Alþýðublaðið - 12.12.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
æ k u
Istöðulausar manneskjur
með innbyggðan fatalisma
-segir Sigfús Bjartmars-
son skáld og þýðandi um
yrkisefni Raymonds Car-
ver, en nýverið kom út
bókin Beint af augum.
„Raymond Carver var ekki háskóla-
borgari heldur sjálfmenntaður höfund-
ur og stóð utan við alla akademíska
kredsa,“ segir Sigfús Bjartmarsson
skáld en smásagnasafnið, Beint af
augum, er nú komið út í þýðingu hans.
Höfundurinn var bandarískur smá-
sagnahöfundur og ljóðskáld sem
fæddist árið 1938 í smábæ í Norðvest-
urríkjunum. Hann var ekki háskóla-
borgari heldur bytjaði hann að skrifa
um þrítugt. Þá fór hann á námskeið í
„Creative Writing," og byrjaði uppúr
því að reyna að fá birtar smásögur og
Íjóð en heldur gekk honum brösuglega
að koma undir sig fótunum í bók-
menntaheiminum framan af. Hann
hlaut hinsvegar uppreisn æru og er nú
vinsæll höfundur.
Ekki lúserar
,JÉg kynntist verkum hans um 1980
en þá var ég staddur í Boston og verið
var að selja bækur hans með talsverð-
um uppslætti," segir Sigfús. „Ég
keypti þá safn af smásögum og las og
varð hrifinn og keypti eftir það þau
verk sem ég rakst á eftir hann. Ég hef
lengi haft áhuga á að þýða hann og í
fyrra gerði Robert Altman kvikmynd-
ina Shortcuts eftir þessari sömu bók,
og meiningin var að þýðingin kæmi út
á sama tíma en það fékkst þá ekki
styrkur úr Þýðingarsjóði. Ég ætlaði
líka upphaflega að ráðast í að þýða
annað verk eftir hann en útgefandi
hans lagði sérstaka áherslu á að þetta
verk kæmi fyrst út hvað sem síðar
yrði. Hvemig eru persónur Carvers?
,JHann er alltaf að skrifa um samskon-
ar fólk. Það á frekar erfitt með að fóta
sig í tilverunni en er ekki beint utan-
garðs og yfir því er ákveðin reisn. Þau
em ekki lúserar en ístöðulaus og hafa í
sér einhvern innbyggðan fatalisma.
Sögurnar gerast yfirleitt í smábæ í
Norðvesturríkjunum en þrátt fyrir allt
minnir andrúmsloftið fremur á rúm-
enskan veruleika en bandarískan.
Þetta eru ekki hádramatískar sögur
heldur vomir ógnin yfir á dálítið
hryssingslegan hátt en þrátt fyrir það
er hlýlegur húmor í bland við nötur-
leikann. Höfundurinn gerþekkir um-
hverfið og skrifar aldrei niður til
fólksins sem hann er að fjalla um. Það
má kannski segja að stemmningin
minni dálítið á Tsjekov. Bandarískir
höfundar af yngri kynslóðinni hafa
mikið sótt í smiðju Carvers og það
sama er uppi á teningnum með kvik-
myndagerðarmenn. Þeir sem að sáu
myndina Fargo eftir Cohen bræður
geta greint ósvikin Carver áhrif. Car-
ver hefur oft verið sagður realískur
höfundur en ég er ekki sammála þeirri
túlkun. Hann er ekki að boða neitt
gildismat og lesandinn verður að
draga sínar eigin ályktanir af lestrin-
um.“
Lifrin eða hjartað
Carver var sjálfur blautur eins og
margar persónur í sögum hans en líkt
og þær ráfaði hann dálítið um í tilver-
unni. Persónumar ráfa úr einum smá-
bænum í annan í von um betri kjör.
Hann var sjálfur lengi vel næturvörður
en þvældist úr einu starfi í annað í von
um meiri tíma til skriftanna. Eins og
títt er um þá sem drekka í óhóft skipti
hann líka títt um eiginkonur, var
þunglyndur, og af þessum ólifnaði
leiddi að lifrin eða hjartað dró hann til
dauða langt fyrir aldur fram. Höfund-
arverk hans er ekki stórt; telur einung-
is um tíu prentaðar bækur og sumt af
því em endurgerðir á eldri verkum svo
það er álitamál hversu mikið liggur í
raun og veru eftir hann. Þetta væru
kannski þrjú til fjögur bindi saman-
lagt, sögumar og ljóðin.“
Orðsending til 39,5 prósent flokksins
y-
Jólafundur jafnaðarmanna verður haldinn í Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, næstkomandi laugardag 14. desemberfrá kl. 16.00-19.00.
Þar verður hugguleg litlu-jóla stemmning með jólalögum og jófaglöggi.
Rithöfundarnir Einar Kárason, Guðmundur Andri Thorsson,
Hallgrímur Helgason og Vigdís Grímsdóttir flytja pólitískar hugvekjur hvert
með sínum hætti. Gestgjafar eru aþingismennirnir Ásta R. Jóhannesdóttir
og Gísli S. Einarsson. Jólafundur jafnaðarmanna er haldinn að tilhlutan
Samstarfs jafnaðarmanna í samráði við einstaklinga úr Regnboganum,
Hlaðvarpahópnum, ungliðahópnum og flokkunum.
Áhugafólk um samstarf jafna&rmanna