Alþýðublaðið - 09.04.1997, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Abyrgðarmenn
ríksstjórninni!
ónarmið
og allt í plati hjá
v i t i m q n n
“Ef þú ferð yfir það strik þá
færðu bara skít og skömm.“
Valdís Óskarsdóttir kvikmyndagerðarmað-
ur í DT, þegar hún er að lýsa hvernig Dan-
í 6. grein laga um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna er kveðið á unt
að þeir námsmenn sem fá lán úr
sjóðnum skuli leggja fram yfirlýs-
ingu a.m.k. eins manns sem taki á sig
sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu
lánsins. Ef námsmaður getur ekki
fengið slíkan ábyrgðarmann þá getur
svo farið að hann geti ekki hafið nám
eða þurfi að hverfa frá námi. Slíkum
einstaklingi, einstaklingi án ábyrgð-
armanns, getur sjóðurinn ekki veitt
„tækifæri til náms án tillits til efna-
hags“ sem þó er talið hlutverk sjóðs-
Pallborð i
Svanfríður
Jónasdóttir
skrifar
ins skv. gildandi lögum.
Ríkisendurskoðun tekur þetta at-
riði sérstaklega fyrir í skýrslu sem
stofnunin gaf út um fjárhagsstöðu
sjóðsins í nóvember 1995. Þar er á
það bent að eðli námslána sé annað
en hefðbundinnar lánastarfsemi þar
sem þau séu í raun það form á náms-
aðstoð sem stjómvöld hafi ákveðið.
Krafa um ábyrgðamann geti stangast
á við það hlutverk að veita fólki
tækifæri til náms án tillits til efna-
hags.
“Sigurinn" felst í samtölum
við banka
Fyrstu fréttir af niðurstöðu Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins um breytingar á lögum um
sjóðinn bentu lfka til þess að þeir
hefðu áttað sig á þessum augljósu
sannindum. Þegar frumvarpið er
skoðað kemur hinsvegar í ljós að
ekki stendur til að breyta þessu. Stór-
sigur Framsóknar varðandi afnám
ábyrgðarmannsskyldunnar, sem for-
ystumaður ungra framsóknarmanna
taldi til tekna, felst einvörðungu í því
að verið er að ræða við bankana um
að þeir hætti að biðja námsmenn um
ábyrgðarmenn á tímabundnum yfir-
drætti. Eða eins og Finnur Svein-
bjömsson framkvæmdastjóri sam-
bands íslenskra viðskiptabanka lét
hafa eftir sér í Degi/Tímanum sl.
föstudag: „á sama tíma og ráðherrar
ræða þetta við okkur ætlar ríkið sér
að halda sjálfskuldarábyrgð á sjálf-
um námslánunum." Og það er merg-
urinn málsins. Ekkert í frumvarpi
ríkisstjómarinnar um breytingar á
lögunum um Lánasjóð íslenskra
námsmanna bendir til minnsta áhuga
stjómarflokkanna á því að afnema
ábyrgðarmannskvöðina. Hún verður
áfram til staðar hvað varðar lán úr
LIN. Afram þurfa námsmenn að
leita til foreldra og vina og biðja þá
um að ábyrgjast lánin sín.
Sitthvað rotið í ríki Dana
Þeir em ýmsir sem hafa grátið það
mikla valdaframsal sem felst í gild-
andi lögum um LIN þar sem stjóm
sjóðsins er heimilað að taka afdrifa-
ríkar ákvarðanir um stöðu og mögu-
leika námsmanna á a.m.k. sextán
stöðum. Þannig hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn í ráðuneytinu og lána-
sjóðnum í raun nánast sjálfdæmi um
ýmis mikilvæg atriði s.s. til hvaða
sémáms skuli lánað, hvaða skilyrð-
um námsmenn og ábyrgðarmenn
skuli fullnægja, hvað beri að telja
námslok, hvað sé hæfilegur náms-
tími og að fela bankastofnunum út-
borgun lána, innheimtu og aðra dag-
lega afgreiðslu, svo fátt eitt sé talið.
Það er greinilegt að Framsóknar-
flokknum finnst framkvæmd Sjálf-
stæðisflokksins hafa verið mjög við
hæfi því ekki er dregið úr þessu í
nýju fmmvarpi stjómarflokkanna.
Heldur er bætt í.
Þannig verða úrskurðir stjómar
sjóðsins endanlegir og verða ekki
kærðir til æðra stjómvalds verði
fmmvarpið að lögum. Og ef einstak-
lingur starfar erlendis og greiðir af
námsláni „skal stjómin áætla honum
ríflegan útsvarsstofn" eins og þar
segir. Það er semsagt sitthvað rotið í
ríki Dana og kemur í ljós er fagnað-
arlátunum linnir.
Svanfríður Jónasdóttir er
þingmaður jafnaðarmanna.
Eekki þykir mönnum mikið um
viðbrögð Guðmundar Þ.
Jónssonar í Iðju eftir að féiags-
menn kolfelldu samningana sem
hann skrifaði undir. Heyrst hefur í
Iðjufélögum sem væntu þess að
formaður fyndi til skammar eða
sektar, en því var ekki að heilsa.
Það eina sem hann hafði að segja
var að Þórarinn Viðar hefði hringt
í sig og þeir myndu ganga frá nýj-
um samningi. En eins og kunnugt
er var Iðja meðal þeirra sem fyrst
skrifuðu undir og gáfu tóninn að
hluta, tón sem aðrir urðu að elta og
kunna Guðmundi misgóðar þakkir
fyrir.
