Alþýðublaðið - 11.03.1997, Page 1
■ Valgerður Sverris-
dóttir um LÍN
Verður af-
greitt fyrir
vorið
“Þetta mál verður leyst og þess er
ekki langt að bíða,” sagði Valgerður
Sverrisdóttir, þingflokksformaður
Framsóknarflokksins, þegar hún var
spurð hvort stúdentar geti vænst að
frumvarp um breytingar á Lánasjóði
íslenskra námsmanna, verði afgreitt
fyrir þinglok, þannig að samtíma-
greiðslur taki gildi fyrir næsta skóla-
ár.
“Að sjálfsögðu verður málið af-
greitt fyrir vorið. Það er búið að
semja um þetta mál.”
- En það er nú svo, að það hefur
ekki verið staðið við allt, sem var lof-
að í þessu máli.
“Það er búið að semja um þetta
milli stjómarflokkanna. Þetta mál
verður leyst.”
Tilefni er til að minnast orða Val-
gerðar á þingi 14. maí 1992, en þá
var hún og Framsóknarflokkurinn í
minnihluta:
“Verði það fmmvarp sem nú ligg-
ur fyrir eftir 2. umræðu að lögum er
stigið stórt skref aftur á bak í
menntasögu þjóðarinnar. Það verður
ekki lengur hægt að tala um jafnrétti
til náms. Eftirgreiðslukerfið er
ómanneskjulegt og byggir á hugar-
fari sem er hættulegt okkar þjóðfé-
lagi, hugarfari sem þekkir ekki að-
stæður almennings í landinu, hugar-
fari þeirra sem fæddir em með silfur-
skeið í munni.”
■ Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar, um hug síns fólks vegna nýjustu
kjarasamninganna
Finnst þetta svik og lúaháttur
- telur engann það víðáttuvitlausan að bjóða Dagsbrún upp á það sem Iðja skrifaði undir.
“Það er ekki hægt að ganga að þess-
um Iðjupakka, hann er nánast eins og
það sem við höfum hafnað. Ef menn
treysta ekki sjálfum sér og félögum
sínum, þá lenda þeir í svona ógöng-
um,” sagði Halldór Bjömsson, for-
maður Dagsbrúnar, um þá kjarasamn-
inga sem undirritaður hafa verið síð-
ustu daga.
“Við treystum bæði okkur og félög-
um okkar. Þess vegna stöndum við
vel, alla vega ennþá. Vonandi höldum
við því áfram. Það er mjög góð þátt-
taka í kosningunum um allsherjar
verkfall, eða yfir 300 manns á fyrsta
degi, en við þurfum 800 manns til að
fylla kvótann, og kosningin mun
standa í fjóra daga. Eg er bjartsýnn á
að okkur takist að ná tilsettum fjölda
félagsmanna og er viss um að niður-
staðan verði á einn veg. Miðað við
hug þeirra sem hafa komið, þá er ekki
annað að sjá en okkar menn séu sem
einn hugur og ein sál. Aðalmálið er að
við náum lágmarkinu. Það er búið að
setja það miklar girðingar á okkur
varðandi verkfallsboðanir.
Þessir nýgerðu samningar geta
veikt stöðu okkar, ef ekki gerist það
sem mér finnst, það er að fólk sé að
herðast. Því fínnst þetta svik og lúa-
hátt, að gera samninga, sem aðrir eru
búnir að hafna. Undir venjulegum
kringumstæðum væri hægt að ímynda
sér að þessir samningar myndu tefja
fyrir okkur, en það þarf ekki að vera,
að svo verði. Atvinnurekendur telja
sig vera búna að varða leiðina, og til
að fara aðra leið kallar á átök. Það er
vonlaust að við skrifum undir svipað
og þeir hafa verið að gera. Eg held
reyndar að menn séu ekki svo víðáttu-
vitlausir að reyna að bjóða okkur upp
á svipað og Iðja skrifaði undir.”
Margir hafa gripiö til þess aö hamstra mjólk, enda er ekki útlit fyrir annaö en verkfall Dagsbrúnarmanna,
hjá Mjólkursamsölunni, standi einhverja daga. i viötali viö Halldór Björnsson, formann Dagsbrúnar, hér
ofar á síðunni, kemur fram aö Dagsbrún er ekki tilbúin aö skrifa undir viölíka samninga og hafa veriö und-
irritaöir á siöustu dögum.
Berjum á
ráðherran-
um
“ sagði Guðni Ágústsson
á fundi með trillukörlum
“Það þýðir ekkert fýrir ykkur að tala
við þessar hetjur frá A-flokkunum, sem
engu ráða. Það lendir á okkur Fram-
sóknarmönnum að berja á sjávarút-
vegsráðherranum,” sagði Guðni
Ágústsson á fundi með reykvískum
trillukörlum á Kaffivagninum í síðustu
viku.
Fjölmennt var á fundinum og
trillukarlar minntu suma þingmenn
óspart á kosningaloforðin. Einar Oddur
Kristjánsson kvaðst hafa afráðið að
fara þá leið að reyna að hafa áhrif á af-
stöðu ráðherrans, í stað þess að leggjast
í víking gegn honum. Össur Skarphéð-
insson og Svavar Gestsson töldu báðir
að eina ráðið til að bæta hag smábáta á
aflamarki væri að þeir fengju aukna
hlutdeild úr þeirri viðbót sem væri að
vænta í kvóta þegar á næsta fiskveiði-
ári. Fundarmenn voru þó sammála um
að ráð Guðna Ágústssonar væri líklega
skásta leiðiii úl að liafa álnif á Þuisiein
Pálsson.
