Alþýðublaðið - 10.04.1997, Síða 7
+
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL1997______ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
f r c t t i r
■ Einar Karl Haraldsson skrifar
Evróinn eða Norðkrónan?
Spurningin er hins vegar
hvort viö eigum frekar er-
indi í norrænt krónu-
bandalag eða í myntsam-
runa við okkar fornu yfir-
ráðaþjóðir Dani og Norð-
menn heldur en í Evr-
ópskt myntbandalag?
Evrópusambandið hefur sett sér
tímamörk í þeirri viðleitni að koma á
sameiginlegri evrópskri mynt, Evró.
Evrópska myntbandalagið á að verða
að veruleika 1999 og í flestum ná-
grannaríkjum okkar er verið að ræða
gjaldmiðilsmál í þaula. Finnskir pró-
fessorar leggja til dæmis fram mikla
skýrslu um kosti og galla aðildar
Finnlands að myntbandalaginu í maí
og mun ríkisstjómin hafa hana til
hliðsjónar í stefnumótun sinni í þessu
máli. Calmeforshópurinn hefur skil-
að viðlíka verki í Svíþjóð en þar er
ástandið með þeim hætti að einungis
19 prósent kjósenda telja álitlegt að
taka upp evrópska mynt. Prófessora-
hópurinn í Finnlandi hefur látið gera
fímmtán sjálfstæðar rannsóknir í
sambandi við skýrslugerð sína og
ættu Finnar því að hafa góðan grunn
að standa á í umræðum þegar til
ákvarðana dregur.
Norrænt gjaldeyris-
bandalag?
Tveir sænskir þjóðhagfræðingar,
Lars Jonung og Fredrik Sjöholm,
hafa gert rannsókn að tilhlutan
finnsku prófessor-
anna og í niðurstöð-
um þeirra er að fmna
margar athyglisverðar
ábendingar sem lík-
legar eru til þess að
vekja upp umræður
og spennu í Finn-
landi. í rannsókn
sinni reyna þeir að
meta hvað sé hag-
kvæmasta gjaldeyris-
svæðið fyrir Finna og
í ljós kemur að það er
ekki Evrópska mynt-
bandalagið.
Ef eitthvað ræki á
eftir Finnum að taka
upp Evróinn þá væm
það pólitískar ástæð-
ur en ekki efnahags-
legar að mati sænsku
hagfræðinganna.
Hinsvegar telja þeir
margt mæla með því
að Finnar og Svíar og
jafnvel Norðurlanda-
ingu og sameiginleg verðbólgumörk.
Þriðji gæti verið sá að mynda
sænskt/finnskt eða norrænt gjaldeyr-
isbandalag.
Svæðabandalög í stað
Evró
Jonung og Sjöholm gera í raun til-
lögu um að svæðabandalög í gjald-
eyrismálum verði munstrið í Evrópu.
Myndun þeirra geti verið liður í þró-
un í átt að Evrópsku myntbandalagi.
Evrópa er að þeirra mati of stór ein-
ing fyrir myntbandalag. Norður-
landaríkin verði að hafa sjálfstæða
möguleika í gjaldeyris og peninga-
málum til þess að verja sig fyrir
sveiflunum hjá stórþjóðunum, annað
Vilja íslendingar eitt-
hvað?
Sú umræða sem nú fer fram annars
staðar á Norðurlöndum um Evrópska
myntbandalagið og hugsanlega aðild
að því á fyllilega erindi við okkur.
Allt frá árinu 1993 hefur ísland upp-
fyllt fjögur aðalskilyrðin sem gerð
verða fyrir inngöngu í Evrópska
myntbandalagið, ef og þegar það
verður að veruleika 1999. Verðbólg-
an er innan marka á Islandi, vextir á
ríkisskuldabréfum eru í lagi, fjár-
lagahalli sem hlutfall af landsfram-
leiðslu er ókey og heildarskuldir hins
opinbera ekkert til að skammast sín
fyrir í evrópskum samanburði. Það er
semsagt rauði dregillinn fyrir ísland
hvort hvert fyrir sig eða sameigin-
lega.
Athyglisvert er að Svíamir telja að
ríkin í Mið-Evrópu, sem nú sækja
fast á um inngöngu í Evrópusam-
bandið, eigi frekar erindi í Evrópska
myntbandalagið heldur en Norður-
löndin meðal annars vegna nálægðar,
stærðar og samsetningar efnahags-
lífsins.
framan við inngöngudyr Evrósins.
Spumingin er hins vegar hvort við
eigum frekar erindi í norrænt krónu-
bandalag eða í myntsammna við
okkar fomu yfirráðaþjóðir Dani og
Norðmenn heldur en í Evrópskt
myntbandalag? Eða er íslenskt efna-
hagslíf svo yfirmáta sérstakt að við
eigum ekkert erindi í bandalag um
peningapólitík yfirhöfuð?
'
búar allir fari sömu leið í skipan
gjaldeyrismála. Samvinna í pen-
ingapólitík gæti verið með ýmsum
hætti:
Einn kosturinn væri að Norður-
löndin öll gengu í Evrópska mynt-
bandalagið en hefðu samvinnu sín á
milli.
Annar væri sá að standa utan við
með sveigjanlega gjaldeyrisskrán-
■ Vinsældir Tarsansýningarinnar í Þjóðarbókhlöðunni hafa
verið með miklar. Öllum gamni sleppir.
Tarsan apabróð-
ir fer að kveðja
Richard Korn: Það hefur verið stöðugur straumur fólks að sýningunni sem þegar
hefur verið framlengd frá því sem upphaflega stóð til.
“Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt og það hefur verið stöð-
ugur straumur fólks til að sjá sýning-
una,“ segir Richard Korn hljóðfæra-
leikari við Sinfóníuna en Richard er
mikill áhugamaður um Tarsan og
safnar bókum Edgars Rice
Burroughs og mörgu öðru sem við-
kemur Tarsan en hann setti upp sýn-
ingu með söfnunargripum sínum í
Þjóðarbókhlöðunni. Eins og við höf-
um áður sagt frá steig Tarsan sín
fyrstu spor á Islandi í Alþýðublaðinu,
en í ritstjórnartíð Ólafs Friðrikssonar
birtist Tarsan sem framhaldssaga í
Einn sendi mér mynd af
sér og Johnny Weis-
smuller, annar lítið kver
með bernskuminningum
sem nefnist Tarsan í
sláturhúsinu.
blaðinu. Sjálfur hefur Richard sagt
að hann sé ekkert Tarsanfrík, en því
væri þó ekki að neita að kappinn
væri ekta hetja.
“Margir hafa haft samband við
mig, einn sendi mér mynd af sér og
Johnny Weissmuller, annar lítið kver
með bemskuminningum sem nefnist
Tarsan í sláturhúsinu. Gestabókin á
sýningunni er næstum þvx full en
hana ætla ég að eiga til minningar,"
segir Richard.
Tarsansýningunni lýkur miðviku-
daginn 16. apríl en vegna mikilla
vinsælda hennar var henni framlengt
tvisvar en hún opnaði þann 21. janú-
ar og átti upphaflega aðeins að vera
fram í febrúar. Þjóðabókhlaðan er
opin til sjö á virkum dögum og fimm
á laugardögum.