Kurr er meðal blaðamanna
vegna þess að ekkert lát virðist
á stefnum vegna meintra meið-
yrða. Blaðamenn standa ávallt
höllum fæti í þessum málum, þar
sem reynslan sýnir að dómstólar
taka, nær undantekningalaust,
undir sjónarmið þeirra sem telja sig
hafa orðið fyrir skaða eða álits-
hnekki. Það vekur furðu hversu lít-
ið Blaðamannafélagið virðist láta
sig þetta skipta og blaðamenn
sakna þess að formaður félagsins
Lúðvík Geirsson skuli ekki láta frá
sér heyra vegna þess vanda sem
blaðamenn standa frammi fyrir,
vanda sem getur skipt þá milljón-
um á milljónir ofan.
r
Inýjasta Víðförla, sem er málgagn
Þjóðkirkjunnar, skrifar Baldur
Kristjánsson biskupsritari grein
þar sem hann fjallar um frumvarp
um rammalöggjöf á starfi kirkjunn-
ar sem er til meðferðar á Alþingi.
Baldur gefur lítið fyrir störf þings-
ins, þar sem hann segir að löggjöf-
in breyti í raun engu um starfsemi
kirkjunnar, eins og hún birtist (
starfi safnaðanna. í greininni segir
hann meðal annara. „Það er með
öðrum orðum ekki sjálfgefið að
neinar breytingar verði á störfum
kirkjunnar þó að frumvarp þetta
verði að lögum en jafn Ijóst að
ákvarðanatakan um stórt sem
smátt færist inn í kirkjuna sjálfa."
að stendur mikið til hjá KR-ing-
um en í lok þessa mánaðar
halda þeir heljarinnar Karlakvöld
þar sem menn ætla að hittast og
berja hvorn annan, saman fyrir
átök sumarsins. En eins og venja
er til á þessum árstíma eru KR-ing-
ar vongóðir, þetta er jú einu sinni
þeirra árstími. Nú er spurt hvort
þaggað verði niður í Bjarna Fel,
en hann hreykir sér af því að KR
hafi ekki orðið íslandsmeistari frá
því hann hætti að spila með félag-
inu, en til skýringar má geta þess
að Bjarni er kominn á sjötugsaldur.
Menn virðast geta átt mörg líf.
Það sannast á Vilhjálmi
Svan, en hann er orðinn á ný
áberandi í veitingarekstri í mið-
bænum. Vilhjálmur hefur víða kom-
ið við, en einna þekktastur er hann
fyrir að hafa rekið Tunglið og fyrir
nokkuð mörgum árum rak Vilhjálm-
ur til dæmis Villta tryllta Villa við
Skúlagötu. í dag er Vilhjálmur með
tvo veitingastaði, Casablanca við
Lækjargötu og Nelly’s á horni
Bankastrætis og Þingholtsstrætis.
Það virðist ekki ganga vel fyrir
Raufarhafnarbúa að halda
sóknarpresti sínum, því enn og aft-
ur er auglýst laust starf sóknar-
prests staðarins. Séra Arnaldur
Bárðarson er að hætta, en ör
skipti hafa verið frá því að hin
landsþekkta Ragnheiður Erla
Bjarnadóttir var prestur á Raufar-
höfn.
Einar Einarsson: Helgi Björgvinsson:
“Já, já, það verður að hafa “Ekki spuming."
eitthvað að gera fyrir liðið.“
Ólafur Ólafsson: Kristinn Bragason:
“Já, þetta er atvinnuskap- “Já, og það í hvelli."
andi.“
Jón Ólafsson:
“Já, þar setn það er atvinnu-
skapandi.“
ir og íslendingar bregðast við velgegni
annarra.
“Hlutverk mitt er að stjórna
liðinu og það er alveg nóg að
gera það því það er ekki auð-
velt að vera bara með einn
bolta og allar þessar skyttur.“
Falur Harðarson, leikmaður Keflvíkinga í
körfubolta, í Mogganum.
“Þeir sem minna hafa verða
að dúsa heima á hólmanum."
Jón Birgir Pétursson í DT að ræða ferða-
kostnað íslendinga.
“Menn báðu um fund og fengu
fund.“
Halldór Björnsson Dagsbrúnarleiðtogi f
Mogganum, að ræða fundinn sem hefur
komið öllu á annan endann í félaginu
hans.
“Nei, það finnst mér ekki og
ég held að leikarar Spaugstof-
unnar eigi ekkert síðri mögu-
leika á að komast til himna-
ríkis, en til að mynda margir
kirkjunnar menn.“
Árni Gunnarsson, formaður SUF, í DT.
“Þetta var „dry“boltaþorskur.
Það er hér allt fullt af þorski
og þó maður reyni að forðast
hann og leita að ufsa þá fær
maður bara alls staðar
þorsk.“
Friðrik Benónýsson, skipstjóri á Gullborgu
VE, í Mogganum.
“Það er eins og það séu starf-
andi tveir fjármálaráðherrar
sem fjalla um lifeyrismál.“
Jóhannes Sigurgeirsson, framkvæmda-
stjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, í Mogg-
anum.
“Það vakti þó enga undrun hjá
mér að Davíð forsætisráðherra
skyldi vera út á þekju.“
Kjartan Helgason í Alþýðublaðinu.
Sáðu breytni og þú uppskerð
venjur.
Sáðu venjum og þú uppskerð
persónuleika.
Sáðu persónuleika og þú uppskerð
hlutverk.
C.A Hall.