Vísir - 16.03.1976, Blaðsíða 8

Vísir - 16.03.1976, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 16. mars 1976 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjóri og ábm : Þorsteinn Pálsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. simi 86611. 7 linur Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. t lausasögu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Að hlaupa undir pilsfald mömmu Dómsmálaráðherra hefur i skrifum sinum að undanförnu lagt sig i framkróka við að hlaupa með samsæriskenningar af ýmsu tagi úr einu horni i annað. Er þetta hlaup allt hið spaugilegasta. Mikið er á sig lagt til að lesendur Timans hafi ávallt hina einu réttu samsærismynd i huga. Fyrst voru það ritstjóri og útgefendur Visis, sem formaðurinn sagði lesendum Timans að væru höf- uðpaurar hins mikla pólitíska samsæris. Svo sprakk sú blaðra. Þá var i opnum bréfum farið að tala um, að fréttamenn útvarpsins bæru ábyrgð á þvi sem formaður Frámsóknarflokksins og dómsmálaráð- herra segði i útvarpinu. Þvi næst var sökinni varpað á fréttastjóra sjón- varpsins, sem lét sjónvarpa leiksýningunni frægu á Alþingi. Og loks hafa leyniþjónustumenn ráðherr- ans nú komist til botns i málinu. Þá heitir það að krataflokkurinn allur i heild beri ábyrgð á samsær- inu. Öll hafa þessi skrif verið hin besta skemmtun. Þau eru þannig ekki efni til andsvara, heldur ein- vörðungu til að brosa að. Á hinn bóginn er það vert umhugsunarefni, þegar dómsmálaráðherra leggur að dómara að hundsa lögin og dæma honum i hag eftir að hafa neitað að finna orðum sinum stað fyrir dóminum. Einhvern timann hefðu menn verið felldir á almennri lögfræði fyrir að bera slikar kenningar á borð. Dómsmálaráðherra segir, að þeir sem leiti réttar sins fyrir dómstólum séu eins og óþekkir strákar, sem hlaupi undir pilsfald mömmu. Athyglisvert er að dómsmálaráðherra skuli líta þannig á réttar- gæsluna i þjóðfélaginu. En ýmsum finnst þó sem það sé likara þvi að strákur hlaupi undir pilsfald mömmu sinnar, þegar dómsmálaráðherra hleypur með málsvörn sina i Timann, þar sem vist er, að rök andstæðingsins fá ekki að heyrast. Fyrir dómi standa þó báðir jafnt að vigi. Vinnubrögð dómsmálaráðherra við hin opnu bréfaskrif eru að ýmsu leyti sérstæð. Hér skal til- fært eitt dæmi þar um: Ráðherrann vitnar i stefnu ritstjóra þessa blaðs með þessum hætti: ,,Mála- vextir eru þeir, að menntaskólakennari nokkur i Reykjavik....hefur á undanförnum mánuðum skrifað...” o.s.frv. Ráðherrann leggur út af þessum orðum i stefn- unni og telur það bera vott um litilsvirðingu i garð menntaskólakennarans, sennilega af þvi að hann sé ekki nafngreindur. Þegar fyllt er upp i úrfellingar- merkin, sem ráðherrann setur i tilvitnun sina, er setningin svohljóðandi: „Málavextir eru þeir, að menntaskólakennari nokkur i Reykjavik, Vilmund- ur Gylfason, hefur á undanförnum mánuðum skrif- að...” o.s.frv. Hér fellir ráðherrann niður nafn viðkomandi manns i tilvitnuninni af þvi að þannig má draga þær ályktanir, sem hann dregur eins og rauðan þráð i gegnum bréf sin. Það er óþarfi að hafa lýsingarorð um vinnubrögð af þessu tagi. En Vísir þykist viss um að við prófraun lögmanna fengju menn ekki sæmilegan og þvi siður góðan vitnisburð, ef þeir reistu málflutning sinn á slikri röksemdafærslu. Þetta veit Ólafur Jóhannesson manna best. Visir hefur fullan skilning á þvi, hvers vegna ráðherrann mætti ekki fyrir dómi. Spurningin er hins vegar sú, hvort það hefði ekki einnig farið betur á þvi að láta málsvörn af þessu tagi eiga sig i blöðum, jafnvel þó að Timinn eigi i hlut. —^ViWTíKílV Umsjón: ólafur Hauksson tsraelskur hermaður við sovéska SAM-3 eidflaug sem tekin var af egyptum f striðinu 1973. Egyptar hafa ásakað rússa fyrir að hafa ekki látið þeim i té nægilega mikið af vopnum i þeim fimm styrjöldum sem háðar hafa verið við tsrael. HVERFUUR SAMNINGAR Vináttusamningurinn milliegypta og