Alþýðublaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 ónarmið Oryggi sjómanna ábótavant Það er staðreynd að skip hafa farist vegna skorts á stöðugleika og gömium skipum verið breytt þannig að ekki hefur verið hægt að upp- fylla öryggiskröfur. í Austurlandi, málgagni Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi, skrif- ar Elma Guðmundsdóttir leiðara um öryggi sjómanna: Endalausar undanþágur frá eðli- legum öryggiskröfum gera það að verkum að hátt í 200 fiskiskip eru stórhættuleg eða hreinar dauðagildr- ur að mati Kristjáns Pálssonar al- þingismanns. Þetta kom fram í um- ræðum á Alþingi í síðustu viku. Það var fyrir tilstilli ungrar sjómann- sekkju að þetta mál var tekið upp á Alþingi og hefur að vonum vakið mikla athygii. Þessar tölur eru skelfilegar ef sannar reynast en samgönguráðherra hefur sagt að ekki megi rangtúlka þær upplýsingar sem fram koma í nýlegri skýrslu Siglingastofnunar Is- lands um stöðugleika íslenskra fiski- skipa. Þrátt fyrir góðan vilja ráðheir- ans til að bera blak af þessu ástandi er ljóst að af þeim 728 skipum af 2525 á skipaskrá sem könnunin náði til stóðst 191 skip ekki þær kröfur sem gerðar eru til stöðugleika. Verst virðist ástandið vera á tréskipum undir 15 metrum, þar stóðust 80 pró- sent skipanna ekki stöðugleikakröf- ur. Reglum um stöðugleika fiskiskipa hefur ekki verið fylgt eftir. Það er staðreynd að skip hafa farist vegna skorts á stöðugleika og gömlum skipum verið breytt þannig að ekki hefur verið hægt að uppfylla öryggis- kröfur, en það hefur ekki endilega komið fram í haffæmisskírteinum þeirra. Mörg þessara skipa voru smíðuð til annarra veiða en þau stunda nú og þá breytt til samræmis við það og það er annað hvort Sigl- ingastofnun eða viðkomandi ráðu- neyti sem gefur undanþágumar. Það hefur einnig komið fram í tengslum við þessa umræðu að meira fé er varið til rannsókna á jarðskjálft- um hér á landi en til öryggismála sjó- manna. Þó hafa ekki glatast hér mannslíf í áratugi eða aldir af völd- um jarðskjálfta en sjóslys em hér alltof tíð. Það er staðreynd að sjó- mennskan er litin öðrum augum en ýmsar aðrar atvinnugreinar og má til dæmis nefna að engin lög segja til um aðbúnað sjómanna. Sjómennska er hættulegri atvinnugrein en margar ef ekki flestar aðrar atvinnugreinar og er þá ekki á bætandi að sjómenn þurfi að stunda vinnu sína á mann- drápsfleytum. Leiki minnsti vafi á að öryggi sjómanna sem og annarra sé ábótavant ber að bregðast við því áður en það er orðið of seint. Maður skyldi ætla að það væri allra hagur að öryggismálum, hvort sem er sjómanna eða annarra stétta, væri sem best borgið. Mannslíf verð- ur aldrei metið til fjár og því vekja ummæli skrifstofustjóra LÍÚ í einu dagblaðanna síðast liðinn föstudag furðu, en hann segir: „Ég sé ekki meiri ástæðu í dag frekar en í fyrra að gera stórátak í öryggismálum sjó- manna. Þessurn málum er tiltölulega vel skipað og þetta upphlaup í kring- um Æsuna og þessi stöðugleikagögn gefa ekki tilefni til að halda því fram að hér sé stór hluti flotans ófær og hættulegur lífi sjómanna”. Það er ekki uppörvandi fyrir sjó- manninn eða fjölskyldu hans þegar einn af talsmönnum Landssambands íslenskra útvegsmanna sér ekki ástæðu til að gera átak í öryggismál- um sjómanna. Hvemig skyldi ekkj- unni ungu sem hratt þessari umræðu af stað líða? Tilgangur hennar var fyrst og fremst að vekja athygli á því að eitthvað er við það bogið þegar skip farast í logni og á spegilsléttum sjó og vekja menn til umhugsunar, svo fyrirbyggja megi slysin. Hún veit að hún endurheimtir ekki föður sinn eða maka, en hún telur að það megi koma í veg fyrir að aðrar konur standi í hennar sporum. Pegar Stöð 2 fær ensku knatt- spyrnuna til sýninga, það er næsta haust, mun Arnar Björns- son flytjast yfir frá RÚV. Ástæða þess að Stöð 2 bauð Arnari vinnu var að engir kostunaraðilar feng- ust, nema skilyrðum um aö annað hvort Arnar eða Bjarni Fel myndu annast lýsingar á enska boltan- um. íþróttafréttamönnum Stöðvar 2 var sem sagt ekki treyst í verk- efnið. r Afimmtudaginn boðuðu trillu- kallar þingmenn Reykvíkinga á sinn fund á Kaffivagninn úti á Grandanum í Reykjavík. Það vakti óskipta athygli að Ólafur Örn Haraldssson þingmaður Framsóknar var of upptekinn til að geta mætt á fundinn, en í staðinn mættu þeir Magnús Stef- ánsson, poppsöngvari og þing- maður Vestlendinga, og Guöni Ágústsson af Suðurlandi. Fund- argestir höfðu á orði, aö útþenslu- stefna Reykjavíkur