Vísir - 16.03.1976, Page 19
visra triðjudagur 16. marz 1976
19
GLUGGAÐ
í ffgriótið"
í Firðinum
Hér á árum áður varð aö hlaupa Hafnarfjarðarlögregluna uppi á göt-
um úti, ef til hennar þurftiað leita, þar sem hún átti sér ekkert athvarf.
Nú má ganga að henni visri 1 gamla Sýslumannshúsinu við Suður-
götu, eða öllu heldur viðbyggingu þess húss. Hvorki er þar hátt til lofts
né vitt til veggja enda mun vinnuaðstaöa lögreglunnar þarna jaðra við
aðstöðuleysi.
Við tókum okkur bessaieyfi á
dögunum, örkuðum inn á varð-
stofuna, með hálfum huga, og
óskuðum leyfis til að skoða húsa-
kynni og greina frá þvi hvernig
rikið býr að löggæslumönnum i
Firðinum.
Að sjálfsögðu var slikri umleit-
an vísað til úrskurðar yfirlög-
regluþjóns, og við héldum á
brattann upp á næstu hæö að
I Eina snyrtiaðstaðan i stöð-
inni er nánast að segja i skáp
y undir stiganum.
Skammbyss-
unum skiluðu
fyrri eigendur
flestir sjálf-
viljugir, eftir
að auglýst
hafði verið
eftir þeim.
kanna undirtektirnar.
í fangaklefa
númer sex.
,,Það er vissulega óþægilegt að
vera með aðsetur hér uppi meðal
fanganna og vera þannig að
nokkru slitinn úr sambandi við
varðstofuna niðri ” sögðu þeir
Steingrimur Atlason yfirlög-
regluþjónn og Ólafur K. Guð-
mundsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, er þeir höfðu látið til leið-
ast að spjalla við okkur.
Skrifstofa þeirra er i innsta
fangaklefanum á efri hæðinni og
þar er ekki um neina hljóðein-
angrun að ræða.
,,Það getur orðið ansi hávaða-
samt hérna i klefunum við hliðina
og þá stundum erfitt að tala sam-
an eða i simann.
Við erum með þrjá klefa hérna
uppi og tvo niðri. Það er þvi ekki
hægtað hýsa nema fimm manns I
einu, og þvi verðum við stundum
að leita á náðir Reykjavikurlög-
reglunnar með húsnæði. Núna er-
um við t.d. með þrjá gæsluvarð-
haldsfanga svo við höfum ekki
nema tvo klefa lausa.”
Fara i bað
til Reykjavikur
„Rýmið sem við höfum til af-
nota er allt of litið, lágmarkið
væri helmingi stærra húsnæði.
Auk þess höfum við hvergi að-
Það kennir ýmissa grasa i geymslunni — þótt lítil og þröng sé.
Kannski þekkir einhver þarna sina flösku eða sinn riffil, én hvort-
tveggja er varningur sem hefur verið gerður upptækur.
Þannig litur hún út lögreglustöðin i Hafnarfirðinum. Þarna hefur rannsóknarlögreglan einnig bækistöð
og bifreiðaeftirlitið hefur tvöherbergi i enda gamla hússins. Myndir Loftur.
Arnbjörn Leifsson lagar kaffi
handa starfsliði og föngum.
Ekkert hyllir
undir nýja stöð.
„Þvi miður virðist vera langt i
land með það að við fáum nýja
stöð. Við erum vist ekki næstir á
listanum með húsnæðisúrbætur.
Ibúafjöldinn i okkar umdæmi
vex ár frá ári og útköllin og
þeim málum sem við þurfum að
hafa afskipti af fjölgar einnig.
Okkar svæði nær yfir Hafnar-
förð, Garðabæ, Seltjarnarnes,
Mosfellssveit, Bessastaðahrepp,
Kjalarnes og Kjós. Alls eru starf-
andi þrjátiu og tveir lögreglu-
þjónar, þar af þrir i rannsóknar-
lögreglu og tveir á Seltjarnarnesi.
Bflakostur okkar er of litill, en
hinsvegar erum við nú að fá
mótorhjól fyrir svæðið.
Þá er það einnig til bót að við
erum að fá lokað fjarskiptakerfi
svipað og Reykjavikurlögreglan
hefur.
Það brýnasta er að fá stærra og
betra húsnæði, en það er ekki út'-
Iit fyrir að það fáist á næstunni.”
Að fengnum þessum upplysing-
um hjá Steingrimi og Ólafi skoð-
uðum við húsakynnin og Loftur
smellti i grið og erg — eins og sjá
má.
—F.R
Þannig eru skirteinin sem lög-
reglan hefur upp á vasann þegar
hún er óeinkennisklædd á þjófa-
vöktum.
stöðu til til þess að þrifa og gera
við þessa þrjá bíla sem við höf-
um eða til að geyma þá inni.
Viðtalsherbergið niðri sem
notað er til skýrslugerða og yfir-
heyrslna er óaðskilið frá varð-
stofunni þannig að þar heyrist allt
á milli.
t varðstofunni er fjarskipta-
sambandið, þannig að ekki er
hægt að taka við eða spnda skila-
boð i gegnum talstöðvarnar, án
þess að hver sem þarna er stadd-
ur heyri.
Bagalegust er þó hreinlætisað-
staðan. Það er aðeins ein snyrting
hérna til afnota fyrir alla, bæði
lögregluna og fanga sem hér
dvelja i lengri eða skemmri tima.
Baðaðstaða er engin, þannig að
gæsluvarðhaldsfanga verðum við
að keyra inn til Reykjavikur til
þess þeir komist i bað.”
Það er þröngt i varðstofunni hjá Garðari Gislasyni varðstjóra, eins og
raunar i húsinu öllu.
Þeir klippa líka
„Við höfum ekki kvartað
yfir aðs töðunni, enda mun
rýmra fyrir okkur þrjá i
þessum tveim herbergjum en
hjá lögreglunni ” sagöi Páli
Ingimarsson, bifreiðaeftirlits-
maður, er við litum við hjá
honum á leiðinni út I frelsiö
aftur.
„Það er fremur rólegur timi
hjá okkur núna, við erum ekki
byrjaðir á aðalskoðuninni.”
Oti á plani var sextán ára
gamall Volkswagen að enda
sinn feril. Eigendurnir höfðu
gert úrslitatilraun til að koma
honum í gegnum ’75 skoðun,
en ómar Zophaniasson kvað
upp dóminn og klippurnar fóru
á loft. — Það er nefnilega
viðar klippt en á miðunum.
— EB