Vísir - 04.05.1976, Qupperneq 7
w
VISIR Þriöjudagur
4. mai 1976.
og Ótafur Hauksson
Blindi lœknirinn
Þetta áriö helgar alþjóöa heiibrigöisstofnun Sameinuöu þjóöanna bar-
áttunni gegn myrkrinu, blindunni, en þessi mynd segir ákveöna sögu
um þaö, hvaöa árangri baráttan getur náö, eftir aö maöurinn hefur
misst sjónina.
Þetta er prófessor Paul Hegstad I San Antonio I Texas, sem hefur veriö
blindur i átján mánuöi. Þessi læknir stundar sin störf engu aö siöur, en
þarf aöstoö rafeindatækja viö iestur bréfa.
KOSNINGA-
SKJÁLFTI Á
ÍTALÍU
að kristilegir demókratar verði
ekki i stjórn.
Að vfsu eru kommúnistar ekki
taldir hafa nógu sterkt fylgi til
þess að ná hreinum meirihluta.
En nýjustu skoðanakannanir
benda til þess, að þeim aukist
nógu mikið fylgi til þess að geta
myndað stjórn með stuðningi
einhvers litlu flokanna, og þá
likast til sósialistum.
Minnihluta samsteypustjórn
kristilegra demókrata sagði af
sér á laugardaginn, en áður höfðu
sosfalistar klofið sig frá henni i
ágreiningi um stefiiu flokksins i
fóstureyðingarmálum og efna-
hagsráðstöfunum.
Leiðtogar kristilegra
demókrata á italiu leita
nú ráða um, hvernig
þeir geti afstýrt sigri
kommúnista i þingkosn-
ingunum i næsta
mánuði.
Halda þeir fund i dag, þar sem |
lögð verða á ráðin um undir-
búning kosninganna og munu
þykja góð ráð dýr, þvi að i fyrsta
skipti i rúm 30 ár horfir til þess,
Þaö saxaöist á nauman
meirihluta Verkamannaflokks-
ins i neöri málstofu breska
þingsins, þegar einn þingliöa
flokks andaðist og annar hljóp
undan merkjum — John
Stonehouse, sem hér sést fyrir
utan dómhús i London, en vegna
réttarhalds i fjármáium hans,
gekk hann úr þingfiokknum og
iýsti sig utan fiokka.
Breska Verkamannaflokknum
tókst meö litlum mun i atkvæða-
greiöslu á þingi i gær aö halda
meirihluta i mikilvægri nefnd
sem hefur þaö hlutverk aö semja
reglugeröir viö lagafrumvörp.
Stjórnarandstaðan reyndi aö
koma þingmönnum Verkamanna-
flokksins úr meirihluta f nefnd-
inni á þeim forsendum að Verka-
mannaflokkurinn hefði ekki leng-
ur meirihluta á þingi, eftir að
þingrnaðurinn John Stonehouse
sagði sig úr þingflokknum, og
stofnaði sinn eiginn.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
fara reyndar fram á það að
Verkamannaflokkurinn gefi eftir
meirihluta sinn i öllum nefndum
þingsins vegna þessa.
Við atkvæðagreiðslu um málið
var aðeins sex atkvæða meirihluti
Verkamannaflokksins. Michael
Foot, forseti þingdeildarinnar,
lagði til að stjórnmálaflokkarnir
ræddu þessi mál nánar i ró og
næði.
Þrir breskir ráðherrar sem
vorustaddir i Brussel á fundi hjá
Ef nahagsbandalaginu, komu
heim sérstaklega til að greiða at-
kvæði i þessu máli.
Naumur meirihluti
o
breska Verkamanna-
o
fíokksins á þingi
Erfðaskrá
Hughes fyrir
dómstólum
Efri myndin er af Hughes áriö
1947. Neöri myndin var tekin I
Vancouver áriö 1972, þegar
Hughes dvaidi þar. En aldrei
hefur veriö staöfest að myndin
sé af Hughes.
Dómstóll i Los
Angeles i Kaliforniu
hefur nú til meðferðar
erfðaskrá þá sem talið
er að Howard Hughes
hafi skrifað, svo og
hvernig eignum hans
skuli ráðstafað á
meðan.
Noah Dietrich, fyrrum ráð-
gjafi og samstarfsmaður
Hughes, nú 87 ára gamall, kom
fyrir réttinn i gær. I erfða-
skránni sem fannst fyrir
nokkrum dögum gerir Hughes
hann að skiptaráðanda eigna
sinna.
Erfðaskrá þessi fannst á
skrifborði i skrifstofum Mor-
mónakirkjunnar i Salt Lake
City. Enginn veit hvernig hún
komst þangað.
Frændi Hughes, Richard
Gano, hefúr tekið að sér stjórn
eigna hans i Kaliforniu. En yfir-
völd þar hafa séð ástæðu til að
höfða mál til að svipta hann
yfirráðunum, á þeim forsendum
að hann sé ekki nógu skyldur
Hughes til að taka þetta verk að
sér.
Noah Dietrich taldi fyrst
þegar erföaskráin fannst, að
hún væri fölsuö. En eftir að hafa
séö hana, og rithöndina á henni,
segist hann viss um að hún sé
ekta.
Bruce Altman, borgarfógeti i
Los Angcles, upplýsti i gær að
rannsókn færi fram á glæpsam-
legu athæfi i sambandi við
erfðaskrá Hughes.
Lausmálgir undirmenn
Altmanns upplýstu fréttamenn
um að hér væri ekki átt við
erfðaskrána sem fannst fyrir
nokkrum dögum, og var skrifuð
1968, heldur aðra sem gerð var
1949. Fyrrum einkaritari
Hughes, Eleanor Rohrbeck
upplýsti um tilveru þeirrar
erfðaskrár, þvi hún sagðist á
sinum tima hafa* vélritað
uppkast að henni.
Heimsmeistara-
mótið í bridge:
Mulningsvél italanna
á heimsmeistaramót-
inu i bridge i Monte
Cario var stirö i gang,
en nú er skriður kom-
inn á hana. t upphafi
tapaði hún fyrir ísrael
í sitt vanasœti
ítalirnir
og dróst fyrstu þrjár
umferðirnar á eftir
hinum, en er nú komin
á sinn vanastað — I
fyrsta sætið.
t gærdag sigraöi hún banda-
riska stórveldið 17-3. meðan
komnir
Brasilia vann Hong Kong 16-4 og
lsrael tapaði fyrir Astraliu 2-18..
i nótt tapaði Israel aftur stórt,
eða 19-1 fyrir Bandarikjunum,
meðan ttalfa vann Hong Kong
20-11 og Astralla vann Brasiliu
13-7.
Viö þessi tvö stóru áföll hrap-
aði Israel niður úr efsta sæti i
það fjóröa, en sex umferðir eru
enn eftir og margt getur skeö.
Munurinn á efstu sveitunum er
afar litill, en staðan er þannig
eftii' fjórar umferðir: Italia 47,
Bandarikin 46, Astralia 44 1/2,
Brasilia 43, lsrael 39 og Hong
Kong 11 1/2. — Þessi hálfi hjá
Astraliu og Hong Kong er kom-
inn til vegna sektar, sem þær
sveitir fengu i innbyrðis leik
fyrir seinlæti.
Að loknu heimsmeistaramót-
inu um næstu helgi hefst strax i
Monte Carlo ólympiumót i
bridge sem sótt verður af 400
• bridgespilurum viðsvegar að úr
heiminum. Þátttökusveitir
verða alls 46.