Vísir - 26.04.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 26.04.1976, Blaðsíða 3
vism Mánudagur 26. april 1976 3 Eldur í húsi við Laugaveg Eldur kom upp i geymslu i húsinu viö Laugaveg 144 aö- laranótt sunnudagsins. Var slökkviliöió kvatt á vettvang um klukkan eitt. Fljótlega tókst að slökkva eldinn og skemmdir voru ekki teljandi. — EA. Tekinn fyrir að kaupa áfengi handa unglingi Maður var tekinn fyrir aö kaupa áfengi fyrir ungling á fösludaginn i áfengisverslun- inni viö Lindargötu. Töluvert er um þaö aö unglingar fái i'ulloröna til þess aö kaupa fyrir sig. Sá sem ætlaði aö kaupa viniö var rúmiega tvi- tugur. — EA. Bifreiðar í erfiðleikum í Heiðmörk Kólk sem ók upp f Ileiömörk á laugardaginn lenti í mestu vandræöum. Festist bfllinn og þurfti fólkiö aö ganga tals- veröa vegalengd.cftir aðsloð. Vegirnir cru slæmir þar uppfrá, en fólkið var á lillum fölksbil. Fjórir voru i bilnuin, allt fulloröiö fólk. Þegar bill- inn festist gekk fólkið vestur fyrir Vatnsenda frá svo- kallaöri lijallabraut. Fckk þaö siöan kranabil til aöstoö- ar. — EA. Tekinn á staðnum Maður var handtekinn i vörugeymslu versiunarinnar Víðis i Austurstræti i nótt. llafði batiii brotist þar inn og sjáiísagt ætlaö aö næla sér i eitthvaö. Þaö tókstþö ekki bet- ur en þetta. — EA. Áslysadeild eftir órekstur Arekstur varö á mótum Borgarbólsbrautar og Uröar- brautar i Kópavogi i gær. Lentu tvcir fóiksbilar þar saman um klukkan hálf þrjú. ökumaöur úr öðrum bilnum og farþegar úr báöum voru fiuttir á slysadeild. Bllarnir voru taisvert skemmdir. — EA. Dráttarvél stolið og rúða brotin Húöa var brotm i kaffistofu l'áks i Faxaborg f gærdag og þaðan var einnig stoliö dráttarvél. Fannst dráttarvél- in skömmu siöar en sökudólg- urinn eöa dólgarnir ekki. Dráttarvélin var óskemmd. — EA. SEX ÁRA DRENGUR VARÐ FYRIR BÍL OG LÆRBROTNAÐI 6 ára gamall drengur varð fyrir bil um klukkan eitt i gær- dag. Var ekið á hann í Suður- l'elli i Breiðholti. Drcngurinn var fluttur á slysadeild en þaöan á l.auda kotsspita la . Hunn mun liala lærbrolnaö. — EA. Kvartmílumenn reka ó eftir hraðakstursbraut: Frá hópakstri kvartmilufélaganna sl. laugardag. Nokkur fjöldi vélhjólastráka slóst meö i förina. — Ljósm: LÁ VILJA NOTA VORFIÐRINGINN TIL AÐ BYRJA AÐ BYGGJA „Það er vor aö færast i okkur, og við viljum fara að byrja sem fyrst á brautinni. Þessi hóp- akstur var aöeins til aö ýta á af- greiðslu málsins i kerfinu”. sagði örvar Sigurösson, for- maður Kvartmiluklúbbsins, i viðtali viö Visi. Kvartmíluklúbburinn fór hóp- akstur um götur Reykjavikur og nágrennis á laugardag, til aö reka á eftir kvartmilubrautinni sem klúbburinn hefur fengiö vil- yröi fyrir að fáist viö Geitháls. Kúmlega sjötíu bilar tóku þátt i akstrinum á vegum klúbbsins. Þetta voru allt félagar i klúbbnum. Þarna voru amerísk tryllitæki i meirihluta. „Við viljum nýta vor- fiðringinn i mönnum til að hefja byggingu brautarinnar. Það er mikið af kraftmiklum bilum á götum borgarinnar. Það væri leiðinlegt ef þeir færu að stunda einhvern hraðakstur. En bensinfóturinn vill verða þungur hjá sumum. Við verðum þvi að fá brautina sem allra fyrst”, og fá hraðakstur af götunum inn á þetta lokaða svæði”, sagði örvar. Kvartmiluklúbburinn hefur fengið munnlegt loforð um að fá svæði við Geitháls til