Vísir - 31.05.1976, Blaðsíða 7
Dóttir sendiherrans
kostaði 78 milljónir
Dóttur belgiska sendiherrans
i Mexikóborg var loksins sleppt
lausri úr prísund i fyrrinótt eftir
aö mannræningjar höfOu haldiö
henniírúma fjóra daga, meöan
veriö var aö safna lausnargjaldi
fyrir hana.
Ekki tókst aö safna nema um
helming fjárins sem
ræningjarnir kröfðust en þeir
létu sér það nægja.
Hinni 16 ára dóttur belgiska
sendiherrans, Nadine Chaval,
var rænt i misgripum fyrir föð-
ur hennar. Ræningjarnir héldu
að hann væri i bilnum sem
einkabilstjóri ók, en þá var það
Nadine á leið til skóla.
Frekar en að hafa ekki neitt
upp úr krafsinu, tóku
ræningjarnir Nadine og hótuðu
að drepa hana ef þeir fengju
ekki um 150 milljón króna
lausnargjald. Fjölskylda
Nadine treysti sér ekki til að
snara út nema litlum hluta fjár-
ins, og málið fékk svo á fööur
hennar að hann fékk hjartaslag
og þunglyndiskast.
Eiginkona sendiherrans fór
þá á stúfana til að útvega
lausnargjald, og vakti málið
mikla samúð. Háar fjárupp-
hæðir söfnuöust saman, frá
öðrum diplómötum, foreldrum
skólafélaga Nadine, og ýmsu
öðru fólki. Biðraðir mynduðust
viö heimili hennar, þegar fólk
kom þangað til að leggja eitt-
hvað af mörkum.
Samtals söfnuðust um 78
milljón krónur og féllust
ræningjarnir á að láta þær
nægja. En sólarhringur leið frá
þvi féð var afhent og þar til
Nadine var sleppt. Henni var
sleppt rétt viö tyrkneska sendi-
ráðiö, og ók sendiráðsstarfs-
maður henni heim til sin.
Nadine vildi ekki tala við
fréttamenn, sagðist vera þreytt
og miður sin. Hún var ómeidd.
Ræningjarnir segjast vera
félagar i fylkingu kommúnista
sem kennir sig við 23. septem-
ber, en þá létust allmargir bar-
áttumenn i bardögum viö lög-
reglu.
Lögreglan aðhafðist ekkert
meðan Nadine var i haldi, þar
sem mannræningjarnir hótuðu
að drepa hana ef hár yrði skert
á höfði nokkurs þeirra.
ráðstefnan“ setji
neysluvatn á oddinn
lifnaðarhætti i vanþróuðum
löndunum, þar sem ástandið er
verst vegna örrar fólksfjölgunar.
Samtök rithöfunda og visinda-
menn hafa notað tækifærið fyrir
setningu ráðstefnunnar og vakið
athygli á yfirlýsingu um nauðsyn
eftirlits með úrgangsefnum
kjarnorku og á að tryggja mann-
eskjunni skjól og vatn. Telja sam-
tökin það veröugt málefni fyrir
ráðstefnuna að fjalla um, enda
um að ræða lágmarks nauðþurft-
ir manneskjunnar i umhverfi
hennar.
1 þessari yfirlýsingu vekja
samtökin athygli á sólarorkunni i
leit mannsins að orkugjafa, sem
ekki sé mengandi. Vikið var að
byggðavandamálum eins og sölu
lands og bent sérstaklega á lóða-
verð i London, sem hefur hækkað
um 200% frá 1972 til 1975, og lagt
til, að hagnaður af lóðasölu ætti
aö renna að einhverju leyti til við-
komandi byggöalags.
Sérilagi var „Byggðaráð-
stefnan” hvött til þess að setja á
oddinn tryggingu fyrir hreinu
vatni i byggðarlögum eins og i
þriðja heiminum, þarsem barna-
dauðinn er hræðilegur og á að
miklu leyti rætur að rekja til
sjúkdóma, sem sprottnir eru af
heilsuspillandi neysluvatni.
Vilja, að „byggða-
Byggðaráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna, þar sem
f jallaðer meðal annars um
húsnæðisvandann, sem er
samfara íbúafjölgun
heims, hefst í Vancouver í
dag og mun standa næstu
tólf daga.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri, hefur lýst ráðstefnunni
sem einhverri þeirri mikilvæg-
ustu er Sameinuðu þjóðirnar hafa
staöið fyrir.
