Alþýðublaðið - 25.03.1997, Page 3

Alþýðublaðið - 25.03.1997, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Ragna Reykás kemur í bæinn Ingibjörg Pálmadóttir sveiflaði sér fyrir alvöru upp á stjörnuhiminn stjómmálanna þegar hún kom ung og frísk til Alþingis vorið 1991 og byrj- aði að berja á krötunum fyrir frammistöðu þeirra í heilbrigðismál- unum. Hún stóð sig nokkuð vel í slagnum. Þegar hún reif sig and- spænis Sighvati Björgvinssyni minntu þau á Davíð og Golíat, og þó stelpan af Skaganum hefði engan slöngvivaðinn líkt og Davíð forðum tókst henni að minnsta kosti að pirra þáverandi heilbrigðisráðherra svo eftir var tekið. Sagnfræðingar Alþingis hafa talið saman að á kjörtímabilinu stóð hún 367 sinnum upp á þinginu til að flytja ræðu. En þrátt fyrir þennan mikla ræðufjölda myndu „samlede verker" Ingibjargar Pálmadóttur frá síðasta kjörtímabili eigi að síður komast fyrir í örþunnu bindi. Einn þingmaður Framsóknar, sem nú er reyndar orðinn ráðherra, orðaði það svo hnyttilega að hún hafi í rauninni ekki flutt 367 ræður, heldur sömu ræðuna í 367 útgáfum. Hvað um það. Undir lok kjörtxmabilsins hafði þing- konan ekki aðeins sýnt Sighvati klæmar, heldur sannað um leið fyrir þjóðinni að það er ekki endilega for- senda farsællar þingmennsku að geta talað eða hugsað. Ræðan sem Ingibjörg Pálmadóttir hélt 367 sinnum á Alþingi fslands fól í stuttu máli í sér yfirlýsingu um að bölvaðir kratamir væm þjóðhættu- legar skepnur. Þeir hefðu tekið þátt í að setja á þjónustugjöld, viljað spara á sjúkrahúsunum og meira að segja agnúast út í kostnað við lyf sem allir vissu þó að væm bráðnauðsynleg. Það vantar ekkert, sagði þingmaður- inn yfirleitt í lok hinnar vikulegu ræðu, nema þessir níðingar ráðist gegn gamla fólkinu líka. I kosningabaráttunni geystist Ingi- björg um Vesturland með kjörorð Framsóknarflokksins - „Fólk í fyrir- rúmi“ - límt á sig í bak og fyrir. Hvar sem hún kom lofaði stelpan vígreifa af Skaganum afnámi þjónustugjalda, eflingu sjúkrahúsa, og hvenær sem tækifæri gafst lagði hún sérstaka lykkju á leið sína til að lofa öldruð- um stórkostlegum kjarabótum kæm- ist Framsókn til valda. Á Vesturlandi var sérstökum lof- orðalista dreift til aldraðra Vestlend- inga, og framaná honum var mynd af Ingibjörgu Pálmadóttur með búldu- leitum og fremur dapurlegum manni. Myndin var hreyfð því það var engu líkara en karlmaðurinn á myndinni hefði reynt að læðast út úr uppstill- ingunni einsog honum liði illa að láta taka af sér mynd við þessar aðstæður. Þó maðurinn á myndinni reyni að horfa niður til að dylja andlit sitt kom selskinnskápan upp um hann, og engum gat dulist að hér var á ferðinni formaður Framsóknarflokksins. Á þessu stigi kosningabaráttunnar var hann kominn í bullandi þunglyndi eftir að hafa hlustað á loforðafyllerí Ingibjargar Pálmadóttur hvenær sem hann opnaði fyrir útvarpið. En stund hefndarinnar rann upp. Strax að loknum kosningum var allur þingflokkur Framsóknar á harða- hlaupum einsog hænsnahjörð út og suður til að komast hjá því að verða negldur í embætti heilbrigðisráð- herra, sem flestir litu á sem ígildi pólitísks dauðadóms. En þá skar Halldór á hnútinn, og með sjaldgæfu brosi á vör skikkaði hann Ingibjörgu Pálmadóttir til að verða heilbrigðis- ráðherra. Allir þekkja eftirleikinn. Ingibjörg er hætt að brosa. Hún er hætt að halda ræðumar sínar. Hún líka hætt að mælast í skoðanakönnunum. Stelpan slynga af Skaganum lét íhaldið kúga sig til að hækka þjón- ustugjöldin sem hún ætlaði að af- nema. Hún lét Friðrik pína sig til að ráðast á sjúkrahúsin á landsbyggð- inni sem hún ætlaði að efla. Þegar henni bregður fyrir á skjánum liggur eldri borgurum landsins við slagi. Sighvatur Björgvinsson hitti naglann á höfuðið, þegar hann sagði að Ingi- björg Pálmadóttur hefði þó áorkað einu: “Nú vita allir, að Ragnar Reykás á systur á Akranesi." v i t i m q n n “Lengi vel voru menn sígar- ettulausir og eftir því sem á túrinn leið var fátt annað að éta en fiskur.“ Hálfdán Einarsson, sjómaður í Sjómanna- blaðinu Víkingi, en hann var að lýsa að- búnaði í 60 daga Smugutúr, en Hálfdán átti aðeins 30 þúsund krónur eftir, þegar hann kom í land. “Um Franklín, karlstráið, er að segja að hann er dæmdur í þremur löndum fyrir fíkniefna- smygl.“ Hrafn Jökulsson, ( DT. “Það er fráleitt að hafa sjó- menn sem tilraunadýr.“ Kristján Pálsson í Sjómannablaðinu Vík- ingi. “Páil Óskar er ótrúiegur og getur gert allt.