Vísir


Vísir - 26.04.1976, Qupperneq 8

Vísir - 26.04.1976, Qupperneq 8
8 VÍSIR Útgefandi: Iteykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Kitstjórar: Dorsteinn Pálsson, ábm. Ólafur Hagnarsson Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson Fréttastj. erl. frétta: Guömundur Pétursson Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guöfinnsson, Emilia Baldursdóttir, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Sigurveig Jóns- dóttir, Valgarður Sigurösson, Þrúður G. Haraldsdóttir. iþróttir: Bjöm Blöndal, Kjartan L. Pálsson. útlitsteiknun: Arnór Ragnarsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: James H. Pope, Loftur Ásgeirsson. Aglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 116G0 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Kitstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611.7 linur Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 50 kr. cintakiö. Blaðaprent hf. Ný sókn gegn brefum nauðsynleg • Breskum togurum, sem hér stunda rányrkju innan fiskveiðilögsögunnar, hefur fjölgað á ný eftir nokkurt hlé. Á sama tima eru birtar upplýsingar um allt að 20% aflarrýrnun á vetrarvertið frá þvi i fyrra — og var sú vertið þó með eindæmum léleg. Engum blöðum er þvi um að fletta, að mikið liggur við, að náð verði virkri stjórn á veiðunum hér við land. öllum má ljóst vera að það er megin- forsenda þess að við náum tökum á þeim miklu vandamálum, sem framundan eru i þessum efnum. Fundalotu hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna i New York fer senn að ljúka. Það er mat , islensku fulltrúanna, eins og t.d. Gils Guðmunds- sonar, að á ráðstefnunni hafi miðað i rétta átt, þó að slegið hafi i bakseglin. Ef til vill má segja með nokkrum sanni, að hér hafi verið bundnar of miklar vonir við árangur af störfum hafréttarráðstefnunnar. Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, sem nú situr ráðstefnuna, hefur t.d. nýlega vakið athygli á, að það sé mikill misskilningur, sem viða komi þó fram, að á haf- réttarráðstefnunni snúist allt um tsland. Ejólfur Konráð bendir réttilega á að svo !sé ekki, þvi miður. Þjóðirnar hugsa að sjálfsögðu fyrst og fremst um eigin hag. Lán okkar er hins vegar i þvi fólgið, að nægjanlega margir eiga svipaðra hagsmuna að gæta og við. En við verðum að horfast i augu við þá staðreynd, að á hafréttarráðstefnunni hefur — eins og raunar vænta mátti — verið reynt að takmarka verulega hugmyndir manna um 200 sjómilna meginreglu varðandi efnahagslögsögu. Óliklegt er þó að ihalds- sömustu kröfur þar að lútandi nái fram að ganga. Hans G. Andersén, formaður islensku sendi- nefndarinnar, hefur skýrt og skorinort bent á, að við getum aðeins sætt okkur við óskoraðan fullveldis- rétt strandþjóðanna yfir efnahagslögsögunni. Ef takmarkanir verða samþykktar á meginreglunni um 200 sjómilur, stöndum við verr að vigi en áður. Með flotaofbeldi hér við land hafa bretar stefnt að tviþættu markmiði. Þeir hafa fyrst og fremst verið að vernda breska veiðiþjófa. En i öðru lagi hafa þeir efnt til átaka hér til þess að geta sýnt fram á nauð- syn þess að alþjóðalegur gerðardómur leysi þrætur af þessu tagi. Engum vafa er þvi undirorpið, að mikilvægt er að binda breta þar til endanleg niðurstaða fæst á hafréttarráðstefnunni. Takmarkið með útfærslu landhelginnar er það fyrst og fremst að ná fullum yfirráðum yfir fiskveiðilögsögunni og stjórn á veiðunum hér við land. Við komumst sannarlega harla litið nær settu marki i þessum efnum með einhvers konar striðs- aðgerðum við breta. Það er rétt sem einn af skip- herrum landhelgisgæslunnar sagði, að til deilunnar hefði verið