nú gegni, fór mestur laus tími
minn frá venjubundnum störfum um
þetta leyti árs í lestur jólabókanna og
skrif umsagna um þær fyrir Morgun-
Önnur
sjónarmið
i
blaðið. Að vísu voru það ekki bækur
um fagurfræðileg efni, sem ég hafði á
minni könnu, heldur hluti hinna, sem
snúast um sagnfræði og þjóðfélags-
mál. Hélt ég þessu áfram, eftir að ég
lét af störfum á blaðinu og settist á
þing. Nú er einnig þessi þráður við
blaðið slitnaður og ég læt mér nægja
að lesa frekar ritdóma um bækur en
verkin sjálf. I fyrra gat ég þó á þessum
stað um tvær bækur, sem ég hafði les-
ið og fékk fyrir það ákúrur á Alþingi
frá Olafi Ragnari Grímssyni, eins og
sjá má í fyrri pistlum mínum hér á stð-
unni. Taldi hann ekki við hæfi, að
menntamálaráðherra léti í ljós skoðan-
ir sínar með þessum hætti. Ég er þó
enn við sama heygarðshomið. Vil ég
enn nefná tvær bækur, sem ég hef
kynnt mér og lúta að stjómmálum. Þar
á ég annars vegar við bókina sem dr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur
skrifað um dr. Benjamín H.J. Eiríks-
son og byggist á samtölum þeirra og
hins vegar við bók dr. Vals Ingimund-
arsonar um samskipti fslands og
Bandaríkjanna frá stríðslokum fram á
sjöunda áratuginn.
Áður en lengra er haldið vil ég taka
firam, að báða höfundana þekki ég vel
og því get ég lýst aðdáun minni á því,
hve mikinn dugnað þeir hafa báðir
sýnt við að ljúka verkum sínum á
skömmum tíma. Bækumar fjalla að
nokkm um svipað tímabil, það er þann
tíma, þegar fslendingar vom að taka
eigin mál í sínar hendur. Dr. Benjamín
segir ffá því, hvemig stjómmálamenn
áttuðu sig á meginsjónarmiðum í efna-
hagsmálum, sem höfnuðu forsjá ríkis-
ins, og tóku að fikra sig í átt til frjáls-
lyndra stjórnarhátta. Hann kynntist
einnig Þýskalandi í þann mund, sem
nasistar vom að taka völdin og Sovét-
ríkjunum á tímum Stalíns. Saga hans
er því jafnframt lýsing á meginþáttum
í stjómmálum aldarinnar frá lyktum
fyrri heimsstyrjaldarinnar. Tekst
Hannesi Hólmsteini vel að beina at-
hygli lesandans að þessum straumum
og tengja þróun mála í íslensku stjóm-
og menningarlífi við þá.
Af sögu dr. Benjamíns sjá menn, að
allan þann U'ma, sem saga hans spann-
ar, voru tvö öfl, sem tókust á, tals-
menn sósíalisma og ríkisforsjár annars
vegar og frjálsræðis og einkaframtaks
hins vegar. Aðhylltist söguhetjan fyrri
skoðunina á fyrri hfuta ævi sinnar en
snerist síðan til fylgis við ftjálsræðið.
Þessi átök setja einnig mikinn svip
á rit Vals Ingimundarsonar, sem er
besta úttekt til þessa á samskiptum ís-
lands og Bandaríkjanna á þeim ámm,
þegar Islendingar vom að móta utan-
ríkisstefnu sína og leggja grunn að
samstarfi srnu við aðrar þjóðir. Átökin
um utanríkisstefnuna settu meiri svip
á stjómmálastarfið allt ffam á áttunda
áratuginn en deilur um stefnumótun í
efnahagsmálum. Er ljóst, að í þvr efni
hafa þeir haft rétt fýrir sér, sem vildu
vamarsamstarf við Bandaríkin og að-
ild landsins að Atlantshafsbandalag-
inu. Þá var einnig um langan aldur
haldið ffam, að r samningum íslenskra
og bandarískra stjómmála- og emb-
ættismanna hefðu þeir hlutir gerst,
sem ekki þyldu dagsins ljós. Þjóðvilj-
inn sálugi hélt þeirri skoðun sr og æ á
loft, að um landsal hafi verið að ræða
og óeðlilegt leynimakk manna, sem
vom sakaðir um landráð af talsmönn-
um sósíalisma og kommúnisma.
Rannsóknir Vals leiða ekki einungis
ljós, að réttar og raunsæjar ákvarðanir
voru teknar um stefnuna í utanríkis-
málum heldur einnig að ásakanimar
um óeðlilegt leynimakk, landsölu og
iandráð eru og voru ómerkilegur
kommúnistaáróður.
