Alþýðublaðið - 19.03.1997, Síða 1
■ Sigríður Jóhannesdóttir
Fíkniefnalög-
reglan misbeitir
valdi sínu
■ Umfangsmikið kvótamisferli á Bíldudal
Faldi yfir 300
tonn af þorski
Þarf að borga á þriðja tug milljóna í sekt
Fiskistofa hefur lokið rannsókn á
umfangsmiklu kvótamisferli hjá fyr-
irtækinu í Nausti á Bíldudal. Við
rannsókn kom í ljós að um 300 tonn-
um af þorski, sem landað var til fyr-
irtækisins, hafði verið „breytt" í aðr-
ar tegundir. Þetta hefur Alþðýðublað-
ið fengið staðfest hjá Fiskistofu. Við-
urlög vegna brotsins nemur jafnvirði
þess sem svindlað var með, eða í
þessu tilfelli um 25 milljónum króna.
Samkvæmt heimildum blaðsins er
enn frekari rannsókn fyrir höndum,
rannsókn sem tengist fleiri fyrirtækj-
um sem hugsanlega tengjast misferl-
inu á Bíldudal.
Sá afli, sem landað var til I Nausti,
kom frá fleiri en einu fiskiskipi og
ekkert hefur enn komið fram, sem er
áreiðanlegt og bendir til að útgerðir
eða sjómenn viðkomandi báta, hafi
■ Valgerður
Ræðir um
Evrópumál
„í þessu erindi mínu ætla ég að
fjalla vítt og breitt um Evrópumál.
Ég mun sérstaklega taka á umræð-
unni um skrifstofubákn, reglugerðar-
fargan og andlitslausa embættismenn
í Brussel sem striti við að ákveða allt
milli himins og jarðar, en sú umræða
er að mínu mati byggð á allnokkrum
misskilningi," segir Valgerður
Bjamadóttir, forstöðumaður hjá
EFTA, sem í dag flytur erindi um
Evrópumál á vegum Félags íslenskra
háskólakvenna. f fyrirlestrinum mun
Valgerður einnig víkja að Ríkjaráð-
stefnunni, fyrirhugaðri myntbreyt-
ingu og afstöðu kvenna til Evrópu-
sambandsins. Fyrirlesturinn verður í
Lögbergi og hefst klukkan 17.
tekið þátt í misferlinu. Ekki hefur
þurft að svipta báta leyfi til fiskveiða
vegna málsins.
Fiskistofa forðast að ræða einstök
atriði í þessu máli, en staðfestir að
rannsókn sé lokið og málið er nú á
kærustigi. Búið er að leggja á fyrir-
tækið gjald vegna brotsins, en það
nemur andvirði þess þorsks sem fyr-
irtækið tók á móti og skráði sem aðr-
ar tegundir.
Þegar sektarfjárhæðir eru ákveðn-
ar er miðað við aflaverð upp úr sjó,
þar sem um þorsk er að ræða má gera
ráð fyrir að sektin sé um 25 milljónir
króna. Fiskistofa vildi ekki staðfesta
sektarfjárhæðina.
Misferli sem þetta telst ekki opin-
bert refsimál. Þegar mál er eins langt
komið og þetta fer málið til sérstakar
úrskurðamefndar og þar er málið nú.
“Ég get nefnt fjölmörg dæmi þess
að fíkniefnalögreglan hefur farið
offari, lítillækkað og niðurlægt fólk
að ástæðulausu og brotið á lögvörð-
um réttindum þess,“ sagði Signður
Jóhannesdóttir, alþingismaður, og
deildi harkalega á starfshætti fíkni-
efnalögreglunnar í umræðum utan
dagskrár á Alþingi í fyrradag.
Sigríður sagði ennfremur, að hún
gæti nefnt dæmi um að fíkniefna-
deildin hefði gert húsleit hjá fólki án
húsleitarheimildar, sem væri skýlaust
lagabrot. Hún kvaðst líka geta bent á
mörg tilvik þess að fíkniefnadeildin
hefði misbeitt valdi sínu og farið
offari. Nauðsynlegt væri að koma í
veg fyrir það í framtíðinni.
“í einu tilviki," sagði þingmaður-
inn, „var talin þörf á því að hafa tal af
konu er bjó í smáþorpi úti á landi. í
stað þess að senda einn lögreglu-
mann með handtökutilskipun, sem
flestum hefði þótt fullnægjandi í
þessu tilfelli taldi yfirmaður fíkni-
efnalögreglunnar ástæðu til að senda
flugvél fulla af einkennisbúnum lög-
regluþjónum frá Reykjavík, ásamt
tveimur lögreglubílum úr nærliggj-
andi kaupstað með alla tiltæka lög-
regluþjóna á vakt til að umkringja
húsið.“
Sigríður rifjaði upp að yfirmaður
fíkniefnadeildarinnar hefði lýst yfir
að hann hefði greitt uppljóstrurum
fyrir þjónustu, sem hann taldi raunar
skammarlega lágar, „og líkur benda
einnig til að uppljóstrurum hafi verið
veittur afsláttur af refsingu, og jafn-
vel að litið hafi verið framhjá um-
fangsmikilli ólögmætri starfsemi."
