Vísir - 04.05.1976, Side 13
vism Þriðjudagur 4. mai 1976.
Frœðslumynd í sjónvarpinu kl. 20:40: o
Hvernig mó draga
úr slysahœttu sem
vofir yfir börnum?
Ekki lengi að fara sér að
voða....
„ Að byrgja brunn-
inn” heitir dönsk
fræðslumynd sem er á
dagskrá sjónvarpsins i
kvöld. Þar er fjallað
um þá slysahættu sem
vofir yfir börnum, bæði
á heimilum og utan
þeirra og hvernig
draga má úr þessari
hættu.
þeim sem eiga litil börn eða
þurfa að gæta þeirra að kveikja
á sjónvarpinu klukkan tuttugu
minútur fyrir niu. —EA
Hér i Visi hefur nokkuð verið
fjallað um öryggi barna og þá á
heimilum. Oft vill það vera svo
að fólk áttar sig ekki strax á
þeim hættum sem fyrir hendi
eru, og þvi getur verið gott að fá
smá uppvakningu af og til.
A vissum aldri eru börn sér-
lega forvitin og þeir hlutir tæp-
ast til sem þau vilja ekki fá að
snerta á og þá jafnvel bragða á
lika. Og þá er ekkert grin að búa
svo um hreinsiefniog önnur slik
að þau geti náð til þeirra.
En víster að áróðurinn hefur
mjög mikið að segja, og þvi
bendum við fólki á, sérstaklega
Morgunstundin í útvarpinu:
Sogo sem sérstaklega
er fyrír allra yngsta
hlustendurna
— eftir mikinn
verðlaunahöfund
Ný saga hóf gang sinn i Morg-
unstund barnanna i morgun
„Stóra gæsin og Litla hvita önd-
in” heitir sagan og er eftir höf-
und sem hvað eftír annað hefur
hlotið verðlaun og viðurkenn-
ingar. Meindert DeJong heitir
hann.
Hann fæddist i Hollandi en
fluttist til Bandarikjanna átta
ára gamall. Þar hefur hann búið
siöan.
Árið 1938 kom sagan „Stora
gæsin og litla hvita öndin” út.
Bókin fjallar um þessa tvo á-
gætu fugla, gæsina og öndina.
Drengur nokkur sem aldrei er
kallaður annað en „stóri strák-
urinn” kaupir fuglana og gefur
móður sinni þá i afmælisgjöf.
Enekki eru allir tilbúnir til þess
að gera þá aö gæludýrum, þvi
afinn i fjölskyldunni hefur i
hyggjuaðéta þá á þakkarhátið.
En smátt og smátt ávinna fugl-
arnir sér virðingu og ást og
einnig hjá afanum. Þeim verður
þvi ætlað lengra lif.
Sagan er 14lestrar og er eink-
anlega við hæfi barna undir 6-7
ára aldri. Guðrún Birna
Hannesdóttir les en þýðandi
sögunnar er Ingibjörg Jónsdótt-
ir.
Meindert DeJong fékk meöal
annars H.C. Andersen verð-
launin árið 1962 fyrir ritstörf
sin.
Morgunstundin hefst eins og
venjulega klukkan korter fyrir
niu á morgnana. —EA
l.angar ykkur ekki að koma ein-
hverju á framfæri i sambandi við
dagskrá útvarps og sjónvarps?
Þurfið þið ckki að hrósa einhverju
cða þá að niildra út af öðru?
Við erum tilbúin til þess að taka
við þvi sem mönnum liggur á
hjarta og koma þvi á framf æri hér
á siðunni. Þaö eina sem gera þarf,
er að taka upp tóliö og hringja i
86611. Við hvetjum ykkur til þess
að drifa i þvi sem fyrst:
Meira af svona í
„Stundinni okkar"
D.E. hringdi: Að visu horfi ég ekki alltaf á
„Það var gott þetta hjá ykkur þessa barnatima sjónvarpsins,
umsjónarmenn Stundarinnar en þetta var á dagskránni i
okkar að sýna krökkunum siðasta barnatima. Ég vil endi-
hvernig þeir eiga að snúa sér ef lega biðja um meira af svona og
þau týnast i stórverslunum. Það þá er ekki verra að taka það upp
kemur ekki svo ósjaldan fyrir hér heima, eins og gert var i
að börnin lenda i vandræöum þessu tilfelli.”
þar.
Þriöjudagur
4. mai
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár” eftir Guð-
rúnu Lárusdóttur Olga
Sigurðardóttir les (20).
15.00 MiðdegistónleikarRalph
Holmes og Eric Fenby leika
Sónötu nr. 3 fyrir fiðlu og
pianó eftir Delius. Francis
Poulenc og Blásarakvintett
inn i Filadelfiu leika Sextett
fyrir pianó og blásara eftir
Poulenc. Pál Lukács & Ung-
verska rikishljómsveitin
leika Viólukonsert eftir
Bartók, Janos Ferencsik
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
17.30 „Sagan af Serjoza” eftir
Veru Panovu Geir
Kristjánsson les þýðingu
sina (4).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kvnningar.
19.35 Karlfyrsti StúartBrot úr ’
sögu Stúartanna i hásæti
Stóra-Bretlands i saman-
tekt Jóhanns Hjaltasonar
kennára. Jón örn Marinós-
son les þriðja og siðasta
hluta erindisins.
20.00 Lög unga fólksins Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 Að tafliGuðmundur Arn-
laugsson flytur skákþátt.
21.30 KórsöngurNorski kórinn
„Sölvguttene” syngur lög
eftir Orlando di Lasso, Ed-
vard Grieg, Kjell Mörk
Karlsen og norsk þjóðlög,
Thorstein Grythe stjórnar.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins Dr. Jakob Jóns-
son flytur fjórtánda erindi
sitt: Niðurlagsorð krist-
fræðinnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: ,,Sá svarti senuþjófur”,
ævisaga Haralds Björns-
sonarHöfundurinn, Njörður
P. Njarðvik, les (16).
22.40 Harmonikulög Henry
Haagenrud, Erik Tronrud,
Sone Banger o.fl. leiká.
23.00 Ahljóöbergi Claire
Bloom les tvær smásögur
eftir Guy de Maupassant i
enskri þýðingu, Merkið og
Demantshálsmenið.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
4. maí
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Að byrgja brunninn.
Dönsk fræðslumynd um þá
slysahættu, sem vofir yfir
börnum heima og heiman,
og leiðir til að draga úr
henni. Þýðandi og þulur
Stefán G. Jökulsson. (Nord-
vision-Danska sjónvarpið'.
21.10 Columbo Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Svanasöngur. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
22.40 Dagskrárlok.
Stúlka óskast til heimilisstarfa
vinnutimi eftir samkomulagi. Aðeins vön
og rösk stúlka sem getur unnið sjálfstætt
kemur til greina. Má ekki vera yngri en 20
ára.
Mjög gott kaup i boði fyrir röska og áreið-
anlega stúlku.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 6. mai merkt:
„Stúlka”.
Einkaritari óskast
Umsóknir~sendist skrifstofu minni fyrir
20. mai n.k.
Hafnarstjórinn i Reykjavik.