Alþýðublaðið - 09.04.1997, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
Alþingismenn
Alþýðuflokksins
VBTALS-
TÍMAR
í dag, mið-
vikudaginn 9.
apríl, verður
Ásta B. Þor-
steinsdóttir,
varaformaður
Alþýðuflokks-
ins - Jafnað-
armanna-
flokks ís-
lands, með
viðtalstíma á
skrifstofum
flokksins,
Hverfisgötu 8-
10, frá klukk-
an 16:00 til
18:00.
Þeir sem vilja
panta viðtals-
tíma, hafi
samband við
skrifstofuna í
síma 552-
9244.
■ Dr. Benjamín H.J. Eiríksson skrifar
Umræðan
Ég hefi valið að kalla þetta greinar-
kom Umræðuna. Hún á að fjalla um
sama mál og hin almenna umræða
undanfarinna daga: Er Guð gaman-
samur? Hefir Guð húmor? Fyrsta við-
bragð mitt var: Hvað segja boðorðin?
Fyrstu tvö boðorðin segja, að menn-
imir megi ekki hafa aðra guði en
Jahve, né gera sér skurðgoð til að
dýrka. En það er þriðja boðorðið sem
á hér fyrst og fremst við:
“Þú skalt ekki leggja nafn Guðs
þíns við hégóma, því að Drottinn mun
ekki láta þeim
óhegnt, sem leggja
nafn hans við hé-
góma.“
Og hér má bæta
við, að þessi Drottinn
er Jahve.
f þessu boðorði er
hræðileg hótun. Guð
segist refsa þeim sem
leggi nafn hans við
hégóma. Sæng þess-
ara MANNA BÝÐ-
UR ÞEIRRA ÞVÍ
UPPREIDD.
Undanfama daga
hefir stór hópur manna haft Guð og
nafn hans ásamt syni hans, Jesú Krist,
að skotspæni í ósmekklegum og
auvirðilegum gamanlátum, eiginlega
skrílslátum.
Orð Biblíunnar þýða það, að fram-
tíðin hlýtur að geyma hryllilega hluti
fyrir þetta ærða fólk.
Rétt þegar ég er að hefja þessi skrif
er að ljúka þætti í sjónvarpinu, þar sem
ísmeygilegur náungi, leikari, er að
ljúka uppgerðu, pöntuðu símtali við
Guð Almáttugan. Aðaláhugamál þessa
manns var það, að fá að vita númerin á
næsta lottóvinningi. Auvirðilegra gat
það varla verið. Guð átti að beina í
vasa hans vænni upphæð peninga. Sál-
arheill var honum ekki efst í huga, þótt
það ótrúlega hefði skeð, að Guð hefði
sjálfur svarað símaákalli hans. En
Jesús brýndi margsinnis fyrir áheyr-
endum sínum, að sálarheill þeirra ætti
að vera þeirra aðal áhyggjuefni í líf-
inu. En sálarheill manna veltur á
hlýðni þeirra við boð Guðs.
Símtalið var ágætt sýnishom þess
sem á hefir gengið í þessum málum
seinustu dagana. Það er eins og stífla
hafi verið tekin úr gmggugum læk
þorpsbúa, fullum af hroðanum úr
þorpsbúum, enda er nýjasta lýsingin á
þeim á kvikmynd: Djöfiaeyjan.
Brautryðjandinn
Sá, sem fyrstur hóf umræðuna um
„gamansemi" Guðs, var séra Jakob
Jónsson. Hann samdi ritgerð Humor
and Irony in the New Testament; 1961.
Arið 1965 sæmdi
Háskóli fslands hann
doktorsnafnbót. Séra
Jakob þóttist geta
sýnt ífam á gaman-
semi og kaldhæðni í
NT. Með þessum
skrifum sínum lagði
hann nafn Guðs við
hégóma. Aðrir hafa
svo siglt í kjölfarið,
en aldrei eins og nú
seinustu dagana. Þeir
sem við þessi mál era
að fást, jafnt leikir
sem lærðir, gleyma
því þýðingarmesta: Guð er heilagur og
getur aldrei orðið tilefni hins hégóm-
lega, spaugs eða hæðni, ekki í kristi-
legu umhverfi.
