Vísir - 26.04.1976, Side 6

Vísir - 26.04.1976, Side 6
Mánudagur 26. april 1976 vjsœ ■v----------- Ródesía efst á blaði í Afríkuferð Kissingers Henry Kissinger, utanrikisráð- lierra Bandarikjanna og Julius Nyerere, forseti Tanzaniu hittast í annaðsinn i dag i höfuðborginni Dar Es Saiaam. Nyerere er einn harðasti gagnrýnandi stefnu Bandarikjanna i Suður-Afríku. Kissinger kom til Tanzaniu i gær, og hóf þá þegar viðræður við Nyerere. Kissinger kom frá Nai- robi, en þar hóf hann ferðalag sitt til sjö Afrikurikja. Ekkert hefur verið látið uppi um viðræður ráðherrans og for- setans. En utanrikisráðherra Tanzaniu sagði i hófi i gærkvöldi, að hann vonaðist til að heimsókn Kissingers veitti honum betri yfirsýn, svo að Bandarikin sneru ekki blinda auganu að ástandinu i Suður-Afriku þar til um seinan, og væru þá jafnvel röngu megin”. Ráðherrann bætti þvi við að frelsi yrði aðfá meö ofbeldi, ef það væri eina úrræðið. Viðræður Kissingers við afriku- leiðtoga virðast ætla að mestu leyti að snúast um Ródesiu. Talið er að Nyerere forseti Tanzaniu muni biðja Kissinger i dag um að stöðvainnflutning Bandarikjanna á krómi frá Ródesiu, og auka þrýsting á Suður-Afriku til að fullkomna efaahagsþvingunina sem Ródesia er beitt. Áður en Kissinger fór frá Nai- robi i Kenya, sagði hann að Bandarikin hefðu alls ekki i hyggju að veita frelsishreyfing- um svertingja i Ródesiu hernaðara ðstoð. Embættismaður i föruneyti hans mildaði þessa yfirlýsingu strax á eftir, með þvi að segja að ef reynslan yrði sú sama i Ródesiu og Angóla, mundu bandarikjamenn hugsa sig um tvisvar. Fréttaskýrendur skilja þetta svo, að ef svertingjar færu að berjast fyrir frelsi sinu í Ródesíu i mörgum deildum, og ein hreyfingin fengi aðstoö kommún- ista, mundu bandarikjamenn yfirvega að veita annarri hernaöaraðstoð. Kissinger fer frá Tanzaniu til POLITIKUSINN MR.POUT/GWM ...fer til Afríku Zambiu, þar sem hann mun m.a. eiga viðræður við Kennet Kaunda forseta. Likt og hjá starfsbróður hans i Tanzaniu, er Kaunda Ródesia ofarlega ihuga. Hann sagði igær, að eina úrræðið fyrir svarta þar væri nú að berjast fyrir frelsi sinu. Faro á svœða- mót í skók Stórmeistararnir, Jan Smejkal frá Tékkóslóvakiu, og Woifgang Uhlmann frá A- Þýskalandi, unnu sér rétt til að keppa á svæðamótinu sem undanfara heimsmeistara- keppnmnar, eftir að hafa teflt til úrslita við fjórða mann um réttinn. Þeir höfðu orðið jafnir i fyrsta sæti ásamt þriðja manninum, Andrash Adorjan frá Ungverjalandi. Fjórði stórmeistarinn var Drasko Velimirovic frá Júgóslaviu. — ! / GOCS To ^F^1C4 • . * , ....—r?——t 1 1,1 \ " ♦. ^ , >v" *-• VSÍI 4-21-76 -miÉMEtöa-J SKYRSLURNAR UM CIA BIRTAR I DAG Nefnd öldungadeildarinnar bandarisku sem hefur i eitt ár rannsakað misnotkun leyniþjón- ustunnar CIA á aöstöðu sinni, hef- ur i dag útgáfu á skýrslum sinum. Fyrsti hlutinn sem birtur verð- ur, fjallar um njósnir erlendis. A miðvikudag birtir nefndin skýrsl- ur um njósnir innanlands. Siðar verða birtar skýrslur um morðið á Kennedy forseta og tilraunir al- rikislögreglunnar FBI til að koma óorði á Martin Luther King. Búist var við að nefndin mundi hafna beiðni George Bush, for- stjóra CIA, um að ekki yrði upp- lýst hvað heildarútgjöld stofnunarinnar væru mikil. Get- gátur hafa verið um að rekstur CIA hafi kostað allt að 10 mill- jarða dollara á ári (um 1790 mill- jarða króna). Á lokuðum fundi með rann- sóknarnefndinni var talið að Bush mundi segja