rússa sem egypska þingið mun að öllum líkindum sam- þykkja að slíta, var á sínum tíma kallaður sögulegt plagg um sam- skipti landanna tveggja. Sadat egyptalandsfor- seti, sem er aðalhvata- maður að samningsslit- unum, var aðalhvata- maðurinn að gerð hans árið 1971. Margt er i heiminum hverfult, má segja um þessi umskipti. En þau hafa legið i loftinu nokkuð lengi, þótt fáir hafi búist við svo róttækum aðgerðum af hálfu egypta. En rússar vilja ekki heyra minnst á lengri tima en 20 ár. Lánin eru um fjórir millj- arðar dollara. Siðast ræddu egyptar og rússar um endur- greiðslurnar i nóvember siðast- liðnum. Samkomulag varð ekki i viðræðunum, og þær fóru út um þúfur. hefur einnig sett sinn svip á deilurnar. Rússar eru litt hrifnir af frelsistilhneigingu i Egypta- landi. En staðreyndin er sú að siðan Sadat tók við völdum hefur stjórnmálalegt frelsi aukist mjög mikið. Það sem áður var aðeins hvislað milli manna er nú rætt fullum hálsi á t vináttusamningnum sem gerður var i júli 1971 fólst — auk efnahagshjálpar — að sovét- menn tókust á hendur að þjálfa egypta til að nota sovésk hernaðartól. Um tuttugu þúsund sovéskir ráðgjafar, aðallega hernaðar- Sadat hefur leitað fyrir sér á nýjum vigstöðvum um vopnakaup — m.a. á þessum Sea King þyrlum sem framleiddar eru i Bretlandi. ráðgjafar, voru i Egyptalandi 1972. En vináttan kólnaði skyndilega þegar Sadat rak þá alla úr landi i einu vetfangi. Hann sakaði rússa um að hafa ekki staðið við loforð um hernaðaraðstoð. Siðar hefur Sadat haldið uppi hörðum árásum á rússa fyrir samningssvik. Hann sagði að egyptar hefðu ekki fengið nægi- leg vopn til að berjast við isra- elsmenn i þeim fimm styrj- öldum sem löndin hafa háð. Kröfur rússa um endur- greiðslur efnahagsaðstoðar hafa einnig verið bitbein. Sadat vill endurgreiða lánin á 30 til 40 árum, og ber við að styrjald- irnar við Israel hafi skaðað efnahag landsins alvarlega. í ræðu sinni á egypska þinginu sagði Sadat að eftir að vináttan minnkaði milli rússa og egypta, hefðu egyptar rekið sig á að hvergi væri hægt að fá varahluti i sovésku vopnin. Indverjar framleiða vopn af sovéskri gerð með leyfi rússa, en þeir hafa verið ófáanlegir til að láta egyptum nokkuð i té. Fyrir aðeins tíu dögum neituðu indverjar að selja egyptum varahluti i sovéskar MIG orrustuþotur. Mikill hluti egypska flughersins eru flug- vélar af rússneskum gerðum, þrátt fyrir ýmsar tilraunir Sadats til að fá flugvélar frá öðrum löndum. Ágreiningur um stjórnarfar Egypskir hermenn æfa sig i meðferð sovésks skriðdreka af gerðinni M-55. opinberum samkomum. Enn eiga egyptar þó langt i land með að ná lýðræðislegu stjórnarfari að vestrænum hætti. Stjórn- málaflokkar eru enn ekki leyfðir, þrátt fyrir þrýsting á Sadat. En Sadat telur að eins og málum sé háttað i Egyptalandi sé heppilegast að þar riki forseti með mikil völd, en fái ráð frá góðum mönnum, semsagt nokk- urs konar „menntað einræði” eða „upplýst einveldi”. Sadat sagði að Brezhnev hefði lýst sig andvigan svona stjórnarfari i ræðu sinni á flokksþingi kommúnista i Moskvu, sem lauk fyrir skömmu. Samningurinn sem Sadat hefur nú lagt fram frumvarp um að verði slitið, átti að gilda ti! 15 ára. 1 samningnum er ákvæði sem segir að verði annar hvor aðilinn óánægður og vilji segja honum upp, sé upp- sagnarfrestur eitt ár. Hins vegar leggur Sadat til i frum- varpi sinu að samningurinn gangi úr gildi nú þegar. Búist er við að yfirgnæfandi meirihluti hinna 360 þingmanna samþykki lagairumvarp Sadats. Þegar Sadat bar fram frumvarpið á þinginu heyrðist ekki til hans i langan tima vegna fagnaðarópa þingmanna. Sovétmenn hafa i nær tvo ára- tugi verið aðal-vopnasali til egypta. Samvinna landanna á sjötta og sjöunda áratugnum varð sifellt nánari. Þá var Nasser forseti Egyptalands. Samvinnan var bæði hernaðar- leg og efnahagsleg. Sovétmenn veittu gifurleg lán.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.