Vísir - 23.07.1976, Blaðsíða 9

Vísir - 23.07.1976, Blaðsíða 9
9 VISIR Föstudagur 23. júli 1976. Spáin gildir fyrir laug- ardaginn 24. júli. Hrúturinn 21. mars—20. aprfl: Rifrildi i fjölskyldunni er það sem þú sækist sist eftir. Ef þú ferð ekki varlega og gætir tungunnar eru þó allar horfur á að þú komir einu sliku til leiðar. Sýndu öðru fólki gestrisni. Nautiö 21. aprfl—21. mai: Gættu þin á varhugaverðum til- lögum sem gætu haft miður góð áhrif á fjárhag þinn. Reyndu að vera börnum þinum eða öðru ungu fólki gott fordæmi. Tviburarnir 22. mai—21. júni: bú neyðist til að vera dálitið strangur/ströng ef þú vilt halda einhverjum aga. Taktu þó ekki á- kvarðanir sem miða eingöngu að þvi að bæta eigin hag og gera þér lifið sem léttast. Krabbinn 21. júni—23. júlí: Þú færð liklega heimsókn i dag. Reyndu að vera góður gestgjafi. Talaðu hreinskilnislega við ein- hvern sem þú hefur móðgað óvilj- andi. Bættu fyrir það með ein- hverju móti. Ljóniö 24. júlí—23. ágúst: Það verður einskær heppni ef þú kemst hjá þvi að lenda i alvarlegu rifrildi i dag. Þú ættir ekki að taka þér neitt fyrir hendur nema það sé bráðnauðsynlegt. Liklega neyðistu til að herða sultarólina örlitið á næstunni. Meyjan 24. ágúst—23. sept.: Það verður þér til góðs að halda þig sem mest heima við i dag. Reyndu hvað þú getur að bæta umhverfi þitt og styrkja sam- heldnina innan fjölskyldunnar. Vogin 24. sept.—23. okt.: Þú lendir i einhverjum erfiðleik- um. Reyndu að fara varlega i við- skiptum og starfi þessa dag- ana. Þú ert undir miklum þrýst- ingi frá yfirboðurum þinum. Það væri betra fyrir þig að starfa á eigin spýtur. Drekinn 24. okt.—22. nóv.: Þú hefur tilhneigingu til að taka lifinu rólega og liggja of mikið á meltunni. Það er mjög auðvelt að venja sig á slæma siði. Seinni hluti dagsins er best fallinn til að gera stórvirki. Leit Tarsans endaði nálægt dularfullu vatni þar sem hann fannbráð sina dauða og var stunginn eiturör. r Ccpr 1950 Edgar RiceBurroughs. Inc —Tm Reg US Pal OM \ Distr. by United Ftature Syndicate, hc. gat ekki barist gegn slimugu hendinni sem kom upp úr újupinu og tok tast um háls ____________ honum. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des.: Einhver hefur mikinn áhuga á að opna fyrir þér hjarta sitt og rekja raunirsinar. Þú verður liklega að taka þvi með umburðarlyndi svo lengi sem það gengur ekki út I öfgar. Steingeitin 22. des.—20. jan.. Keppinautar hafa áhuga á starf- inu þinu og þér er þvi eins gott að vera vel á verði. Reyndu að forö- ast að láta koma þér i klípu með svikráðum. Hafðu þó hemil á skapsmununum. Vatnsberinn 21. jan.— l!i. febr.: Nú er timinn til að notfæra sér hæfileika og dugnað manneskju sem þú þekkir. Reyndu að stuðla að góðri samvinnu fólks. Ræddu fjárhagserfiðleika þina við góðan vin. Fiskarnir 2». febr.—20. mars: Það gæti reynst mjög örðugt að hafa stjórn á hlutunum i dag. Annað fólk hlýðir reglum illa eða alls ekki. Láttu þó ekki freistast til að vanrækja þinar skyldur. KŒN<2______g-Q Í-III1I> IQQJJDQ <2QCim(0 :Q2Q §0Œ- - UQUiDQ- J-0)< tí -l<¥-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.