nefndinni, að opin- berun upphæðarinnar væri hættu- leg öryggi landsins. Allnokkuð hefur lekið út um efni skýrslnanna um rannsóknina á CIA og FBI. 1 þeim mun m.a. koma fram hvernig stofnanirnar notuðu blaðamenn i sina þágu. Nöfn blaðamannanna eða fjöl- miðlanna sem þeir vinna við verða ekki birt. Þá mun skýrslan einnig greina frá njósnurum CIA og FBI innan bandariskra háskóla og góð- gerðastofnana. Formaður rannsóknarnefndar- innar er öldungadeildarþing- rr»Q?viirinn Franlf r’hlirrh Ingmar Bergman leikstjóri og kona hans Ingrid fyrir utan hótel þeirra I Parls eftir komuna þangað frá Svlþjóð. Þar höfðu þau þó ekki langa viðdvöl, heldur fóru til Holiywood. ,Lœt hverjum degi nœgja sína þjáningu' — segir Ingmar Bergman í útlegðinni, bitur í garð skatta- yfirvalda í Svíþjóð Ingmar Bergman, sænski leikstjórinn, er farinn frá Svíþjóð, ósátt- ur við yfirvöld í heima- landi sinu, og kom hann til Hollywood i fyrra- kvöld. ,, Ég er sígauni, sem læt hverjum degi nægja sína þjáningu," sagði þessi 58 ára gamli svii, þegar blaðamenn spurðu hann um framtíðaráætlanir hans. Eftir árekstra við skattayfir- völd, handtöku og legu á sjúkra- húsi vegna taugaáfalls er Berg- man á leið til fundar við Dino de Laurentiis, italska kvikmynda- framleiðandann. Leikstjórinn kvaðst vera bú- inn að ná sér eftir sjúkraleguna. — „Það er allt í lagi með mig núna,” sagði hann. ,,Ég varð ofsareiður, en er búinn að ná mér.” Hann kvaðst ætla að hitta de Laurentiis að máli i dag, en / hvað morgundagurinn mundi bera I skauti sér fyrir hann, kvaðst hann ekkert vita um. — Blaðafulltrúi Bergmans, Paul Kohner, sagði, að Bergman ætl- aði að ræða við Laurentiis um gerð þriggja kvikmynda. Sú fyrsta á að heita „Egg nöðrunn- ar”. Bergman sagðist mundu fara til ttaliu i júni til að ræða við hinn italska starfsbróður sinn, Federico Fellini, um verk, sem þeir ætla að vinna saman. Kohner fulltrúi hans sagði, að Olof Palme, forsætisráðherra Sviþjóðar, hefði haft samband við Bergman um að snúa aftur heim til Sviþjóðar. — Um það vildi Bergman hinsvegar ekkert segja. t janúar siðasta, þegar Berg- man var að búa „Dauðadans- inn” eftir August Strindberg undir sýningu i Konunglega leikhúsinu, varhann handtekinn á vinnustað og fluttur til yfir- heyrslu hjá skattalögreglunni. Hann var ákærður fyrir skatt- svik. — Ákæran var felld niður siðar, en yfirvöld héldu þó fast við sinn keip um að hann skuld- aði skatt. Bergman fékk taugaáfall og var lagður inn á sjúkrahús. Fyrir nokkrum dögum skrif- aði hann opið bréf, sem „Ex- pressen” birti. Þar var hann mjög bitur og lýsti þvi yfir, að hann hefði ákveðið að yfirgefa Sviþjóð. Hann skrifaði, að sl.attamálið hefði opnað augu hans fyrir þvi, að „hver sem er, hvenærsem er i þessu landi get- ur átt yfir höfði sér slikar árásir og auðmýkingu af hálfu sér- staks skrifstofubákns, sem vex eins og krabbamein.” Hann bar sænskum skatta- yfirvöldum á brýn að reyna að prútta við hann um skatta sem hann ætti að greiða, og sagði, að þau væru að reyna að bjarga eigin andliti i deilunni. Sakaði hann embættismenn um að reyna að beita hann fjárþving- un. Bergman tilkynnti, áður en hann flaug frá Stokkhólmi til Parisar með konu sinni Ingrid, að hann mundi skilja allar eigur sinar eftir i Sviþjóð fyrir skatta- yfirvöldin að gramsa i, svo að hann yrði ekki sakaður um að fara i útlegð til þess eins að flýja skattana.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.