Vísir - 04.01.1977, Page 4
Hinir verða að
koma til Carters
Jimmy Carter, veröandi for-
seti Bandarikjanna, vill aö er-
lendir þjóöaleiötogar sæki hann
heim til Bandarikjanna, fremur
en aö hann taki sér ferö á
hendur á fund viö þá.
Hann segir, aö ekki komi til
greina utanferöir fyrstu
stjórnarmánuöi sina. Ekki einu
sinni til leiötogafunda.
1 viötali við Americus Times
and Recorder, þar sem hann
var spurður um möguleika á
leiðtogaráðstefnu fljótlega eftir
að hann tæki við embætti, sagði
Carter: ,,Ef það gæti orðið utan-
rikisstefnu okkar til góðs,
mundi ég að sjálfsögðu hlynntur
þvi.”
Hann benti á, að Brezhnev og
fleiri leiðtogar hefðu vakið máls
á þeim möguleika, ,,en ég vona,
að verði slik ráðstefna haldin,
þá verði það hér i Bandarikj-
unum. Eg vildi siður þurfa að
fara úr landi fyrst um sinn.”
Getgátur höfðu verið á lofti
um, að Carter hygðist fara til V-
Þýskalands með vorinu til þess
að hitta að máli Anwar Sadat,
egyptalandsforseta, og aðra
leiðtoga araba.
Blaðið átti viðtal við Carter á
heimili hans i Plains i Georgiu,
en þar segist hann koma til með
að verja þeim stundum, sem
hann verður ekki i Hvita húsinu
i Washington. — Það kom i ljós,
að Carter hefur þegar skipulagt
istórum dráttum vinnudag sinn
i Hvita húsinu. „Ég mun byrja
daginn snemma og verða
kominn i skrifstofuna fyrir
klukkan sjö á morgnana. Um
hádegisverðarbilið mun ég taka
mér hvild til þess að vera með
fjölskyldunni. Siðan mun ég lesa
mér til og taka svo aftur til við
vinnuna,” sagði hann.
Jimmy Carter er reiöubúinn til
viöræöna viö aöra leiötoga, — en
þeir veröa aö koma til hans, en
ekki hann til þeirra.
Richard Nixon, fyrr-
verandi forseta Banda-
rikjanna, hefur verið
boðið ásamt fjölskyldu
sinni að vera viðstaddur
athöfnina, þegar Jimmy
Carter sver embættiseið
sinn 20. janúar og tekur
við forsetaembætti.
Undurbúningsnefndin segir,
að þarna sé fylgt þeirri hefð að
bjóöa fyrrverandi forsetum að
vera við embættistöku eftir-
Richard Nixon, fyrrum forseti, hefnr haldiö sig aö mestu f einver-
unni i San Clemente i Kaliforniu, siöan hann iét af forsetaembætti
meö skömm.
manna sinna.
Talsmaður nefndarinnar vildi
ekki láta uppi, hvort boðið hefði
verið þegið eða ekki.
Þiggi Nixon boðið, verður það
fyrsta heimsókn hans til
Washington siðan hann fór frá
höfuðborginni 9. ágúst 1974 —
með skömm.
Auk Nixons var ekkjum fyrr-
verandi forseta Bandarikjanna
boðið að vera við embættistöku
Carters. Þær eru Mamie Eisen-
hower, Bess Truman, Lady Bird
Johnson og Jacqueline Kennedy
Onassis.
Fulltrúi palest-
ínuaraba myrt-
ur í París í gœr
Einn hinna róttækari
framámanna í þjóðfrelsis-
hreyfingu palestínuaraba
var skotinn til bana úti á
stræti í París, beint fyrir
framan bókaverslun, sem
hann rak i Latínu-
hverfinu.
Franska útvarpið sagði,
að Mahmoud Saleh hefði
verið hæfður tveim byssu-
kúlum og beðið samstundis
bana.
Saleh kom til Parisar á sinum
tima sem fulltrúi þjóðfrelsis-
hreyfingar palestinuaraba þar
(PLO). Fyllti hann i skarðið fyrir
Mahmoud el Hamchari, sem lét
lifið i bilasprengju i desember
1972. — Saleh heyrði til þeim fylk-
ingararmi PLO, sem ekki tekur i
mál að leysa Palestinuvandamál-
ið með samningum og vill ekki
fyrir neinn mun viðurkenna isra-
elsriki.
Nokkrum klukkustundum áður
en þessi tiðindi gerðust i gær,
hafði skrifstofa PLO i Paris gefið
út yfirlýsingu, þar sem bornar
voru til baka fullyrðingar isra-
elskra friðarsamtaka um, að PLO
hafi viðurkennt israel.
Saleh er sagður hafa verið
rikisborgari Mauritaniu, 35 ára
að aldri, og opnaði hann upplýs-
ingaskrifstofu PLO i Paris i april
1975. Hefur sú skrifstofa siðan
verið skotmark fjölda ikveikju-
sprengiárása.
Auk þeirra Saleh og E1
Hamchari hefur þriðji fulltrúi
PLO i Paris, dr. Basil Al-Kubaisi,
verið myrtur, en það var 1973.
Flugum-
ferð 76
jókst
1 Flugfélög á áætlunarleiðum
fluttu um 580 milljónir farþega |
á árinu 1976, eftir þvi sem
Alþjóða flugmálasamtök
Sameinuðu þjóðanna (IACO)
ætla.
Samtökin, sem hafa eftirlit
með þróun flugumferöar,
segja að farþega- og vöru-i
flutningar flugleiðis hafi
aukist um 10% á árinu. — Til
viðmiðunar skal þess getið, að
þessi aukning nam 5% á árinu
1975 og 6% á árinu 1974.