Vísir - 04.01.1977, Blaðsíða 9
9
VISIF Þriðjudagur 4. janúar 1977
Skuttogarar a Vestfjaroamiðum:
Með ó annað hundrað tonn
eftir nokkurra sólarhringa veiði
Afli á Vestfjarðamiðum hefur komu inn til Isafjarðar til að strax, eftir hádegi á þriðja í jól- annan veg. hádegi,enaðrir sem komu seinna
veriðmeðmiklum ágætum'nú um sækja þangað fs. Þurfti ennfrem- um. 1 fyrstu sögðu skipstjórarnir A örfáum sólarhringum fylltu inn á gamlársdag lönduðu ekki
hátiðirnar. Meðan minni ur að sækja Is til Bolungarvikur að aðeins heföi verið kropp, eins togararnir sig og komu inn með fyrr en i fyrradag. Eins og gefur
togararnir voru I landi yfir jólín, fyrir þá. og þeir orðuðu þaö. Var það álitið hátt á annað hundrað tonn á að skilja er þvi mikil vinna i
voru þeir stóru úti og mokfiskuðu. Minni togararnir, að minnsta að þeir hefðu misst af hrotunni gamlársdag. Sumir héldu á frystihúsunum við Djúp.
Var fiskiri svo mikið.að nokkrir kosti þeir vestfirsku, fóru út sem stóð um jólin. En það fór á veiðar þegar á nýársdag eftir —EKG
Banaslys voru
fœrrí í fyrra
en á árinu 1975
19 létust i umferðaslysum á
Islandi á siðasta ári, og eru það
mun færri en árið á undan, þeg-
ar 33 létu lifið i umferðaslysum.
Hafa þeir, sem látist hafa i
umferðaslysum hér á landi,
ekki verið færri siðan árið 1969,
en þá létust 12 i umferðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Umferðarráði er ljóst að fjöldi
meiri og minni háttar slysa i
umferðinni var mun minni á
siðasta ári en áriö á undan, en
árið 1975 var algjört metár hvað
banaslys i umferðinni snerti.
Þannig er t.d. fjöldi látinna i
umferðarslysum hinn sami i
fyrra og meðaltalið fyrir siðustu
11 árin.
Fjöldi þeirra Islendinga, sem
létust af slysförum á liðnu ári,
varð einnig minni en árið á und-
an, eða 73 i stað 83 árið 1975.
í fyrra létust 37 af völdum sjó-
slysa og drukknana, að sögn
Slysavarnafélags Islands, þar
af einn erlendis. Sambærileg
tala fyrirárið 1975 var 18, þar af
1 erlendis, og er þvi um veru-
lega fjölgun að ræða. 1 umferða-
slysum hérlendis létust 19, en 2
Islendingar létust i umferða-
slysum erlendis, þannig að
samanlagt fórst 21 Islendingur i
slikum slysum. Enginn fórst i
flugslysum i fyrra en 15 fórust i
ýmsum slysum.
Banaslysin urðu flest I mars i
fyrra, 13, og i júni, 10, en árið á
undan voru október og desem-
ber mestu slysamánuðimir.
A siðasta ári var 119 manns
bjargað úr lifsháska samkvæmt
skýrslu SVFI þar af langflest-
um, eða 32, úr eldsvoða i landi. I
yfirliti frá Slysavarnafélaginu
kemur fram, að 23 var bjargað
frá hrapi, byltu eða undan fargi,
19 frá drukknun i höfnum eða
við land og 17 frá drukknun á
rúmsjó.
I þessum tölum eru þó ekki at-
burðirnir 29. desember, þegar
um 200 manns voru fluttir úr
stórhýsinu að Æsufelli 2 i
Reykjavik, og 14 var bjargað úr
ibúðarhúsi í Hafnarfirði, þegar
kviknað hafði i þvi. Ef þessum
hópum er bætt við, hefur rétt
innan við 340 manns verið
bjargað úr lifsháska á liðnu ári.
—ESJ.
Þuriöur Björnsdóttir verður.. sundlaugarvöröur i nýju sundlauginni. Hér sést hún oe i bak-
sýn getur að lita listaverk þeirra Hildar Hákonardóttur og Þor bjargar Höskuldsdóttur.
Ljósmynd V'Isis' Loftur.
Sundlaug fyrir
krakkana í Breiðholti
Innisundlaug sem ætluð er til
sundkennslu barna i barnaskól-
um Breiðholts var tekin i notkun I
gær. Sundlaugin er 7,5x12,5 metr-
ar að stærð. 1 húsinu eru einnig
gufuböð ásamt sturtuböðum og
hvildarherbergjum.
Sú bygging sem nú hefur verið
tekin I notkun er hluti af annarri
stærri. Fyrsta áfanga er þegar
lokið. I honum er iþrótta- og fót-
boltavöllur.
Innisundlaugin var I öðrum
áfanga. Ennfremur er gert ráð
fyrir að byggja i sama áfanga
Útisundlaug, að stærð 12,5x25
metrar, ásamt framtiðar bún-
ingsaðstöðu fyrir laugarnar báö-
ar svo og steypiböðum þurrkher-
bergjum og fleira. Þegar hefur
verið hafist handa viö þessa
byggingu.
í lokaáfanga iþróttamannvirkj-
anna verður Iþróttasalur 22x44
metrar ásamt búningsherbergj-
um. Þá verður ennfremur byggö-
ur aðalinngangur i byggingarnar.
I innisundlauginni nýju sem
vigð var i gær er listaverk sem
gert er úr brenndum leirflisum.
Þorbjörg Höskuldsdóttir og
Hildur Hákonardóttir unnu það.
Sveinbjörn Sigurðsson var
byggingarmeistari hússins. Aætl-
aður kostnaður við byggingu allra
áfanganna er 350 milljónir.
—EKG.
OLÍUGEYMAR
FLUTTIR FRÁ
ELLIÐAÁNUM
Borgarráð hefur ákveðið að
.láta flytja tvo oliugeyma sem
standa á bakka Elliðaánna
upp í brekkuna, þar sem kart-
öflugey mslurnar eru. Þar
veröur svo byggð varnarþró,
svo sem reglur segja til um.
Ingólfur Agústsson hjá
Landsvirkjun sagði Visi i
morgun að geymarnir væru
taldir óheppilega staðsettir,
þvi hætta væri á mengun ánna
ef þeir færu að leka.
Hvor geymirinn um sig tek-
ur 1800 lestir af oliu.
ÓT
Fiskverð
hœkkað
Fiskverð hefur verið
hækkað frá og með ára-
mótum. Þorskur hækkar um 9
prósent. Verð á ufsa og karfa
hækkar minna, en verð
annarra tegunda meira
þannig að meðalfiskverðs-
hækkun verður yfir 9 prósent.
Verðið var ákveðiö af odda-
manniog fulltrúum seljenda i
yfirnefnd verðlagsráðs
sjávarútvegsins. Fulltrúar
kaupenda voru á móti. Hið
ný ja fiskverð gildir til 30. júni.
______________—EKG
Gólfteppi
VERÐLÆKKUN
Við höfum nú egar lœkkað allar
gólfteppabirgðir okkar vegna
10% tollalœkkunar 1. janúar
Stórkostlegt úrval gólfteppa
í öllum verðflokkum
óvallt fyrirliggjandi
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs
árs um leið og við þökkum
ánœgjuleg viðskipti á liðnu ári
^JnnréWr^
SÉRVERZLUN MEÐ GÓLFTEPPIj
Grensásvegi 13,
simar 83577 — 83430.