Alþýðublaðið - 23.05.1997, Side 7
FÖSTUDAGUR23. MAÍ1997
f r é t t i r
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Þjóðverjar sækja
í Einar Kárason
“Þetta er að vísu stór samningur,
hann gerir mig þó ekki ríkan að ver-
aldlegum auði en breytir vissulega
samningsaðstöðunni," sagði Einar
Kárason þegar Alþýðublaðið spurði
hann að því hvort nýlegir samningar
hans við þýsk bókaforlög muni ekki
tryggja fjárhagslega framtíð hans.
Þýska bókaforlagið Bertelsmanns
hefur keypt réttinn á vasabrotsútgáfu
á Eyjabókum Einars. Djöflaeyjan
kemur út nú í maí, Gulleyjan með
haustinu og Fyrirheitna landið næsta
vor.
Þjóðverjar virðast ekki geta fengið
nóg af Einari því stærsta og virtasta
bókaforlagið í Þýskalandi, Hanzer, er
að undirbúa útgáfu á Heimskra
manna ráðum og Kvikasilfri.
Heimskra manna ráð mun koma út
eftir áramót og Kvikasilfur seinna á
næsta ári. Bækumar hafa þegar kom-
ið út í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og
Finnlandi og fengið afbragðs dóma
fyrir utan einhverjar nöldurslegar að-
finnslur í Politiken í Danmörku.
Aðspurður sagðist Einar ekki vera
með skáldsögu fyrir næstu jól, en
sitthvað væri í pokahominu. Þegar
gengið var á hann sagðist hann vera
með tvær skáldsögur í vinnslu.
„Þetta eru tvær sjálfstæðar bækur,
gjörólíkar. Ætli ég geti ekki lofað því
að ég ljúki við þær fyrir aldamót,
sagði skáldið." Aðdáendur Einars
hafa því til nokkurs að hlakka.
Þýskir útgáfustjórar keppast við að bjóða í Einar Kárason.
Clr alfaraleið
Bengaltígur sem býr í
helli hefur undanfarið
drepið 35 börn
Devkota lögregluforingi: Dýrinu hlýtur að finnast þau sérlega gómsæt fyrst það vill
ekki geitur og lömb. Kathmandu Post segir að meistaraskyttur hafi nú verið settar
til höfuðs hinu matvanda tígrisdýri.
Kathmandu Post, Nepal.
Meistarskyttum úr her Nepals hefur verið fyrirskipað
að skjóta illvígan Bengalstígur, sem hefur étið hvorki
meira né minna en 35 böm í sjö þorpum í vesturhluta
Nepal.
“Fólk er yfir sig hrætt við tigrisdýrið, sem ræðst úr
launsátri á smáböm þegar þau stíga út fyrir dyr heimila
sinna eftir að kvölda tekur,“ sagði Staneshwor Devkota,
yfirmaður lögreglunnar í umdæmi Baidati, 375 kíló-
metram vestan við Kathmandú, höfuðborg Nepals.
Talið er að mannætutígurinn lifi í helli, og haldi sig
þar meðan ratljóst er, en fari svo á kreik eftir að rökkva
tekur. Þá sætir hann færis með að ráðast á lítil böm, sem
sitja yftr ám og nautgripum á beit á ökrum foreldra
sinna. Fórnarlömbin 35 hafa öll verið innan við tíu ára
aldur. Þorpsbúar þora nú ekki lengur út, eftir að degi er
tekið að bregða, heldur híma óttaslegnir í kofum sínum
og kytrnrn, og sjá tígrisdýr í hverjum skugga. Devkota
lögregluforingi kvað undmnarefni, hversu vendilega
mannætutígurinn sneiddi hjá gómsætum geitum, kind-
um og nautgripum á beit í grennd við þorpin, en leggð-
ist þess í stað eingöngu á lítil böm. „Dýrinu hlýtur að
finnast þau smakkast einstaklega vel,“ sagði lögreglu-
foringinn.
Flestir þorpsbúar telja að tígrisdýrið sé holdgervingur
guðynjunnar Durga, stríðsgyðju Hindúa, og sé því heil-
agt. Þeir telja jafnframt, að þegar Durga byrjar að drepa
menn, þá sé guðynjan ævareið yfir breytni þeirra. Þessi
trú hefur ekki sefað geð nepalskra guma.
Lögregluforinginn Durga segir, að samkvæmt lögum
um vemd og veiðar villtra dýra í Nepal sé Bengalstfgris-
dýrið vemdað. Dráp slíkra dýra hefur að öðm jöfnu í för
með sér fímm ára fangelsi og háar fjársektir. En dráp á
mannætutígumum hefur þó verið leyft, - en með því
skilyrði að nepalska stjómin fái skinn þess, klær, tennur
Og bein... (The Kathmandu Post, Nepal)
Lagabreytingar - Auka-
fiokksþing - Akranes
Laganefnd Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks
íslands hefur lokið störfum. Tillögur nefndarinnar
hafa verið sendar formönnum allra aðildarfélaga.