Guð segist sjálfur refsa mönnum
fyrir syndir þeirra. Já, og ekki aðeins
þeim sjálfum, heldur og bömum
þeirra, og það í þriðja og fjórða lið.
Það hvílir því bölvun á afkomendum
þeiiTa manna, sem leggja nafn Guðs
við hégóma. Orð og athafnir þessara
manna, einkum um trúmál, hljóta því
að koma samferðamönnum þeirra
meir en lítið framandleg fyrir sjónir.
Hvað verður svo um þessa menn
þegar þeir deyja? Biblían segir að þeir
fari á vondan stað. Menn hefur greint
á um það, hverskonar vonzku muni
um að ræða. Eitt er samt víst: Þar
verður grátur og gm'stan tanna. Þetta
segir góða bókin, Biblían. Og nú, að
loknum náðartímanum, verða þessar
lyktir ekki um flúnar.
PS. Setningm með stóru stöfunum
kom þannig úr ritvélinni.
BHJE
Kópavogsbúar-
Aðalfundur
Alþýðuflokksfélag Kópavogs heldur aðalfund sinn mánu-
daginn 14. apríl kl. 20:30 í húsnæði félagsins Hamraborg
14a. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velunnarar
félagsins velkomnir.
Fh. stjórnar, Magnús Árni Magnússon formaður
Jafnaðarkonur - jafnaðarkonur
„Súpa og salat“
fimmtudaginn 10. maí kl. 19-21 á Litlu Brekku í Banka-
stræti. Prófessor Jón Torfi Jónasson flytur fræðsluerindi
um menntamál á íslandi í nútíð og framtíð.
Allar konur velkomnar
Stjórn Sambands Alþýðuflokkskvenna
Kópavogsbúar-
Vorhátíð
í tilefni vorsins og komandi aðalfundar boðar Alþýðu-
flokksfélag Kópavogs til skemmtikvölds föstudaginn 11.
apríl kl. 20:00. Þar verða léttar veitingar og matur á vægu
verði. Nánar auglýst síðar.
■ Raymond Chandler var drykkfelldur töffari s
Raymond Clu
“Ég er rithöfundur, sagði
Raymond Chandler, „og verð að
skrifa í einveru og þögn, þar sem
enginn er til að líta yftr öxl mína, og
segja mér að það sé hægt að skrifa
betur. Þetta þurfa ekki að vera af-
burða skrif, þau þurfa jafnvel ekki að
vera sérlega góð. Þau verða einungis
að vera mín.“
Chandler var ekki ætíð í þeirri að-
stöðu að geta skrifað samkvæmt
þessari þörf sinni, og kannski einna
síst þegar hann vann sem handrita-
höfundur í Hollywood á árunum
1943 til 1950. Sá tími einkenndist af
átökum og erfiðleikum drykkfellds
og dyntótts rithöfundar sem varði
listrænt sjálfstæði sitt af þvermóðsku
og krafti.
Chandler fæddist í Chicago árið
1888. Hann var átta ára þegar faðir
hans yfirgaf fjölskylduna og móðirin
flutti með son sinn til Englands.
Chandler sneri ekki aftur til Banda-
ríkjanna fyrr en hann var 24 ára. Ara-
tug síðar giftist hann Cissy Pascal
sem var átján árum eldri en hann, og
þrátt fyrir annálaða kvensemi sem
leiddi á stundum til hraustlegs fram-
hjáhalds, unni hann henni ákaft og
missti lífslöngun eftir dauða hennar.
„Hún var ljós lífs míns. Hún hvatti
mig til dáða og allt sem ég gerði var
eldur til að hlýja henni,“ sagði hann.
