Vísir - 23.07.1976, Blaðsíða 8

Vísir - 23.07.1976, Blaðsíða 8
Föstudagur 23. júll 1976. VISIR Heiður Oddsdóttir Þó spókaði fólk sig ó miðjum Skólavörðustíg ,,Þetta eru aðallega gamlar ljósmyndir af Reykjavík, tcknar vitt og breitt um bæinn og við ýmis tækifæri”, sagði Óskar Gislason, ljósmyndari og kvik- myndatökumaður, þegar Vísis- menn litu inn á Kjarvalsstaði fyrirskömmu til að hitta hann að máli. Þar var Óskar önnum kafinn við að setja upp sýningu á ljós- myndum sinum, en hún opnar á morgun. „Myndirnar eru ekki allar minar” sagði Óskar. „Ég fékk lánaðar nokkrar gamlar fiimur af Þjóðminjasafninu eftir þá Sigfús Eymundsson, Pétur Brynjólfsson, Ólaf Magnússon og Magnús Ólafsson til þess að sýningin yrði sem heilsteyptust.” Elstu ljósmyndirnar á sýning- unni eru frá þvi um aldamótin, en þær yngstu teknar 1973, og gefur hún því góða hugmynd um hversu mjög bragur borgarinnar hefur breyst. Þarna getur að lita mynd- ir frá striðsárunum, heimsókn Churchill til Islands og afhjúpun styttunnar af Ingólfi Arnarsyni á Arnarhóli. Einnig eru myndir frá frostavetrinum mikla 1918, þegar höfnina i Rvik. lágði og aðrár, sem teknar voru við kvikmynd- un á „Sögu Borgarættarinnar” árið 1919. Fyrir um það bil sextiu árum tók Óskar mynd úr Skóla- vörðunni, sem sýnir Skólavörðu- stiginn eins og hann var þá! Arið 1973 tók hann aðra mynd til samanburðar, þá úr Hallgrims- kirkju, og er geysilega skemmti- legt að sjá hve breyting hefur orðið á þessu timabili. Hús hafa sprottið upp hér og þar eins og Óskar Gislason virðir fyrir sér salinn á Kjarvalsstöðum og veltir vöngum yfir þvi hvar best væri að koma ljósmyndunum fyrir. — Ljósm.Jens gorkúlur, bilar þjóta um götuna og enginn lætur sér detta i hug lengur að spóka sig á miðjum „stignum” eins og áður. Auk alls þessa eru nokkrar myndir af leik- urum, bæði hópmyndirúr revium og öðru þess háttar og einstakl- ingsmyndir. Var nemandi frægasta Ijósmyndara dana Óskar lærði fyrst ljósmyndun hjá Ólafi Magnússyni ljósmynd- ara. Siðan hélt hann til Kaup- mannahafnar til frekara náms og naut þar handleiðslu Effelt, fræg- asta ljósmyndara dana og braut- ryðjanda i kvikmyndun i Dan- mörku. Óskar hefur sjálfur gert margar kvikmyndir eins og flest- um er kunnugt. Viðamestar þeirra eru „siðasti bærinn i daln- um”, „Reykjavikurævintýri Bakkabræðra”, „Nýtt hlutverk” og „Björgunarafrekið við Látra- bjarg”. Hann hefur einnig tekið þátt i mörgum samsýningum með Ljósmyndarafélagi Islands. Ósk- ar sá um ljósmyndastofu sjón- varpsins um árabil. Ljósmyndasýningin verður op- in daglega frá kl. 14.00-22.00 oe stendur til 3. ágúst. — AHO Að glíma við sólina „Það kveður að nokkru leyti við nýstárlegan tón I myndun- um minum hérna, því að ég hef ekki málað kyrralifsmyndir siðan á skólaárunum” sagði Ragnheiður Jónsdóttir Ream, listakona, er Visir ræddi við hana i Norræna húsinu fyrir skömmu. Á morgun klukkan þrjú verð- ur opnuð þar sýning á verkum Ragnheiðar og tveggja annarra listamanna, Snorra Sveins Friðrikssonar og Hjörleifs Sigurðssonar. Þau sýna i boði Norræna hússins og verður þetta svokölluð „Sumarsýning” hússins. „Kyrralifsmyndirnar minar eru allar af ávöxtum eða kaffi- bollum eins og þú hefur kannski tekið eftir” hélt Ragnheiður áfram. „Mér finnst mjög lær- dómsrikt að mála sama hlutinn oft. Þannig sé ég hvað hægt er að fá mörg tilbrigði af sama stefi, til dæmis hvað unnt er að mála eitt litið epli á marga mis- munandi vegu.” Auk kyrralifsmyndanna eru nokkur stór landslagsmálverk eftir Ragnheiði á sýningunni. Ragnheiður stundaði listnám i fjögur ár við háskóla i Washing- ton. Hún bjó i Bandarikjunum i 25 ár en kom heim til tslands ekki alls fyrir löngu til þess að setjast um kyrrt. Hún hefur haldið margar einkasýningar, bæði hér heima og erlendis og tekið þátt i samsýningum. Siðast hélt Ragnheiður sýningu fyrir tveimur árum, og þá einnig i Norræna húsinu. „Þegar sól vermir jörð” nefn- ist flokkur oliumálverka eftir Snorra Svein Friðriksson. „Þegar ég mála vel ég mér oft- ast eitt ákveðið viðfangsefni” sagði Snærri. „1 þetta sinn varð sólin fyrir valinu, sólarform, haf, sandur og ýmis litbrigði út frá þvi. Slikt verður ekki af- greitt með einni mynd, og ég býst jafnvel við að ég haldi áfram að glima við sólina.” Snorri hefur haldið þrjár einkasýningar og auk þess verið á samsýningum, bæði heima og erlendis. Einnig hefur hann fengist við að gera veggskreyt- ingar, og hefur