að byggja kappakstursbraut. Brautin er einnig hugsuð sem æfingasvæði fyrir ökukennara og lögreglu - og jafnvel fyrir aðra starfsemi. Skipulagsdeild Reykjavikur hefur nú teikningar að brautinni til athugunar. Umhverfismála- ráð hefur þegat; fjallað um brautina og lagt blessun sina á hana. „Við byrjum á fram- kvæmdum við brautina sam- dægurs og við fáum grænt ljós á það. Borgaryfirvöld hafa verið velviljuð okkur og við teljum Tekur nœr hálfan mánuð að flytja vörurnar... Bildælingar eru heldur óhressir yfir þvi aö fá ekki fraktina nema á 10 til 12 daga fresti. Hefur svo gengið um hrfö aö frakt hefur að- eins fengist flutt meö skipum. Flugfélag islands flýgur á Pat- reksfjörð með farþega og vörur. Aöeins er skamma leið aö fara til Bildudals en samt sem áöur neit- ar Flugfélagiö aö taka frakt sem þangað á aö fara. Vængir hættu frá og með 14. mars að flytja frakt þangað, en þeir hafa flogið til Bildudals. Þaö sem hefur bjargað bildælingum er að flugvél frá Helga Jónssyni hefur flogið til þeirra með vörur. Þetta ástand er mjög bagalegt. Ekki sist fyrir þær hluta sakir að ekkert er enn hægt að flytja með flutningabil- um sakir ófærðar. Þó svo að ekki fáist flutt frakt til Bildudals með flugvélum, berst þangað póstur — og dagblöð fá bildælingar mað flugvélum. TEKINN I NOTT FYRIR AÐ STJÓRNA VÉLBÁTI ÖLVAÐUR Maður var tekinn i nótt fyrir að stjórna vélbáti undir áhrifum áfengis. öllu algengara er að menn séu teknir fyrir að stjórna öðrum farartækjum en vélbát- um ölvaðir, svo sem bilum. Svo var þó ekki i þetta skipti. Maðurinn var ásamt öðrum á bátnum, og var sá lika undir áhrifum áfengis. Höfðu þeir siglt frá Hvalfjarðarbotni til Reykjavikur. — EA okkur hafa sýnt og sannað með stofnun þessa klúbbs að það liggur full alvara að baki. Félagar i klúbbnum eru nú hátt á fjórða hundrað” sagði for- maður kvartmiluklúbbsins. liópaksturinn á laugardag var farinn i samráði við lögregluna. Ekið var um Reykjavik, fyrst i Vesturbæ, þaðan i Breiðholt, um Kópavog til Hafnarfjarðar- og endað við hótel Loftleiðir. Þar var yfir- mönnum umferðardeildar lögreglunnar boðið i kaffi. Fyrir framan hótelið mátti sjá lögregluþjóna á tali við félaga . Kvartmiluklúbbsins, ekki við að áminna þá, heldur að fræðast um farartækin, hestöfl. drif, dekk og fleira. Én að vonum voru tryllitækja- eigendurnir ekki mjög áfjáðir i að upplýsa um afrek sin á sviði hraðaksturs. „Lögreglan hefur verið alveg einstaklega hjálpsöm og félagar klúbbsins hafa fundið einlægan áhuga hennar til að koma málum okkar áfram” sagði Örvar Sigurðsson. —ÓH < AöalumboöiS Vesturveri Verzlunin Neskjör, Necvegi 33 Sjóbúðin viö GrandagarS B.S.R. Verzlunin Ro8i, Hverfisgötu 98 BókabúSin Hrlsateig 19 BókabúS Safamýrar Háaleitisbraut 58—60 Hreyfill. Fellsmúla 24 Paul Heide, Glæsibæ Hrafnista, skrifstofan Verzl. Réttarholt. Réttarholtsvegi 1 Bókaverzlun Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7 Arnarval. Arnarbakka 2 Verzl. Straumnes, Vesturberg 76 f KÓPAVOGI: Litaskálinn, Kársnesbraut 2 BorgarbúSin, HófgerSi 30 f GARÐABÆ: Bókaverzl. Grlma, GarSaflöt 16—18 í HAFNARFIRÐI: Skipstjóra- og stýrimannafélagiS Kári, Strandgötu 11 —13 SALA Á NÝJUM MIÐUM ER HAFIN, EINNIG ENDURNYJUN ÁRSMIÐA OG FLOKKSMIÐA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.