Ungur og mikils metinn mennta-
maður, Ármann Jakobsson, ritar um
bók Vals í DV 5. desember sl. Er Ijóst,
að hann sættir sig ekki við þær
ákvarðanir, sem teknar voru, þegar
stefnan í utanríkis- og vamarmálum
var mótuð. Segir hann þennan þátt ís-
landssögunnar grátbroslegan harm-
leik, af því að aldrei hafi verið von á
innrás Sovétríkjanna og íslenskir sósí-
alistar hafi verið lýðræðis- og þing-
ræðisflokkur. Armann heldur enn í þá
skoðun, að með leynimakki hafi hem-
aðarsamvinnunni verið komið á. Hef-
ur hann ekki kynnt sér þau ummæli
Gylfa Þ. Gíslasonar, að Gylfi studdi
varnarsamninginn við Bandaríkin
1951 en ekki aðildina að NATO 1949,
af því að meiri upplýsingum var miðl-
að um vamarsamstarfið? Umsögn Ár-
manns minnti mig á gömlu skrifin um
þessi mál í Þjóðviljanum á tíma kalda
stríðsins. Hann lítur ekki til þess, að
með stefnunni frá 1949 og 1951 var
staða íslands í samfélagi þjóðanna
mótuð. Hún hefur skilað þjóðinni
miklum árangri og enginn getur full-
yrt, hvað Sovétríkin hefðu gert, ef ís-
land hefði ekki gengið í NATO og
samið um vamir við Bandaríkin. Þá
tóku talsmenn sósíalisma á íslandi
jafnan málstað Varsjárbandalagsins og
Sovétríkjanna og vildu hlut þeirra sem
mestan...
Til að öðlast skilning á því, sem
gerst hefur í stjómmálasögunni, em
þessar tvær bækur því haldgóð undir-
staða. ■
Fæstir áttu von á því að skáld-
saga Bjama Bjarnasonar
Endurkoma Maríu yrði tiinefnd
til (slensku bókmenntaverðlaun-
anna, en tilnefningin hefur vakið
rækilega athygli á bókinni og
hinum unga höfundi. Ekki voru
allir jafn hrifnir af verkinu og
dómnefndin sem tilnefndi hana
því að minnsta kosti tvö bókafor-
lög, annað þeirra hið stærsta á
landinu, höfnuðu handritinu áð-
ur en bókaútgáfan Ormstunga
tók höfundinn upp á arminn...
Orðuveitingarforseta Islands
hafa jafnan verið umdeildar
og engin ástæða til að ætla að
breyting verði þar á. Jónas
Kristjánsson hefur verið aðal-
maður orðunefndar en hann hef-
ur nú látið af störfum. I hans stað
hefur Ólafur Ragnar Grímsson
skipað, samkvæmt tillögu Dav-
fðs Oddssonar forsætisráð-
herra, engan annan en rithöf-
undinn og strigakjaftinn Indriða
G. Þorsteinsson sem aðal-
mann. Indriði er þekktur fyrir
annað en moðreyk og viðteknar
skoðanir þannig að búast má við
fjöri á þessum vettvangi. Aðrir í
orðunefnd eru þeir Baldvin
Tryggvason fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri, Hulda Valtýsdóttir
blaðamaður, Sigmundur Guð-
bjarnason prófessor. Sem fyrr
er Kornelíus Sigmundsson
orðuritari...
Spekingarnir þykjast þegar
vita hvaða skáldverk muni
hreppa íslensku bókmenntaverð-
launin og segjast þar styðjast við
nær óbrigðula formúlu sem er á
þá leið að höfundur sem þegar
hafi hlotið verðlaunin muni ekki
hljóta þau aftur og að ungir rit-
höfundar eigi ekki möguleika
gegn þeim eldri. Þarmeð eigi
Bjarni Bjarnason, Guðmundur
Andri Thorsson, Gyrðir Elías-
son og Vigdís Grimsdóttir ekki
möguleika gegn Böðvari Guð-
mundssyni sem eigi að vera ör-
uggur um að hljóta verðlaunin...