Fjórtán daga
verk að dæla
upp olíunni
Magnús Jóhannesson: Þetta er ekki
með öllu áhættulaust, það er stór-
streymt í kvöld en ætla að það verði
hægt að hefjast handa næstu daga.
“Það er ekki hlaupið að þessu verki,
svartolía er afar þykk og um leið og
hún kólnar er ekki hægt að dæla henni
með venjulegum dælum. Hluti þess
búnaðar sem var nauðsynlegur til þess-
arar aðgerðar kom erlendis frá svæðið í
gær,” segir Magnús Jóhannesson ráðu-
neytisstjóri í Umhverfisráðuneytinu.
„Það var ekki fært út í skipið fyrr en í
gær þegar menn réðust í að koma upp
aðgangi út í skipið. Þetta er ekki hættu-
laust og menn vilja ekki rísikera
mannslífum í þessari aðgerð. Það er
stórstreymt í kvöld en næstu daga á að
draga úr straumi og þá skapast mögu-
leikar á að vinna úr þessu. Það er áætl-
að að þetta verði fjórtán daga verk, og
því augljóst að þó verkið hefði verið
hafið fyrr, værum við ekki komnir
langt áleiðis.”
I gær fundaði umhverfisráðuneytið
um aðgerðir gegn mengun og forvam-
ir, hreinsun á rusli og reka og brottnám
skipsins þegar tímar líða. Fulltrúum
eigenda var gerð grein fyrir þessum
■ Filippseyingarnir úr áhöfn Vikartinds sendir úr landi með hraði
Vildu ekki láta tala við erlendu skipbrotsmennina
- segir Borgþór Kærnested um útgerð Vikartinds: „Eimskip taldi þeirra ekki þurfa við sjópróf en sjódómur var ekki á sömu skoðun."
Ég hef það sterklega á tilfinningunni
að erlendu skipbrotsmennimir hafi ver-
ið teknir með hraði úr landi af því að
erlendu eigendumir sem Eimskip er
fulltrúi fyrir vildu ekki láta tala við
þá,” segir Borgþór Kæmested fulltrúi
alþjóðlegra samtaka flutningaverka-
matma. „Þeir báðu mig um kaþólskan
prest á föstudagsmorguninn, og ég lof-
aði að koma með hann samdægurs.
Þegar ég mætti eftir nokkra klukkutíma
var búið að fara með þá úr landi. Rétt
fyrir tólf, þegar meira að segja var búið
að leggja fyrir þá á borð á hótelinu
vom þeir sóttir um borð án nokkurs
fýrirvara. Þetta sagði Borgþór Kæme-
sted þegar Alþýðublaðið innti hann eft-
ir afdrifum Filipseyinganna sem vom
um borð í Vikartindi þegar það strand-
aði við suðurströndina. „Ég hafði verið
beðinn um það af höfuðstöðvum sam-
takanna, sem ég starfa fyrir í Lundún-
um, að taka niður sögu Filipseying-
anna af skipbrotinu. Ég hafði þá sam-
band við ITF í Bremen, sem hafði fyr-
ir þeirra hönd gert kjarasamninga fyrir
eigendur skipsins. Þeir sögðust fyrir
kurteisissakir ætla að láta útgerðaraðil-
ann, Mid Ocean Shipping, vita af fyrir-
ætlun minni og gerðu það.”
Þegar Borgþór kom við tvo kaþólska
presta austur á Selfoss sex klukku-
stundum síðar vom Filipseyingamir
famir. „Ég veit að Utlendingaeftirlitið
sá annmarka á því að að flytja menn-
ina skilríkjalausa úr landi nema Flug-
leiðir ábyrgðust það. Ég ímynda mér
að forstjóri Eimskipafélagsins hafi átt
létt með að fá stjómarformann Flug-
leiða til að gera það í hvelli.”
Borgþór segir mennina hafa verið
drifna úr landi án þess að athuga hvort
þeir gætu borið vitni ef þurft hefði við
sjópróf. Mér var tjáð hjá Eimskipafé-
laginu, að fyrirtækið hefði gengið úr
skugga um að þeirra þyrfti ekki við. En
það kom annað á daginn. Þeir sem sáu
um sjóprófin kvörtuðu undan því að
þeir væm famir.”
“{ fýrsta lagi emm við ekki fulltrúar
útgerðarinnar, þó að við höfum leigt
þeim skip. En þeirra var ekki saknað
við sjóprófin enda var það frágengið
við dómarann hverjir ættu að mæta,
það vom til dæmis, fjórir úr áhöfn
skipsins og fulltrúar frá Eimskip. Ef að
þeirra væri saknað væri auk þess lítið
mál að kalla þá til. Þessir menn em í
vinnu og eiga fjölskyldur sínar erlend-
is, þeim lá eðlilega á heim, enda vom
þeir ekki í farbanni. Ég hafði strax
samband við lækninn á staðnum og
spurði hann álits á því hvort mennimir
þyrftu áfallahjálp. Hann sagðist ekki
telja svo vera á þessu stigi málsins.”