væri komin út í öfgar því Guðna mætti nýta í margt annað betra en þing- mennsku fyrir Reykjavík. En Guðni kom, sá og sigraði. Eftir að hafa haldiö þrumuræðu um hvernig Framsókn myndi bjarga trillukörlum klykkti hann út með því að segja að nú talaði Magnús Stefánsson, og ,,...heldur hina ábyrgu ræöu fyrir hönd Fram- sóknar." Tíðrætt er um áhuga Árna Johnsen um lýsingu á Hellis- heiðina. Vitað er að framkvæmdin er dýr, en nú þykjast menn hafa fundið ódýra og umfram allt snjalla lausn, en hún er sú að Árni verði klónaður I nógu mörg- um eintökum, svo eftirmyndirnar geti staðið með jöfnu millibili á heiðinni, og að hvert eintak verði meö vasaljós í hendinni. Umræðurnar um ástandið inn- an Össurar hf., hafa verið há- værar, en til eru fleiri sögur af framkvæmdastjóranum umdeilda, Tryggva Sveinbjörnssyni, en hann var einn af eigendum Matar- búrs Meistarans, en því fyrirtæki hefur verið lokað. Mótframboð kom gegn sitjandi formanni í Barþjónaklúbbi ís- lands, Herði Sigurjónssyni. Sá sem bauð fram gegn formannin- um var Niels Hafsteinsson, en hann starfar á Hótel Sögu. Níels fékk til muna fleiri atkvæði en Hörður, og hefur því tekið við for- mennskunni. Biskupskosningar eru ofarlega á baugi. Ýmsir gera því skóna að sigurvegararnir í átökunum, sem leiddu til þess að Ólafur Skúlason ákvað að hætta séu þeir Flóki Kristjánsson og Geir Waage. Innan kirkjunnar er líka opinbert leyndarmál, að sá sem Ólafur Skúlason hefur mesta vel- þóknun á er Gunnar Kristjáns- son á Reynivöllum í Kjós. Þegar hann gaf kost á sér í beinni út- sendingu Dagsljóss á beininu hjá Hrafni Jökulssyni varð formanni Alþýðuflokksins, Sighvati Björg- vinssyni að orði: Biskup hröktu burtu þeir, i bræðralagi Flóki og Geir, og þegar friöar þókti von, þá kom Gunnar Kristjánsson. hinumcgin "FarSide" eftir Gary Larson fimm q förnum vcgi Ætlar þú aö hamstra mjólk? Inga Valborg Ólafsdóttir, hjúkrunarnemi: “Já, ég kaupi um 10 lítra og G-mjólk í kaffið.” Inga Valborg Einarsdóttir, röntgentæknir: “Já, ég er búin að byrgja mig upp.” Kristín Magnúsdóttir, nemi: “Maðurinn nminn sér um það. Ef verkfallið leysist næstu daga getum við baðað okkur upp úr mjólk.” Eymundur Gunnarsson, áfengisráögjafi: “Nei, alls ekki.” Ari Björnson, verkamaður: “Nei, ég hef enga þörf fyrir það.” v i t i m q n n “Karlmenn hafa verið fælnir við blómin, það að mála blóm hefur þótt svona kerlingaverk, en þá má benda á marga stór- málara listasögunnar sem hafa farið í blómagarðinn.” Tolli listmálari að ræða um blóm og list í DT. “Ég varð fyrir vonbrigðum með þennan árangur minn á HM. Ég átii að geta gert miklu betur en ég gerði og því á ég erfitt með að sætta mig við það að hafa hoppað bara 4 metra.” Vala Flosadóttir stangarstökkvari, í DV. “Nú er svo komið að það flóir út úr ríkiskassanum á fjóra vegu. Þeir eru í vandræðum með hvað þeir fái mikið inn í hann, en þeim dettur samt ekki í hug að hækka skattleys- ismörkin í samræmi við það sem gert var ráð fyrir í upp- hafi.” Pétur Sigurösson, á ísafirði, í Alþýðublað- inu. “Verkföll eru í raun jafn gam- aldags og úrelt og verkalýðs- félögin. Þau minna á fyrirbæri sem okkur finnast grátbrosleg í dag, eins og mjólkurbúðirn- ar, gjaldeyrisskömmtunina og innflutningsleyfin.” Glúmur Jón Björgvinsson, í DV. “Þegar ég kveiki í bókinni verð ég að leyfa eldinum að ráða ferðinni og get ekki lesið setningar í samhengi.” Elísabet Jökulsdóttir í ALþýðublaðinu. Hún hafði verið með dólgslæti og meðal annars bitið þjón í bakið. Hún var færð á lög- reglustöð en ekki sett í stein- inn.” Úr frétt í DV. “Við vitum ekki hvort frum- varpið er tilbúið. Málið virðist standa þversum í hálsinum á Birni.” Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, í Stúdentaráði, að ræða um Björn Bjarnason menntamála- ráðherra í Alþýðublaðinu. “Nei. Neytendur bera tjónið. Hver er svo ábyrgð ráðherr- ans, sem hefur beitt ólögleg- um aðgerðum? Verður hann látinn bera ábyrgð? Mun verða höfðað refsimál á hend- ur á honum? Mun hann þurfa að líða með sama hætti og sumir þeirra sem urðu harðast fyrir barðinu á ólögmætum aðgerðum af hans hálfu? Svarið er einnig nei.” Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og varaformaður Neytendasamtakanna, í Neytendablaðinu. s brostnum augum horfir sviðakjamminn á mig eins og það hafi verið ég sem sagði honum að vopndauðir færu í Valhöll Úr Ijóðabókinni Bónusljóð efti Andra Snæ ísaksson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.