Alþýðublaðið - 22.05.1997, Síða 1
■ Hæstiréttur samþykkir endurupptöku mála vegna jöfnun-
argjalds á franskar kartöflur
Menn hafa setið inni
- eftir á kom í Ijós að þeir höfðu ekki svikið ríkið, ríkið hafði svikið þá
Hæstiréttur íslands hefur sam-
þykkt að taka upp aftur mál vegna
innflutnings á frönskum kartöflum.
Nokkrir menn höfðu verið ákærðir
og tveir dæmdir fyrir að hafa svikist
um að leggja jöfnunargjald á fransk-
ar kartöflur sem þeir fluttu til lands-
ins. Mennimir tveir voru dæmdir til
fangelsisvistar og hafa þeir þegar set-
ið af sér dóminn sem kveðinn var
upp á sínum tíma.
Síðar komst Hæstiréttur að því að
jöfnunargjaldið stóðst ekki og allt
bendir til þess að í stað þess að hafa
svikið fé, hafi ríkissjóður haft tals-
vert fé af þeim mönnum sem fluttu
inn frönsku kartöflurnar.
Annar þeirra, sem var dæmdur til
fangelsisvistar, snéri sér til Jóns
Magnússonar hæstaréttarlögmanns.
Jón leitaði til Hæstaréttar með endur-
upptöku í huga. Rétturinn hefur nú
fallist á rök lögmannsins og beðið er
niðurstöðu úr málinu, varðandi fleiri
sambærileg mál. Hugsanlega hefur
nkinu verið sköpuð talsverð skaða-
bótaábyrgð vegna þessara mála.
■ Saksóknari enn í mál gegn Hrafni, sem segist reiðubúinn
í ferðalög með ritskoðurum
- hann segir dómsvaldið seint ætla að skilja undirstöðuatriði tjáningarfrelsis
“Það er mér sönn ánægja að hitta
fulltrúa Ríkissaksóknara aftur. Eg
vona jafnframt að ákæruvaldið í
landinu hafi ekkert betra við tímann
að gera en eltast við mig og að ekki
gangi hættulegri glæpamenn lausir,
Steingrímur J. Sigfússon kveðst
vera jákvæður gagnvart því að finna
form á nánari samstarfi og betri sam-
vinnu A-flokkanna en til þessa, en
hvetur menn til að fara varlega í
þeim efnum. Hann segir það sína
skoðun, að einsog sakir standa séu
afar fáir í báðum flokkunum, sem
vilji beinlínis hreina sameiningu
þeirra. Þetta kom fram í viðtali Krist-
jáns Þorvaldssonar við Steingrím á
Rás 2 um síðustu helgi.
Steingrímur sagði, að það væri
ekki raunhæft að hans mati að halda
að flokkamir sameinist á skömmum
tíma sem flokkar, en kosningasam-
vinna af einhverju tagi væri þess
virði að íhuga og skoða. Þegar hann
sagði Hrafn Jökulsson ritstjóri en á
miðvikudag í næstu viku verður mál
nkissaksóknara gegn honum tekið
fyrir á nýjan leik í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Eins og lesendum Alþýðublaðsins
var spurður af Kristjáni, hvort menn
kæmust úr þessu framhjá því að vera
með sameiginlegan lista, svaraði
hann:
„Það verður tíminn að leiða í ljós,
hversu langt menn komast með það.“
Hann taldi líklegt, að sveitarstjóm-
arkosningar myndu þoka samvinnu-
málum á landsvísu til hliðar, en eftir
það yrðu menn að sjá til.
Aðspurður um hvemig nýr for-
maður hefði staðið sig kvað Stein-
grímur ósanngjamt að spyrja sig að
slíku, en lét þess eigi að síður getið
að hann teldi hana hafa staðið sig
ágætlega, og af máli hans mátti ráða
að enga líkur væru á því að hann
byði sig fram gegn henni.
er kunnugt krafðist Haraldur Jóhann-
essen þáverandi fangelsimálastjóri
opinbemar ákæm á hendur Hrafni
vegna greinar sem hann skrifaði í Al-
þýðublaðið 5. mars á síðasta ári. I
greininni gagnrýndi Hrafn aðbúnað
að föngum og stefnu hins opinbera í
fangelsismálum og sagði í niðurlags-
orðum að Haraldur væri ekki fang-
elsismálastjóri heldur „glæpamanna-
framleiðandi rfkisins.“
Ríkissaksóknari höfðaði opinbert
mál á hendur Hrafni síðastliðið haust
en í Héraðsdómi varð því vísað frá
laust fyrir jólin. Forsendur dómsins
voru þær að það stangaðist á við
jafnræðisreglu stjómarskrárinnar að
opinber starfsmaður gæti falið ríkis-
saksóknara að höfða mál fyrir sína
hönd. Frávísuninni, sem þótti marka
tímamót, var áfrýjað til Hæstaréttar
sem kvað upp þann úrskurð í janúar
að málið skyldi tekið fyrir á nýjan
leik í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Aðspurður kvaðst Hrafn búast við
því að málið gengi til Hæstaréttar
hver svo sem úrslitin verða í Héraðs-
dómi. „Rfldssaksóknara er þetta
greinilega kappsmál og mér er þetta
prófmál svo það má búast við að
leikar berist áfram um íslenskt réttar-
kerfi uns endanlega niðurstaða fæst.
