Alþýðublaðið - 22.09.1998, Síða 1

Alþýðublaðið - 22.09.1998, Síða 1
ALPMBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. september 1998 STOFNAÐ 1919 2. tölublað fyrri hluti 79. árg. 49.flokksþing Alþýðuflokksins Auðlindastefna í almannaþágu Auðlindastefna, umhverfisvernd og jafnréttismál setja svip sinn á flokksþing Alþýðuflokksins auk sameiningarmál- anna. - En þar verður einnig rúm fyrir samveru og gleðistundir Frá síðasta fiokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins sem haldinn var á Grand Hóteli. Frá vinstri: Valgerður Guðmundsdóttir ritari Alþýðuflokksins, Ásta B. Þorsteinsdóttir varaformaður Alþýðuflokksins, Magnús Norðdahl formaður framkvæmdastjórnar og Sighvatur Björgvins- son formaður Aþýðuflokksins í ræðustóli. (Mynd -Dv-mynd) Auðlindastefna í almannaþágu er yfirskrift 49. flokksþings Alþýðuflokks sem háð verð- ur dagana 25.-27. september 1998 á Grand Hótel í Reykjavík. Um 260 manns eiga rétt til setu á flokksþinginu með fullum réttindum. Auk þess er þingið opið öllum áhugamönn- um og stuðningsmönnum Alþýðuflokksins. Húsið verður opnað kl. 16.30 á föstudaginn og fer þá fram afhending þinggagna. Upp úr kl. 17.00 munu menn heyra lúðraþyt og Lúðrasveit verkalýðsins leikur og flytur tónlist ásamt kvennakómum Vox feminae. Setningarræða Sighvats Björgvinssonar formanns Alþýðuflokksins verður flutt kl. 17.35 en að því loknu mun Lúðrasveit verka- lýðsins ásamt Vox feminae frumlytja útsetn- ingu Arna Björnssonar á Sjá roðann í austri, sem tónskáldið gaf ungum jafnaðar- mönnum. Strax á föstudaginn fá fulltrúar að heyra fjölbreytt sjónarmið jafnaðarmanna. Til hvers œtlast ég afAlþýðuflokknum? er yfirskriftin á pallborðsumræðum undir stjórn Össurar Skarphéðinssonar. Þátttakendur auk hans verða þau Jóhanna Sigurðardóttir formað- ur Þjóðvaka, Bryndís Hlöðversdóttir þing- maður Alþýðubandalags, Svanur Kristjáns- son prófessor í stjómmálafræði, Þráinn Hallgrímsson skrifstofustjóri Dagsbrúnar og Hulda Ólafsdóttir sjúkraþjálfari. Að afloknu stuttu matarhléi á föstudaginn hefjast almennar stjómmálaumræður, Asta B. Þorsteinsdóttir varaformaður Alþýðu- flokksins hefur umræðuna. Um ellefuleytið verður eftirspil pólitíkur. Sá landskunni jafnaðar- og tónlistarmaður Jakob Magnússon mun sitja við flygilinn og leyfa nokkrum ljúfum nótum að fljúga út í nóttina með þeim stuðkrötum sem vilja. A laugardagsmorgni verða málefnahópar að störfum: Lýðrœði og jafnrétti. Stjómendur: Lúðvík Bergvinsson, Asta Ragnheiður Jóhannes- dóttir og Kolbeinn Stefánsson. Verkalýðshreyfing og sameiningarferlið: Hervar Gunnarsson varaforseti ASÍ, Krist- ján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur og Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Sóknar. Auðlindir og umhverfi. Stjómendur: Össur Skarphéðinsson, Margrét Björnsdóttir og Finnur Birgisson. Laust fyrir hádegið mun Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður flytja fram- sögu fyrir stjómmálaályktun flokksþings, en að undanfömu hefur málefnahópur verið að störfum undir stjóm Guðmundar Árna, þ.e. þau Svanfríður Jónasdóttir alþingismaður, Jón Gunnarsson bæjarfulltrúi í Grindvík, Bryndís Kristjánsdóttir formaður Sam- bands alþýðuflokkskvenna og Ingvar Sverr- isson framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins. Eftir hádegið fara þingfulltrúar í kynnis- ferð til Háskóla Islands. Þar verður sérstak- lega fjallað um efnið: Háskólinn og þjóðfé- lagið, hvaða hlutverk hafa vísindin í þróun þjóðfélagsins? Kosningar til forystu flokksins hefjast þeg- ar á laugardagsmorgni og standa í nokkra klukkutíma fram að því að farið verður í há- skólaferðina. En að afloknum þeim dagskrár- lið verður aftur haldið í Grand Hóteli og úrslit kosninga kynnt. Eftir kaffitímann á laugardag mun Rann- veig Guðmundsdóttir formaður þingflokks jafnaðarmanna kynna stöðu mála um sameig- inlegt framboð. Jafnframt munu stjómendur málefnahópanna reifa álit þeirra til áframhald- andi umræðu í hreyfmgunni. Klukkan átta verður efnt til vandaðrar Há- tíðardagskrár. Meðal atriða verða söngkonum- ar Fjórar klassískar, Jóhannes Kristjánsson eftirherma og þama verður fjöldasöngur og ýmislegt fleira sem kemur á óvart. Gísli S. Einarsson alþingismaður verður veislustjóri. Á lokadegi þings verða ýmsir hefðbundnir flokksþingsliðir, eins og t.d. Lagabreytingar sem jafnframt verða kynntar á netsíðu flokks- ins http://www.jafnadarmenn.is nú í vikunni. Þennan morgun hefjast og kosningar til flokksstjómar og Verkalýðsnefndar. Magnús Norðdahl kynnir lagabreytingam- ar og hann flytur einnig skýrslu formanns framkvæmdastjómar. Sigrún Benediktsdótt- ir gjaldkeri flokksins flytur líka skýrslu á laugardagsmorgni en laust fyrir hádegi sunnu- dags verður kynnt ályktun um menntasamfél- ag: Framsaga: Ágúst Einarsson. I sameiginlegum hádegisverði á sunnudag- inn flytur Guðmundur Andri Thorsson rit- höfundur ávarp og væntanlega munu menn einnig taka þar lagið. Síðan tekur blýþung al- varan aftur við með framhaldi almennrar um- ræðu - afgreiðslu stjómmálaályktunar og annarra mála. Reiknað er með að þinginu verði slitið um nónbil á sunnudag. NYR LUXUSJEPPI Grand Vitara er alvöru jeppi. Sjálfstæð grindin og hátt og lágt drif tryggja að hann kemst þangað sem honum er ætlað að fara. Hann er byggður á traustum grunni Suzuki Vitara, bara enn betur útbúinn, breiðari og glæsilegri. Svo er hann á sérlega ánægjulegu verði frá 2.179.000 kr. ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- L0FTPÚÐUM. SUZUKI AFL OG ÖHYGGI LD l\ FULL FRAJHE SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garóabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehí.Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.