Alþýðublaðið - 02.07.1997, Page 7

Alþýðublaðið - 02.07.1997, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Rósina sem fallegasta og það voru ekki ófáar stundimar sem þau feng- ust við að smíða, mála og lagfæra, þannig að við jafnaðarmenn gætum átt þar góðar stundir. Enda vom okk- ar fyrstu kynni af Ásgerði og Steina í Rósinni. Ásgerður var góð blanda af gamla og nýja tímanunm, kjamorkukona í senn ákveðin og hlý og með góða kímnigáfu. Ekki datt okkur í hug að við værum að hittast í síðasta sinn á 1. maí kaffi, þó okkur gmni að þú hafir vitað það þar sem þú sast á milli Jóns Baldvins og Bryndísar. Þannig vitum við að þú vildir kveðja flokk- inn okkar, á milli Jóns og Bryndísar, en ekki hefði skemmt fyrir ef Jón Sigurðsson og Laufey hefðu getað verið þar. Með þessum fátæku orðum kveðj- um við þig, kæra Ásgerður, með þakklæti fyrir góðar stundir. Elsku Steini, böm, tengdaböm og bamaböm, við sendum ykkur inni- legustu samúðarkveðjur. Alla og Ása að er í tízku nú til dags að tala í niðrandi tón um stjómmála- flokka og þar með um það fólk, sem vinnur fómfúst sjálfboðaliðastarf innan vébanda þeirra. Margur spek- ingurinn þykist yfir það hafinn að skuldbinda sig til fylgilags við stjórnmálastefnu eða stjómmála- hreyfmgu. Menn vilja vera frjálsir og óháðir. Þeir sem þannig tala em' gjaman ósparir á gagnrýni á þá, sem starfa innan raða stjórnmálaflokk- anna og bera þeim einatt á brýn ann- arlegar hvatir. En það vefst sjaldan fyrir þeim hinum sömu að gera miklar kröfur til stjórnmálaflokkanna. Þeir eiga að hafa skýra stefnu og leggja fram vel rökstuddar tillögur um lauSnir á að- steðjandi vanda, hvar sem við berurri niður í þjóðfélagsumTæðunni. En hvémig eiga stjómmálaflökk- amir að uppfylla þessar kröfur? Þeir hafa ekki efni á að kaupa sér sér- fræðiþjónustu: Starfið inilan stjórn- málaflokkanna er í stórum dráttum sjálfboðaliðastarf, sem unnið er í tómstundum, utan þess vinnutíma, sem hver og einn verður að helga brauðstritinu. Og hvar væm stjórn- málaflokkar staddir, ef þeir gætu ekki reitt sig á áhuga, fómfýsi og skyldurækni þeirra fjölmörgu sjálf- boðaliða, sem eyða tíma síhum og starfsorku í málefna- og umræðuhóp- um, eða öðra því félagsstarfi, sem heldur lífmu í stjómmálahreyfingu? Og hvemig væri komið því fjöl- flokka lýðræði, sem vegsamað er á tyllidögum, ef starfskrafta þessa fólks nyti ekki við? Stjómmála- flokkar eru hvorki verri eða betri en það fólk, sem í þeim starfar. Alþýðu- flokkurinn er góður félagsskapur af því að hann hefur á að skipa góðu fólki, jákvæðu, áhugasömu og vel innrættu fólki, sem vill láta gott af sér leiða. Það er þessu góða fólki að þakka að Alþýðuflokkurinn hefur fengið ótrúlega miklu áorkað til bóta í íslenzku mannfélagi, þrátt fyrir tak- markað fjöldafylgi lengst af. Ásgerður Bjamadóttir, sem við kveðjum nú í dag, og maður hennar, Þorsteinn Jakobsson, hafa undan- fama áratugi verið burðarásar í fé- lagsstarfi jafnaðarmanna í Reykja- vík. Þau hafa lagt mikið af mörkum, án þess nokkru sinni að ætlast til umbunar í staðinn, enda enga fengið. Þau hafa verið samhent, fómfús og örlát á tíma sinn og fjármuni í þágu hugsjónar og málstaðar, sem þau hafa óbilandi trú á. Tækju þau að sér eitthvert verkefni í þágu Alþýðu- flokksins, mátti treysta því að það yrði farsællega leyst. En þau voru ekki bara skyldurækin heldur líka skemmtilegir og glaðværir félagar, í góðra vina hópi. Þeirra samveru- stunda minnumst við með gleði. Ef ég ætti að segja í fáum orðum, hvað mér þótti mest um vert í fari Ásgerðar Bjamadóttur, þá væri það þetta: Hún var gegnheil manneskja. Vönduð til orðs og æðis, traust og áreiðanleg í starfi. Og trygglynd og vinaföst, svo af bar. Ásgerður var ísafjarðarkrati að uppruna og hafði því sterka pólitíska heimanfylgju. Hún var