Hægt er að vitja þeirra þar eða á skrifstofu flokks-
ins. Einnig má nálgast breytingarnar á heimasíðu
flokksins, Stjórnmálavefnum (http://www.sol-
ver.is/democrat/). Aðrar einstakar tillögur til laga-
breytinga, sem áður höfðu verið lagðar fram, verða
lagðar fram á aukaþingi óbreyttar.
Bæjarmálaráð Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði
Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur
síðasta fund vetrarins mánudaginn 26. maí kl.
20:30 stundvíslega. Allir sem eru í stjórnum, nefnd-
um og ráðum fyrir flokkinn eru sérstaklega hvattir
til að mæta en jafnframt er allt stuðningsfólk flokks-
ins velkomið.
Farið verður yfir starfsemi vetrarins og málefni
framtíðarinnar. Bæjarmálaráð
á r n a ð h e i
Birgir Finnsson
fyrrverandi alþingismaður áttræður
Mánudaginn 19. þessa mánaðar átti
áttræðisafmæli Birgir Finnsson, fyrr-
verandi alþingismaður og lengi forseti
Sameinaðs alþingis. Birgir fæddist á
Akureyri, sonur hjónanna Finns Jóns-
sonar, síðar alþingismanns og ráð-
herra og eiginkonu hans Auðar Sigur-
geirsdóttur. Birgir fluttist með foreldr-
um sínum aðeins þriggja ára að aldri
til Isafjarðar, en þar tók faðir hans við
starfi póstmeistara. Finnur, faðir hans,
gerðist fljótlega eftir komuna til Isa-
fjarðar foringi í baráttu verkalýðs-
hreyfingar og jafnaðarmanna og átti
manna drýgstan þátt í því að gera Al-
þýðuflokkinn að stórveldi á Isafirði.
Það var ekki síst fyrir tilverknað hans,
að Isafjarðarkaupstaður varð þekktur
um land allt undir heitinu „rauði bær-
inn“, en Finnur Jónsson og félagar
hans í Alþýðuflokknum og verkalýðs-
hreyfingunni unnu stórvirki í atvinnu-
og félagsmálum á ísafirði.
Þegar litið er til baka tii þessa
glæsilega tímabils í sögu ísfirskra
jafnaðarmanna
er með ólíkind-
um hversu miklu
þeim tókst að
koma í verk og
hve framsýnir.
þessir menn
voru. Þeir stofn-
uðu öflugt kaup-
félag, sem auk
verslunarinnar,
var umsvifamik-
ið í atvinnumál-
um. Þeir byggðu
sundlaug og
íþróttahús löngu
áður en slíkar
framkvæmdir
voru unnar í öðrum bæjum. Þeir
byggðu sjúkrahús, sem var þá stærsta
og fullkomnasta sjúkrahús á öllu Is-
landi. Þeir stofnuðu félagsrekið
mjólkurbú til þess að leysa úr mjólk-
urskorti í bænum og ráku það af
myndarskap. Þeir keyptu jörðina
Reykjames við ísafjarðardjúp, þar
sem síðar reis héraðsskóli, í þeim til-
gangi að byggja þar í framtíðinni or-
lofs- og sumardvalaraðstöðu fyrir ís-
firskt verkafólk.
Þegar ísfirski bátaflotinn var að
stórum hluta seldur burtu úr bænum
og til útlanda stofnuðu þeir Sam-
vinnufélag ísfirðinga, útgerðarfélag,
sem réðist í það stórvirki að kaupa
flota nýrra og glæsilegra báta frá Sví-
þjóð og björguðu atvinnulífinu á fsa-
firði frá hruni. Samvinnufélagsbátam-
ir urðu landskunnir, ekki síst á síld-
veiðiárunum, en félagið rak meðal
annars umfangsmikla síldarsöltun á
Siglufirði og víðar. Aðbúnaður allur
um borð f þeim bátum var til fyrir-
myndar á þeirra tíma mælikvarða,
snyrtimennska og viðhald rómuð um
land allt. Það vom þessir bátar, sem
sköpuðu þá hefð, sem ríkt hefur á ís-
firska flotanum síðan um góðan að-
búnað skipveija og vandað viðhald
skipanna.
Þessir menn höfðu líka forgöngu
um það, að ísafjarðarkaupstaður réð-
ist meðal fyrstu íslensku kaupstað-
anna í framkvæmdir við virkjanir til
raforkuframleiðslu og fleira mætti
telja. Hér er aðeins fátt eitt talið af
þvf, sem Finnur og félagar hans afrek-
uðu á fyrstu áratugum þessarar aldar í
„rauða bænum".
