Alþýðublaðið - 22.09.1998, Side 3

Alþýðublaðið - 22.09.1998, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUnAGUR 2 2 . SEPTEMBF.R 1998 - 3 Þinflokkur Jafnaðarmanna eins og hann var skipaður við stofnun hans í fyrra. Talið frá vinstri: Össur Skarphéðinsson, Gísli V. Einarsson, Svanfrfður Jónasdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Lúðvfk Bergvinsson, Sighvatur Björgvinsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Ágúst Einarsson og Jón Baldvin Hannibalsson, en við sæti hans tók Ásta B. Þorsteinsdóttir. 49. flokksþingið Happadráttur á þingi Glæsilegir vinningar Happdrætti Alþýðuflokksins er venju samkvæmt haldið í tengslum við flokksþing Al- þýðuflokksins. -Miðinn kostar aðeins 500 krónur, segir Ingvar Sverrisson framkvæmdastjóri flokksins. Ingvar segir vinninga glæsi- lega eins og t.d.: Ferð fyrir tvo til Dublínar, hinn glæsilegi Heimsatlas Máls og menning- ar, nokkur hálfsárs kort í lík- amsræktarstöðina World Class - og hugsanlega verður einnig tölva í lotteríinu. Framkvæmdastjórinn kveð- ur mikilvægt að jafnaðarmenn sýni þegnskap í verki og kaupi miða, því hagnaður af happ- drættinu sé flokknum alger nauðsyn. Við munum sigra Jafnrétti -iand vorra drauma Vorið kallar Dregur til sátta Framtíðin er okkar Vonir brautryðjendanna rætast Við erum á réttri leið Sameining jafnaðarmanna Stuðningsmenn verði allir með í baráttunni í ályktun 48. flokksþings Alþýðuflokksins í nóvember 1996 segir að flokkurinn gangi til umræðunnar um auk- ið samstarf jafnaðarmanna „án fordóma og skilyrða, meðvitaður um að framundan er mikilvæg þróun, þar sem tekist verður á um það hverjir skulu hafa forystu um að leiða ísland inn í 21. öldina, inn í nýtt árþúsund. Það er hins vegar brýnt að umræðan um samvinnu og sameiningu jafnaðarmanna lokist aldrei af í stofnunum flokkanna, heldur sé einnig hvatt til hennar utan hinna formlegu hreyfmga. Til hennar á einnig að bjóða þeim sem hvergi standa í flokki, en fylgja jafnaðarstefnunni að málum, félögum verkafólks, öðrum samtökum og ein- staklingum. Með því að leiða saman hugmyndir, atgervi og fólk úr ólíkum áttum og með fjölbreyttan bakgrunn er hægt að skapa trúverðugan valkost jafnaðarmanna, sem að loknum næstu kosningum getur haft forystu um að stýra þjóðinni í nýja öld. Aldrei fyrr á öldinni hafa skap- ast jafn miklir möguleikar og nú á því að sameina ís- lenska jafnaðarmenn í breiða og öfluga hreyfingu." Dagskrá 49. flokksþings Alþýðuflokksins Jafnaðarmannaflokks íslands Auðlindasletna í almannaþágu 25.-27. september 1998 - Grand Hótel Reykjavík Föstudagur 25.09. 16.00 Afhending þinggagna 17.15 Lúðraþytur. Lúðrasveit verkalýðsins flytur þjóðleg lög ásamt kvennakórnum Vox feminae 17.35 Setningarræða Sighvats Björgvinssonar for- manns 18.15 Sjá roðann í austri, Lúðrasveit og Vox feminae frumflytja útsetningu Árna Björnssonar sem tón- skáldið gaf ungum jafnaðarmönnum 18.20 Þingsetning, kjör starfsmanna þingsins 18.30 Pallborðsumræður- Til hvers ætlast ég af Alþýðuflokknum? Stjórnandi Össur Skarphéðins- son, en aðrir þátttakendur: Jóhanna Sigurðar- dóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Svanur Kristjáns- son, Þráinn Hallgrímsson og Hulda Ólafsdóttir 19.30 Matarhlé 20.40 Almennar stjórnmálaumræður. Ásta B. Þorsteins- dóttir varaformaður hefur umræðuna 23.00 Eftirspil. Jakob Magnúson við flygilinn 23.30 Háttumál Framboð til formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara og formanns framkvæmdastjórnar verður að tilkynna þingforseta fyrir lok almennra stjórn- máiaumræðna Laugardagur 26.09. 08.30 Skýrsla formanns framkvæmdastjórnar - Magnús Norðdahl 08.45 Skýrsla gjaldkera -Sigrún Benediktsdóttir 09.00 Starf umræðuhópa 1. Lýðræði og jafnrétti. Stjórn: Lúðvík Bergvinsson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Kolbeinn Stefánsson 2. Auðlindir og umhverfi. Stjórn: Össur Skarphéðinsson, Margrét Björnsdóttir og Finnur Birgisson 3. Verkalýðshreyfing og sameiningarferlið. Stjórn: Hervar Gunnarsson, Kristján Gunnars son og Þórunn Sveinbjörnsdóttir 09.00 Kosningar hefjast um formann, varaformann, gjaldkera, ritara og formann framkvæm- dastjórnar 11.30 Framsaga fyrir stjórnmálaályktun flokksþings - Guðmundur Árni Stefánsson Ritnefnd ályktunar auk hans: Svanfríður Jónas- dóttir, Jón Gunnarsson, Bryndís Kristjánsdóttir og Ingvar Sverrisson 12.00 Hádegisverður 13.00 Haldið til Háskóla íslands Kosningu lýkur um formann, varaformann, gjald- kera, ritara og formann framkvæmdastjórnar 13.15 Háskólinn og þjóðfélagið, hvaða hlutverk hafa vísindin í þróun þjóðfélagsins. Háskólarektor Páll Skúlason flytur ávarp. Pallborðsumræður 14.30 Haldið til Grand Hótel 14.45 Kaffihlé Tilkynna skal þingforseta framboð til fram- kvæmdastjórnar fyrir kl. 16.30 15.00 Kynning á sameiginlegu framboði - Rannveig Guðmundsdóttir formaður Þingflokks jafnaðar- manna. Úrslit kosninga kynnt 16.00 Skýrslur umræðuhópa 17.00 Kosningar til framkvæmdastjórnar hefjast 18.30 Kosningum til framkvæmdastjórnar lýkur Þingfrestun 20.00 Hátíðardagskrá. Veislustjóri Gísli V. Einarsson Sunnudagur 27.09 09.30 Lagabreytingar. Kosningar til Flokksstjórnar og Verkalýðsnefndar hefjast. Úrslit kosninga til framkvæmdastjórnar kynnt 10.30 Kynning á heimasíðu Alþýðuflokksins 11.30. Ályktun um menntasamfélag: Ágúst Einarsson hefur framsögu 12.00 Hádegisverður. Guðmundur Andri Thorsson flytur ávarp 14.00 Framhald almennrar umræðu - afgreiðsla stjórn- málaályktunar og annarra mála 15.00 Þingslit

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.