Alþýðublaðið - 07.01.1997, Qupperneq 4
I
4
ALÞVÐUBLAÐÐ
b æ k u
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997
r
■ Annað bindi Islenskrar leiklistar komið út
Upphaf listsköpunar á sviði
íslensk leikrit II er framhald ís-
lenskrar leiklistar I sem kom út
fyrir fimm árum. í verkinu rekur
höfundurinn Sveinn Einarsson
sögu íslenskrar leiklistar frá árun-
um 1890 til 1920. „Ástæða þess að
þetta tímbil fær svo mikið vægi er
að á þessum árum verður til raun-
veruleg listsköpun á íslensku leik-
sviði,“ segir Sveinn Einarsson.
„Leikfélög spruttu upp um allt
land. Reykjavík hafði þar forystu,
en áberandi mikil gróska ríkti einn-
ig í leiklistarmálum á Isafirði og
Akureyri. Með árunum verður
gróskan þvflík að helst má líkja við
sprengingu. Það er varla til það
verslunarpláss, útgerðarstaður eða
þjónustumiðstöð að ekki sé þar
fengist við leiklist. Sýningar voru
haldnar á hlöðuloftum, í hálf-
byggðum kirkjum og yflrleitt alls
staðar þar sem fólk gat komið sam-
an. Templarar áttu sinn þátt í að
efla leiklist í landinu því þau hús
sem þeir byggðu voru lögð undir
leiklistarstarfsemi. Templarar
stóðu fyrir leiksýningum og það
gerðu einnig kvenfélögin, ung-
mennafélögin, prentarafélög og
fleiri félög. Leiklistarstarfsemi í
skólum var einnig með miklum
blóma. í framhaldi risu eiginleg
leikfélög á nokkrum stöðum sem
höfðu það eitt að markmiði að
standa fyrir leiksýningum. Þetta er
stórmerkileg þróun."
Sveinn segir einkar forvitnilegt
að í grónum sveitum í öllum lands-
hlutum hafi sýningar jafnvel verið
haldnar í baðstofum eða hlöðum.
„Að það skuli hafa verið gert er
ákveðin yfirlýsing um áhuga al-
mennings á leiklist og sýnir að
leikstarfsemi skiptir talsvert miklu
máli fyrir almenna menningar-
vakningu þjóðarinnar," segir
Sveinn.
„Frá því um 1900 fram til 1920
verður gjörbreyting í leiklistarmál-
um landsins. Viðhorf þeirra sem
fást við leiklist breytist, verður
metnaðarfyllra. Það koma fram ný,
stór íslensk leikrit sem eru meira
að segja sýnd víða erlendis við
góðan orðstír. Við eignumst leik-
ara sem skóla sig í þeim tilgangi að
takast á við helstu verkefni heims-
bókmenntanna. Á þessum tíma eru
fyrstu tónverkin samin við leiksýn-
ingar, fyrsti dansinn er saminn við
leiksýningar og fyrstu raunveru-
legu leikmyndimar. Og maður sér
á viðbrögðum blaðanna að leiklist-
in er tekin alvarlega og ef um er að
ræða stóra leiksýningu, eins og
frumsýningu Fjalla- Eyvindar, þá
er jafnvel forsíðan lögð undir þann
atburð. Sú vakning sem hér verður
er hluti af þeirri vitund þjóðarinnar
að hún sé fær um að standa á eigin
fótum. Á þessum tíma byija menn
að skrifa sögur sem lýsa nútímalífi,
tónskáld og listmálarar eru einnig í
nútímalistsköpun. Þetta er ákaflega
spennandi og heillandi tími og
mikill vorhugur í fólki. Þarna er
ekki mjög stór en álitlegur leikhóp-
ur sem ræður við erfið verkefni.
Þetta em leikkonur eins og Stefan-
ía Guðmundsdóttir, Guðrún Indr-
iðadóttir og Gunnþómnn Halldórs-
dóttir. Meðal leikara eru Jens B.
Waage, Árni Eiríksson, Kristján
Þorgrímsson, Friðfinnur Guðjóns-
son og Helgi Helgason. Þetta eru
frumherjarnir sem byggðu fyrir
okkur fjalimar.“
Lauga-
vegur
103
Hin nýju samtök jafnað-
armanna, sem stofnuð
verða þann 18. janúar,
hafa opnað skrifstofu að
Laugavegi 103,3. hæð.
Skrifstofan verður opin
frá hádegi alla daga og
fram eftir kvöldi. Þeir
sem áhuga hafa á að
taka þátt í starfinu geta
haft samband á þeim
tíma, mætt á staðinn eða
hringt. Síminn er
5512990.
Undirbúningshópur
r
hoi.oMiia mhi
GEVALIA
KAPPf 51,0 r'
®§
LJjjd^
j
KÓLÓMBÍUKAFFI
Afburða ljúffengt hrcint Kólombíukafíi með kröftugu og frískandi bragði
Kaffið er meðalbrennt sem laðar fram hin fínu blæbrigði í bragði þess.
Kólombíukaffí var áður í hvítum umbúðum.
rmmémr.
MEÐALBRENNT
Einstök blanda sex ólíkra kaffitegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu
er megin uppistaðan. Kólombíukaffi gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð.
Blandan er loks fullkomnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku
og kjarnmiklu Kenýakaffi.
K v F v I 500 (i
miwim b m
i’ unvi;ii
..þur*iik<"’ kffnkóiM'i
GEVALIA
kai’Fi ‘>(,n ('
p§|J||S "
E-B R Yí»(í súrlilumla
Kaffi sem lagað er í sjálfvirkum kaffikönnum þarf að búa yfir sérstökum
eiginleikum til að útkoman verði eins og best verður á kosið.
Gevaba E-brygg er blandað með sjálfvirkar kaffikönnur í huga.
Aðeins grófara, bragðmikið og ilmandi.
'
Uár
MAXWELL IlölíSE
Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt,
hefur mikla fyllingu og sérstaklega góðan eftirkeim
sem einkennir Old Java. Kaffi sem ber af.
GEVALIA
-Það er kaífið!
MKUAI.RIIK.Wr