Vísir - 04.01.1977, Qupperneq 5
Watergate
ísroels knúði
einn róðherr-
ann til
sjólfsmorðs
Ríkisstjórn verka-
mannaflokksins i ísrael og
Rabin forsætisráöherra
bættist enn einn vandi á
herðar í gær, þegar einn
ráðherra stjórnarinnar,
Abraham Ofer, skaut sig
til bana.
I bréfi, sem Ofer lét eftir
sig, ber hann af sér allar
sakir sem á hann hafa ver-
ið bornar um sviksemi,
fjárdrátt eða mútuþægni.
Ofer fannst látinn i bifreið sinni
á ströndinni i Tel Aviv og virðist
hann hafa farið beint þangað af
fundi með Rabin forsætisráð-
herra, þar sem hann bað Rabin
um að fylgja fast eftir rannsókn á
spillingarákærum og hreinsa
nafn hans af öllum áburði.
Ofer hafði dregist inn i
hneykslismál, sem israelsk blöð
hafa hent mjög á lofti að undan-
förnu. Byggingarfélag, sem Ofer
eitt sinn stjórnaði, hafði átt hlut
að ólöglegri jarðarsölu, sem Ash-
er Yadlin, fyrrum framkvæmda-
stjóri sjúkrasamlags verkalýðs-
samtakanna. Histradrut, var
bendlaður við.
„Ég hef verið pyndaður, minu
blóði úthellt og saklaus hef ég
verið ákærður. Minn styrkur er
þorrinn og ég sé engan tilgang i
Rabin forsætisráðherra á I vök
hvert áfaliið á eftir öðru.
að halda áfram, jafnvel þótt sak-
leysi mitt sannist,” skrifaði Ofer i
sjálfsmorðsbréfi sinu.
Það höfðu komið fram háværar
kröfur um að viðskipti Ofers yrðu
rannsökuð. Hann veitti forstöðu
byggingarfélagi, sem mjög hefur
unnið við byggingaráætlun þess
opinbera. 1974 varð Ofer bygg-
ingarmálaráðherra og lét þá af
störfum fyrirtækis sins. Ofer var
náinn vinur Asher Yadlins, sem
dæmdur var i siðasta mánuði fyr-
að verjast — stjórn hans hlýtur
ir mútþægni, skattsvik og ólög-
legar jarðarsölur.
Stjórnarandstaðan hefur legið
stjórn Rabins vægðarlaust á hálsi
fyrir þetta „watergatehneyksli
Israels”, og hefur Rabin átt i vök
að verjast fyrir keppinautum sin-
um innn flokksins. En fréttaskýr-
endur telja, að eindrægni hans við
að láta lögregluna rannsaka mál-
ið til fullnustu og þátt æðstu em-
bætta i þvi, muni auka álit Rabins
að nýju.
Bílasprengja í
Beirút kost-
aði 24 lífíð
Hinn hægri sinna flokkur
falangista i Líbanon sagði
i morgun, að sprengjuárás,
sem gerð var á aðalskrif-
stofu flokksins i Beirút i
gærkvöldi, gæti kallað
fram hefndaraðgerðir.
I sprengingunni létu 24 lifið, en
50særðust, en svo öflug var hún,
að rúður brotnuðu i húsum 200
metra i burtu. — Skrifstofurnar
eru i einu fjölfarnasta stræti
austurhluta Beirúts, þar sem
kristnir menn búa.
Á að giska fimmtiu kilóum af
TNT-sprengiefni hafði verið kom-
ið fyrir i bifreið, sem lagt var
siðan i strætið hjá skrifstofunum.
— Flestir þeirra, sem fórust i
sprengingunni, brunnu inni i bif-
reiðum sinum, sem stóðu kyrrar
skammt frá.
Þetta er versta ofbeldisverk,
sem unnið hefur verið i höfuðborg
Libanon, siðan vopnahlé var gert
á borgarastyrjöldinni 15.
nóvember.
Falangistar gáfu i skyn, að þeir
hygðu á hefndir, en létu ekki uppi,
hverjum þeir kenndu tilræðið,
öðrum en „sundrungaröflum,
sem vilja viðhalda skálmöld-
inni”.