Það virðist ætla að ganga seint að
kenna dómstólunum á fslandi undir-
stöðuatriði tjáningarfrelsisins. Þeir
hafa nú þegar þurft að spássera
svipugöngin til Strassborgar vegna
þess en láta sér ekki segjast. Ég er
reiðubúinn að leggjast í ferðalög með
þessum ritskoðumm ef ástæða er til,“
sagði Hrafn Jökulsson að lokum.
■ Steingrímur J. Sigfússon útilokar ekki nán-
ara samstarf A-flokkanna
Kosningasamvinna
er íhugunarvirði
Kveðst jákvæður á að finna form fyrir nánara sam-
starf og betri samvinnu. Gefur Margréti góða ein-
kunn, og ætlar ekki gegn henni.
■ Poppminjasafn í Keflavík
Opnum í sumar
-segir Rúnar Júlíusson
“Það verður ýmislegt að fxnna á
safninu, fyrst í stað verða það þó
einkum munir sem tengjast popp-
sögu Keflavíkur," segir poppariim og
Keflvíkingurinn Rúnar Júlíusson en
nú stendur fyrir dyrum að opna
Poppminjasafn í Keflavík, sem fyrst
í stað hefur vinnuheitið Bítlabærinn
Keflavík.
“Hugmyndin er í gerjun og þessa
dagana erum við aðallega að leita að
fjármagni, stefnan er þó að opna
þetta í sumar og þá á veitingahúsinu
Glóðinni. Við erum búin að koma á
laggimar nefnd sem hittist reglulega
og leggur línumar, formaður hennar
er Kjartan Már Kjartansson skóla-
stjóri Tónlistarskólans og bróðir hans
Magga Kjartans.“
En hvað verður aðfinna á safninu,
fyrsta gítarinn hans Gunna Þórðar?
“Já, það mætti tildæmis hugsa sem
svo, eða buxumar hans. Við höfum
fengið gefms fyrstu segulbandsupp-
—
Hjörleifur mun
skrifa um Kína
Hjörleifur Sveinbjömsson
bætist við litríka flóra penna
Alþýðublaðsins í dag. Hjör-
leifur mun skrifa í blaðið
reglulega og skiptast hann og
Þórarinn Eldjám á um að
skrifa greinar vikulega.
Sjá bls. 2
tökumar af lögum Hljóma eins og
Fyrsta kossinum og laginu, Bláu
augun þín. Einnig höfum við í fómm
okkar fmmrit ýmissa frægra
popptexta. Það er ekki mikið sem við
höfum, það kemur til með að ráðast
af því fjármagni sem við fáum lír að
spila, en stefnan er sú að þetta verði
ffæðasafn með upplýsingum og tón-
list.
En hvað kemur til að þú ert farin f
samkrall með bæjarstjóm sem kom
því til leiðar að gamla góða Keflavík
og nágrenni hennar ber hið voðalega
nafn Reyjanesbær. Þú hafðir gefið út
þær yfirlýsingar að þú værir að flýja?
“Já, húsið mitt er enn á sölu en það
er bara svo dýrt. Það em ýmis mistök
í stjómsýslu og réttarfari í endur-
skoðun um þessar mundir á íslandi,
kannski verður nafnið endurskoðað
enda var það á skjön við allt lýðræði
og fulltrúar þess kannski vanhæfir til
að taka þessa ákvörðun á sínum tíma.
Lúffum ekki
Pétur Sigurðsson, formaður
Alþýðusambands Vestfjarða,
segir að vestfirskir vinnuveit-
endur sé styrktir að knésetja
verkamenn vestra. Hann segir
jafnframt að stuðningur berist
víða frá.
Sjá viðtal á bls. 6.
A • Myndlampi Black Matrix
• 100 stöðva minni
• Allar aögerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
• Aukatengi f. hátalara
• íslenskt textavarp
■ Myndlampi Black Matrix
’ 50 stöðva minni
■ Allar aðgerðir á skjá
■ Skart tengi • Fjarstýring
1 íslenskt textavarp
BEKO fékk viðurkenningu í hinu virta breska tímariti WHAT VIDEO sem bestu sjónvarpskaupin
■ Myndlampi Black Matrix
1 50 stöðva minni
■ Allar aðgerðir á skjá
■ Skart tengi • Fjarstýring
• Myndlampi Black Matrix
• 50 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
Á öllum tækjum er öryggi
sem slekkur á sjónvarpinu
þegar útsendingu lýkur!
Lá g m úIa 8
Umboðsmenn um allt land
2800
Reykjavík: Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestflrðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk,Bolungarvík.Straumur,ísafirði.
Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Pingeyinga, Húsavík. Austurland: KHB, Egilsstöðum. Verslunin Vfk, Neskaupsstað.
Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kf. Stööfirðimga, Stöðvarfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík.