Vísir - 31.05.1976, Síða 8

Vísir - 31.05.1976, Síða 8
8 VÍSIR Otgefandi: Iteykjaprent hf. Framkvænidastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: l>orsteinn Fálsson, ábm. Ólafur Kagnarsson Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson Fréttastj. erl. frétta: Guömundur Pétursson Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Emilia Baldursdóttir, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Sigurveig Jóns- dóttir, Valgarður Sigurðsson, Þrúður G. Haraldsdóttir. íþróttir: Björn Blöndal, Kjartan L. Pálsson. Útlitsteiknun: Arnór Ragnarsson, • Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: James H. Pope, Loftur Ásgeirsson. Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11(>60 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ititstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611.7 linur Askriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasöiu 50 kr. eintakið. Blaöaprent hf. FRJÁLS ATVINNUSTARFSEMI Stjórnmálamenn hafa lengi að þvi er virðist skammast sin fyrir að efla frjálst atvinnulif i land- inu. Það er eins og enginn þori að viðurkenna þá staðreynd að allt er undir þvi komið að atvinnu- fyrirtækjunum vegni vel. Jafnan hefur verið reynt að þrengja að frjálsri at- vinnustarfsemi á marga vegu. Hagnaður hefur verið bannorð á vörum stjórnmálamanna og þar af leiðandi hefur öll löggjöf verið sniðin með það fyrir augum að þrengja sem mest að atvinnufyrir- tækjunum. Rikisumsvifastefnan, sem allir stjórnmála- flokkar hafa fylgt fram að meira eða minna leyti, hefur einnig leitt til þess að rikisvaldið er að brjótast um i atvinnustarfsemi, sem eðli máls sam- kvæmt á að vera i höndum einstaklinga og félaga þeirra. Hér er um að ræða mjög varasama þróun. Rikið hefur þannig gripið inn i atvinnustarfsemi af öllu tagi. Það rekur útgerð og fiskvinnslu, ölgerð og matsölu, ferðaskrifstofu og vélsmiðju svo að nokkur dæmi séu nefnd. Allt er þetta starfsemi sem að réttu lagi á að falla fyrir utan rikiskerfið. Fjái inálaráðherra hefur nýlega varpað fram hugmynd um að rikið dragi sig út úr fyrirtækjum, sem þaö lieíur tekið yfir á erfiðleikatimum. Það er vissulega timabært að hreyfa hugmyndum af þessu tagi. Mestu máli skiptir þó að gera þær að veru- ieika. Hér hefur ekkert verið gert til þess að örva ein- staklinga til beinnar þátttöku i atvinnustarf- seminni. Almenningshlutafélög, sem risa undir þvi nafni, eru varla til hér á landi. Það er engu likara en stjórnmálamennirnir séu beinlinis andvigir þvi að hinn almenni borgari geti orðið eignaraðili að atvinnufyrirtækjum. Hér er búið þannig að fyrirtækjum að áhugi er að sjálfsögðu takmarkaður hjá almenningi að leggja fé i atvinnurekstur. Það fæst einfaldlega meira út úr þvi að verja peningunum til sólarlandaferða eða til kaupa á frystikistum. Hér er það spurningin um að eyða peningunum áður en verðbólgan brennir þá upp. Og menn mega hafa sig alla við i þvi efni. Stjórnmálamennirnir spyrja ekki að þvi, hvort það sé hagkvæmt fyrir þjóðarbúið að örva fólk til þess að leggja fjármuni i atvinnustarfsemi. Þeir eru einfaldlega á móti þvi að fólk geti notið arðs af slikri fjárfestingu. Þetta er eins konar trúarsetning. Flestum er þó ljóst, að það verður seint hægt að byggja upp skynsamlegan búskap i þjóðfélaginu, ef þessi hugsunarháttur á að ráða rikjum. Á þessu sviði þarf þvi að stokka upp spilin og leggja grund- völl að nýsköpun frjálsrar atvinnustarfsemi i land- inu. Engum hefur blandast hugur um, að fátt hefur tryggt betur fjárhagslegt sjálfstæði borgaranna en sú staðreynd, að hér búa fleiri i eigin húsnæði en þekkist með öðrum þjóðum. Við þurfum einnig að dreifa eignaraðildinni að atvinnufyrirtækjunum á fleiri hendur. Engum vafa er undirorpið að með þvi móti er ekki einvorðungu