Alþýðublaðið - 25.03.1997, Side 1
MHiiimi min
Þriðjudagur 25. mars 1997
Lögreglan kaupir upplýs-
ingar fyrir tugi þúsunda
Böðvar Bragason, lögreglustjóri, í einkaviðtali við Alþýðublaðið
í einkaviðtali við Alþýðublaðið
vísar lögreglustjóri á bug öllum
ásökunum í tímaritinu Mannlífi um
að fíkniefnasalar fái að starfa með
vitund lögreglu, gegn því að gefa
henni upplýsingar úr undirheimum
fíkniefnasalanna. Hann vísar því
einnig á bug að það sé mögulegt að
slíkt gerist án sinnar vitneskju: „Mið-
að við vitneskju mína í dag, þá er hún
þessi: Lögreglan er frí af því að hafa
■ Brýnt réttindamál
samkynhneigðra
Hommar og
lesbíur fá að
stjúpættleiða
Ef frumvarp þess efnis
fer í gegn á þinginu
„Ég á von á því að frumvarpið fari
í gegn,“ segir Ólafur Öm Haralds-
son, „þetta hefur verið rætt í öllum
flokkum og flutningsmenn hafa
kynnt frumvörpin þar.“
Hvergi í heiminum njóta samkyn-
hneigðir þeirra réttinda að mega
stjúpættleiða böm, en samkvæmt
frumvarpi sem fimm þingmenn úr
öllum stjórnmálaflokkum hafa lagt
fram verður samkynhneigðum á ís-
landi sem búa í staðfestri samvist
heimilt að stjúpættleiða börn .
„f því felst,“ segir Ólafur Öm Har-
aldsson fyrsti flutningsmaður fmm-
varpsins. „Að ef annar aðilinn kemur
inn í staðfesta samvist með bam, get-
ur hinn aðili samvistarinnar sótt um
stjúpættleiðingu bamsins, þannig að
til dæmis ef kynforeldri deyr, gangi
foreldrarétturinn yfir til þess sem eft-
ir lifir. Við erum að benda á réttindi
barnsins, einnigf hvað varðar erfða-
mál og ættleiðing er í anda laganna
sem samþykkt vom í fyrra og hefði
átt að vera með þá. Það er verið að
undirstrika að staðfest samvist njóti
sömu mannréttinda og annað sam-
vistarform," sagði Ólafur Öm Har-
aldsson alþingismaður.
brotið lög,“ segir lögreglustjórinn.
Hann segir einnig tilhæfulaust, að
mönnum sem tengjast fíkniefnum sé
boðið að mál gegn þeim verði felld
niður veiti þeir upplýsingar um aðra
fíkniefnasala, og kveðst aldrei hafa
heyrt minnst á, að slíkum mönnum
haft verið greitt með ívilnunum eða
slaka af hálfu löggæslunnar. Hann
upplýsir hinsvegar að það tíðkist, að
kaupa upplýsingar um fíknisefnasala
frá uppljóstrurum gegn fé.
Böðvar Bragason segir lögregluna
kaupa slíkar upplýsingar að jafnaði
tvisvar til þrisvar á ári. Hann skrifar
sjálfur upp á öll slík kaup, og segir að
þau komi fram í bókhaldi lögregl-
unnar. Sjálfur telur hann gjaldið lágt:
„Það getur hlaupið á nokkmm tugum
þúsunda, en oftast minna,“ segir lög-
reglustjóri, og kveðst ekki muna eft-
ir hærri upphæðum í fljótu bragði.
Um ásakanir um að fíkniefnalög-
reglan hafi brotið lögvarin réttindi á
fólki segir Böðvar: „f þessum efnum
hefur trúlega stundum verið farið á
ystu nöfh. Ég get ekki orðað það
öðm vísi. Þetta em óskaplega við-
kvæm mál, og þama er keyrt alveg í
kantinum...En lögreglan gerir sér
ekki að leik að brjóta réttindi borgar-
anna.“
Böðvar kveðst jafnframt treysta
Bimi Halldórssyni, yftrmanni fíkni-
efnalögreglunnar, og þegar dóms-
málaráðherra óskaði eftir skýrslu frá
embættinu vegna ásakana sem komu
fram í Mannlífí fól hann Bimi að
skrifa skýringar embættisins.
