Alþýðublaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
5im settist að í Hollywood og lenti þar í ýmsum hremmingum
indler í Hollywood
----j|gj H
H
Raymond Chandler, hinn drykkfelldi, dyntótti og önugi meistari leynilög-
reglusagnanna.
Hitchcock svo vera og bætti við:
„Við hittumst og ég sagði: Af hverju
ekki gera þetta á þennan hátt? og
hann svaraði: Ef þú getur ráðið fram
úr þessu til hvers þarftu þá á mér að
halda?“
Chandler hélt sínum gamla sið,
neitaði að mæta í kvikmyndaverið og
krafðist þess að fá að vinna heima.
Ástæðan var einfaldlega sú að hann
hafði komið sér drykkjuvenjum sem
hann vildi ekki breyta. Hitchcock lét
undan þessum kröfum og fór því til
heimilis Chandlers til að fá fréttir af
stöðu mála hverju sinni. Chandler
taldi þessar heimsóknir jafngilda inn-
rás. Einn dag þegar Chandler sat í
garðinum heima hjá sér sá hann
Hitchcock stíga út úr bíl sínum og
sagði stundarhátt við einkaritara
sinn: „Sjáðu hvernig þessi feita
skepna rembist við að komast út úr
bflnum sínum.“ Þegar einkaritarinn
sussaði á hann og sagði að leikstjór-
inn gæti heyrt til hans hreytti hann út
úr sér: Ætli mér sé svosem ekki
sama.“
Þrátt fyrir stirð samskipti þessara
tveggja meistara var útkoman meist-
araverk og gagnrýnendur og áhorf-
endur áttu ekki orð til að lýsa hrifn-
ingu sinni. Chandler var á öðru máli
og sagði að myndina skorti dirfsku, í
henni væru hvorki persónur né sam-
töl. „Eg veit ekki af hverju hún slær í
gegn,“ sagði fúllyndur Chandler,
„kannski vegna þess að Hitchcock
hefur tekist að fjarlæga öll merki um
skrif mín úr henni.“
Síðustu ár Chandlers einkenndust
af þunglyndi og sívaxandi drykkju.
Kona hans átti lengi við alvarleg
veikindi að stríða og eftir dauða
hennar árið 1954 reyndi hann að fyr-
irfara sér. Hann lést árið 1959.
Hann hafði óskað eftir því að
verða grafinn við hlið konu sinnar en
var lagður til hinstu hvfldar í fá-
tækrareit. Honum hefði líklega ekki
þótt það neitt til að gera rellu út af:
“Hvaða máli skiptir það hvar þú
lást eftir dauðann, í forarpytti eða
marmaragrafhýsi hátt á hæð? Þú
varst dauður og svafst svefninum
langa."
■ Athugasemd frá Dagsbrún og Framsókn
Harma óvandaðan fréttaflutning Alþýðublaðsins
“Vegna fréttar á forsíðu Alþýðu-
blaðsins í dag 8. aprfl vilja félögin
Dagsbrún og Framsókn koma á
framfæri eftirfarandi leiðréttingum:
Kjömefnd félaganna tveggja
Dagsbrúnar og Framsóknar fer með
yfirstjóm þeirrar atkvæðagreiðslu
sem nú stendur yfir vegna samning-
anna. Þessi sama kjömefnd hefur á
undanfömum vikum stjómað þeim
atkvæðagreiðslum sem fram hafa
farið vegna verkfallsboðana félag-
anna. Engar athugasemdir hafa kom-
ið fram um „óheil vinnubrögð“
nefndarinnar enda dettur ekki
nokkmm manni í hug að slflct verði
viðhaft fyrr en nú að slík fullyrðing
er höfð eftir einum viðmælenda Al-
þýðublaðsins, Bjarka Magnússyni.
Kjömefndin hefur haft sömu
vinnubrögð varðandi starfsmanna-
hald og áður þ.e. að setja niður hóp
starfsmanna og félagsmanna sem
vinnur við atkvæðagreiðsluna á vökt-
um. Þetta er að sjálfsögðu undir
stjóm kjömefndar og stjóma félag-
anna. Ekkert hefur komið fram innan
félaganna um að þessir starfsmenn
og félagsmenn njóti ekki fulls trausts
og trúnaðar til þessara verka.
Félögin vísa því orðum Bjarka
Magnússonar um „óheil vinnubrögð"
til föðurhúsanna.
Fullyrt er í frétt Alþýðublaðsins að
félagsfundur Dagsbrúnar hafi valdið
„mörgum fundarmanninum von-
brigðum". Hvernig getur Alþýðu-
blaðið fullyrt þetta? Af samtölum
okkar við fundarmenn hefur allt ann-
að komið í ljós. Margir voru ánægðir
með þá kynningu sem fram fór á öll-
um samningum félaganna bæði á að-
alkjarasamningi og sérkjarasamning-
um félaganna. Að sjálfsögðu em ekki
allir sammála um samningana.
Þannig hefur það alltaf verið. En ljóst
er að kynning á kjarasamningum fé-
laganna hefur aldrei fyrr verið jafn
vönduð og fólki gefist eins góður
tími til að skoða samningana áður en
til afgreiðslu þeirra kemur.
