Alþýðublaðið - 09.04.1997, Síða 8
MWBLMl
Miðvikudagur 9. apríl 1997
43. tölublað - 78. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Hverfafundur í Ráðhúsinu
Gæsadrit var klag-
að við borgarstjóra
Fiðurfénaður við Tjörnina virðir ekki heilbrigðisreglugerð borgaryfirvalda
“Fiðurfénaðurinn á Tjöminni er
vissulega skemmtilegur fyrir yngri
borgarana en hann skilur eftir sig
skelfileg ummerki kringum alla
Tjömina og á stígunum í Hljómskála-
garðinum. Raunar allstaðar umhverf-
is Tjörnina," sagði Öm Sigurðsson,
íbúi við Fjólugötu, á hverfafundi í
Ráðhúsinu á mánudaginn og átti við
dritið úr gæsunum og öndunum, sem
þar eiga búsetu.
Ljóst var af máli Arnar að hann var
allsendir ósáttur við framferði hinna
fiðmðu Reykvíkinga, sem virtu í engu
heilbrigðisreglugerð borgarinnar, og
sagði að það væri á mörkunum að
hægt væri að vera með böm á þessum
stöðum, vegna þessara lítt æskilegu
afurða þeirra. Hann spurði borgar-
stjóra hver ætti að annast það að
hreinsa upp gæsadrítinn,
Ingibjörg Sólrún, borgarstjóri, sagði
að á þessum tíma árs mætti segja að
borgin skartaði ekki sínu fegursta, því
snjó væri að leysa óg þá kæmi í ljós
margvíslegt msl og óhreinindi, sem
hefðu safnast í snjóinn yfir veturinn.
Hún sagði hinsvegar við fyrirspum
Arnar að það væri garðyrkjustjóri
borgarinnar sem ætti að annast hreins-
un við Tjömina og í Hljómskálagarð-
inu, og það yrði gert einsog jafnan,
þegar vetur kveður.
Hún rifjaði upp svipaða spumingu
hefði hún áður fengið frá íbúa í
grennd við Tjömina: „Þá var ég spurð
afhverju það væri svona rosalega
mikið af hundaskít í Hljómskálagarð-
inum. Við skoðun kom í ljós að stór
gæsahópur hafði þá haldið þar til um
skeið, og sem betur fer var það rót
vandans en ekki hundahjörð einsog
íbúinn hélt.“
Cío./v>tc
Ameríski
ir
kvíldarstól
ar
Áction Lane hvíldarstólarnir eru vandaÓir
og smekklega hannaÓir og fáanlegir meÓ
JeÓur- eÓa tauáhlæÓum.
Mikið úrval, margir Jitir og gott verÓ.
HvíUarstóUinn sem Jdú getur veriÓ
stoJt(ur) af í stofunni Jpinni.
74-()()() r
Leður á slitflötum
Litir: Brúnn ( mynd),
vínrauður, svartur
(Hot Skot)
40.000,
Tauáklæði
Litir: Grænn ( mynd),
vínrauður, Lrúnn
Tauáklæði
Litir: Rauður ( mynd),
grænn
Clrai ier)
(Hot Skot)
Leður á slitflötum
Litir: Brúnn ( mynd),
vínrauður
k6*
LanghoJtsvegi 111 • 124 Reyhjavík
Simi: 533 3500 ' Fax: 533 3510
. ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200
iÍllTlf rP BEINNSlMI 553 1236