stofnað við skrifborð og þar eigi að leysa hana. Rikisstjórnin á að nota itök okkar erlendis til þess að þrýsta bretum til undanhalds. Við eigum þvi að efla sókn okkar á þvi sviði. Við eigum að sækja að bretum á þeim vettvangi, þar sem við erum sterk- astir fyrir. /—^ViWTíKTlV m Mánudagur 26. aprll 1976 visir Umsjón: Guömundur Pétursson > Tékkar vilja 18 tonn af stríðs- heim aftur gulli EN VERÐA AÐ GREIÐA FYRIR ÞAÐ NÆR JAFNVIRÐI GULLSINS Miklar birgðir af tékknesku gulli, sem nasistar rændu i siðari heimsstyrjöldinni, hafa verið i vörslu banda- rikjamanna siðan striðinu lauk. Tékkar hafa gert kröfu til að fá gullið aftur. Nokkrar likur eru nú taldar á þvi að samningar náist um hvernig gullinu skuli skilað. ^Bandarikjamenn fundu 18,4 tonn af gulli i Þýskalandi i striðslok, sem rænt hafði verið frá tékkum. Það hefur legið ljóst fy.rir að bandarikjamenn skiluðu þessu gulli fyrr eða siðar. En þeir hafa ekki viljað gera það nema með vissum skil- yrðum. Bandariskir kaupsýslu- menn sem hafa viðskipti við Tékkóslóvakiu, sjá sæng sina útbreidda ef gullinu verður skilað. Það mundi auka utan- rikisverslun tékka við Banda- rikin 'm.a. til mikilia muna. Vilja skaðabóta- greiðslur fyrir gullið I staðinn fyrir gullið vilja bandarikjamenn að tékkar greiði 2.630 bandarikjamönnum skaðabætur vegna eigna sem teknar voru af þeim i Tékkó- slóvakiu eftir að kommúnistar tóku þar völd eftir striðið. 1974 voru drög að samningi við tékka lögð fyrir bandariska þingið. En þingið hafnaði tillög- unum, þar sem þvi þótti banda- risku rikisborgararnir ekki fá nógu mikið fyrir sinn snúð. Samanlagðar kröfur um bætur hljóðuðu upp á 72,6 milljón dollara (13 milljarða islenskra króna). En tillögurnar gerðu ráð fyrir 20,5 milljón dollara (3,6 milljarðar króna) skaða- bótum, sem greiðast skyldu á 12 árum. Tékkar tapa á töfinni Eftir að þingið hafnaði samningstillögunni, hefur litil hreyfing verið i gullmálinu þótt fundir hafi verið af og til milli samningsaðila. Tékkar hafa a.m.k. i bili stórtapað á því að samningar náðust ekki strax, þvi að á þeim 2 árum sem liðin eru, hefur verðmæti gullbirgðanna lækkað úr 115 milljónum dollara (20,5 miiljarðar króna) niður i 75 milljón dollara (13,5 milljarðar króna). Þótt verðmæti heildarkrafna og gullbirgða sé nú nokkurn veginn það sama er óliklegt að tékkar gefi gullið upp á bátinn. Ljóst er að aldrei verður farið fram á að bótakröfurnar verði greiddar upp i topp. Gróðinn verður þvi tékka megin. Kröfuhafar bentu sérstaklega á það ákvæði samningstillagn- anna hvað greiðslurnar áttu að koma á löngu timabili. Frést hefur, að i þeim samningaviðræðum sem fram hafa farið undanfarnar vikur, hafi tekkar fallist á að greiða bótakröfurnar allar á einu bretti. Viðskipti milli landanna mundu aukast Bandariskir kaupahéðnar gera ráð fyrir að þegar af samning- um geti orðið, aukist viðskipti á milli Bandarikjanna og Tékkóslóvakiu. Þeir Ieggja þvi áherslu á að viðræður gangi hratt og komist verði að sam- komulagi. En til að viðskiptin verði sem liflegust, þarf enn eitt að koma til. Bandarikin verða að veita Tékkóslóvakiu hagstæðari tolla- kjör. Oliklegt er að það verði á þessu ári. Forsetakosningar eru framundan, og allar tilslakanir til austurs eru litnar óhýru auga. Þrjú kommúnistalönd njóta nú bestu viðskiptakjara sem Bandarikin veita — Pól- land, Júgóslavia og Rúmenía. Slðan i strlðslok hafa bandarikjamenn geymt tékkneska gullið bak við rammgerðar dyr. Nú eru talsveröar horfur á að samningar náist um að opna gættina og láta tékka fá aftur 18 tonn af gulli sem nasist- ar höfðu rænt frá þcim.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.