verið að styrkja atvinnu- starfsemina i landinu, heldur einnig lýðræðið. Hér er mikið verkefni fyrir þá frjáishyggjumenn i stjórnmálum, sem vilja og þora að beita sér fyrir nýsköpun atvinnulifsins. Feneyjar undir vinstri stjórn Léleg húsakynni Skortur á atvinnu er ekki eina ástæöan fyrir brottflutningum fólks. Húsakynni i Feneyjum eru yfirleitt léleg, og ný húsa- kynni bjóðast ekki. Umbóta áætlanir vinstri borgarstjórnarinnar þýöa þó ekki aö verndun minjanna veröi vanrækt. Frekar er ætlunin aö leggja jafn mikla áherslu á hvorutveggja, aö halda fólkinu og aö halda borginni. Til aö halda fólkinu eru m.a. ráöagerðir um aö rifa niður fátækrahverfi, byggja ný hús, byggjaskóla, almenningsgaröa, og skapa atvinnu. Þeir menn sem bera ábyrgö á áætlunum um endurreisn Fen- eyja eru allir vinstri menn, flestir kommúnistar. Samstarfiö viö kristilega demókrata, stjórnarandstöö- una, i borgarstjórn Feneyja, er nokkuögott, a.m.k. hvað varöar viðhald og endurbætur á fornum minjum og verðmætum húsum. Svipmyndir frá Feneyjum. Lltið hefur breyst á yfirboröinu eftir nlu mánaða stjórn kommúnista og vinstri manna I borginni, en mikiö er i bigerö. Myndir frá Feröaskrifstofunni Útsýn. Mánudagur 31. mai 1976.. VÍSIR Umsjón: ólafur Hauksson Kommúnistar og sósialistar hafa stjórnaö Feneyjum saman i niu mánuði. Þessi vinstri stjórn viröist ekki hafa breytt borginni mikið, a.m.k. hefur þaö ekki komiö fram aö ráöi, hvaö sem siðar kann aö veröa. Yfirboröið er það sama. Túristarnir ganga um göturnar, taka myndir, fá sér hressingu á útiveitingahúsunum, hlusta á hljómsveitir veitingahúsanna og slappa af. Gondólarnir liöa um sikin eins og alltaf áöur. Bar Harrys er eins útlltandi ogþegar Ernest Hemingway sat þar og sötraði vln, hástéttafólk kom þangað, og ameriskir feröamenn litu þar inn. Þetta sama fólk kemuráfram þangaö, og drekkur rándýrt viniö. „Borgarráö viröist gera betur en þaö slðasta.að minnsta kosti gerir það eitthvaö”, segir eig- andi veitingastaöarins, Arrigo Cipriani. Hrein vinstristjórn BorgarstjórnFeneyja er skip- uö 10 kommúnistum og sex sósialistum. Þessir flokkar hafa meirihluta i hinu 60 manna borgarráði. Borgarstjórinn er sósialisti, MarioRigo aö nafni. Hann segir að samstarf flokkanna tveggja sé gott. „Þetta er nokkurskonar sam- keppni, og hún er jákvæö, þvi allir keppa að þvi að gera sem mest til aö ná sem mestum vin- sældum”. Undir niöri telur kommúnistaflokkurinn sig samt eiga meiri rétt til að ráöa en sósialistar, vegna fleiri at- kvæöa. Þetta hefur vakiö nokkra andúö sósialista, sem vilja ekki sætta sig viö aö vera annars flokks viö stjórnun borgarinnar. Sá sem ræður öllu undir niöri er ekki borgarstjórinn, heldur varaborgarstjórinn, kommún- istinn Giovani Pellicani. Hann er einnig þingmaður. Áhersla á tvennt Borgarstjórn leggur aðallega áherslu á tvennt við stjórnun borgarinnar. Hún vill aö borgararnir séu vel upplýstir um hvað sé verið að gera, og hvað sé i undirbúningi aö gera, og aö borgararnir taki sem mestan þátt i ákvörðunum borgaryfirvalda. i ööru lagi tel- ur borgarstjóm rétt aö beina at- hyglinni frá þeim vandamálum sem viðhald minja borgarinnar er, og að þvi vandamáli aö halda fólkinu kyrru. íbúar Feneyja eru smátt og smátt farnir aö gera sér grein fyrir þvi, að ef takast á aö vernda hina sögufrægu staöi og byggingar borgarinnar, þá veröi eitthvað af fólki að vera eftir til þess. En fólksflótti frá borginni er númikill, og er þaö aöallega ungt fólk sem flyst burt, þvi þaö fær ekki atvinnu við sitt hæfi i Feneyjum. Vinslrimenn segja, aö þeir geri sér vel ljóst aö kannski verði borgin sokkin i sæ eftir hundraö ár. En þeir benda á aö þegar sá timi er kannski hálfnaöur, verði enginn eftir i borginni.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.