Það var kynnt í upphafi fundar að
við hefðum takmarkaðan tíma fyrir
fundinn eins og jafnan áður í Bíó-
borginni. Því yrði að nýta fundartím-
ann vel. Það var ekki reynt að leyna
þessu á nokkum hátt, enda vita fund-
armenn í Bíóborginni hvemig þessu
er háttað. í frétt Alþýðublaðsins seg-
ir að aðeins 15 mínútur hafi gefist til
almennra umræðna eftir kynningu
samninganna. Þetta er alrangt. Kynn-
ingu samninganna lauk kl. 15:30 og
fundinum lauk nærri klukkutíma síð-
ar. Nítján manns með frummælend-
um tóku þátt í umræðunum og aðeins
fimm manns vom á mælendaskrá
sem ekki komust £ ræðustól. Til að
auka tímann fyrir umræður var felld
niður ein kynning á einum af smærri
samningum félaganna og syndgað
upp á þann tíma sem við höfðum
gagnvart kvikmyndahúsinu. Það er
því alrangt sem fram hefur komið hjá
Bjarka Magnússyni að á annan tug
félagsmanna hafi verið á mælenda-
skrá þegar varð að ljúka fundi.
Þá kemst Alþýðublaðið að þeirri
niðurstöðu að um 400 manns hafi
verið á fundinum. f atkvæðagreiðsl-
unni sem fram fór á fundinum tóku
201 félagsmaður þátt en það er eina
raunverulega talning fundarmanna.
Leiða má líkum að því að fundar-
menn hafi verið eitthvað á þriðja
hundrað þegar flest var.
Það er einnig mikill misskilningur
Bjarka Magnússonar að „stóra samn-
inganefndin hafi sagt hlutverki sínu
lausu í miðjum samningaviðræðum".
Stóra samninganefndin afgeiddi
samningana áfram til atkvæða-
greiðslu í félaginu á lýðræðislegan
hátt.
Eins og sést af þessurn staðreynd-
um stendur ekki steinn yfir steini í
frétt Alþýðublaðsins um málið.
Blaðamaður Alþýðublaðsins hafði
samband við fundarstjóra og for-
mann kjörstjómar Snæ Karlsson og
fékk þær upplýsingar um málið sem
hann óskaði eftir um félagsfundinn
og fjölda þeirra sem ekki komust að
af mælendaskrá. Hann fékk einnig
allar upplýsingar um atkvæðagreiðsl-
una. Þrátt fyrir þetta fylgdi hann ekki
þeirra gullnu reglu að hafa það sem
sannara reynist enda er „fréttin" öll
mjög lituð af frásögn óvandaðra
heimildannanna sem gefa greinilega
ekkert fyrir staðreyndir en eru upp-
teknir af að koma höggi á stjómir
Dagsbrúnar og Framsóknar.
Að lokum þetta. Það er dapurlegt
að þurfa að upplifa það að „málgagn
jafnaðarstefnunnar" á íslandi skuli
viðhafa jafn óvönduð vinnubrögð í
fréttamennsku og raun ber vitni. Hjá
öllu þessu hefði mátt komast með því
að birta þær réttu upplýsingar sem
blaðamaðurinn hafði og afla meiri
frétta frá félaginu ef þörf var á. Þá
hefði Alþýðublaðið líka geta komist
hjá þeim subbuskrifum sem einkenna
önnur greinaskrif þessa sama tölu-
blaðs um Dagsbrún og Framsókn. En
kannski er ekki hægt að breyta inn-
ræti manna. Óheiðarlegt fólk heldur
áfram að vera meðal okkar."
Það var og
Alþýðublaðið ber ekki ábyrgð á
óeiningu innan Dagsbrúnar. Það er
ekki við blaðið að sakast hver félags-
andinn í Dagsbrún er. Við afþökkum
með öllu þær mannlýsingar sem
Dagsbrún hefur um okkur. Allar þær
upplýsingar sem blaðið fékk hjá Snæ
Karlssyni voru £ umræddri frétt. Þrá-
inn Hallgrímsson fullyrti í gær að
300 manns hafi verið á fundinum, og
hafi Alþýðublaðinu orðið á að hafa
sagt áhuga fyrir fundinum meiri en
hann í raun var, er sjálfsagt að biða-
jst afsökunar á því. Annað sem kem-
ur fram í athugasemdum Dagsbrúnar
verða þeir að eiga við sig og sína fé-
lagsmenn.
ritstj.
FransHf og
Súlnasal
Það er
fransktfjör
á laugardagskvöldum
í Súlnasal.
Skemmtikraftarnir
Egill Ólafsson,
Sigrún Eva Armannsdóttir,
Rósa Ingólfsdóttir ogfulltrúar frá hinni óborganlegu
Spaugstofu: ÖmÁmason og KarlÁgúst Úlfsson nueta
ásamt Tamlasveitinni. Dansarar sýna can can og önnur
frönsk spor undir stjórn Helenu Jónsdóttur.
Tónlistarstjóri er Jónas Þórir.
Ilabaddan
SHemmtun vetrarins
Aggi SLe og Tamlasveitin ásamt Sigrúnu Evu
leikajyrir dansi til kL 3.00.
Þríréttub kvöldmáltíð að frönskum heetti.