Alþýðublaðið - 23.04.1997, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997
RARIK óskar eftir tilboðum í: RARIK 97003 olíu-
ketill fyrir kyndistöð á Höfn í Hornafirði. Útboðið
nær til olíuketils með tilheyrandi búnaði og til
skortsteins.
Útboðsgögn verða seld á aðaiskrifstofu RARIK,
Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum
22. apríl nk. Verð fyrir hvert eintak er 1.000 kr.
Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK í Reykjavík fyr-
ir kl. 14 mánudaginn 5. maí nk. Tilboðin verða þá
opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska að vera
nærstaddir.
Vinsamlega hafið tilboðin í lokuðu umslagi,
merktu: RARIK-97003 Höfn - olíuketill.
Laugavegi 118 • 105 Reykjavík
Sími 560 5500 • Bréfasími 560 5600
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■HH
UTBOÐ
Kópavogsbúar-
Sumarhátíð
í tilefni sumars blæs Alþýðuflokksfélag Kópavogs til sum-
arhátíðar í nýuppgerðu húsnæði félagsins, Hamraborg
14a, föstudaginn 25. apríl kl. 20:00. Matast verður í upp-
hafi hátíðar og um kvöldið verður hægt að nálgast léttari
veitingar. Þeir sem áhuga hafa á að vera með í matnum
eru beðnir um að hafa samband við einhvern stjórnar-
manna, ellegar tala inn á símsvarann á skrifstofu félags-
ins í síma 554-4700 og láta vita. Allir velkomnir - fögnum
sumrinu saman með glæsibrag.
F.h. stjórnar, Magnús Árni Magnússon, formaður
Sumargleði
Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði halda sumargleði mið-
vikudaginn 23. apríl n.k. (síðasta vetrardag) í Hraunholti,
Dalshrauni 15.
Miðaverð kr. 2.200.
Dagskrá:
Kl. 19.00 Húsið opnar
20.00 Sest að snæðingi - hlaðborð hússins (nóg að
borða)
Hátíðin sett
Málmblásarakvintettinn Þeyr skemmtir
Gunnar Svavarsson stendur fyrir uppákomu, en
hvað???
Söngur - glens - gaman
Kl. 23.00 Hljómsveitin Hvos leikur fyrir dansi til kl. 02.00.
Veislustjóri er engin önnur en stórkratinn Ásthildur Ólafs-
dóttir.
Sjáumst hress og kát síðasta vetrardag og gerum kvöldið
ógleymanlegt.
Skráning og allar upplýsingar hjá skemmtilegu nefndinni:
Vala s. 555 1920
Jóna Ósk s. 565 4132
Hafrún Dóra s. 565 1772
Guðfinna s. 555 2956
Brynhildur s. 565 1070 - í Alþýðuhúsinu s. 555 0499
þriðjudaga og föstudaga e.h.
Aðalfundur
Jökuls hf.
Aðalfundur Jökuls hf. verður haldinn þriðju-
daginn 29. apríl 1997 á Hótel Norðurljósi Rauf-
arhöfn og hefst fundurinn kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. grein sam-
þykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga að nýjum samþykktum fyrir félagið.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar fé-
lagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðal-
fundi, skulu vera komnar í hendur stjórnar viku
fyrir aðalfund.
Að loknum aðalfundarstörfum verða bornar
fram léttar veitingar.
AÐALFUNDUR
BORGEYJAR HF.
Aðalfundur Borgeyjar hf. verður haldinn á Hótel Höfn
í Hornafirði, þriðjudaginn 6. maí 1997 og hefst kl.
20:30.
Á dagskrá fundarins verður:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga stjórnar um aukningu hlutafjár.
3. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins um kaup á eig-
in hlutabréfum félagsins.
4. Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Tillögum sem hluthafar hyggjast bera fram á aðalfundin-
um skal skila á skrifstofu félagsins eigi síðar en 7 sólar-
hringum fyrir aðalfund til þess að þær verði teknar á dag-
skrá.
Dagskrá aðalfundarins, ársreikningar félagsins og tillögur
liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins frá
og með 30. apríl nk.
Jón Baldvin og
Sighvatur á ísafirði
Almennurfundur verður haldinn á Hótel ísafirði næstkom-
andi laugardag 26. apríl kl. 14.00.
Frummælendur verða Jón Baldvin Hannibalsson alþingis-
maður og Sighvatur Björgvinsson formaður Alþýðuflokks-
ins.
Öllum heimill aðgangur
(lr alfaraleið
El País
afhjúpar
gamla
nasista
í gömlu skjalasafni
fannst listi með 104
nasistum, sem flúðu til
Spánar. Enginn var á
sínum tíma framseldur,
þó á meðal þeirra væri
höfundur illræmdrar
pyntingaraðferðar sem
kallaðist „ísbaðið.“ Að-
eins einn er ennþá á
lífi, og býr 88 ára í Ma-
drid.
El País, Spáni. Fyrir skömmu
birti spánska blaðið E1 País
lista yfir 104 gamla nasista,
sem flúðu til Spánar í lok seinni
heimsstyrjaldarinnar og hlutu
þar vernd Fransisco Franco, þá-
verandi einræðisherra Spánar.
E1 País rakti, að nasistamir
hefðu tilheyrt Gestapó, SS og
Abwehr, en svo hét leynilög-
regla þýska hersins á tímum
Hitlers. Blaðið, sem kallar
nafnarununa „svarta listann",
segir að hann hafi fundist í einu
af luktum skjalasöfnum utan-
ríkisráðuney tisins.
Listinn var upphaflega af-
hentur Spánverjum af Banda-
mönnum í lok heimssyrjaldar-
innar og þess krafist að allir
104 sem á honum voru, yrðu
framseldir. Spánska stjómin
hafnaði því, og enginn þeirra
var framseldur.
I dag er aðeins einn þeirra á
lífi, Hans Juretschke, sem er 88
ára gamall. Hann fór á eftirlaun
árið 1979, eftir að hafa náð
þeim frama að verða yfirmaður
þýskudeildar háskólans í
Complutense. Hann býr nú í
Madrid, og harðneitar fjölmiðl-
um um viðtöl.
Annar þýskur ríkisborgari
sem var á listanum var Franz
Liesau Zacharias, sem dó 84
ára gamall í Madrid árið 1993.
Hann var félagi í Abwehr, og
ábyrgur fyrir að útvega dýr frá
Spáni sem notuð vom í tilraun-
ir nasista. Tilraunirnar höfðu að
markmiði að finna sjúkdóma,
sem auðvelt væri að dreifa í
fangabúðum, þar sem gyðingar,
kommúnistar og jafnaðarmenn
voru í haldi.
Þriðji maðurinn á svarta list-
anum var alræmdur vítt um
lönd en það var Rudolf von
Merode, sem var í þýsku ör-
yggislögreglunni bæði á Spáni
og Frakklandi meðan stóð á
styrjöldinni. Hann var sakaður
um að liafa myrt með eigin
hendi marga franska ríkisborg-
ara, og var einnig þekktur fyrir
sérstaka pyntingaraðferð sem
gekk undir nafninu ísbaðið.
Enginn þessara manna var á
sínum tíma framseldur. Eftir
borgarastyrjöldina á Spáni
1937-38 var Spánn á valdi fas-
ista, og þó þeir tækju ekki þátt í
heimsstyrjöldinni studdi fasist-
inn Franco hinn illræmda nas-
istaleiðtoga Adolf Hitler.
(El País)