Aukning bíla-
Svetlana
Stalín
Svetlana, dóttir Stalins,
hefur upplýst, að hún
hagnaðist um eina
milljón dollara á útgáfu
beggja bóka sinna. En
heldur hef ur henni búnast
illa, því að eftir er ein-
ungis fimmtungur þess
fjár, eftir því sem fram
kemur í Lundúnablaðinu
Daily Telegraph.
Blaðið birtir langt viðtal við
Svetlönu, sem nú er fimmtug
orðin, og býr i fimm herbergja
einbýlishúsi i Kaliforniu. Við-
talið var i tilefni þess, að tiu ár
eru liðin frá þvi að hún fluttist
frá Sovétrikjunum. — Hjá
Svetlönu er fimm ára dóttir
hennar.
Svatlana segist hafa tapað
mestu af bókartekjum sinum i
tilraun sem hún gerði til
sveitarbúskapar, meðan hún
var gift bandariskum arkitekt.
Þetta er fyrsta viðtalið, sem
hún veitir i mörg ár. Hún setti
þó að skilyrði, að heimilisfangi
hennar yrði ekki ljóstað upp.
„Ég ann Kaliforniu og mann-
lifinu hér. Ég sé ekki eftir þvi að
fara frá Rússlandi,” er haft
eftir Svetlönu i blaðinu.
framleiðslu
Þrjár stærstu bila-
verksmiðjur Bandarikj-
anna framleiddu 26%
fleiri bila á árinu 1976 en
árið áður, samkvæmt
þeim tölum, sem verk-
smiðjurnar hafa gert
kunnar.
Heildarfjöldi framleiddra bila
hjá General Motors, Ford og
Chrysler árið 1976 var 8.524.569,
en var 6.651.293 árið 1975, enda
undir oki oliukreppunnar þá.
Mest var framleiðsluaukningin
hjá Chrysler eða 35.6%, enda var
mánaðarlangt verkfall hjá Ford-
verksmiðjunum i september. —
Aukningin hjá General Motors
nam 32,9%.
Gamlárskvöld
Þessi skemmtilega mynd var
tekin á gamlárskvöld yfir bæinn
Miexbach i Vestur-Þýskalandi,
þar sem menn eins og viða.
annarsstaðar fögnuðu áramót-
unum með flugeldum og tilheyr-
andi.
Fangelsismálin vekja úlfúð á
Ítalíu eftir strok 13 fanga
Pólitískt moldviðri þykir
liklegt til þess að fylgja í
kjölfar þrettán refsifanga,
sem sluppu úr Treviso-
fangelsinu á Italíu i fyrri-
nótt og léku enn lausum
hala í morgun.
ttalska lögreglan setti þó himin
og jörð úr jafnvægi i gær við að
leita strokufanganna, sem tekið
höfðu sjö fangaverði sem gisla,
brotist inn i vopnabúr fangelsis-
ins og tekið þaðan hriðskotabyss-
ur og neytt verðina til þess að
opna þeim útgönguleið úr
fangelsinu.
Strokufangarnir komust siðan
leiðar sinnar með þvi að stöðva
bila óbreyttra borgara og aka
þeim sjálfir. Bilarnir fundust
siðan yfirgefnir, en fangarnir á
bak og burt.
Fangelsisstjórinn i Treviso
sagði i gær, að hann hefði marg-
sinnis á undanförnum mánuðum
kvartað við dómsmálaráð-
herrann undan mannfæð við
vörslu fanganna.
t fangelsi i Feneyjum gerðu
fangar uppreisn og urðu verðir og
lögregluliðsauki, sem barst, að
skjóta af byssum sinum til að
hindra fangana i að opna fang-
elsishliðin og strjúka. — I
fangelsinu i Cuneo tóku tveir
fangar, sem liggja undir morð-
ákæru, tvo verði og ógnuðu þeim
með hnifum, meðan þeir kröfðust
ess að hitta að máli dómara til
ess að fá mál sin tekin fyrir.
Rúmlegar helmingur þeirra,
sem sitja i fangelsum ttaliu, biða
eftir þvi að réttarhöld hefjist i
málum þeirra.
Lögreglumenn á ttaliu efndu
nýlega til mótmælagöngu til þess
að vekja athygli á þvi, hve af-
brotamennirnir, sem þeir hafa
handsamað, eiga auðvelt með að
strjúka úr hriplekum fangelsum