m.a. skreytt Oskjuhliðarskóla og Lands- bankahúsið á Akranesi. Hann starfar nú að gerð leikmynda fyrir sjónvarpið. „Ég býst við að náttúran sé einhvers staðar á bak við allar minar myndir” sagði Hjörleifur Sigurðsson, þar sem hann kúrði i stiga uppundir lofti og baukaði við að festa upp eina af mörgum vatnslitamyndum sin- um. „Ég hef málað mikið á japanskan pappir undanfarið og Sýning á verkum þriggja listamanna verður opnuð á morgun I Norræna húsinu. Það eru þau Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Hjörleifur Sigurðsson og Snorri Sveinn Friðriksson. Ljósm: Jens list að mörgu leyti vel á útkom- una. Ég keypti einhverntima nokkrar arkir af honum og fannst alltaf meira og meira gaman að nota hann.” Hjörleifur stundaði listnám i Sviþjóð, Noregi og Frakklandi. Sfna fyrstu sýningu hélt hann i Reykjavik árið 1952 og hefur sýnt oft siðan. Þegar við kvöddum þessa lif- legu þremenninga sögðust þau gjarnan vilja þakka forstöðu- fólki Norræna hússins fyrir að bjóða þeim að halda þessa sýn- ingu. „Það var mjög elskulegt” sögðu þau. — AHO „Lisl 1 © er. O o fioc V urra 5IU orð IU If Kees Visser, hollenskur listamaður frá Amster- dam, heldur um þessar mundir sýningu á verkum sínum i Gallerí SÚM. Sýning þessi er óneitanlega nokkuð sérkennileg og liklega hefðu ýmsir gaman af þvi að kikja inn og kynna sér han'a bet- ur. Þarna er m.a. verk sem lista- maðurinn nefnir „The Meta- physics of art with the feet on the ground”, og er það samsett úr þremur myndum og þremur speglum. Speglunum hefur verið komið fyrir undir myndunum rétt við gólf, og blasa þvi fætur sýn- ingargesta við er þeir ganga i sal- inn. Einnig eru ljósmyndir sem Kees hefur tekið af umhverfinu i vinnustofu sinni. Þá hefur hann látið taka mynd af sjálfum sér með einhvers konar grind á höfð- inu, sem komið er fyrir með mis- munandi hætti. Allt hefur þetta sinn tilgang, en honum er ekki auðvelt að lýsa, enda er sjón sögu rikari. A sýningunni getur enn- fremur að lita skilgreiningar nokkurra manna á list, m.a. Kees sjálfs: List er fjögurra stafa orð. „Þetta er þó að minnsta kosti satt” sagði hann þegar við rákum upp stór augu. Að sögn Kees hefur hann kynnst mörgum islendingum i Hollandi. Nokkrir þeirra buðu honum að koma til tslands og hann ákvað að slá tvær flugur i einu höggi og sýna hér verk sin i leiðinni. Sýningin stendur til 31. júli og er opin frá kl. 16.00-22.00 — AHO BÖLLIN Hótel Saga: Hljómsveit Arna Isleifs skemmtir i Súlnasal föstudag og laugardag. Lokað sunnudag. Glæsibær: Asar leika um helg- ina. Leikhúskjallarinn: Kjarnar skemmta föstudag og laugar- dag. Skiphóli: Hljómsveit Gunnlaugs Pálssonar leikur á föstudag og laugardag. Hótel Borg: Haukur Mortens skemmtir á föstudag, laugar- SÝNINGAR Listasafn: Sýning á verkum i eigu Listasafnsins eftir marga islenska listamenn. Hún er opin frá kl. 13.30-16.00. Þrastarlundur: Valtýr Péturs- son listmálari heldur sýningu á 50 oliumyndum. Opin næstu tvær til þrjár vikur. Vestmannaeyjar: Sýning i fé- lagsheimilinu á verkum Jóhönnu Bogadóttur. Opnar kl. 15.00 laugardag og stendur i fjóra daga. Norræna húsið: Þrir listamenn sýna verk sin i boði Norræna hússins. Það eru þau Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Hjörleifur Sigurðsson og Snorri Sveinn Friðriksson. Sýning á myndum og teikningum af dag og sunnudag. Sigtún: Pónik og Einar skemmta föstudags- og laugar- dágskvöld. Drekar leika fyrir gömlu dönsunum á sunnudags- kvöld. Óðal: Diskótek. Sesar: Diskótek. Röðuli: Stuðlatrió skemmtir á föstudags- og laugardagskvöd. Lokað sunnudagskvöld. Klúbburinn: Kjarnar og Lena skemmta föstudag og laugardag. Paradis og diskótek sunnudag. Tjarnarbúð: Kabarett á föstu- dag, Eik laugardag. gömlum islenskum torfbæjum. Kjarvalsstaðir: Jóhannes S. Kjarval, sumarsýning. Opið virka daga frá kl. 16.00-22.00 en helgidaga kl. 14.00-22.00. Lokað á mánudögum. Sýning á ljós- myndum Óskars Gislasonar. Hallveigarstaðir: Gisli Friðrik Jónsson frá Vestmannaeyjum heldur sýningu á verkum sin- um. Opnar á laugardaginn og stendur til 1. ágúst. Opið frá kl. 15.00-22.00. Forsalur Þjóðminjasafnsins: Sýningin „Islenskar útsaums- gerðir” er opin frá kl. 1.30-16.00. Menningarstofnun Bandarikj- anna: Sýning i tilefni 200 ára afmælisins. Galleri S(JM: Kees Visser, hollenskur listamaður frá Amsterdam heldur sýningu. Opin frá kl. 16.00-22.00.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.