Alþýðublaðið - 24.04.1997, Page 7
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Aðalfundur
Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
verður haldinn 30. apríl nk.
Dagskrá fundarins verður auglýst síðar.
Endurskoðaðir reikningar liggja frammi á
skrifstofu félagsins frá og með miðvikudeginum
16. apríl.
Stjórn Dagsbrúnar
Sumarhátíð
í Kópavogi
Alþýðuflokksfélag Kópavogs blæs til sumarhá-
tíðar föstudaginn 25. apríl kl. 20:00 í nýupp-
gerðum sal félagsins, Hamraborg 14a
Matast verður fljótlega upp úr átta, þannig að
gott er að mæta tímanlega.
Á matseðli er meðal annars:
Sjávarréttapaté
0
Laxapaté
0
Hunangsgraflax
0
Lambapottréttur
0
Pastasalat
0
og allt tilheyrandi.
Verð kr. 1500 fyrir manninn - algert gjaf-
verð!!!
Veislustjóri verður Loftur Þór Pétursson
Allir velkomnir
Gott væri að heyra frá þeim sem áhuga hafa á
að vera í mat í síma 554 0212 (Magnús), 553
6120 og 554 5186 (Loftur) eða 554 5051
(Helga). Einnig er símsvari á skrifstofu félags-
ins 554 4700.
Fjölmennum og skemmtum okkur ærlega.
Stjórnin
Úr alfaraleið
Atta ár fyrir að
selja mannakjöt
Rússneskur dómstóll dæmdi
fyrir skömmu mann í átta ára
fangelsi, Hann var ekki einungis
fundinn sekur um morð heldur
einnig fyrir að hafa selt hluta fóm-
arlambsins eins og venjulegt kjöt.
Morðinginn og mannakjötssal-
inn heitir Anatoly Dolbyshev og
kemur frá bænum Berezniki.
Hann stakk vin móður sinnar til
bana með hnífi í átökum þeirra á
milli. Hann ákvað síðan að koma
líkinu í verð, skar það í litla búta
og seldi til gmnlausra þorpsbúa í
skiptum fyrir vodka. Þegar einn
kaupandinn fann hluta af manna-
húð í kjöti sínu hafði hann sam-
band við lögregluna.
Hj
Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar
auglýsir
eftir umsóknum vegna starfrækslu strengjakvartetts á
vegum borgarinnar frá 1. september n.k.
- Einungis hópar geta sótt um, ekki einstaklingar.
- Laun meðlima svari hálfum starfslaunum listamanna
hjá Reykjavíkurborg og hlíti sömu reglum.
- Kvartettinn starfi sjálfstætt og geri í umsókn nákvæma
grein fyrir starfsáætlun; fyrirhuguðu tónleikahaldi og
öðrum verkefnum; áherslum í vali tónlistar, hugsanleg-
um áformum um upptökur o.s.frv.
Kvartettinn komi auk þess fram nokkrum sinnum á ári
á vegum borgarinnar án aukagreiðslna samkvæmt
nánara samkomulagi.
- Starfslaun til kvartettsins eru veitt til eins árs með
möguleikum á framlengingu.
- Upplýsingar um önnur störf meðlima kvartettsins á
starfstímabilinu fylgi með umsókn.
Umsóknir skulu sendar: Menningarmálanefnd Reykjavík-
ur, Kjarvalsstöðum, v/Flókagötu, 105 Reykjavík fyrir
mánudaginn 12. maí n.k. Sérstök dómnefnd velur úr um-
sóknum.
Jón Baldvin og
Sighvatur á ísafirði
Almennur fundur verður haldinn á Hótel ísafirði næstkom-
andi laugardag 26. apríl kl. 14.00.
Frummælendur verða Jón Baldvin Hannibalsson alþingis-
maður og Sighvatur Björgvinsson formaður Alþýðuflokks-
ins.
Öilum heimill aðgangur
Alþingismenn
Alþýðuflokksins
VDTALS-
TÍMAR
Á morgun,
föstudaginn
25. apríl,
verða þing-
mennirnir
Rannveig
Guðmunds-
dóttir og
Lúðvík
Bergvinsson
með viðtals-
tíma á skrif-
stofum
flokksins,
Hverfisgötu 8-
10.
Lúðvík frá
klukkan 9 til
12 og
Rannveig frá
klukkan 15 til
18.
Þeir sem vilja
panta viðtals-
tíma, hafi
samband við
skrifstofuna í
síma 552-
9244.
* *