Þegar til þess er litið er ekki undar-
legt þó fylgi Finns og Alþýðuflokks-
ins á fsafirði hafi verið mikið og Finn-
ur haldið þingsæti með meirihluta-
fylgi ísfirðinga frá því hann fyrst var
kjörinn til þings og þar til hann and-
aðist. Til marks um vinsældir Finns
segja svo fróðir menn, að síðustu ár
hans á þingi hafi Alþýðuflokkurinn í
raun verið kominn í minnihluta í bæn-
um en Finnur haldið þingsætinu sök-
um persónulegra vinsælda.
Á þessu heimili og við þessar að-
stæður hlaut Birgir Finnsson sitt upp-
eldi. Að loknu stúdentsprófi á Akur-
eyri og námi í hagfræði við Stokk-
hólmsháskóla tók hann til starfa í
heimahögum og gerðist þá strax virk-
ur þátttakandi í „ísafjarðarævintýr-
inu“, sem menn eins og faðir hans,
Vilmundur Jónsson, landlæknir og fé-
lagar þeirra höfðu hrundið af stað.
Birgir sá meðal annars um útgerð og
síldarsöltunina á Siglufirði fyrir Sam-
vinnufélag fsfirðinga í tæp tuttugu ár
og var framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins frá 1945 til 1961. Hann tók strax
virkan þátt í starfi Alþýðuflokksfélag-
anna í bænum og hóf snemma afskipti
af bæjarmálum. Forseti bæjarstjómar
á ísafirði var hann í tíu ár - 1952-
1962.
f haustkosningunum 1959 bauð
Birgir sig fram sem efsti maður á lista
Alþýðuflokksins í hinu nýja kjör-
dæmi, Vestfjarðakjördæmi, og var
kjörinn á Alþingi. Þar sat hann sam-
fellt til ársins 1971 þegar Alþýðu-
flokkurinn á Vestfjörðum varð fyrir
miklu áfalli í kosningum og átti þar
fyrst og fremst hlut að máli gamall
vinur og vopnabróðir Birgis, Hanni-
bal Valdimars-
son, sem bauð sig
fram á Vestfjörð-
um gegn sínum
gamla félaga. f
þeirri kosninga-
baráttu lagði
þessi gamla,
vestfirska kempa
höfuðáhersluna
á, að hér. fyrir
vestan hefði hann
byrjað sinn póli-
tíska vígaferil og
hér vildi hann
stíga sín síðustu
skref ef hann nyti
til þess atfylgis
frænda og vina. Þeir bmgðust þannig
við þessu lokaákalli, að Alþýðuflokk-
urinn varð að lúta í lægra haldi og
missti þingmann á Vestfjörðum, sem
flokkurinn hefur ávallt haft fyrir þær
kosningar og síðar.
Á Alþingi var Birgir meðal áhrifa-
mestu þingmanna og naut mikils trún-
aðar. Hann var meðal annars formað-
ur Ijárveitinganefndar og forseti Sam-
einaðs alþingis 1963 til 1971. Tvisvar
átti hann sæti á þingum Sameinuðu
þjóðanna og átti sæti í ijölmörgum,
stjómskipuðum nefndum. f sfldarút-
vegsnefnd átti hann lengi sæti, meðal
annars eftir að hann lét af þing-
mennsku, og var formaður hennar um
skeið. Til Reykjavíkur fluttu þau
hjónin, Birgir og Amdís Ámadóttir,
árið 1970 og bjuggu þar síðan. Þar
starfaði Birgir einkum að endurskoð-
un og þá hjá Eyjólfi K. Siguijónssyni,
löggiltum endurskoðanda. Sá hann
þar meðal annars um endurskoðun á
reikningum ÍSAL.
Birgir Finnsson er mér mjög minn-
isstæður maður, enda kynntist ég hon-
um ungur að ámm því á ísafjarðarár-
unum var mikið samstarf á milli hans
og þeirra félaganna, föður míns og
Jóns H. Guðmundsonar, skólastjóra,
sem látinn er fyrir nokkmm ámm. Þau
samskipti voru á sviði bæjarmála og
landsmála en ekki síst í samstarfi um
útgáfu blaðs Alþýðuflokksins á fsa-
firði, Skutuls, sem þeir skrifuðu í fé-
lagi, en Birgir var ritstjóri þess í 22 ár.
Þegar Birgir gaf ekki kost á sér aftur
til framboðs vorið 1974 studdi hann
mig til þess að taka við af sér og með
ráðum og dáð í kosningabaráttunni og
síðan. Fyrir það vil ég þakka honum.
Birgir Finnsson er myndarlegur mað-
ur að vallarsýn, sviphreinn og drengi-
legur. Hann er prúðmenni mikið og
afskaplega velviljaður. Aldrei hef ég
heyrt hann mæla öfugt orð til nokkurs
manns. Birgir Finnsson er réttsýnn
maður og drengur góður. Á áttræðis-
afmæli hans sendi ég honum og fjöl-
skyldu hans allri einlægar afmælis-
kveðjur og veit, að þar mæli ég fyrir
munn fjölda gamalla og góðra Vest-
firðinga, sem kynntusl Birgi og meta
hann að verðleikum.
Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks Islands.