■ Ágúst Einarsson alþingismaður
Alþýðublaðið hið eina sanna
málgagn jafnaðarstefnunnar
Munum einhenda okkur í að styrkja blaðið
“Þjóðvakablaðið og Alþýðublaðið
sameinast, en það gerist þannig að
Þjóðvaki verður aðili að stjóm Al-
þýðublaðsútgáfunnar. Einnig verða
ýmis sérkenni Þjóðvakablaðsins í Al-
þýðublaðinu, svo sem hin vinsæla
bílasíða Jónasar Ástráðssonar. Við
emm núna að einhenda okkur í að
styrkja og efla Alþýðublaðið sem hið
eina og sanna málgagn jafnaðarstefn-
unnar. Við emm spennt fyrir fram-
haldinu. Blaðið hefur verið gott og er
gott og verður vonandi enn betra þeg-
ar við leggjumst á sveif með vinum
okkar. Að auki er þetta eðlilegt fram-
hald af þeirri ágætu samvinnu sent
hefur tekist milli flokkanna. Við emm
að berjast fyrir því markmiði að jafn-
aðarmenn sameinist um eitt framboð
fyrir næstu kosningar. Okkar blað
hefur gegnt sínu hlutverki með sóma.
Við munum nú hjálpast við að safna
nýjum áskrifendum fyrir Alþýðublað-
ið, en okkur hefur mæst vinsemd og
hlýja frá forystu Alþýðuflokksins og
ritstjóm Alþýðublaðsins. Við erum
spennt fyrir þessu nýja verkefni.
“Ég er ánægður með aukinn styrk
Alþýðublaðsins og þetta er áfangi á
þeirri leið að sameina kraftana," sagði
Sighvatur Björgvinsson formaður Al-
þýðuflokksins.
■ Löggan og Franklín
Atli rannsakar
Þorsteinn Pálsson hefur sett Atla
Gíslason hæstaréttarlögmann sem
lögreglustjóra í rannsókn á samskipt-
um lögreglunnar í Reykjavík og
Franklíns Steiner. Ríkissaksóknari
I hefur sem sagt ákveðið að fram fari
opinber rannsókn á samskiptunum.
■ Þorskmengaður sjór,
segir Grétar Mar Jóns-
son skipstjóri
Það er
neyðar-
ástand
Grípum til „franskra“ aðgerða
verði ekki á okkur hlustað
Vísir, félag skipstjómarmanna á
Suðumesjum, íhugar að alvöru að
grípa til aðgerða verði ekki á þá
hlustað, varðandi veiðiþol þorsk-
stofnsins. Grétar Mar Jónsson, for-
maður félagsins, vildi ekki segja til
hvaða aðgerða þeir hyggjast grípa,
en benti á að árangur sem Frakkar
hafa náð með allskyns skæmm, svo
sem að stöðva flutningaleiðir og
fleira.
Það sem Grétar finnur helst að, er
hversu lítið tillit Hafrannsóknastofn-
un, tekur til þekkingu sjómanna, og
þá sérstaklega skipstjóra. Hann segir
skipstjóra vera sannfærða um að
þorskstofninn þoli meiri veiði, en nú
er leyfð og að þeir ætlist til að það sé
tekið mark á því sem þeir hafa að
segja.
“Það er neyðarástand hér á Suður-
nesjum. Menn eru í stöðugum vand-
ræðum að reyna að fiska aðrar teg-
undir en þorsk, en það gengur ekkert
þar sem hafið er það þorskmengað."
Grétar segir að velflestir bátar á
Suðumesjum fiski á leigukvóta og
svo hafi það verið síðustu ár, allir séu
nánast búnir með kvótann. Ekki eru
til neinar tölur um hversu háar fjár-
hæðir em greiddar árlega frá Suður-
nesjum vegna kvótaleigu, en ef mið
er tekið af þeim kvóta sem er leigður,
er ekki óvarlegt að gera ráð fyrir að á
hveiju fiskveiðiári greiði Suður-
nesjamenn allt að einum og hálfum
milljarði í kvótaleigu.
“Við emm hundfúlir yfir þessu,
eðlilega. Það em stóm útgerðimar,
sem gera skipin út á annað en þorsk,
sem em helstu leigjendur kvóta. Það
er ekki hægt, að á sama tíma og út-
gerðir em að brenna inni með kvóta,
þá skuli aðrir þurfa að leigja kvóta
fyrir 80 til 90 krónur kílóið.
“Það verður að stokka fiskveiði-
stjómunarkerfið upp. Við munum
fara friðsamlega af stað, en ef það
dugar ekki þá munum við grípa til
aðgerða sem tryggja að það verði
tekið mark á okkur framvegis. Við
erum hunsaðir varðandi veiðiráð-
gjöfina. Það er ekkert mark tekið á
okkur skipstjómm. Þrátt fyrir að
margir okkar hafi samanburðar-
eynslu í þrjátíu til fjömtíu ár. Til við-
bótar get ég nefnt að við þekkjunt
þau svæði, sem við höfum verið á í
áraraðir mjög vel. Margir skipstjórar
eru í raun góðir fiskifræðingar. Auð-
vitað er sárt að ekki skuli á okkur
hlustað."