“ Inga Eydal í DT. “Ætli ég sé ekki bara svona vitlaus. Kannski er þetta líka orðinn vani. Reyndar er ég margbúinn að velta fyrir mér að hætta en enginn vill losna við mig.“ Gísli Ferdinandsson, skósmiður og flautuleikari, en hann er að hætta að spila opinberlega á hljóðfæri. “Ég skil ekki að hún skuli vera að gagnrýna ríkissaksóknara í þessu máli.“ Björn Helgason saksóknari í DV. Tilefnið er óánægja konu, sem nauðgað var fyrir rúmum þremur árum, um að ekkert hafi verið gert i refsimáli nauðgarans. “Það er mikils virði að eiga fullkominn heilbrigðisráðherra eins og íslenska þjóðin á í dag.“ Regina Thorarensen í DV. “Vandamálið er að mannát hefur almennt hlotið fremur neikvæða meðferð í daglegu tali og flömiðlun." Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræöingur í DV. “Það sem mér finnst kannski hvað alvarlegast er hugarfar lögreglumannanna sem komu á staðinn." Sigurbjörn Halldórsson, trúnaðarmaður vagnsstjóra hjá SVR, í DV. Heppilegasta leiðin til að deyða ljóðalöngunina er að hlusta á Ljóð dagsins sem er klætt í skart drunga og lantandi uppgerðar. Hleypið ljóði dagsins út á morgnana að það geti bjargað sér sjálft. Brot úr Ijóðinu Hreytur eftir Geirlaug Magnússon sem birtist í tímaritinu And- blæ vorið 1994. b ot I i n g a r Elísabet Jökulsdóttir fékk ekki úthlutun úr Launasjóði rithöfunda að þessu sinni og kemur það talsvert á óvart, enda var hún með skáldverk á árinu og hefur eingöngu at- vinnu af ritstörfum, lllugi Jök- ulssson fékk heldur ekki út- hlutað þrátt fyrir afbragðs barnabók, en það fengu hins- vegar til dæmis Jón Viðar Jónsson leikhúsgagnrýnandi og Ingólfur Margeirsson. Einn stjórnarmanna í launasjóði er Sigurður G. Tómasson og segir sagan að það sé heldur kalt á milli hans og llluga eftir styrinn sem stóð um brott- rekstur llluga og Hannesar Hólmsteins frá Rás Tvö á sín- um tíma... Sjoppurnar keppast nú við að selja mjólkurvörur og í miðbænum blómstra viðskipti þeirra. Ögmundur kaupmaður í Örnólfi við Snorrabraut mun þó hafa verið stöðvaður af verkfallsvörðum, sem sagt er að hafi keypt af honum birgð- irnar og dreift á elli og sjúkra- stofnanir, Svarti svanurinn við Rauðarárstíg, stöku sinnum átt til mjólk í verkfallinu en einna ötulastur mun vera Júlíus í versluninni, Draumi við sömu götu. Þar er sagt að fáist allt milli himins og jarðar og auð- vitað vantar ekki mjólkina fremur en sterkari vökva. Þó verður að segjast sem svo að einn sjoppukaupmaður hefur lagt upp laupana en hefði þó haft fullt erindi i slaginn. Hann var í daglegu tali nefndur Hómer í höfðuðið á sjoppunni en annars ávann hann sér nafn fyrir verslun með mjólk þrátt fyrir ekkert verkfall. Hann hafði þá sérstöðu að selja gamla mjólk og í gluggum verslunarinnar mátti oft líta auglýsingar eins og þessa: út- runnin mjólk á hálfvirði, viku- gömul jógúrt á sérstöku til- boðsverði, vikugöml mjólk selst ódýrt... Þjónusta á sviði Internetsins er mjög vaxandi á tölvu- markaðnum. Eitt þeirra fyrir- tækja sem vaxið hafa hvað hraðast er Margmiðlun hf, sem meðal annars hefur rekið Heimakringluna, þar sem menn geta keypt inn í gegnum internetið. í dag er fyrirtækið að verða að verða eitt af stærstu fyrirtækjunum sem selur slíka þjónustu. Maðurinn á bak við velgengni þess er Stefán Hrafnkelsson, en þess má geta að Gestur Gestsson, formaður Sam- bands ungra jafnaðarmanna, er sömuleiðis einn af forystu- mönnum þess. Meðal þeirra sem festa fé í tölvumarkaðn- um hefur Margmiðlun verið mjög álitlegur kostur, og nú heyrum við að í þessari viku verði gengið frá því að sterkur aðili kaupi stóran hlut í fyrir- tækinu. Fyrirhugað er að ráð- ast í markaðssókn, og miðað við hina hljóðlátu velgengni fyrirtækisins til þessa er líklegt, að í kjölfar hennar verði Mark- miðlun nýi spútnikinn á mark- aðnum.... ^otoS •ysz W«ti evsthKV t\\ váK\sV oDdNxm'S5! — -^N\oV - - "stÁ 3r\\ ytsw cö'titvowt toV 'Wm'vVVÁj'' oib ÝiOTcö — "FarSide" eftir Gary Lorson hinumegin fimm q förnum vegi Telur þú að vöruverð muni hækka í kjölfar launahækkana? Júlíus Steinarsson, kaupmaður: “Nei, ég hef enga trú á því.“ Ólafur Hilmarsson, kennari: “Já, ég er hræddur um það, og af fyrri reynslu held ég að það komi skriða verðhækkana.“ Jóhanna Viggósdóttir, sjúkraliði: “Mér sýnist það geta orðið.1 Gunnar Zöega, nemi: Nei, ég er næstum viss um að svo verður ekki.“ Jón Benediktsson, smiður: “Já, og það er þegar byrjað. Brauðin frá Myllunni hækk- uðu um 7 til 8 prósent í morg- un.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.