Það verður mikið um dýrðir í
Listaklúbbi Leikhúskjallarans
næstkomandi sunnudag þegar
leikarar og rithöfundar mæta þar
með jólabækurnar. Það eru leik-
konurnar Helga Bachmann og
Edda Þórarinsdóttir sem hafa
umsjón með dagskránni en höf-
undarnir sem lesa úr verkum sín-
um eru: Þórarinn Eldjárn, Nína
Björk Árnadóttir, Bragi Ólafs-
son, Böðvar Guðmundsson,
Guðmundur Andri Thorsson,
Vigdís Grímsdóttir, Ólafur
Gunnarsson, Gyrðir Elíasson,
Ólafur Haukur Símonarson,
Þorsteinn Gylfason og Bjami
Bjarnason...
h i n u m e g i n
“FarSido" eftir Gary Larson
„Já, og fröken Hervör. Taktu þetta líka niður... Ég vil sjá
alla starfsmenn skriðdýradeildarinnar hérna á skrifstofunni
í bítið á morgun."
fimm á förnu m v e g
Hvað heitir fyrsti jólasveinninn sem kemur til byggða? Það mun vera Stekkjastaur.
Arndís Þorpeirsdóttir Kolbrún Guðjónsdóttir Hinrik Linnet: Hann heitir Ásta Pétursdóttir nemi: Hulda Finnbogadóttir
blaðamaður: Eg held að það húsmóðir: Steklcjastaur kom Stekkjastaur og Giljagaur Ég hef ekki hugmynd um það. hjúkrunarfræðingur: Það
sé Stekkjastaur. fyrstur... kemur á eftir honum. er Giljagaur.
JÓN ÓSKAR
m e n n
Dagný er og verður alltaf indæl-
asta lagið hans og sem mest
nautn er að syngja með sveiflu -
eftir (ca) tvö glös.
Oddur Björnsson krítíker var í stuði þegar
hann fjallaöi um nýja plötu með lögum Sig-
fúsar Halldórssonar. Mogginn í gær.
Sannast sagna talaði
ég fyrir steindaufum eyrum
skólakerfisins.
Helga Sigurjónsdóttir gefst ekki upp þó aö á
móti blási. í fyrir grein sinni um skólastefnu.
Mogginn í gær.
Mér finnst nefnilega óþægilegt
og jafnframt leiðinlegt að þurfa
að maula á brauðinu og drekka
kókómjólkina með frosnar
hendur og kalinn rassinn.
Sveinn Benediktsson er fátækur námsmað-
ur sem vill fá aðstöðu til að snæða nestið
sitt í Þjóðarbókhlöðunni. Mogginn í gær.
Herferð gegn kvenfélögum.
Aðalfyrirsögn DV í gær
- enda algjör skandall.
Mín kynslóð þurfti
ekki að kunna algebru.
Benedikt Axelsson kennari um könnunina
alræmdu. Verðbólgukynslóöin þurfti svo
sem ekki að kunna neitt. DV í gær.
Hann er einfaldlega talinn
fantur og fúlmenni.
Dagfari heldur því réttilega fram
að Halim Al sé eina sameiningartákn
íslendinga. DV í gær.
Allir málsaðilar segjast vera
ánægðir með niðurstöðu könnun-
ar á fylgi væntanlegs jafnaðar-
mannaflokks, hvar í flokki sem
þeir standa. Er þó ekki hægt að
sjá, að neinir hafi leyfi til að vera
ánægðir nema Iramsóknarmenn,
sem halda öllu fylgi sínu utan
jafnaðarmannaflokks.
Jónas Kristjánsson varar við of mikilli
ánægju. DV í gær.
Nýjir geisladiskar flæða yfir
eins og mykjuskán, og það
verður að segjast alveg eins og
er, gæði þeirra eru æði misjöfn.
Fjölmiðlarýnir DT hefur sitthvað við
hlutina að athuga.
Það er umhugsunarefni af hverju
íslenskir dagskrárgerðarmenn á
sjónvarpi þurfa ætíð að iíta á
áhorfendur sem algjöra hálfvita.
Fjölmiðlarýnirinn snjalli á DT aftur.
Ja, spyr sá sem ekki veit.
smáa letrið
Einn þeirra diska
sem ekki er líklegur að fara hátt núna
í allri jólagleðinni, og kannski ekki að
ófýrirsynju, er nýjasta afkvæmi
Sverris Stormskers. Sverrir er við
sama heygarðshomið hvað klám og
subbulegan ,Jiúmor“ varðar. Diskur-
inn heitir „Tekið stærra uppí sig“ og
lögin heita:
Sexófón fónsax
Af stað á staðinn
Handalögmálið
Meiriháttar minnimáttarkennd
Love really hurts
Stóð mér útí pungsljósi
Negrablús númer 2
Leaving for Las Vegas
Elskulegi póstur
Snæfinnur hórkarl
Sigur Saddams Busheims
Elsku póstur
Ó skuð vors lands
Framhald á afturhaldi
When your bad is dead
Vömbin þagnar