Þingmaðurinn sagði, að nú lægi
fyrir að stafsemi fíkniefnadeildar
verði á vordögum færð til rannsókn-
arlögreglu ríkisins og því væri
„ástæða til að koma í veg fyrir að þau
mistök og sú misbeiting valds sem
fíkniefnadeildin virðist hafa gert sig
seka um verði með í farangrinum
þegar rannsóknarlögreglan tekur við
henni.“
Á baksíðu blaðsins er viðtal við
Böðvar Bragason, lögreglustjóra í
Reykjavík, þar sem hann segist
talsmaður þess að opinber rannsókn
fari fram, telji lögregluna ekki hafa
rétt við.
■ Sviptingar á tryggingamarkaðnum magnast í kjölfar Landsbankamálsins
Nýr tryggingarisi að fæðast
Forsvarsmenn Sjóvár-Almennra hafa hitt þrjá bankastjóra Búnaðarbankans til að ræða samtvinnun fyrirtækjanna.
í fyrrakvöld hittu allir bankastjórar
Búnaðarbankans Einar Sveinsson, for-
stjóra tryggingafélagsins Sjóvár-Al-
mennra og bróður hans Benedikt, for-
stjóra SR-Mjöl og einn mesta áhrifa-
mann í atvinnulífi landsmanna, til að
ræða möguleika á frekari tengslum
bankans og tryggingafélagsins í fram-
haldi af kaupurn Landsbankans á
helmingshlut eignarhaldsfélags Bruna-
bótar á Vátryggingafélagi íslands.
Þegar Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, kemur úr opinberri heimsókn frá
Færeyjum í vikulokin hyggjast fulltrú-
ar þessa hóps fá nánari skýringar á
hvort ríkisstjómin muni stefna að frek-
ari samtvinnum banka og tryggingafé-
laga, til dæmis með breytingum á líf-
eyrislöggjöfinni, og hvort eignarhalds-
félaginu verði leyft að kaupa 35 pró-
sent í Landsbankanum.
Fundurinn, sem fór fram í húsa-
kynnum bankans, var haldinn að fmm-
kvæði Sjóvár-Almennra, og engir
bankaráðsmenn Búnaðarbankans vom
viðstaddir. Af hálfu beggja aðila var
lögð rnikil áhersla á að viðræður aðil-
anna væra á könnunarstigi, en menn
sögðu þó, að ljóst væri að mikill vilji
væri af beggja hálfu til að tengja starf-
semi þeirra nánum böndum ef sammni
Landsbankans og VÍS yrði einsog nú
blasir við.
Báðir aðilar töldu ljóst, að væri það
ætlun ríkisstjómarinnar að stuðla með
þessum hætti að því að tvinna saman
bankana og tryggingamarkaðinn gætu
Búnaðarbankinn og Sjóvá-Almennar
ekki svarað því öðm vísi en með svip-
uðum samruna. Áður en hægt væri að
velja leiðir til að tengja fyrirtækin, til
dæmis með innbyrðis kaupum, væri
hins vegar nauðsynlegt að ná samtöl-
um við valdamenn í ríkisstjóminni til
að fá fram hvort einkavæðingu bank-
anna verði hraðað, einsog fjármálaráð-
herra lýsti yfir á Alþingi í gær að væri
æskilegt. Áður en það liggur fyrir telja
menn ekki hægt að ákveða hvort Bún-
aðarbankinn kaupi sig inn í Sjóvá-Al-
mennar, eða hvort tryggingafélagið
eigi að freista þess að kaupa bankann.
Forsvarsmenn beggja stofnana virð-
ast telja að kaup Landsbankans á
helmingi VÍS sé aðeins fyrsta vers, því
á eftir hljóti að koma að eignarhaldsfé-
lag Bmnabótar, sem á hlutinn í VÍS,
muni nota fjármagnið til að kaupa
þann 35 prósenta hlut, sem að minnsta
kosti verður seldur í bankanum sam-
kvæmt framvarpi ríkisstjómarinnar
sem nú liggur fyrir Alþingi. „Ætlar rík-
isstjómin að leyfa það?“ spurði einn úr
hópnum sem hittist í fyrrakvöld, í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær. „Ef það er
stefnan er auðvitað ljóst að við verðum
að svara því með samskonar tengslum
okkar fyrirtækja, til þess að verða ekki
undir í samkeppninni."