dótturdóttir séra Guðmundar í Gufudal, sem einna fyrstur manna plægði akur jafnaðarstefnunnar á Vestfjörðum. Og Gautlendingur að móðurkyni. Það standa því áð hénni sterkir stofn- ar. Og henni kippti greinilega í kynið um greind, íhygli, samvizkusemi og heiðaríeika. Hún fylgdist vel með framvindu mála. Hún hafði mótaðar skoðanir og tók einarða afstöðu og fylgdi skoðunum sínum eftir af festu og heilindúm. En framganga hennar var ævinlega öfgalaus og einkenndist af hófsemi og sanngimi í garð annarra. Og það sem skar úr var að hún, og þau hjón bæði, létu ekki sitja við orðin tóm. Þegar aðrir létu sér nægja að tala um hlutina, létu þau verkin tala. Þær vom ótaldar vinnustundimar sem Ásgerður og Þorsteinn, Hlín og Er- lingur, lögðu fram í sjálfboðavinnu við að skapa Alþýðuflokksfélögun- um í Reykjavík starfsaðstöðu í Fé- lagsmiðstöð jafnaðarmanna (Rósinni). Fundirnir í Rósinni voru fastur punktur í tilverunni. Það var þar sem lifandi umræða um málefni dagsins fór fram. Og ævinlega vom Ásgerður og Þorsteinn mætt fyrst og hurfu seinast á braut, þegar þau höfðu ásamt öðmm sjálfboðaliðum gengið frá öllu í röð og reglu. Þannig vom þau í smáu sem stóru. Þau áunnu sér virðingu og traust af verkum sínum sem sjálfboðaliðar í þjónustu annarra. Ásgerður lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Islands árið 1950. Mestan hluta starfsævinnar starfaði hún við Útvegsbanka íslands (síðar íslandsbanka), síðustu tvo áratugina lengst af sem deildarstjóri. Hún kenndi einnig um hríð við Banka- mannaskólann og sinnti ýmsum trún- aðarstörfum fyrir starfsmenn bank- ans. Ásgerður var ævinlega kjörinn fulltrúi á flokksþing Alþýðuflokksins seinustu áratugina og sat í flokks- stjóm til dauðadags. Síðast liðinn 14 ár átti hún sæti í stjóm Alþýðuflokks- félags Reykjavíkur og sat í stjóm fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna. Hún starfaði í ýmsum nefndum á vegum ríkis og borgar sem fulltrúi Alþýðuflokksins. 25 ára að aldri giftist Ásgerður eft- irlifandi manni sínum, Þorsteini Jak- obssyni, stýrimanni og síðar hafnar- verði, sem ættaður er úr Hrísey. Bömin þeirra fjögur bera foreldrum sínum fagurt vitni því að þau em öll vel menntað mannkostafólk, sem em líkleg til að ávaxta vel þann arf, sem þau fengu úr foreldraranni. Við Bryndís söknum vinar í stað. Við sendum Þorsteini vini okkar, Unni, Bjama, Haraldi og Jakobi og mökum þeirra og börnum, sem og öðram frændum og vinum, hugheilar samúðarkveðjur að leiðarlokum. Jón Baldvin Ilannibalsson s Iöllum stjómmálaflokkum era fyr- irmyndarfélagar. Félagar sem em fullir áhuga, jákvæðir, opnir fyrir nýjum hugmyndum, nýju fólki - fé- lagar sem ávallt em reiðubúnir til að veita liðsinni í stóm sem smáu. Þeir starfa af hugsjón og gera aldrei kröfu um neitt sjálfum sér til handa, aðra en þá að fá að taka þátt í starfinu og tækifæri til að láta gott af sér leiða. Slíkt fólk er gæfa hverrar hreyf- ingar og þannig var Ásgerður Bjamadóttir okkur, sem undanfarin ár höfum starfað í Félagi frjálslyndra jafnaðarmanna innan Alþýðuflokks- ins. Hún var bakhjarl og hjálparhella, hvatti okkur stöðugt til dáða og mætti á alla fundi sem við héldum, með eiginmanni sínum Þorsteini Jak- obssyni. Þau komu okkur ávallt fyrir sjónir sem nýgift par, alltaf samstíga, glöð og áhugasöm. Nú verða þeir fundir ekki fleiri. Við munurn sakna hennar og minnast sem eins okkar besta félaga. Þorsteini og bömum þeirra send- um við innilegar samúðarkveðjur. F. h. stjórnar Félags frjáls- lyndra jafnaðarmanna, Margrét S. Björnsdóttir, Vil- hjálmur Þorsteinsson. s Idag er borin til grafar Ásgerður Bjamadóttir, jafnaðarmaður og stjómarmaður í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur. Ég kynntist þessari ágætu konu er ég fór að starfa fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavík árið 1991. Ásgerður sóttist ekki eftir sviðs- ljósinu en var ötul við að leggja hönd á plóg í flokksstarfinu. Hún kom mér fyrir sjónir sem virðuleg kona sem var hafsjór af fróðleik og stálminnug á allt sem við kom pólitík. I pólitísku samstarfi var Ásgerður góður félagi, búin að vera lengi í flokknum, þekkti alla, kunni spjald- skrána nánast utanað og því gladdi það mig er hún var kosin í stjóm Al- þýðuflokksfélags Reykjavíkur fyrr á þessu ári. Það var fengur í því að hafa svo reýnslumikla konu í flokks- starfi. Fyrsta stóra verk okkar var að halda sameiginlegt 1. maí kafft á Hótel Borg með Alþýðubandalaginu í Reykjavík. Það verk var henni mjög kært. I undirbúningi að 1. maí kaff- inu greindist hinn alvarlegi sjúkdóm- ur sem nú hefur lagt hana að velli. Þó hún væri veik hringdi hún nokkrum sinnum í mig og spurði hvort Al- þýðubandalagið í Reykjavík væri ekki tilbúið til þátttöku. Þegar ég sagði henni að svo væri sagðist hún ætla að mæta á Borgina 1. maí og það gerði hún þó veik væri. Eftir fundinn var hún ánægð með hvemig til tókst og var sannfærð um að þetta ffamtak okkar væri gott innlegg í umræðuna um sameiningu jafnaðar- manna, nánast fyrsta alvöraskrefið sem stígið hefði verið í þessu sam- bandi. Fyrir hönd Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur og stjómarmanna vil ég þakka Ásgerði Bjamadóttur sam- starfið og óeigingjamt starf á undan- fömum ámm í þágu félagsins'. Eiginmanni Ásgerðar, Þorsteini Jakobssyni (Steina mínum eins og hún kallaði hann) og bömum þeirra hjóna votta ég mína dýpstu samúð. Megi minning um góða konu lifa. Rúnar Geirmundsson formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur Vinkona mín er látin og það myndar tómarúm í hjarta mínu. Minningar koma um æsku og ung- lingsárin heima á Isafrrði, fullorðins- árin í ReykjavrTc, fjölskyldustofnanir, bameignir og svo öll ferðalögin með krötunum. Árvissar fræðslu- og skemmtiferðir um landið, fyrst með börnin lítil, síðan stálpuð og svo við hjónin með öllu hinu fólkinu. Allt góðar minningar, enda var Ásgerður Bjamadóttir einstök kona, heiðarleg til orðs og æðis, lagði aldrei illt til nokkurs manns, hafði næmt skop- skyn, var orðheppin og skemmtileg. Ásgerður hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og fór ekki dult með þær. Gat verið hvassyrt ef henni fannst rétti hallað, þó án þess að særa eða lítilsvirða nokkum. Lítil- magninn átti málsvara þar sem Ás- gerður fór. Hennar er því sárt saknað af öllum sem hana þekktu. Vináttu og hlýhug sem hún og eig- inmaður hennar, Þorsteinn Jakobs- son, hafa sýnt mér og fjölskyldu minni í gegnum tíðina þakka ég af al- hug og þá sérstaklega stuðning og styrk okkur gefin nú á síðustu vikum á erfiðum tíma í lífi okkar. Minning um góða konu mun lifa með okkur. Ég votta eiginmanni hennar og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Björg Kristjánsdóttir Alþýöuflokkurinn Alþingismenn í kjördæmum Alþingismenn Alþýðuflokksins eru í kjördæmum sínum um þessar mundir. Þeir sem vilja ná tali af þeim geta haft samband við Alþingi í síma 563-0500, þar sem nánari upplýsingar um ferðir þing- mennina fást. Eins er hægt að hafa samband við þingmenn flokksins með tölvupósti, en póstfang þeirra er eftirfarandi: jbh@althíngi.is gisli@lthingi.is garni@althingi.is ludvik@althingi.is rannveig@althingi.is ossur@althingi.is sighv@althingi.is Rannveig Guðmundsdóttir: Sighvatur Björgvinsson; Össur Skarphéðinsson: Gísli Einarsson: Guðmundur Arni Stefánsson: Jón Baldvin Hannibalsson: Lúðvik Bergvinsson: Magnús Norðsdhal, formaður framkvæmdastjórnar, er á ferðalagi á Austurlandi til 4. júlí. Þeir sem vilja ná tali af Magnúsi er bent á farsíma, en númerið er; 898-2754.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.