Chandler vann fyrir sér sem fram-
kvæmdastjóri hjá olíufélagi en drakk
sig loks úr stöðunni. Eftir það fékkst
hann við blaðamennsku og ritstörf.
Fyrsta bók hans Svefninn langi kom
út árið 1939 þegar hann var fimmtíu
og eins árs. Þar skapaði hann einn
frægasta einkaspæjara bókmennta-
sögunnar, hinn harðsoðna Philip
Marlowe. Bókin vakti verulega at-
hygli og Chandler var umsvifalaust
boðið starf í Hollywood við að skrifa
kvikmyndahandrit eftir bók James
M. Cain Double Indemnity ásamt
Billy Wilder. Double Indemnity þyk-
ir enn mögnuð sakamálamynd og
Chandler fékk sína fyrstu Ósk-
arsverðlauna tilnefningu fyrir handrit
sitt.
Árið eftir tók hann að sér að skrifa
handrit að kvikmyndinni The Blue
Dahlia, en sú kvikmynd gerði Alan
Ladd og Veronicu Lake að stórstjörn-
um. Chandler vildi einungis vinna
við handritið á heimili sínu og þá
drukkinn. Handrit hans endaði á orð-
unum: „Var einhver að tala um að fá
sér viskí?" en þau lokaorð rötuðu
ekki í kvikmyndaútgáfuna. Fyrir
þetta handrit, sem Chandler skrifaði í
áfengisvímu, var hann tilnefndur til
Óskarsverðlauna öðru sinni.
Það var ekki Chandler heldur
William Faulkner sem var fenginn til
að skrifa kvikmyndahandrit eftir
frægustu bók Chandlers The Big
Sleep. Faulkner skrifaði glettilega
skemmtilegt handrit en hreyfði ekki
við flóknum söguþræði. Meðan á
kvikmyndatökum stóð kvörtuðu leik-
arar myndarinnar hástöfum yfir því
að skilja ekki fléttuna. „Hver drap
bflstjórann?" spurði einn leikaranna
leikstjórann Howard Hawks. Hawks
fórnaði höndum og spurði Faulkner.
Faulkner yppti öxlum. Hawks hafði
þá samband við Chandler og forvitn-
aðist um lausn gátunnar. „Þú keyptir
kvikmyndaréttinn, þú getur fundið
það út sjálfur," hreytti Chandler út úr
sér.
Sá siður Chandlers að vinna að
kvikmyndahandritum sínum á heim-
ili sínu meira eða minna drukkinn
þótti hvorki aðlaðandi né traustvekj-
andi. Honum var þó enn boðinn
vinna, en afraksturinn mæltist mis-
jafnlega fyrir og handriti hans eftir
eigin skáldsögu Lady in the Lake var
hafnað á þeim forsendum að það
væri ruglingslegt og illa unnið.
Árið 1950 hafði meistari
Hitchcock samband við Chandler og
bað hann að vinna að kvikmynda-
handriti eftir sögu Patriciu
Highsmith Strangers on a Train.
Snillingunum tveim kom ekki rétt
vel saman.
“Þegar ég á í samvinnu við rithöf-
und, sem eins og ég sérhæftr sig í
ráðgátum og spennu þá virðist sam-
vinnan ekki ganga upp,“ sagði
Hitchcock mörgum árum seinna í
samtali við Francois Truffaut og þeg-
ar Truffaut spurði hann hvort hann
ætti þar við Raymond Chandler sagði
Fjármálaráðuneytiö
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á u.þ.b. 300 m2 skrifstofu-
húsnæði á Neskaupstað. Tilboð, er greini staðsetningu,
stærð, afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík, fyrir 25.
apríl 1997.
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
Aðalfundur verður haldinn í kvöld, þríðjudagskvöld kl.
20:30 í kennarastofu Garðaskóla (sami inngangur og á
Bókasafnið).
Gestur fundarins: Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri
Garðabæjar.
Félagar takið með ykkur gesti. Stjórnin