Fulltrúar nær 130 landa sækja
ráðstefnuna sem mun láta mikið
til sin taka íbúðarvandamál og
Martlia Mitchell og John
Mitchell á hamingjusælii dög-
uin.
Martha fékk
hjartaslag
Martha Mitchell fyrrum
eiginkona John Mitchell, sem
var dómsmálaráöherra I tlö
Nixonsstjórnarinnar á dögum
Watergatehneykslisins, var
lögö inn á sjúkrahús i gær, eftir
að hún haföi fengið hjartaslag.
Talsmenn Memorial-sjúkra-
hússins i New York sögðu, að
Martha hefði verið meövit-
undarlaus, þegar ' komið var
meö hana á sjúkrahúsið. Var
hún lögð inná gjörgæsludeild-
ina.
Martha Mitchell var tiðum i
forsíöufyrirsögnum bandarisku
stórblaðanna á meöan Water-
gatehneykslið kraumaði hvað
mest. Var hún i meira lagi
hreinskilin i yfirlýsingum viö
blaðamenn um vitneskju sina
varöandi störf eiginmanns
hennar, sem þá var. Eins var
hún ómyrk i máli um Richard
Nixon forseta. Siðar vildi hún
kenna Nixon um það, aö hjóna-
band hennar fór i hundana.
í janúar útskrifaðist hún af
sjúkrahúsi eftir tveggja
mánaða meöferö vegna bein-
krabba. Hefur hún siðan verið
annað veifið undir læknishendi.
18. mai skýrði lögmaöur
hennar i skilnaöarréttinum frá
þvi, að Martha væri alvariega
veik og gæti ekki framfleytt sér.
Fórhann þess á leit að Mitchell
fyrrum maður hennar greiddi
henni 36 þúsund dali til viðbótar
lifeyrinum, sem ákveðinn var
við skilnað þeirra.
Lögregla fjar-
lœgði lista-
menn
Lögreglan i Leningrad
hindraði hóp sevéskra
listamanna á laugar-
daginn i þvi að setja á
svið útisýningu, enda
hefði hún verið i trássi
við bann borgarstjórn-
ar.
Vestrænir fréttamenn i Moskvu
töluöu við eiginkonu Igors Sinya-
vins i sima i gær, og sagðist hún
hafa séð lögregluna fjarlægja sjö
listamenn, þegar þeir ætluðu að
færa upp sýninguna við múra
„Péturs og Páls-”virkisins. —
Maður hennar var einn þeirra,
sem stóðu að undirbúningi
sýningarinnar.
Sýningin átti að vera til
minningar um Yevgeny Rukhin,
einn af framúrstefnulistamönn-
um Sovétrikjanna, en hann fórst i
bruna á vinnustofu sinni fyrir
viku.
Frú Sinyavin sagði frétta-
mönnum, að maöur hennar hefði
verið nánast i stofufangelsi hjá
lögreglunni, eftir að hópurinn til-
kynnti, að þeir ætluðu sér að setja
upp sýninguna, þrátt fyrir bann
borgaryfirvalda.
Sinyavin sagði sjálfur á föstu-
daginn, að borgarráðsmenn hefðu
verið ómjukir i máli við lista-
mennina, þegar þeir sögðu, að
það yrði ekki af fleiri úti-
sýningum.
Upphaflega ætluðu 40 lista-
menn að taka þátt i sýningunni,
en kona Igors Sinyavins segir, að
einungis sjö þeirra hefðu komið,
og hefðu þeir allir verið leiddir
brott af lögreglumönnum.
Andófsmenn i Moskvu hafa lát-
ið i ljós grunsemdir um, að hinum
hafi verið varnað að fara að
heiman fremur en að þeim hafi
snúist hugur.
fyrir september-hefti tímarits-
ins á þessu ári. Atti myndin að
birtast i flokknum „Stúlkurnar i
Washington”. Hart hefur verið
lagt að þingmanni að segja af
sér þingmennsku vegna þessa
máls, þar sent stúlkan segist
hafa þegið laun af almannafé
fyrir greiðann.
Tókst að vekja athygli
Fréttaskýrendur telja að til-
gangur Elisabeth Ray meö þvi
að segjast hafa verið ástkona
þingmannsins Wayne Hays, hafi
verið sá að vekja á sér athygli.
Óhætt er að segja aö stúikunni
hafi tekist það. Nafn hennar
hefurbirst viöa, og nú siöast lét
Playboy timaritiö þessa mynd I
té, en myndin var tckin af Ray